Morgunblaðið - 30.08.1988, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1988
Fundur Grosz og Ceausescus í Rúmeníu:
Lítill árangur af „bróð-
urlegum“ viðræðum
Vín, Reuter.
KAROLY Grosz, leiðtogi Ungveijalands, átti á sunnudag viðræður
við Nicolae Ceausescu, Rúmeníuleiðtoga, í bænum Arad í Rúm-
eníu. Er þetta í fyrsta sinn í 11 ár sem leiðtogar þessara þjóða
ræðast við. Tilgangur fundarins var að finna lausn vegna versn-
andi samskipta þjóðanna í kjölfar ákvörðunar Ceausescus um að
jafna 8.000 þorp í Transylvaníu við jörðu.
Reuter
Karoly Grosz og Nicolae Ceausescu fyrir fundinn á sunnudag.
Samskipti Rúmena og Ungveija
hafa farið versnandi að undanf-
ömu vegna ákvörðunar Ceauses-
cus og veldur þar að meirihluti
íbúa í þorpunum sem um ræðir er
af __ ung-
versku bergi brotinn. Ákvörðun
rúmenskra yfirvalda hefur vakið
mikla reiði Ungveija og tugir þús-
unda tóku þátt í mótmælaaðgerð-
um í Búdapest í júnímánuði síðast-
liðnum. Ceausescu lét loka ung-
verska sendiráðinu í Cluj í kjölfar
mótmælanna. Vestur-þýsk stjórn-
völd hafa einnig mótmælt ákvörð-
un Ceausescus og hafa margsinnis
farið þess á leit við rúmensk stjóm-
völd að þau leggi þessi áform á
hylluna en töluverður fjöldi fólks-
ins í þorpunum er af þýskum upp-
runa.
■ Fundur leiðtoganna á sunnudag
stóð í rúmlega sjö klukkustundir
og hélt Grosz heimleiðis strax að
honum loknum. Þrátt fyrir að leið-
togamir tveir segðu báðir að um-
ræður þeirra hefði verið opinskáar
og í mesta bróðemi er ljóst að
árangur varð lítill.
Grosz sagði í samtlai við ung-
verska sjónvarpið’ eftir fundinn að
það væri ofsögum sagt að mikill
árangur hefði orðið af fundinum.
„Allt sem ég get sagt er að ég
trúi því að þessi fundur hafi mark-
að tímamót í samskiptum þjóð-
anna,“ sagði Grosz. „Það ríkti
spenna á fundinum og við höfum
ólík sjónarmið sem flest eiga sér
rætur í sögu þjóðanna," bætti hann
við.
Báðir leiðtogamir sögðu á blaða-
mannafundum að ágreiningurinn
væri enn mikill. „Við teljum þó að
þrátt fyrir að okkur greini á í ein-
staka tilliti megi ekki gera of mik-
ið úr slíkum ágreiningsefnum og
þjóðimar verða að gera sitt besta
til að skilja hvor aðra,“ sagði Ce-
ausescu að loknum fundinum.
Eini verulegi árangurinn af
fundinum var samkomulag um að
senda ungverska sendinefnd til
Rúmeníu til að kynna sér áform
stjómarinnar um að jafna þorpin
við jörðu og byggja í þeirra stað
iðnaðarþorp og samyrkjubú. Ekki
var ákveðið hvenær sendinefndin
færi til Rúmeníu. Grosz sagði
blaðamönnum að hann teldi þetta
skipta afar miklu máli. „Ég held
að upplýsingar sem við höfum
fengið varðandi þessar fram-
kvæmdir hafi ekki verið með öllu
réttar," sagði hann.
F-18 þotur
til Kuwait
Kuwait. Reuter.
KUWAIT skrifaði undir
samning við Bandaríkin um
kaup á 40 F-18 orrustuþot-
um á laugardag en þessi
gerð af þotum er talin ein
sú nýtískulegasta í heimi.
Kuwait verður fyrsta ríkið
í Mið-Austurlöndum sem fær
F-18 þotur til umráða. Fyrr í
mánuðinum tilkynnti Kuwait-
stjóm að hún hefði samþykkt
nokkrar breytingar á miklum
samningi um vopnakaup í
Bandaríkjunum. Fyrstu samn-
ingsdrög höfðu mætt andstöðu
stuðningsmanna ísraels á
Bandaríkjaþingi er ekki vilja
láta arabaríkjum í té ákveðnar
vopnategundir.
Kúvæskir embættismenn
héldu til Sovétríkjanna í gær
til að skoða sovéskar vopna-
verksmiðjur, að sögn opinberu
fréttasofunnar KUNA í gær.
Að sögn fréttastofunnar er
heimsóknin, sem stendur í sex
daga, farin með það fyrir aug-
um að halda jafnvægi í
samkiptum við stórveldin í
austri og vestri af hálfu kúvæ-
skra stjómvalda.
í hádeginu alla virka daga:
Mar&rétta
^****%. 'Á
8P arjf ■ ISSáÍlS!' íMm m
♦l
Barbecue-
kjúklingurmeð
hrísgrjónapflaf
Rjóma-
naútagúllas
meðkarlöflumús
WMk
[\autapottsleik
mcðgrænmeti
m
Djúpsteikt
rauðsprettuflök
meðremolaðisósu
Heimalagaðar
kjötbollurmeð
paprikukartöflum
m
ÉP
M"
ÉjF
HBBwhp>
; •
m
fjm
■
1 m
Margrélta er enn ein nýjungin sem við á nýja Aski bjóðum upp á í hádeginu. Þú getur valið
úr sex girnilegum réttum eða fengið þér sitt lítið af hverjum fyrir hlægilega lágt verð:
Yðcins kr. 590!
En þar með er ekki öll sagan sögð því að innifalin í verðinu er súpa dagsins og salat af
salatbamum.
-verði þér að góðu!
Nýi Askur Suðurlandsbraut 4 Sími: 38550
'Tí\
11
»1
r 1»
■Íi'l
hJm