Morgunblaðið - 30.08.1988, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1988
Gerð var nokkurs konar mála-
miðlun, og samþykkt með 32 at-
kvæðum gegn 9 að kanna leið B
með nokkrum skilyrðum, og stofnuð
verði gjaldheimta eigi síðar en 25.
september næstkomandi. Jafnframt
því sem gjaldheimtunefnd starfaði
áfram fram að stofnfundi gjald-
heimtunnar. Fyrir þann fund hafi
sveitarstjómir tekið afstöðu til til-
lagna nefndarinnar og tilnefni full-
trúa með umboð til undirritunar
samnings á grundvelli samþykktar
sveitarstjómar. Breytingartillaga
kom fram um að sveitarfelögunum
verði skylt að lúta vilja meirihlut-
ans, en hún var felld með nokkrum
mun.
Stofnun héraðsnefnda
Fjölmargar ályktanir um önnur
mál vom samþykktar á fundinum
og ótal mál bar á góma. Má þar
nefna að stjóm félagsins var falið
að skipa starfshóp til að íj'alla um
kosti og galla héraðsnefnda eða
fytlkisstjóma, sem tækju yfír verk-
efni sýslunefnda. Telja margir nauð-
synlegt að koma þeim á í tengslum
við aukin verkefni sveitarfélaganna.
Einnig var ályktað um ýmis menn-
ingar- og framfaramál í fjórðungn-
um.
Ný stjórn kjörin
Aðalfundi SSA lauk með kjöri
nýrrar stjómar og kosningu í nefnd-
ir og ráð á vegum sambandsins.
Kjömefnd lagði fram tillögur sínar
um stjómarmenn, og vom þær sam-
þykktar með lófataki.
Þrír nýir menn komu inn í stjóm-
ina, Einar Már Sigurðsson, Nes-
kaupstað, Guðmundur Þorsteinsson,
Fáskrúðsfírði, og Hálfdán Haralds-
son, Norðfj arðarhreppi. Aðrir
stjómarmenn em Hrafnkell A. Jóns-
son, Eskifirði, Þráinn Jónsson,
Fellabæ, Magnús Ingólfsson,
Vopnafírði, _ Birgir Hallvarðsson,
Seyðisfirði, Ólafur Ragnarsson, Bú-
landshreppi og Guðjón Þorbjöms-
son, Höfíi.
M
Anægður með hlut
sveitarstjórnamanna
ALLIR fimm þingmenn kjördæmisins mættu á fundinn. Þeir Hjörleifur
Guttormsson, Alþýðubandalagi, Halldór Ásgrimsson og Jón Kristjáns-
son, Framsóknarflokki, og Egill Jónsson og Kristinn Pétursson, Sjálf-
stæðisflokki. Þar sem nokkuð var rætt um samskipti þingmanna og
sveitarstjórna þótti rétt að taka einn þingmanninn tali og varð Egill
fyrir valinu.
„Samstarfíð við sveitarstjómimar
em hluti af starfí mínu sem alþingis-
maður. Og þar sem ég á sæti í íjár-
veitinganefnd þingsins þá verður
þetta samstarf nánara en ella. Eg
er mjög ánægður með hlut sveitar-
stjómamanna I þessu samstarfi.
Þetta er reynt félagsmálafólk og átt-
ar sig á aðstæðum I þjóðfélaginu.
Það veit það líka, að við höfum áhuga
á þeirra málum, enda em þau flest
mjög mikilvæg og hafa að sjálfsögðu
gífurlega mikla þýðingu í framfara-
málum sveitarfélaganna," sagði Eg-
ill.
Egill var spurður um þá gagn-
rýni, sem fram kom í opnu bréfí frá
stjóm SSA til þingmanna kjördæmis-
ins og annarra landsbyggðarþing-
manna. .Þar er meðal annars spurt
hvers vegna lög og reglur séu lands-
byggðinni jafn óhagstæð og raun
beri vitni, á sama tíma og lands-
byggðarþingmenn séu í meirihluta á
Alþingi.
Egill Jónsson, alþingismaður
„Alþingi er mikil sáttasamkoma.
Mjög ríkjandi í störfum þess er tillits-
semi og skilningur milli manna. í
þeirri umfjöllun, sem þar á sér stað,
er að sjálfsögðu tekið fullt tillit til
þeirra sjónarmiða sem eru í þjóð-
félaginu. Við eigum það sameiginlegt
allri þjóðinni, Austfírðingar, að mál-
efni atvinnuveganna eru aðalmálin á
þingi. Út úr framleiðsluverðmætum
sjávarútvegsins hafa horfíð fleiri
milljarðar. Þau verðmæti verða ekki
kölluð til baka með atkvæðagreiðslu
milli landsbyggðar og þéttbýlis.
Þetta er sameiginlegt vandamál, sem
bitnar fyrst á þeim byggðum, þar
sem verðmætin verða til, en gengur
slðan yfir alla þjóðina," sagði Egill.
Hann var spurður að þvl að lokum
hvort hann fengi eitthvert veganesti
af þessum fundi, sem hann tæki með
sér inn á Alþingi I haust.
„Ég fer ekki með neitt sérstakt
veganesti inn á Alþingi frá þessum
fundi. Ég er í góðu sambandi við
fólkið í kjördæminu, ekki aðeins mína
flokksmenn. Og auðvitað veit maður
hvemig straumurinn liggur í kjör-
dæminu sínu, skárra væri það. En
málefnaleg umræða er alltaf nauð-
synleg I þjóðfélaginu og auðvitað
hefur hún sín áhrif."
Fólk leitar í þéttbýlið
„ÉG HEF starfað i rösk 40 ár í hreppsnefnd, en það eru um 50 ár
síðan ég fór að sýsla í þessum máliim heima i sveit minni,“ sagði Vil-
hjálmur Hjálmarsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Framsóknar-
flokksins, í samtali við blaðamann. Hann sat aðalfund SSA fyrir hönd
sveitunga sinna 35, sem búsettir eru á Mjóafirði. „Þeim hefur þótt
gott að hafa mig i þessu, þar sem ég er laus og slyppur," sagði Vil-
hjálmur.
„Ég hef verið á flestum fundum
SSA frá upphafí. Miðað við það vald
og §ármuni, sem sambandið hefur
yfír að ráða þá hefur það haft mikil
áhrif. Það hefur samræmt sjónarmið
manna, stutt við bakið á þingmönn-
um kjördæmisins og ýtt á eftir mál-
um,“ sagði Vilhjálmur.
Hann var spurður að því hvaða
mál bæru hæst á þessum fundi að
hans mati.
„Menn hafa tekið samgöngumálin
sérstaklega fyrir nú. Auk samskipta
ríkis og sveitarfélaga, meðal annars
vegna þeirra breytinga sem verið er
að gera á þeim. Þannig að samgöng-
umar og samskiptin við ríkið hafa
verið helstu málin á þessum fundi.
Þá hefur verið rætt um stofnun hér-
aðsnefndar Norður- og Suður-Múla-
sýslu og kaupstaðanna á Austurl-
andi. Sýslunefndir yrðu þá lagðar
niður en héraðsnefndin, sem skipuð
yrði sömu mönnum og stjóm SSA,
fengi verkefni þeirra. Menn em á
því að þetta þriðja stjómsýslustig
verði að koma til, ef færa á vemleg
Vilhjálmur Hjalmarsson, frá
Mjóafirði.
verkefni frá ríki yfír á sveitarfélögin.
Það er verið að færa mörg verk-
efni yfír á sveitarfélögin, sem er já-
kvætt ef til þess fást tekjustofnar.
En það er kúnstugt að koma upp
með, að sveitarfélögin taki við heilsu-
gæslustöðvunum. Þvi er þannig hátt-
að, að heilsugæslustöðvemar em
staðsettar á sjúkrastofnunum og
sama fólkið starfar á báðum stöðum.
Ekki yrði þetta til einföldunar."
Um stöðu sveitarfélaganna í fjórð-
ungnum og landsbyggðina almmennt
sagði Vilhjálmur: „Hún er að mörgu
leyti erfíð. Jöfnunarsjóðurinn hefur
til dæmis verið grátt leikinn, sem er
hið versta mál. Þróunin hefur verið
mjög óhagstæð landsbyggðinni, ekki
síst íðustu árin. En það er rétt að
hafa það I huga, að þessi þróun hef-
'ur staðið yfir frá aldamótum, þegar
sjávarbæimir fóm að byggjast. Fólk
leitar í þéttbýlið og fínnst sjálfsagt
meira virði það sem þar er að hafa.
En til lengri tíma litið þá hef ég
ekki trú á öðra en að menn byggi
nokkum veginn allt landið," sagði
Vilhjálmur Hjálmarsson að lokum.
FIFA
W> RÚSSARNIR KOMA
Undankeppni Heimsmeistarakeppninnar 1990
ÍSLAND - SOVÉTRÍKIN
Atll
Ásgelr
Arnór
Belanov
Protassov
Dassajev
Islendingar með sitt sterkasta lið gegn sovésku snillingunum.
Síðast voru íslendingar nálægt sigri gegn þeim.
Missum ekki af einstökum knattspyrnuviðburði.
Forsala aðgöngumiða:
þriðjudag 30. ágúst frá kl. 12-18
á Lækjartorgi og Laugardalsvelli. *
Miðvikudag 31. ágúst frá kl. 12-16 á Lækjar
torgi og frá kl. 12 á Laugardalsvelli.
Aðgöngumiðaverð:
Stúka 800 kr.
Stæði 500 kr.
Börn 200 kr.
Dómari: Alan Snoddy frá N-írlandi
Línuverðir: T.O. Donnellyog F. McKnight.
Til vara: Guðmundur Haraldsson.
Homaflokkur Kópavogs leikurfrá kl. 17 undir
stjórn Björns Guðjónsssonar.
Knattspyrnusamband Islands.