Morgunblaðið - 30.08.1988, Blaðsíða 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1988
Meðlimir hljómsveitarinnar „The Rolling Stones“ gætu hafið sam-
starf aftur á næsta ári, „ánægjunnar vegna“, er haft eftir Mick
Jagger. Hann tilkynnti þessi tíðindi þegar hann var staddur á
Heathrow flugvelli á leið til Ástralíu þar sem hann mun starfa
næstu fimm vikur. Hljómsveitin fagnaði því fyrir tveimur mánuð-
um að 25 ár eru liðin frá því að fyrsta sólóplata þeirra kom út.
Síðusta hljómleikaferð þeirra var farin árið 1982.
Eijur höfðu komið upp milli Mick Jagger og gitarleikarans
Keith Richards og var samstarf þeirra í hljómsveitinni meðal
annars sagt í vafa af þeim sökum. Árið 1986 héldu þeir tónleika
í Lundúnaborg til minningar Ian Stewart, framkvæmdastjóra /
hljómsveitarinnar, og var síðasta hljómplata þeirra „Dirty Work“
gefin út sama ár.
Þessi skór eru mjög sérstakir. Poppstjarnan Michael Jackson
hafði þá á fótum áður, en guð má vita á hvaða stígum þeir tróðu.
Þeir voru seldir á uppboði fyrir litlar 300.000 ísl. krónur, en
ekki er vitað hvaða aðdáandi var svo gæfusamur að eignast þá.
Báðir skórnir eru áritaðir af goðinu.
Vestur þýska flugfélagið Lufthansa kynnti sina fyrstu kvenflug-
menn í vikunni, þær Nicole Lunemann og Evi Lausrnann. Hér
má sjá þær kampakátar þar sem þær standa fyrir framan Boeing
737 og munu báðar fljúga slíkum vélum í byijun starfsferils síns.
fclk í
fréttum
KVIKMYNDUN
Að sögn FViðriks Þór segir sagan
í stuttu máli frá ungum dreng sem
bjó sér til vængi og gat flogið.
Þegar fréttist af þessu undri lét
biskup kalla hann fyrir, og voru
vængimir brenndir. Var það mikið
áfall fyrir drenginn sem tærðist upp
og dó.
Friðrik Þór með „Flugþrá“
Um þessar mundir ér Friðrik
Þór Friðriksson að vinna að
nýjustu kvikmynd sinni „Flugþrá".
Er handritið skrifað eftir atriðum
sem séra Oddur Einarsson skráði,
og eru heimildir sannsögulegar.
Kvikmyndataka fer fram hjá Hvítá
nærri þeim stað sem atburðir áttu
sér stað.
Fjöidi úrvalsleikara koma við
sögu, og em um 60 manns sem
gegna hlutverki í myndinni. Unga
manninn leikur Þröstur Leó Gunn-
arsson, móður hans leikur Krist-
björg Kjeld, og föðurinn leikur
Steingrimur Hjörleifsson. Rúrik
Haraldsson leikur biskupinn og
Sveinn M. Eiðsson leikur blóðtöku-
mann. Valinkunnið lið sér um aðra
þætti við vinnslu myndarinnar.
Morgunblaðið/Þorvar Hafsteinsson
„Illt er að fljúga fjaðralaus". Þröstur Leó breiðir út vængina.
Tökum lýkur 9. september og
verður myndin tilbúin til sýninga í
haust. Mannskapurinn stendur sig
með miklum sóma og gengur upp-
taka eftir áætlun, að sögn Friðriks
Þór Friðrikssonar leikstjóra og
handritshöfunds. Og þá er bara að
bíða þar til sýningar hefjast í haust.
Anna, Signin (smink), Hreiðar (aðstoðartökumaður), Guðmundur (kvikmyndatökumaður), Friðrik Þór
(leikstjóri) og Jónas, við bakka Hvitár.