Morgunblaðið - 20.04.1988, Side 33

Morgunblaðið - 20.04.1988, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988 33 Bretland: Ágreiningur um heilaskurði vegna Parkinsons-veiki St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. TVEIR menn hafa þegið heila- frumur úr fóstrum, sem fjarlægð voru úr mæðrum sínum, til að vinna gegn áhrifum Parkinsons- veiki. Þetta var gert opinbert siðastliðinn laugardag og vakti þegar í stað deilur. EMward Hitchcock, prófessor í heilaskurðlækningum við háskól- ann í Birmingham, sagði í yfírlýs- ingu á laugardag, að þessi aðgerð hefði verið framkvæmd á sextugri konu og 41 árs gömlum manni 3. mars og 7. apríl síðastliðinn á sjúkrahúsi í Birmingham. Bæði voru haldin Parkinsons-veiki, sem hefur þau einkenni, að einstakling- urinn missir smám saman vald yfir hreyfíngum sínum. Læknirinn sagði, að þau hefðu sýnt greinileg batamerki og væru nú útskrifuð af sjúkrahúsinu. Orsök sjúkdómsins er talin vera skortur á boðefninu dópamín í hreyfísvæðum heilabarkarins. Að- gerðin, sem læknirinn fram- kvæmdi, felst í því, að teknar eru frumur úr lifandi fóstri, sem fram- leiða dópamín, og græddar í heila sjúklingsins. Vonast er til þess, að heilinn hafni ekki þessum frumum og þær framleiði nægilegt dópamín til að draga úr eða eyða einkennum sjúkdómsins. Þessi aðferð til að lækna Parkin- sons-veiki er ný. Vitað er, að henni hefur verið beitt við tvo sjúklinga í Svíþjóð og sömuleiðis tvo í Mex- íkó. Þessar tilraunir hafa farið hljóðlega til að koma í veg fyrir að vekja of miklar vonir um, að lækn- ing sé á næsta leiti. Tilraunir með dýr benda til þess, að aðgerðir af þessu tagi geti verið mjög áhrifarík- ar. Deilumar um þessar aðgerðir snúast annars vegar um, hvort þær beri tilætlaðan árangur. Andmæl- endur þeirra segja, að gera þurfí frekari tilraunir, sérstaklega á öp- um, og í tilraunum með rottur hafí komið í ljós ýmsir erfíðleikar, sem ekki hafí verið skýrðir enn. Frekari tilraunir verði að gera, áður en rétt- lætanlegt sé að framkvæma þessa aðgerð á mönnum. Siðleysi? Hins vegar telja andmælendur, að siðferðileg rök mæli gegn henni. Fóstureyðingar eru umdeildar á Bankar opnaðir í Panama: Viðskipti fóru frið- samlegafram Panamaborg, Reuter. BANKAR f Panama voru opnaðir á mánudag til að viðskiptavinir gætu lagt inn á reikninga sína. Bankastjórar höfðu óttast að við- skiptavinir myndu fjölmenna i bankana til að krefjast reiðufjár en ekki kom til mótmæla. Allt að þijátíu manna biðraðir mynduðust fyrir utan nokkra banka fyrir opnun um morguninn, en þeir fáu sem lögðu inn á reikninga sína sýndu stillingu. Tveir alþjóðlegir bankar tilkynntu að 15 til 20 við- skiptavinir hefðu lagt ávísanir inn á reikninga sína. „Leggi þeir að minnsta kosti inn ávísanir finnst þeim einhver hreyfíng í viðskiptun- um,“ sagði starfsmaður bankans. _/\uglýsinga- siminn er 2 24 80 Bretlandi. Það vakna spumingar um, hvað leyfílegt sé að gera við vefi úr fóstrum, sem hafa verið fjar- lægð úr móðurkviði. Þarf móðirin að gefa leyfí til notkunarinnar? David Alton þingmaður, sem bar fram frumvarp á síðastliðnum vetri um styttingu leyfílegs tíma til fóst- ureyðinga, telur, að aðgerðir af þessu tagi geti verið slæmt fordæmi þess að nota óæskileg böm sem varahluti í annað fólk. Siðanefnd breska læknafélagsins hefur látið semja reglur um þessa tegund aðgerða og mun ræða þær á fundi sínum í næsta mánuði. Sænskir læknar hafa samþykkt reglur af þessu tagi. í þeim er kveð- ið á um þrennt: Að fóstrið sé látið; að sjúklingamir séu aðgerðinni ekki mótfallnir; og að ekkert samband sé á milli frumugjafans og þess, sem fær frumumar. Þetta síðasta er til að koma í veg fyrir, að fóstur verði sérstaklega sköpuð til að framleiða frumur. tjaldabaki „Ungfrú Moskva“, fyrsta fegurðarsam- keppnin, sem haldin er í Rússl- andi, fórframi fyrrakvöld og eins og gengur er aðeins ein útvalin þótt margar séu kallaðar. Þessi stúlka varð að bita i það súra epli að komast ekki í úrslita- keppnina og tók hún þvi heldur þunglega eins og sjá má. essemm/sf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.