Morgunblaðið - 20.04.1988, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20.,APRÍL1988
VERKFOLL VERSLUNARMANNA YFIRVOFANDI
Fjölmiðlar og
sjúkrastofnanir
fá undanþágu
Anna Halla Jóhannesdóttir, Stefán Daníelsson og
með átta ára dóttur sina, Jóhönnu.
Sigrún Jóhannsdóttir og dóttir hennar með viku
nauðsynjar fyrir fjögurra manna fjölskyldu, hund
og kött.
Gí furlegar annir í
matvöruverslunum
MIKLAR annir voru í matvöru-
verslunum á Reykjavíkursvæð-
inu í gær. Er blaðamenn litu við
í Kringlunni seinnipartinnf gær
var gífurlegur fjöldi fólks og
greinilegt að flestir keyptu mikið
magn af nauðsynjavörum. Al-
gengt var að sjá hjón með þrjár
eða fjórar fullar innkaupakörf-
ur.
Karl West verslunarstjóri hjá
Hagkaupi sagði að gífurlegar annir
hefðu verið í versluninni á mánudag
og þriðjudag en kvaðst búast við
að fyrst mundi keyra úr hófi í dag.
„Við eigum ennþá til allar vöruteg-
undir og hér verður unnið fram á
nótt við að fylla í hillur." Verslanir
í Kringlunni hafa að jafnaði verið
opnar til klukkan 19 á miðvikudög-
um og sagði Karl West að engar
formlegar athugasemdir hafí verið
gerðar við það, þótt heyrst hafí að
VR hyggist ganga fram í því að
stórmarkaðir loki klukkan 18.30 í
dag. „Við munum reyna að halda
hér opnu til klukkan 19 ef okkur
verður það fært en eftir það er
verkfallið skollið á hvað okkur varð-
ar,“ sagði Karl. Hann kvaðst ekki
reikna með löngu verkfalli.
„Ég keypti ýmsar nauðsynjar
fyrir rúmlega tíu þúsund krónur,"
sagði Sigrún Jóhannsdóttir, sem
ásamt dóttur sinni var á leið út úr
Kringlunni með tvær fullar inn-
kaupakörfur. Sigrún er með fjóra
í heimili. Hún kvaðst ekki eiga von
á löngu verkfalli. „Það mætti segja
mér að það yrði tæp vika," sagði
hún.
Reikna með löngu verkf alli
„Ég reikna með löngu verkfalli,"
sagði Anna Halla Jóhannesdóttir.
Hún sagði að eftir fréttum að dæma
væru samningar ekki í sjónmáli í
verslunarmannadeilunni og því væri
vissara að hafa varann á og kaupa
inn nauðsynjar eftir því sem fjár-
hagurinn leyfði.
STARFSMONNUM á fjölmiðl-
um var veitt undanþága frá
verkfaUi VR á fundi verkfalls-
stjórnar VR í hádeginu í gær.
Munú því dagblöðin halda
áfram að koma út þrátt fyrir
verkfall. Pétur A. Maack hjá
VR sagði að félagið teldi rnikil-
vægt að upplýsingum væri miðl-
að til félagsmanna og alls al-
mennings ef til verkfalls kæmi.
Þá var nokkrum sjúkrastofnun-
um einnig veitt undanþága, en
apótekunum ekki.
Meðal þeirra heilbrigðisstofnana
sem fá undanþágu frá verkfallinu
eru Elli- og hjúkrunarheimilið
Grund, Læknasetrið, og sjúkrahót-
elið Hótel Lind. Beiðni frá Apótek-
arafélagi íslands um að hafa apó-
tekin opin var hins vegar hafnað.
Ástæðan fyrir því er sú, að sögn
Péturs A. Maack, að verkfallið
stöðvar ekki nætur- og helgidaga-
vörslu apótekanna, sem lyfjafræð-
ingar og apótekarar sjá um, og því
getur nauðsynleg lyfjaafgreiðsla
farið fram þrátt fyrir verkfallið.
Mikill fjöldi umsókna um undan-
þágu frá verkfallinu liggur enn
fyrir hjá VR, en að sögn Péturs
Á. Maack er verkfallsstjómin
„mjög íhaldssöm“ á veitingu und-
anþága.
Try ggingaf élög;
Símsvari tek-
ur við bíla-
tryggingum
„VIÐ lokum á föstudaginn,"
sagði Sigurður Einarsson starfs-
mannastjóri Tryggingamiðstöðv-
arinnar. „Langflestir starfsmenn
okkar eru í VR.“ Sigurður sagð-
ist þó búast við að flest trygg-
ingafélögin hefðu símsvara á
línum fyrir bílasölur og -umboð
í gangi og þar verði því hægt að
kaupa tryggingar fyrir notaða
bOa fyrst um sinn.
„Þangað til kassettumar em
búnar ætti að vera hægt að hringja
inn bílatryggingar hjá mörgum fé-
lögum," sagði Sigurður Einarsson.
„En ég á ekki von á að hægt verði
að halda þeim gangandi, ef verk-
fall dregst á langinn, án þess að
það verði túlkað sem verkfallsbrot."
Innanlands- og millilanda-
flug stöðvast nær alveg
Flugleiðir stöðvast - óljóst með Arnarflug
Svana Guðjónsdóttir og Anna Pétursdóttir.
Vona að verkfallið
skili einhveiju
„ÉG vona að þetta verkfall skUi
okkur einhverju," sagði Svana
Guðjónsdóttir starfsmaður i mat-
vörudeUd Hagkaups. „Auðvitað
viljum við ekki fara í verkfaU
en launin og sérstaklega vinn-
utiminn er ekki fólki bjóðandi,'*
sagði Anna Pétursdóttir. „Við
viljum skikkanlegan vinnutima
og þokkaleg laun."
„Það getur enginn sagt að 42
þúsund í lágmarkslaun sé ósann-
gjamt. Álagið í þessum stórmörk-
uðum er ofboðslegt," sagði Svana.
Þær sögðust halda að verkfallið
myndi segja til sín strax eftir helgi
og ekki eiga von á að það standi
lengi. reiknuðu með að byija að
vinna aftur á miðvikudag, fimmtu-
dag. Þótt ég muni ekki eftir svona
gffurlegri ös hér áður, hvorki fyrir
jól né páska, þá er ég viss um að
fólk verður farið að vanta nauðsynj-
ar strax eftir helgi,“ sagði Anna
og Svana tók undir það.
Innanlandsflug Flugleiða
leggst alveg niður á föstudag,
ef tU boðaðs verkfalis VR kemur
og millUandaflug félagsins mun
leggjast niður á mánudag, en þá
leggja verslunarmenn á Suður-
nesjum niður vinnu ef ekki hefur
samist. Arnarflug hefur sótt um
undanþágu til VR, en ekki er
víst að flug á vegum félagsins
leggist algjörlega niður strax þó
Mj ólkursamsalan:
Pantanir
afgreiddar
áföstudag
Mjólkursamsalan mun í kvöld
taka við pöntunum frá þeim
verslunum sem opnar verða i
verkfalli verslunarmanna og
verður reynt að afgreiða pantan-
ir á föstudag. Að lokinni af-
greiðslu pantana mun dreifing
mjólkurvara stöðvast.
60-70 af 220 starfsmönnum fyr-
irtækisins eru í VR. Guðlaugur
Björgvinsson forstjóri Mjólkursam-
sölunnar sagði í gær að sér væri
ekki kunnugt um að VR hafí borist
beiðnir um undanþágur vegna
mjólkurdreifíngar til sjúkrastofn-
ana og bamafjölskyldna. Að sögn
hans hafa heilbrigðisyfirvöld venju-
lega forgöngu um slíkar undan-
þágubeiðnir.
Guðlaugur sagði að meðan á
verkfalli stendur muni Mjólkursam-
salan keggja áherslu á að beina
mjólk frá viðskiptamönnum sínum
til annarra mjólkurbúa, til dæmis í
Borgamesi eða Selfossi, til að forða
hráefni frá skemmdum.
að hún fáist ekki. Nokkur minni
flugfélög munu halda uppi áætl-
unarflugi á meðan á verkfallinu
stendur og einnig verður hægt
að fljúga með Ieiguflugi.
Mikill meirihluti skrifstofumanna
hjá Flugleiðum er í VR og mun því
starfsemi félagsins önnur en flug
einnig liggja niðri að stórum hluta.
Hjá Amarflugi fengust þær upplýs-
ingar að enn væri ekki ljóst hvort
flug félagsins stöðvaðist alveg
vegna verkfallana. Amarflug hefur
sent beiðni um undanþágu til VR,
en henni hefur ekki verið svarað
enn. Kristinn Sigtryggsson, fram-
kvæmdastjóri Amarflugs, sagði
aðspurður að engar sérviðræður
stæðu yfir á vegum Amarflugs, en
Amarflug væri ekki í VSÍ og hugs-
anlegt væri að gerðir yrðu sérsamn-
ingar við starfsmenn félagsins ef
öll önnur ráð þryti.
Allt áætlunarflug leggst niður
hjá Flugfélagi Norðurlands á föstu-
daginn, en neyðar- og sjúkraflugi
verður sinnt áfram, auk þess sem
hægt verður að fljúga með leigu-
flugi. Flugfélag Austurlands mun
fljúga til Reylq'avíkur og á milli
staða á Austurlandi, en það flug
verður líklega á leiguflugsgmnni
og farpantanir verða að fara fram
beint í gegnum skrifstofu félagsins
á Egilsstöðum. Flugfélagið Emir á
ísafírði mun fjölga mjög ferðum
sínum ef til verkfálls kemur og
fljúga ijórum sinnum á dag til
Reykjavíkur i stað þrisvar á viku
áður. Auk þess mun flugfélagið
fljúga á milli staða á Vestfjörðum.
Fjölskyldiifyrirtæki
í fullum rekstri
REKSTUR fjölmargra verslana
mun lítið sem ekkert raskast
nema verkfall verslunarmanna
dragist á langinn. Ein þeirra er
Sunnukjör f Skaftahlfð. Verslun-
in er f eigu fimm systkina og
móður þeirra og standa einungis
3 f fjölmennu starfsliði utan fjöl-
skyldunnar.
Sigriður Einarsdóttir, ein eigend-
anna, sagði að mikið hafí borið á
að fólk hamstri hvers kyns vörur
en sagðist halda að ekki mundi
bera á vöruskorti að ráði, fyrstu
vikuna að minnsta kosti. „Við fáum
vonandi stóra mjólkursendingu á
föstudag og margar af minni heild-
sölum verða opnar í verkfallinu
þannig að ég held að þótt vöru-
merkjum fækki í hillunum ættum
við að geta boðið flestar vöruteg-
undir," sagði Sigríður.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sigríður Einarsdóttir í Sunnu-
kjör.