Morgunblaðið - 30.08.1988, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1988
Forsetinn í hópi ungra Blönduósinga á leið til að gróðursetja birkitré. Morgunbiaðíð/Þorkcii
Heimsókn forseta í Húnavatnssýslur lokið:
KOM TÍL AÐ HTTTA FÓLK
- EKKl HORFA Á VEÐUR
Sveinn Þorgrímsson, staðarverkfræðingur, bendir yfir virkjunarsvæðið. Kornelíus Sigmundsson,
forsetaritari, Vigdís Finnbogadóttir, forseti, og Jóhannes Nordal, formaður stjórnar Landsvirkjun-
ar, njóta leiðsagnar Sveins.
Barðaströnd:
Heyskap
að ljúka
Innri-Múla, Barðastrandarhreppi.
HEYSKAP er nú senn lokið
hérna og hefur hann gengið
mjög vel þrátt fyrir rysjótt tíðar-
far.
Velgengnina má þakka tækni í
landbúnaðinum. Menn eru ekki eins
háðir tíðarfarinu og áður.
- SJÞ
Haraldur Rúnar Karlsson
Doktorsvörn
íjarðfræði
HARALDUR Rúnar Karlsson
varði doktorsritgerð í jarðfræði
við jarðeðlisfræðideild Chicago-
háskóla í Bandarikjunum mið-
vikudaginn 27. júlí. Ritgerðin
heitir „Oxygen and hydrogen
Isotope Geochemistry of Zeolit-
es“ og greinir frá þvi hvernig
nota má mælingar súrefnis á
vetnissamsætum til þess að kom-
ast að raun um við hvaða aðstæð-
ur geislasteinar myndast.
Fimm manna dómnefnd þekktra
vísindamanna lauk lofi á ritgerðina
og kvað hana brautryðjendaverk á
sínu sviði. Haraldur vann að dokt-
orsverkefni sínu í samvinnu við
R.N. Clayton prófessor.
Haraldur lauk stúdentsprófí frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1974
og BS-gráðu í jarðfræði frá Há-
skóla íslands 1978. Hann hefur
verið við nám í Chicago-háskóla
síðan haustið 1979.
Haraldur er sonur Karls Óttars
Guðbrandssonar, fyrrum húsa-
smíðameistara, og konu hans, Guð-
rúnar Haraldsdóttur. Haraldur er
kvæntur Abbie L. Kleppa og eru
þau hjón búsett í Chicago sem
stendur, þar sem Haraldur mun
halda áfram vísindastörfum.
Vitni vantar
Slysarannsóknadeild lögregl-
unnar í Reylgavík lýsir eftir vitn-
um að þremur árekstrum þar
sem tjónvaldur ók af vettvangi.
Milli klukkan 17 á fostudag og
9 á laugardagsmorgun var ekið á
dökkgráa Subaru fólksbifreið á
bílastæði við Hótel Esju. Nokkrar
skemmdir urðu á hurð bílsins.
Á efra bílastæðinu við Kringluna
var ekið á hvíta Lödu um klukkan
18.30 föstudaginn 26. sl.
Ekið var á bláa VW Golf bifreið
á bílastæði við Miðbæ Háaleitis-
braut milli klukkan 17 og 23.30 á
laugardag.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Blönduósi, frá Urði Gunnarsdóttur.
Veðurguðirnir^ tóku óblídlega
á móti forseta íslands, Vigdísi
Finnbogadóttur, er hún brá sér
út á Skaga, nyrstu sveit i Húna-
vatnssýslu, á sunnudag. „Hingað
kom ég til að hitta fólk, ekki
horfa á veður,“ sagði Vigdís er
heimamenn lýstu óánægju með
veðrið. Úrhelli var og mjög
hvasst. Heimsókn forseta i Húna-
vatnssýslur lauk á sunnudags-
kvöld er Jón ísberg sýslumaður
kvaddi forseta og fylgdarlið við
Hrútafjarðará.
Húnvetningar hafa ekki látið
veður hindra sig í að taka vel á
móti forseta sínum. Skagstrending-
ar höfðu prýtt aðalgötur bæjarins
fánum og fjölmenntu við komu for-
seta þangað á föstudagskvöld. Tók
Adolf Bemdsen oddviti á móti
Vigdísi og sýndi henni bæinn. Var
síðan haldið til kvöldverðar í boði
Höfða-, Vindhælis- og Skaga-
hreppa. Þar flutti Kristján Hjartar-
son forseta átján erinda drápu eftir
son sinn Rúnar, sem hann gat ekki
verið viðstaddur. Þess má geta að
Kristján er bróðir Hallbjöms Hjart-
arsonar, kántrísöngvara. Að lokn-
um kvöldverði var íbúum hreppanna
boðið til kaffísamsætis.
Á laugardag var haldið í Húna-
ver þar sem forseti drakk morgun-
kaffi með íbúum Svínavatns-, Ból-
staðarhlíðar- og Engihlíðarhreppa
og gróðursetti þrjú birkitré með
bömum í hreppunum.
Úr Húnaveri lá leiðin upp að
Blönduvirkjun. Þar tóku forsvars-
menn Landsvirkjunar, þeir Jóhann-
es Nordal stjómarformaður, Hall-
dór Jónatansson, forstjóri og Sveinn
Þorgrímsson staðarverkfræðingur
á móti forsetanum. Var haldið niður
800 m löng jarðgöng sem liggja
úr stöðvarhúsinu inn í bergið. Skoð-
uðu gestir stöðvarhúsið, sem er enn
í byggingu. Síðan var haldið upp á
Auðkúluheiði, þar sem stíflumann-
virki voru skoðuð og gestum sýnt
hvar uppistöðulón Blönduvirkjunar
verður, en það verður eitt af stærstu
vötnum landsins. Svæðið sem
Blönduvirkjun nær yfír er feikna-
stórt, að sögn staðarverkfræðings,
álíka stórt og umráðasvæði allra
virkjana Landsvirlgunar á Suður-
landi.
Að skoðunarferð lokinni var
snæddur hádegisverður í boði
Landsvirkjunar. Áður en ekið var
frá Blönduvirkjun gróðursetti for-
seti þijú birkitré í skógræktarreit
ásamt tveimur bömum. Landsvirkj-
un hefur ræktað upp 1.200 hektara
örfoka lands og gróðursett um
20.000 tré til að bæta heimamönn-
um gróðurtap vegna framkvæmda
við virkjunina.
Þá var haldið til Húnavalla þar
sem Sigríður Höskuldsdóttir hús-
freyja á Kagaðarhóli fagnaði for-
seta fyrir hönd íbúa Torfalælq'ar-,
Sveinsstaða- og Áshrepps. Færði
hún forseta að gjöf mynd af Þverár-
kirkju, sem Guðráður Jóhannsson
málaði. Samkvæmt venju var síðan
gróðursett með dyggri aðstoð bam-
anna og kaffidrykkju.
Frá Húnavöllum hélt forseti til
Blönduóss þar sem snæddur var
kvöldverður í boði bæjarstjómar.
Milli rétta flutti Leikfélag Blöndu-
óss frumortan forsetabrag. Forseta
voru einnig færðar gjafir, dúkur og
vettlingar, sem Sigfríður Angantýs-
dóttir pijónaði, og sauðskinnsskór,
sem Þorbjörg Magnúsdóttir gerði.
Illa viðraði á fjórða og síðasta
degi forsetaheimsóknarinnar. Fyrst
brugðu gestir sér í Blönduósskirkju
þar sem séra Ámi Sigurðsson tók
á móti þeim og sýndi þeim altaris-
töflu, sem Jóhannes Kjarval mál-
aði. Þaðan var ekið út á Skaga að
Hofí og kirkjan þar skoðuð. Sveinn
Sveinsson frá Tjöm og séra Ægir
Sigurgeirsson sýndu forseta kirkj-
una, sem var vígð 1870 og er elsta
kirkjan í prófastsdæminu. Hún er
úr viði og er tekin að síga en nú em
í undirbúningi gagngerar endur-
bætur á henni, að sögn séra Ægis.
Fagnaði Vigdís því, en hún leggur
ríka áherslu á að gamlar trékirkjur
sem enn standa verði varðveittar.
Sveinn sagði að í Skagahreppi, eins
og í fleiri hreppum, hefðu menn nú
áhyggjur af fólksfæð en í hreppnum
em nú 17 býli. Aðeins fímm böm
em undir fermingu, öll systkini.
Færði Sveinn síðan forseta tréplatta
með víkingamunstri, sem Jóhann
Baldvinsson vann.
Úti fyrir nauðaði vindurinn og
bæjarlækimir fossuðu sem stórfljót
niður hlíðamar og var því hætt við
skoðunarferð um Skagann. Til að
bæta forseta það upp bauð Rafn
Sigurbjömsson hreppstjóri Skaga-
hrepps forseta og fylgdarliði í kaffí,
heim að Örlygsstöðum II. Vakti
snyrtileg umgengni hjónanna Rafns
og Ingibjargar Olafsdóttur aðdáun
gestanna en óvíða getur að líta jafn
snyrtiiegan bæ að utan sem innan.
Frá Skaga var haldið til Blöndu-
óss. Að loknum hádegisverði á
heimili sýslumannshjónanna var
ekið um staðinn. Kom forsetinn við
á heimilisiðnaðarsafni sem Sam-
band austur-húnvetnskra kvenna
hefur reist. Þar getur m.a. að líta
margt muna úr eigu Halldóm
Bjömsdóttur. Þá var haldið í Hnit-
björg, dvalarheimili aldraðra. For-
seti gaf sér tíma til að heilsa upp
á hvem og einn vistmann og skoð-
aði sýningu á munum sem þeir
höfðu gert. Færði vistfólk henni
gjafír, m.a. sjal úr eingirni.
í lok skoðunarferðarinnar um
Blönduós vom tré gróðursett í
Fagrahvammi og síðan haldið í fé-
lagsheimilið þar sem hátt á fjórða
hundrað manns þáðu kaffí.
Fór nú að líða að lokum ferðar
forseta, haldið var fram Vatnsdal
og komið við á Hofí. Þar gróður-
setti Vigdís síðustu birkitrén í ferð
sinni um sýsluna. Þaðan var haldið
í Flóðvang og fengin hressing fyrir
suðurferð. Einnig var staðnæmst
við Þórdísarlund. Þar stendur minn-
ismerki um meybam það, sem kona
Ingimundar gamla, landnáms-
manns á Hofí í Vatnsdal, fæddi í
lundinum og nefndi Þórdísi.
Úr Vatnsdal var haldið að Þing-
eyrarkirkju þar sem Ólafur Magn-
ússon, formaður sóknamefndar,
sagði frá kirkjunni. Áður en haldið
var þaðan fór séra Stína Gísladóttir
farprestur með ferðabæn. Sýslu-
nefnd Austur-Húnavatnssýslu
kvaddi forseta á Þingeymm en Jón
ísberg sýslumaður fylgdi henni að
sýslumörkum Vestur-Húnavatns-
sýslu við Hrútafjarðará og lauk þar
með formlega opinberri heimsókn
Vigdísar í Húnavatnssýslur.