Morgunblaðið - 20.04.1988, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988
V estur-Þýskaland;
Dæmdur í 13 ára fang-
elsi fyrir mannrán
Dtisseldorf, Reuter.
HÆSTIRÉTTUR DUsseldorf
dæmdi í gær Líbanan Abbas
Ali Hamadi sekan um að hafa
skipulagt mannrán á tveimur
vestur-þýskum kaupsýslumönn-
um í Beirút i janúar á síðasta
ári. Hann var dæmdur í 13 ára
fangelsi og fékk þyngri dóm
en ákæruvaldið hafði krafist.
Hamadi var dæmdur sekur um
mannrán og tilraun til að þvinga
vestur-þýsk stjómvöld. Manriræn-
ingjamir höfðu krafist þess að
bróðir Hamadis, Mohamed Ali
Hamadi, yrði látinn laus úr fang-
elsi, en hann er sakaður um að
flugrán og morð.
Saksóknarinn hafði krafíst ell-
efu og hálfs árs fangelsisdóms
yfír Hamadi, en Hamadi var hins
vegar dæmdur í þrettán ára fang-
elsi. Mjög sjaldgæft er í Vestur-
Þýskalandi að dómar séu þyngri
en ákæruvaldið krefst.
Verður Bretland
útilokað frá þátt-
töku í OL í Seoul?
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frfmannssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins.
STJÓRN Alþjóða fijálsíþrótta- ríkisborgararétt fyrir fjórum árum
Reuter
Abbas Ali var í gær dæmdur í
þrettán ára fangelsi fyrir að
hafa skipulagt mannrán í Beirút.
sambandsins (IAAF) lýsti því
yfir siðastliðinn laugardag, að
breska fijálsíþróttasambandið
ætti að banna Zolu Budd að
taka þátt í alþjóðlegri keppni
næstu tólf mánuði, ella tæki
IAAF málið fyrir aftur.
Zola Budd er fædd og upp alin
í Suður-Afríku. Hún fékk breskan
Danir kjósa um stefnuna
í kjamorkuvopnamálum
Árósum. Frá Axel Pihl-Andersen, Reportagesfruppen.
í ANNAÐ sinn á átta mánuðum ganga danskir kjósendur að kjör-
borðinu, að þessu sinni þann 10. mai nk. Laust eftir hádegi í fyrra-
dag steig Poul Schliiter forsætisráðherra í ræðustól í þjóðþinginu
og boðaði það, sem allir áttu von á, nýjar kosningar vegna ágrein-
ingsins um stefnu Dana i kjarnorkuvopnamálum.
„Ríkisstjómin er einhuga um að
boða til þessara kosninga og vill
með þeim standa vörð um þá
stefnu, sem tryggir aðild okkar að
Atlantshafsbandalaginu," sagði
Schluter og boðaði sjálfum sér trúr
til kosninga með stuttum fyrirvara.
Opinberlega með tilliti til efna-
hagslífsins og stöðugleikans í
landinu en vafalaust einnig vegna
þess, að fastaráð NATOS situr nú
á rökstólum og forsætisráðherrann
vill láta það koma skýrt fram, að
það er hann, sem ákveður kosning-
amar, ekki bandamenn Dana inn-
an bandalagsins.
Óvenjulegar kosningar
Kosningamar nú eru óvenjuleg-
ar að því leyti, að þetta er í fyrsta
sinn frá árinu 1929, að kosið er
um vamarmál. Síðan borgaralega
fjórflokkastjómin með Schluter í
fararbroddi kom til valda árið 1982
hefur hún 23 sinnum lent í minni-
hluta á þingi í utanríkismálum.
Er ástæðan sú, að Radikale Vens-
Vantar teppiá stigaganginn ?
yy Þegar velja skal teppi á stigahús,
er ekki nóg að teppið sé bara mjúkt
og áferðarfallegt,það verðurað vera
hljóðeinangrandi og auðvelt í þrifum,
- teppi sem er brunaþolið
og teppi sem mun þola
hinn ótrúlegasta yfirgang
um ókomin ár. **
yy Þessi teppi eru til og
þú fœrð þau hjá okkur,
sérhönnuð teppi á
stigahús og skrifstofurM
.hjáokkur nágœðin[gegrf'
Teppaland * Dúkaland
Grensásvegi 13 - Símar 83577 - 83430
tre, sem jafnan styður stjómina,
snýst alltaf á sveif með jafnaðar-
mönnum Sósíalíska þjóðarflokkn-
um í þessum efnum.
Þingsályktunartillagan um
stefnuna í kjamorkuvopnamálum,
sem samþykkt var í síðustu viku,
var hins vegar dropinn, sem fyllti
mælinn. „Við höfum orðið að sætta
okkur við margar þingsályktanir,
sem smám saman hafa verið að
færa okkur fjær bandamönnum
okkar, en þessu munum við ekki
kyngja,“ sagði Schluter í ræðu
sinni í þjóðþinginu.
Kjarnorkuvopnamálin
Með þingsályktunartillögunni er
stjóminni gert skylt að skýra yfír-
mönnum á herskipum bandalags-
ríkjanna frá því bréflega, að kjam-
orkuvopn séu bönnuð i danskri lög-
sögu á friðartímum. Það er hins
vegar stefna NATO-ríkjanna að
gefa engar upplýsingar um hvort
slík vopn eru um borð í einstökum
skipum og Bretar og Bandaríkja-
menn segja, að nú sé ekki lengur
unnt að efna til flotaæfinga á
dönsku hafsvæði.
Bretar og Bandaríkjamenn hafa
brugðist mjög harkalega við sam-
þykktinni en Svend Auken, form-
aður Jafnaðarmannaflokksins,
heldur því fram, að ríkisstjómin
hafí pantað þessi viðbrögð. Hafa
jafnaðarmenn nú þegar hafíð kosn-
ingabaráttuna og ætla að heyja
hana undir slagorðinu „Danir ráða
sér sjálfír".
Kosningabaráttan nú einkennist
ekki síst af brigslyrðum þeirra
Schliiters og Aukens. Saka þeir
hvor annan um að ljúga til um
símtal, sem þeir áttu daginn áður
en þingsályktunartillagan var sam-
þykkt. Segir Schluter, að Auken
hafí fallist á, að þingsályktunartil-
laga stjómarinnar yrði tekin fyrir
fyrst og hefði hún þá verið sam-
þykkt því að radikalar voru sam-
mála báðum tillögunum.
Tillaga stjómarinnar var sam-
hljóða afstöðu Norðmanna en hún
er sú að skýra erlendum ríkis-
stjómum frá stefnunni í lcjamorku-
vopnamálum en fylgja henni ekki
eftir um borð í skipunum.
Það hefur raunar einnig haft
áhrif á ákvörðunina um kosningar,
að síðasta misserið hefur mikií
óeining verið innan stjómarinnar
og hún hefur ekki verið í stakk
búin til að fást við þá miklu erfíð-
leika, sem steðja að í efnahagsmál-
og keppti á Ólympíuleikunum í Los
Angeles fyrir Bretland. Þá töldu
ýmsir, að hún hefði fengið ríkis-
borgararétt óeðlilega hratt til að
hún gæti keppt fyrir Bretland á
leikunum.
Alla tíð síðan hefur hún verið
skotspónn þeirra, sem vilja þrýsta
á stjómvöld í Suður-Afríku með
því að banna íþróttamönnum það-
an að taka þátt í alþjóðlegum
mótum. Hún var sökuð um að
hafa tekið þátt í víðavangshlaupi
í Bragpan í Suður-Afríku á síðasta
ári.
Hún neitaði því, en sagðist hafa
verið viðstödd mótið og verið í
hlaupabúningi. Stjóm alþjóðasam-
bandsins breytti þá skilgreiningu
sinni á því, hvað það væri að taka
þátt í móti — að vera viðstaddur
keppni mætti skilja sem þátttöku,
og sagði, að Budd hefði brotið
gegn anda reglnanna um bann á
Suður-Afríku.
Hótunin um að taka málið upp
aftur er skilin þannig, að Bretlandi
yrði vísað úr sambandinu um tíma
og íþróttamenn þaðan útilokaðir
frá alþjóðlegri keppni, ef ekki yrði
orðið við tilmælum alþjóðasam-
bandsins. Það þýddi, að Bretar
tækju ekki þátt í Olympíuleikunum
í Seoul á þessu ári.
Stjóm breska fijálsíþróttasam-
bandsins heldur fund um þetta mál
um næstu helgi.
Þessi ákvörðun hefur vakið
margvísleg viðbrögð breskra
frjálsíþróttamanna. Tveir breskir
hlauparar, sem unnu sér þátttöku-
rétt á leikunum með frammistöðu
sinni í maraþonhlaupi í Lundúna-
borg á sunnudag, sögðust vera
reiðubúnir til að taka ekki þátt í
Ólympíuleikunum til að styðja Zolu
Budd. Aðrir telja það óréttlætan-
legt að fóma þátttöku allra Breta
fyrir einn einstakling. Einnig telja
ýmsir, að Budd beri sjálf ábyrgð á
því, hvemig málum er nú komið
með óvarlegu framferði sínu.
Henni hafí mátt vera ljóst, að and-
stæðingar hennar notuðu hvert
einasta tækifæri til að klekkja á
henni.
Harðstjórn
Stalíns;
Voru hátt í
50 milljónir
manna beitt-
arkúgunum?
Moskvu, Reuter.
SOVÉSKUR fræðimaður heldur
þvi fram í grein í sovéska viku-
blaðinu Nedelya, sem birtist í
síðustu viku, að á milli 38 og 50
miljjónir manna hefðu orðið fyr-
ir barðinu á kúgunum Jósefs
Staiíns, fyrrum leiðtoga Sov-
étríkjanna.
I greininni, sem Igor Bestuz-
hevlada ritaði, segir að 19 til 25
milljónir smábænda hefðu látist eða
„hálflátist" þegar jarðir voru þjóð-
nýttar á fyrri hluta fjórða áratugar-
ins. Hann bætti við að í það minnsta
jafnmargir hefðu verið drepnir eða
beittir harðræði í pólitískum hreins-
unum Stalíns á árunum 1935 til
1953. Auk þess hefðu milljónir
manna látist úr hungri í þorpum í
Sovétríkjunum.
Vestrænir sérfræðingar hafa
haldið því fram að 20 milljónir
manna hafí látist í hreinsunum
Stalíns, en sovéskir sagnfræðingar
hafa hingað til fullyrt að sú tala
sé of há.