Morgunblaðið - 20.04.1988, Síða 66
MÓRGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988
66
Ast er
... að vita að riddara-
mennskan er ekki fyrir
bí.
TM Reg. U.S. Pat. Off.—all rights reserved
01986 Los Angeles Times Syndicate
HÖGNI HREKKVÍSI
Heitt vatn í lækinn á ný
Til Velvakanda.
Ég á margar góðar minningar
frá heitalæknum í Oskjuhlíð og vil
koma því á framfæri við borgaryfir-
völd að þau láti hleypa heitu vatni
í lækinn á ný þegar hlýna tekur í
veðri. Það hefur líka verið draumur
margra að gengið yrði þannig frá
skolpræsum við Fossvog og í Kópa-
vogi að óhreinindi berist ekki inn í
Nauthólsvík. Þetta yrðu að vísu
nokkuð dýrar framkvæmdir en ef
þetta yrði gert ættum við líka að-
gang að góðum baðstað í nágrenni
borgarinnar. Ég held að þessar
framkvæmdir yrðu mun betur
þegnar af borgarbúum heldur en
fyrirhugað veitingahús sem á að
hringsnúast ofan á
hitaveitugeymunum. Við höfum
nóg af veitingahúsum en okkur
vantar baðstað við sjóinn.
Jóhann
Of lítil umfjöll-
im um fimleika
Kæri Velvakandi.
Ég hef tekið eftir því hve fimleik-
ar fá litla umfjöllun i Ríkissjón-
varpinu, jafnt sem öðrum fjölmiðl-
um. Til dæmis var aðeins sýnt frá
íslandsmeistaramótinu í um einn
klukkutíma og dætur mínar sem
báðar stunda þessa íþrótt voru að
vonum mjög óánægðar. Bjami Fel-
ixson kom einnig oft með tilkynn-
ingar um úrslit í körfubolta og ann-
að slíkt inn á milli. Hvem langar
til að vita um úrslit einhverra leikja
í annari deild í ensku knattspym-
unni eða í einhveijum leikjum í
fyrstu- eða annari deild í hand-
bolta? Það er skömm að því að
horfa uppá það næstum hvem ein-
asta dag, einhveija menn eltandi
bolta og reyna að skora, en þegar
það tekst kyssast þeir og láta eins
og óðir séu. Þetta býður sjónvarpið
uppá og það gerir eins mikið og
það getur til þess að við, fólkið sem
borgar fyrir allt þetta, þurfum að
horfa uppá þessi skrípalæti. Þeir
fella einnig niður skemmtilega dag-
skrárliði til að koma þessu að.
G.S.
Víkverji skrifar
að urðu áheyrendum og aðdá-
endum Pólýfónkórsins mikil
vonbrigði, þegar fella varð niður
fýrirhugaða 30 ára afmælistónleika
kórsins skömmu eftir páska, vegna
veikinda stjómandans, Ingólfs Guð-
brandssonar. Tónleikar kórsins
hafa verið fastur og veigamikill
þáttur í menningarlífi þjóðarinnar
í þijá áratugi og að þessu sinni var
söngskrá óvenjulega spennandi og
skemmtileg.
Nú hefur það komið fram, að
hugsanlegt sé, að tónleikar Pólýfón-
kórsins fari fram, ef hægt verði að
finna þeim stað í dagskrá Listahát-
íðar í sumar. Víkveiji vill eindregið
hvetja forráðamenn Listahátíðar til
þess að stuðla að því, að svo megi
verða. Það mundi setja mikinn svip
á þessa listahátíð, ef Pólýfónkórinn
tæki þátt í henni á þennan hátt.
Ingólfur Guðbrandsson hefur frá
stofnun Pólýfónkórsins verið burð-
arásinn í starfi hans á fleiri en einn
veg. Það er orðið tímabært, að fieiri
komi þar við sögu og að leið verði
fundin til þess að skapa Pólýfón-
kómum fjárhagslegan grundvöll,
þannig að þessi merki kóri geti
haldið áfram að starfa óhindrað.
XXX
Fyrir nokkrum dögum birtist í
brezku blaði óvenjuleg frétt.
Þar var skýrt frá því, að áhrifa-
mesti verkalýðsleiðtogi Svía, Stig
Malm, hefði lýst því yflr fyrir
skömnmu, að verkalýðsfélögin
hefðu haft sigur í viðskiptum sínum
við vinnuveitendur að þessu sinni,
en að sá sigur gæti leitt til efna-
hagslegra erfiðleika síðar á þessu
ári og því næsta.
Stig Malm skýrði frá því á blaða-
mannafundi, að hann hefði aldrei
orðið fyrir því áður, að upphafleg
kröfugerð verkalýðsfélaganna,
hefði orðið niðurstaða samninga.
Hins vegar taldi hann hættu á, að
þessir samningar mundu leiða til
aukinnar verðbólgu á næsta vetri.
Hafa menn heyrt íslenzka verka-
lýðsforingja lýsa áhyggjum af þessu
tagi?!
XXX
Fyrir nokkrum vikum var skýrt
frá hugmyndum um að byggja
yflr Austurstræti að hluta a.m.k.
Þetta er góð hugmynd. Gatan er
svo þröng, að það á að vera auð-
veit að byggja yflr hana og það
sama á raunar við um Laugaveg-
inn. Verði þessari hugmynd hrint í
framkvæmd gjörbreytist aðstaða
gamla miðbæjarins í samkeppni við
Kringluna og væntanlega nýja
verzlunarmiðstöð í Kópavogi. Raun-
ar sýnist Víkveija, að fasteignaeig-
endur við Austurstræti og Lauga-
veg ættu að taka höndum saman
um þessar framkvæmdir. Það er
engin ástæða til að Reykjavíkur-
borg eiga þar hlut að máli, nema
að því er varðar nauðsynieg bygg-
ingarlejrfi.