Morgunblaðið - 20.04.1988, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988
69
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
KNATTSPYRNA
Ámi
þjálfar
Gróttu
Lék síðast með
Gróttu 1977
ÁRNI Indriðason, þjálfari
. Víkinga undanfarin tvö ár, hef-
ur ákveðið að þjálfa lið Gróttu
í 1. deildinni í handknattleik
næsta vetur.
Ami lék reyndar með Gróttu
áður en hann fór til Víkinga
og mun nú ganga aftur til liðs við
gömlu félaga sína sem þjálfari.
Hann hefur hinsvegar ákveðið að
leggja skóna endanlega á hilluna.
Ámi lék sfðast með Gróttu keppn-
istímabilið 1976-77, en þá féll liðið
í 2. deild. Ámi gekk þá til liðs við
Víking, en snýr nú aftur heim í
heiðardalinn.
„Verður erBð glíma“
„Þetta er óneitanlega dálítið spenn-
andi, en verður án efa erfíð glíma,"
sagði Ámi í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Það verður baráttu
'upp á líf og dauða fyrir sæti í 1.
deild. Þetta er ungt og reynslulítið
lið, en ef þeim tekst að halda sér
í deildinni þá gætu þeir fest sig þar
í sessi. En þetta verður mikil vinna.
Ég kunni vél við mig hjá Víkingum,
en er búinn að þjálfa þar í þijú ár.
Það var því kominn tími á breyting-
ar.“
Árnl Indrlðason.
Friðrik Friðriksson ekki
með í óiympíuleikjunum
Hefur verið skorinn upp vegna kalkmyndunar í fæti
FRIÐRIK Friðriksson, lands-
liðsmarkvörður I knattspyrnu,
getur ekki leikið með Ólympíu-
landsliðinu gegn Hollendingum
og A-Þjóðverjum. Friðrik var
skorinn upp vegna kalkmynd-
unar í fæti á mánudaginn og
verður rúmliggjandi þartil um
helgina.
Guðmundur Hreiðarsson, mark-
vörður Víkings, sem var einnig
valinn í ólympíuhópínn, gefur ekki
kost á sér í ferðina, af persónuleg-
um ástæðum. KR-ingurinn Páll 01-
afsson hefur því verið valinn í lands-
liðshópinn, en fyrir er Birkir Krist-
insson, markvörður Fram. Annar
þessara markvarða fer svo beint frá
A-Þýskalandi til Búdapest í Ung-
veijalandi, til að vera varamark-
vörður Bjama Sigurðssonar í vin-
áttulandsleiknum þar.
Guðni Bergsson, miðvörður úr Val,
getur ekki leikið með ólympíulands-
liðinu og landsliðinu. Eins og fram
hefur komið í Morgunblaðiðinu, þá
er hann meiddur og verður að fara
í uppskurð.
KNATTSPYRNA
Sautján leikmenn fara út með
ólympíulandsliðinu. Nokkir leik-
menn liðsins fara einnig til Búda- r
pest, þar sem leikinn verður vin-
áttuleikur gegn Ungveijum 4. maí.
Þangað koma flestir atvinnumenn
íslands og þá fara þeir Pétur
Ormslev, Fram og Ragnar Mar-
geirsson, Keflavík, til Búdapest.
Vegna gamalla melösla
Friðrik Friðriksson liggur nú á
sjúkrahúsi í Óðinsvéum í Dan-
mörku, vegna meiðslanna sem fyrr
er getið. Hann leikur með 3. deildar-
liðinu B 1909 og stundar nám í
bænum. Að sögn Nönnu Leifsdótt-
ur, unnustu Friðriks, í gær, hafði
storknað blóð — sem safnast hafði
saman framan til í vinstra legg við
spark einhvem tíma áður — breyst
í kalk sem varð til þess að ígerð
komst í fótinn.
HANDBOLTI / FRÆÐSLUMAL
B-stigs námskeið hjá HSÍ
Fræðslunefnd HSÍ gengst fyrir B-stigs þjálfaranámskeiði dagana
21.-24. apríl næstkomandi og stendur námskeiðið í 40 tíma. Rétt til
þátttöku hafa allir sem lokið hafa A-stiginu, íþróttakennarar og þjálfarar
og leikmenn með margra ára reynslu af þjálfun og metur fræðslunefnd
umsælrjendur. Þátttöku á námskeiðinu skal tilkynna í síðasta lagi í dag
til skrifstofu HSÍ og er staðfestingargjald kr. 1.000.
Öruggt hjá KR
Einn leikur var' í gær í mark KR og Pétur Pétursson
Reykjavíkurmótinu í knatt- bætti öðru við úr vítaspymu. Það
spymu. KR-ingar sigruðu ÍR- var svo Sæbjöm Guðmundsson
inga, 3:0. sem gerði út um leikinn með þriðja
Willum Þór Þórsson skoraði fyrsta markinu.
Morgunblaðiö/Einar Falur
Pálmar Slgurósson, þjálfari og leikmaður Hauka, stóð sig frábærlega
í leiknum I gærkvöldi. Hér er han „tolleraður" af félögum sínum eftir að
sigurinn var í höfn.
BROTIÐ BLAÐ
HANDBOLTI
Svíar unnuDani
Tveir leikir fóru í gær fram á
Akranesi í Evrópumóti lands-
liða lögreglumanna í handknattleik.
Norðmenn sigruðu Frakka 27:24
og Svíar lögðu Dani að velli, 23:18.
í kvöld
■Fylkir og Vtkingur leika f Reykjavfk-
urmótinu f knattspymu á gervigrasvell-
inum f Laugardal kl. 20.30 f kvöld.
■Evrópumót lögreglulandsliða heldur
áfram f kvöld. Tveir leikir verða f Kópa-
vogi. ísland leikur gegn Noregi kl. 18
og Danmörk gegn V-Þýskalandi kl.
19.15. Þetta eru úrslitaleikimir f riðla-
keppninni.
■IS og Þór leika úrslitaleikinn um
lausa sætið f úrvalsdeildinni f fþrótta-
húsi Kennaraháskólands f kvöld kl.
20.30.
■Sfðustu leikir Sparisjóðsmótsins f
handknattleik verða leiknir f kvöld f
Hafnarfirði. Það em Haukar og FH
sem keppa um Sparisjóðsbikarinn.
Meistaraflokkar, B-lið, félaganna leika
kl. 19. Strax á eftir leika lið meistara-
flokks kvenna og sfðan leika karlaliðin.
Eftir leikina fær það félag sem vinnur
flesta leikina Sparisjóðsbikarinn. Kaffi-
veitinar em á staðnum.
FÉLAGSSTARF
Vertídarlok
hjá Víkingum
Vertíðarlok verða hjá hand-
knattleiksdeild Víkings á
morgun, sumardaginn fyrsta, í
samkomusal Réttarholtsskóla kl.
16. Þangað eru allir Víkingar vel-
komnir og eru yngri handknatt-
leiksmenn sérstaklega boðnir vel-
komnir með foreldrum sínum. Með-
el annars verða veitt afreksverðlaun
fyrir yngri flokkanna. Þess má geta
að á morgun er merkisdagur í sögu
Víkings, því liðin eru nákvæmlega
80 ár síðan félagið var stofnað.
BROTIÐ er blað í sögu körfu-
knattleiks á íslandi. Islands-
meistarabikarinn er kominn í
fyrsta sinn í sögunni f Hafnar-
fjörðinn. Þessi mikli hand-
boltabær er nú Ifka komínn á
spjöld sögunnar sem körfu-
boltabær og þótti mörgum
kominn tími til.
Ekki var fyrirfram búist við
að Haukar myndu gera sig
mikið gildandi f þessari úrslita-
keppni þar sem gengi þeirra hefur
verið heldur rysj-
KARFA ótt í vetur. En þeir
ggggg létu allar hrakspár
sem vind um eyru
Bdíason Þíóta. °K klikktu
skrífar út með því að sigra
sjálfa íslands-
meistarana í gærkvöldi. Það er
erfitt að hugsa sér meira sannfær-
andi og verðskuldaðri íslands-
meistaratitil þar sem þeir eru í
úrslitakeppninni búnir að ryðja
úr vegi báðum Suðumesjarisun-
um. Þetta er mikill persónulegur
sigur fyrir Pálmar Sigurðsson,
hinn skemmtilega leikmann
Haukanna, sem jafnframt er
þjálfari þeirra, og ekki má heldur
gleyma þætti Hálfdáns Markús-
sonar, en hann hefur stjómað lið-
inu af bekknum í allan vetur.
Þessir tveir fyrrverandi félagar
og burðarásar Haukaliðsins f
gegnum árin geta svo sannarlega
litið stoltir yfír farinn veg. Þáttur
ívars Webster er einnig stór. Eft-
ir áfall það sem hann varð fyrir
í vetur hefur ívar komið endur-
nærður til leiks og hann á ekki
minnstan þátt f þessum glæsilega
sigri Haukanna.
Lftum nánar á leikinn í gær-
kvöldi. Haukar byijuðu af miklum
krafti og virtist þessi barátta setja
Njarðvfkinga algerlega út af lag-
inu. Njarðvíkingar höfðu gert
breytingu á vamarleik — Isak
Tómasson, sem ávallt hefur haft
góðar gætur á Pálmari í leikjum
liðanna, var nú látinn gæta Henn-
ings Henningssonar, en Teitur
Örlygsson settur til höfuðs Pálm-
ari. Það er auðvelt að sjá hvað
vakti fyrir þjálfara Njarðvíkurs-
liðsins með þessari breytingu.
Hann hefur ætlað að nýta sér hæð
Teits til þess að reyna að stöðva
Pálmar, en þetta dæmi gekk ekki
upp. Teitur hafði einfaldlega ekki
þann hraða sem þarf til að ráða
við Pálmar, sem fyrir bragðið fékk
mikið að leika lausum hala og
náði við það að skjóta sig í stuð.
í síðari hálfleik var gerð breyting
og ísak tók aftur við Pálmari. Það
gekk allvel hjá honum, en bæði
var að ísak var kominn í villu-
vandræði og Pálmar kominn f
þvílíkan ham að ekkert varð við
ráðið. Þetta tel ég hafa verið mjög
mikilvægan hlut í þessum leik.
Haukamir nýttu sér yfírburði
ívars Websters í fráköstum og
hraðaupphlaupin gengu nánast
upp eins og skólabókardæmi.
Vamarfráköstin lentu nær undan-
tekningarlaust í höndum ívars
Webster, þaðan fór boltinn beint
í hendur Pálmars sem keyrði af
stað með miklum látum og mat-
aði síðan Henning, Ólaf og ívar
Ásgrímsson til skiptis, sem æddu
eins og hraðlestir upp kantana.
Þannig skoraðu Haukar fjölda-
mörg stig.
Leikur Njarðvíkinga bar meira
keim af einstaklingsframtakinu.
Valur Ingimundarson barðist
hetjulegri baráttu og Teitur Örl-
ygsson átti frábæran leik í sókn-
inni. En leikmenn beggja liða
börðust alveg eins, og ljón og var
aldrei gefíð eftir fyrr en í fulla
hnefana, eh oft var kappið meira
en forsjáin. Þannig misstu
Njarðvíkingar boltann til dæmis
þrisvar sinnum á örlagamiklum
aungablikum á lokamínútum
venjulegs leiktíma, er dæmd voru
á þá skref. Villuvandræði settu
svip sinn á leikinn og ef til vill
hafa þau ráðið úrslitum, þar sem
ísak Tómasson lenti snemma í
fyrri hálfleik strax f villuvandræð-
um. Hann fór út af fyrir miðjan
hálfleik og kom ekki inn á aftur
fyrr en um miðjan seinni hálfleik.
Ungur strákur, Friðrik Ragnars-
son, tók hans stöðu og stóð sig
vel, en náði auðvitað engan veginn
að fylla skarð ísaks. Þá var og
afdrífaríkt að bæði Helgi Rafns-
son og Sturla Örlygsson fengu
sína 5. villu í fyrri framlengingu.
Haukar nýttu sér það vel og Ingi-
mar Jónsson kom mjög sterkur
út í síðari framlengingunni.
Það er ekki hægt að skilja svo
við þennan leik að nefna ekki hinn
óbilandi baráttuvilja Haukaliðs-
ins. Strákamir hafa oft á tfðum
horft fram á nánast glataða stöðu
en hafa aldrei játað sig sigraða.
Þeim hefur tekist að klóra f bakk-
ann og uppskera að lokum glæsi-
lega laun alls síns erfíðis. Til ham-
ingju, Haukar!