Morgunblaðið - 20.04.1988, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988
Mývatnssveit:
Sungið í Skjólbrekku
Mývatnssveit
KIRKJUKÓR Reykjahlíðarsóknar
hélt söngskemmtun í Skjólbrekku
síðastliðið mánudagskvöld.
Stjómandi var Jón Ámi Sigfús-
son, undirleik annaðist Ragnar
Þorgrímsson, og einsöngvarar voru
Ásmundur Kristjánsson og Margrét
Bóasdóttir. Á söngskránni voru 16
lög eftir innlenda og erlenda höf-
unda. Meðal lagahöfunda voru Frið-
rik A. Friðriksson, Öm Friðriksson,
Sigurður Sigurjónsson, Friðrik Jóns-
son, Sigfús Hallgrímsson og Elísabet
Jónsdóttir.
Söngnum var frábærlega vel tek-
ið. Varð kórinn og einsöngvarar að
endurtaka mörg lög, ennfremur
syngja aukalög. Aðsókn var mjög
góð. Áformað er að kórinn syngi á
HÚsavík fyrsta sumardag. Þá er
einnig gert ráð fyrir að syngja á
fleiri stöðum síðar. Þess má geta
að Kirkjukór Reykjahlíðarsóknar á
80 ára afmæli á þessu ári. Fyrir-
hugað er að minnast þeirra merku
tímamóta síðar á árinu.
Kristián.
Morgunblaðið/Albert Kemp
OBLIÐAR VIÐTOKUR
Þegar vorar, koma farfuglamir og fylla loftin,
flögrandi og syngjandi í tilhugalífinu. En, stund-
um fá þeir óblíðar viðtökur. Vetur konungur
brýst um í fjörbrotunum og sendir okkur illviðr-
ishret. Það gerðist einmitt um siðustu helgi að
einn vorboðinn mátti lúta í lægra haldi fyrir
þeirri kuldatíð sera gekk yfir Austurland með
kulda og hríðarbyljum. Þessi skógarþröstur
komst ekki lengra, hann hafði sest á grein í
garði fréttaritara Morgunblaðsins á Fáskrúðs-
firði á sunnudaginn. Fréttaritarinn, Albert Kemp
tók mynd af honum þar sem hann hmdi heldur
kuldalegur. Skömmu sfðar tók Albert eftir þvi
að fuglinn hafði ekki bært á sér. Þegar hann
hugaði nánar að, kom í ljós að fuglinn hafði
gefist upp gegn kuldanum og var dauður. Von-
andi hafa þetta verið síðustu fjörbrot vetrarins
og fuglamir fái að lifa þetta sumarið til enda.
Skeifukeppni bændaskólanna:
Svefneyjamál:
Hólar í dag, Hvann-
eyri á laugardag
SKEIFUKEPPNI bændaskól-
anna á Hólum og Hvanneyri
verða haldnar nú i vikunni.
Keppnin á Hólum fer fram i
dag og byrjar dagskráin 13.30.
A dagskrá verður auk skeifu-
keppninnar, gæðingakeppni
þar sem nemendur og staðar-
menn leiða saman hesta sína.
Þá verður keppt f boðreið að
venju og heyrst hefur að einnig
verði á dagskránni einhver
óvænt uppákoma
Hvanneyringar halda sína
keppni á laugardag og byijar dag-
skráin klukkan tíu með gæðinga-
keppni en Skeifukeppnin hefst
klukkan 13.30.
Sú nýbreytni var tekin upp á
Hólum að nemendum var leyft að
koma með reiðfær hross til þátt-
töku í skeifukeppninni og var
gerð úttekt á hrossunum í upp-
hafí tamningar. A Hvanneyri var
hinsvegar notast við gamla fyrir-
komulagið það er að segja að
ekki mátti vera búið að fara á bak
trippunum þegar þau komu á
staðinn til tamningar.
Dómsatriði eru þau sömu og
verið hefur að því undanskildu að
Hólamenn hafa fellt skeiðið út.
Morgunblaðið veitir að venju sig-
urvegara keppninnar Morgun-
DÓMARI við embætti bæjarfógeta
í Hafnarfirði, sem farið hefur með
svokallað Svefneyjamál, úrskurð-
aði í gær að hann viki sæti i mál-
inu.
Veijandi sakbomings í málinu
lagði i síðustu viku fram kröfu um
að dómarinn viki sæti, þar sem hann
hefði tjáð sig of mikið um málið í
fjölmiðlum og af ummælum hans
væri ljóst að hann hefði myndað sér
skoðun á því. Á þetta féllst dómar-
inn, Guðmundur L. Jóhannesson,
ekki. Hins vegar taldi hann rétt að
víkja sæti, þar sem hann gæti átt
aðild að málinu síðar. Vitnaði hann
Enn brennur
sina í Reykjavík
EKKERT lát virðist ætla að
verða á sinubrunum i Reykjavík.
Slökkviliðið var kallað oft út i
gær og liðsmenn þess hafa af því
áhyggjur að þeir séu bundnir við
slík störf ef eldur blossar upp
annars staðar.
í gær voru sinubrunar í Foss-
vogi, inn við Holtaveg og á hæðinni
við Veðurstofu íslands. Þá var
slökkviliðið einnig kallað í Kopavog-
inn, þar sem sinubruni var í Fífu-
hvammslandi. Þar var eldurinn
kominn mjög nærri tijágróðri. í
öllum tilfellum höfðu böm og ungl-
ingar kveikt eldana. Varðstjóri hjá
slökkviliðinu sagði að eldurinn hefði
breiðst mjög hratt út, enda jörð
alauð. Til allrar hamingju hefði
verið logn í gær, annars hefði getað
farið verr.
Ástæða er til að benda foreldrum
enn á að brýna fyrir bömum sínum
að kveikja ekki sinuelda.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Að stíga á bak trippinu er eitt dómsatriði Skeifurkeppninnar
en hér gerir einn Hólasveina sig líklegan til að fara á bak trippi
sínu.
blaðsskeifuna og Félag Tamn- faxi veitir bikar fyrir bestu hirð-
ingamanna veitir viðurkenningu ingu en verðlaunahafinn er valinn
fyrir bestu ásetu. Tímaritið Eið- í leynilegri kosningu nemenda.
til þess, að í viðtali í sjónvarpi hefðu
maeður bama, sem hlut eiga að máli,
látið falla ærumeiðandi og móðgandi
ummæli um sig sem settan bæjarfóg-
eta. Konumar væm aðilar að málinu
sem forráðamenn bamanna og þar
sem krafíst væri skaðabóta gæti sú
staða hugsanlega komið upp að hann
þyrfti að dæma þeim bætur, en ætti
jafnframt kröfu á hendur þeim vegna
ummælanna. Tók dómarinn þann
kost að víkja sæti strax, þar sem
þessi staða gæti komið upp.
Líklegt er að dómsmálaráðuneytið
skipi sérstakan setudómara til að
fara með málið. Sá möguleiki er einn-
ig fyrir hendi að annar sjálfstæður
héraðsdómari við embætti bæjarfóg-
eta í Hafnarfirði verði látinn taka
við málinu, en sá kostur þykir þó
ólíklegri.
Borgardómur:
Ríkíð sýknað af kröf-
um fanga sem slasaðist
DÓMUR er fallinn í Borgardómi
í máli sem fyrrum fangi á Litla-
Hrauni höfðaði gegn dómsmála-
ráðherra og fjármálaráðherra,
vegna slyss er hann varð fyrir í
steypuskála vinnuhælisins. Dóm-
arinn komst að þeirri niðurstöðu,
að stefnu skyldu sýknaðir, en
maðurinn hafði krafist 13 milljón
króna bóta.
Málavextir voru þeir, að í apríl
1977 var maðurinn að störfum í
steypuskálanum ásamt tveimur öðr-
um fongum. Annar samfanga hans
klifraði upp á bita, sem lá þvert
yfir steypuskálann og sveiflaði sér
upp á hann í kaðli, sem hékk niður
úr bitanum. Maðurinn fór á eftir
honum, en þegar hann hékk með
fætur um bitann og hélt í kaðalinn
með höndunum gaf festan í kaðlin-
um sig, svo maðurinn féll niður á
steinssteypt gólfíð og hálsbrotnaði.
Mæna hans skaddaðist þannig að
hann er metinn 100% öryrki.
Maðurinn hélt því m.a. fram fyr-
ir dómi, að orsök slyssins mætti
rekja til þess, að samfangi hans
hafí orðið valdur að slysinu með
því að spyma í kaðalinn þannig að
hann losnaði. Þá hafi aðbúnaði á
vinnustað verið ábótabant og það
að kaðallinn var á bitanum, illa fest-
ur, hafí verið slysagildra sem starfs-
mönnum vinnuhælisins hafí borið
að íjarlægja. Það að það var ekki
gert yrði að meta stefndu til sakar.
Þá hafí það verið vangá að fangam-
ir hafí verið látnir einir á vinnustað
sínum og eftirlitslausir.
Af hálfu stefndu var því m.a.
haldið fram, að sú fullyrðing að
samfangi mannsins hafí valdið slys-
inu væri með öllu ósönnuð. Jafnvel
þótt svo kynni að vera bakaði það
stefndu enga bótaskyldu, þar sem
ekki yrði haldið fram, að sá fangi
hafí verið hættulegur samföngum
sínum og þurft sérstakrar gæslu.
Þá var því mótmælt að aðbúnaði á
vinnustað hafí verið ábótavant.
Vinnuhælið gæti ekki talist venju-
legur vinnustaður; aðbúnaður allur
miðaði við fangavistina, en ekki við
djarfa leiki fanganna. Ættu reglur
um vinnuslys og vinnustaði ekki
við. Það að maðurinn hafí verið að
leika sér í kaðlinum hafí verið alger-
lega óviðkomandi vinnu hans.
Dómarinn komst að þeirri niður-
stöðu, að jafnvel þó svo kynni að
vera, að samfangi mannsins hafí
valdið því að kaðallinn losnaði, yrði
ekki á það fallist að stefndu bæru
ábyrgð á slysinu. Engin ástæða
hafí verið til að ætla að sá fangi
væri samföngum sínum hættulegur
og því hafí starfsmönnum hælisins
ekki borið að hafa sérstakar gætur
á honum frekar en öðrum föngum.
Ljóst væri að fangamir hafí gert
sér grein fyrir að þeim var leikur
sá er þeir stunduðu ekki heimill og
hættan sem stafað gæti af slíkum
leik mætti vera öllum ljós. Leikur
þessi hafí ekki verið í neinum eðli-
legum tengslum við störf mannanna
og kaðallinn hafí ekki verið notaður
við framkvæmd starfanna. Það, að
kaðalinn var til staðar, væri ekki
til þess fallið að baka stefndu bóta-
skyldu frekar en tilvist annarra
hluta, sem eru á vinnustöðum og
geta verið hættulegir ef eðlilegrar
varúðar er ekki gætt. Ekki yrði
fallist á að fangavörðum og verk-
stjórum hafí borið að standa yfir
öllum föngunum og fylgjast með
verkum þeirra umfram það sem
gert hafí verið.
Samkvæmt þessu voru stefndu,
dómsmálaráðherra fyrir hönd ráðu-
neytsins og fjármálaráðherra fyrir
hönd ríkissjóðs, sýknaðir af öllum
kröfum mannsins. Málskostnaður
var látinn niður falla. Dóminn kvað
upp Allan Vagn Magnússon, borg-
ardómari.
Dómaríákvað
að víkja sæti