Morgunblaðið - 30.08.1988, Síða 4

Morgunblaðið - 30.08.1988, Síða 4
MORQUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUPAQU-R 3,0. ÁGÚST, 1988 ■^ri 1 Dauðir sjóbirt- ingar í Varmá Hveragerði. SÁ ATBURÐUR gerðist í Hveragerði sl. föstudag að þegar menn komu til veiða í Varmá fundu þeir engan fisk lifandi, en fóru þess í stað að tína dauðan fisk á land. Þegar þeir höfðu náð upp níu fisk- um, stórum og smáum, fóru þeir og gerðu viðvart formanni veiðifé- lagsins, Þorláki Kolbeinssyni, bónda á Þurá í Ölfusi. Brá hann skjótt við og kallaði til lögreglu, sem kom á staðinn og gerði ráðstafanir um frekari rannsókn. Björgvin Gunnarsson veiðivörður kom að máli við fréttaritara, sem fór og skoðaði hinar dapurlegu veiðiaðferðir í Varmá. Þar var staddur Ólafur Finnsson frá Reykjavík, sem kvaðst hafa stundað veiði í Varmá í fimm ár og oft ver- ið fengsæll, en aldrei séð þar dauð- an fisk, en áin jafnan verið mor- andi af lffi. Nú sæist ekkert líf. Töldu þeir félagar fiskinn ný- genginn í ána, ekki meira en sólar- hringsgamlan í ferskvatni, svo væri hann silfurgljándi. Sögðu þeir Varmá vera eina bestu sjóbirtingsá á landinu og sárt að horfa upp á þetta. Undanfarið hefur verið mikið og gott vatn í ánni og góð skilyrði fyrir fiskinn. Ekki vildu þeir slá neinu föstu um orsakir fyrir þessu óláni, en sögðu margar ástæður samverk- andi með að spilla ánni, t.d. liggja í hana skólplagnir frá Ullarþvotta- stöð SÍS og frá garðyrkjustöðvum og íbúðarhúsum. Einnig rennur í hana heitt vatn sem er afrennsli frá hitaveitunni. í samtali við Þorlák Kolbeinsson kom fram að málið væri í rannsókn og yrði því fylgt fast eftir. Þetta væri ekki í fyrsta sinn sem slíkt kæmi fyrir, því í vor hefðu fundist dauðir fískar. Væri athyglisvert að í bæði skiptin hefði átt sér stað klórhreinsun á sundlauginni í Laug- Morgunblaðið/Sigrún Sigfúsdóttir Björgvin Gunnarsson t.v. og Ólafur Finnsson með sjóbirtinga sem hlutu dularfullan dauðdaga í Varmá. arskarði og væri nú talin ástæða til að kanna hvort um klórmengun gæti verið að ræða. Sagði Þorlákur eigendur árinnar mjög vonsvikna yfir þessu máli og ákveðna í að fá úrbætur á þessum VEÐUR / DAG kl. 12.00: Heimild: Veöurstoia islands (Byggt á veöurspá kl. 16.15 f gær) VEÐURHORFURIDAG, 30. AGUST1988 YFIRLIT í GÆR: Skammt suðvestur af Færeyjum er heldur vax- andi 978 mb lægð, sem hreyfist norður. Yfir Grænlandi er 1.017 mb hæð. Hiti breytist fremur lítið. SPÁ: Á morgun lítur út fyrir norð- og norðaustanátt á landinu, víða stinningskaldi eöa allhvasst. Rigning eða súld um norðan- og aust- anvert landið, en þurrt suðvestanlands. Hiti 6—10 stig um norðvest- anvert landið, en 12—15 stig á Suð-Austurlandi. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Norðan- og norðaust- anátt með súld eða rigningu um allt norðanvert landið, skúrir suð- austanlands, en þurrt á Suð-Vesturlandi. Sæmilega hlýtt að'degin- um á Suöur- og Suð-Austurlandi, en annars fremur svalt. x Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- -j o Hitastig: 10 gráður á Celsius stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. ý Skúrir * V El / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / Þoka Þokumóða Súld OO Mistur 5 i Alskýjað * * * * * * * Snjókoma * * * —j- Skafrenningur Þrumuveður \ f % VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hhi veður Akureyri 10 skýjaö Reykjavík 13 fóttskýjaö Bergen 14 skýjaö Helsinki 18 hálfnkýjað Kaupmannah. 18 lóttskýjað Narssarssuaq 8 ióttskýjað Nuuk 7 súld Ösló 20 skýjað Stokkhólmur 17 súld Þórshöfn 12 skýjað Algarve 26 skýjað Amsterdam 16 úrkoma Barcelona 27 mistur Chicago 12 léttskýjað Feneyjar 26 skýjað Frankfurt 22 hálfskýjað Glasgow 12 skur Hamborg 18 lóttskýjað Las Palmas 26 lóttskýjað London 18 háifskýjað Los Angeles 18 þokumóða Lúxemborg 16 lóttskýjað Madríd 26 léttskýjað Malaga 36 hálfskýjað Mallorca 32 skýjað Montreal 15 alskýjað New Vork 25 rigning Parls 18 skýjað Róm 27 skýjað San Diego 20 lóttskýjað Winnipeg 12 alskýjað vanda. Þess má geta að Hveragerðisbær hefur látið byggja hreinsiþró út við Varmá sem tekur það grófasta sem við bæjarbúar sendum frá okkur. - Sigrún Leyft að selja 900 lestir í Bretlandi Fulltrúi Landssambands íslenskra útvegs- manna gekk út af fundi samráðsnefndar Utanríkisráðuneytið leyfði síðastliðinn föstudag sölu á um 900 lestum af óunnum þorski og ýsu úr gámum og skipum i Bretlandi í næstu viku en sótt var um leyfi til að selja þar mun meira magn, að sögn Stefáns Gunnlaugssonar deildarstjóra í utanríkisráðuneyt- inu. Vilhjálmur Vilhjálmsson, fulltrúi Landssambands fslenskra út- vegsmanna í samráðsnefnd um útflutning á óunnum fiski, gekk út af fundi nefndarinnar á föstudaginn. Samkvæmt heimildum Morgun- ráðuneytið og fiskvinnslan fulltrúa blaðsins lagði Vilhjálmur fram til- lögu á fundinum um að leyfð yrði sala á 1.100 til 1.200 lestum af óunnum þorski og ýsu í Bretlandi í næstu viku og að þessu magni yrði deilt jafnt niður á þá sem fengju leyfi til sölunnar. Tillagan var ekki samþykkt og gekk Vil- Hjálmur þá út af fundinum. Auk LÍÚ eiga utanríkisráðuneytið, Fiskifélag íslands, sjávarútvegs- í samráðsnefndinni. Að sögn Sveins H. Hjartarsonar, fulltrúa hjá Landssambandi íslenskra útvegsmanna, fengu sjö eftirtalin skip leyfi til að selja um 450 tonn af þorski og ýsu í Bret- landi í næstu viku: Sigurður Ólafs- son SF, Haukafell SF, Rauðinúpur ÞH, Amames ÍS, Halkion VE, Ein- ir HF og Sigurborg KE. Mikið um inn- brot og þjófnaði NOKKUÐ var um innbrot og þjófnaði um helgina. Brotist var inn í Fóstruskólann við Leirulæk. Engu var stolið en miklar skemmdir unnar. Loftljós, spegl- ar, vaskar og ritvélar urðu fyrir barðinu á skemmdarvörgunum. Ekki er vitað hveijir þama voru að verki en RLR vinnur að rann- sókn málsins. Brotist var inn í Skóbúð við Snorrabraut og þaðan stolið skipti- mjmt. Brotist var inn í líkamsræktar- stöðina Orkulind í Brautarholti. Litlu var stolið og maður var hand- tekinn grunaður um verknaðinn skömmu síðar. Brotist var inn í veitingahúsið' Sælkerann aðfaranótt laugardags- ins og áfengi stolið. Þá var brotist inn í Pylsuvagninn við Austurberg og þar höfðu þjófar einhver verðmæti upp úr krafsinu. Maður var handtekinn í gisti- heimili í borginni grunaður um að bjóða stolin málverk til sölu. Þá var brotist inn í hús við Esju- grund á Kjalamesi og skemmdir unnar á innbúi. Um hádegi á laugardag var stol- ið erlendum gjaldeyri og 4 kredit- kortum úr kvenmannsveski í versl- un í Kringlunni. Brotist var inn í yerslunina Rítu við Eddufell og fatnaði stolið. Brotist var inn í geymslur í fjöl- býlishúsi við Æsufell. Ekki er ljóst hverju var stolið. Rauða Kross spilakassi var brot- inn upp á BSÍ og stolið úr honum peningum. Loðnuveiðarnar: Börkur NK landar um 140 tonnum BÖRKUR NK, skip Síldarvinnsl- unnar hf. á Neskaupstað, landaði um 140 tonnum af loðnu á Nes- kaupstað um helgina. Undan- faraa daga hefur verið bræla á loðnumiðunum. Börkur fer ekki út aftur fyrr en veðrið gengur niður, að sögn Jó- hanns K. Sigurðssonar fram- kvæmdastjóra Síldarvinnslunnar. Háberg GK, skip Siglubergs hf. í Grindavík, hefur enga loðnu veitt og fór inn á Bolungarvík á laugar- daginn vegna brælunnar. Hólma- borg SU og Jón Kjartansson SU, skip Hraðfrystihúss Eskifjarðar hf., fóru hins vegar út í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.