Morgunblaðið - 30.08.1988, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1988
31
1—2 fulltrúar frá hverri bekkjar-
deild skólans.
Ef skólinn væri orðinn meira fjár-
hagsleg sjálfstæður, væri eðlilegt
að foreldrar ættu fulltrúa í stjóm
skólans og fylgdust með hvernig
fjármagni væri varið. Ljóst er að
foreldrar myndu þannig fá meiri
áhuga á að styðja við skóla barna
sinna, einnig varðandi húsnæðis-
mál, búnað og umhverfi skólanna.
Foreldar myndu með virkari þátt-
töku í skólastarfi gera sér betur
grein fyrir þörf á auknu ijármagni
til skólamála. Þeim yrði ljósara
mikilvægi þess að byggja nauðsyn-
legt og rúmgott húsnæði yfir æsk-
una. Við virðumst hafa ráð á svo
mörgu öðm, m.a. að byggja glæstar
verslunar- og peningahallir yfir
dauða hluti.
Fræðsluvarp
Allir vita að það hefur hvetjandi
áhrif á börn og unglinga, ef foreldr-
ar sýna námi og störfum þeirra í
skóla áhuga.
Með þjóðlífsbreytingum, sem
orðið hafa og aukinni vinnu kvenna
utan heimila, hefur dregið úr
heimavinnu nemenda og aðstoð frá
heimilum við námið. Einnig hefur
efling sjónvarps- og myndbanda og
annarra fjölmiðla haft sitt að segja
í þessum efnum og tekið mikinn
tíma af samvemstund fjölskyldunn-
ar.
Því er nauðsynlegt að nýta þessa
nýju tækni, bjóða hana velkomna,
en ná valdi á henni, m.a. til að efla
og auðvelda nám og fræðslu innan
veggja heimilanna í samvinnu við
skólana.
Því ber að fagna aukinni hlut-
deild sjónvarps í fræðslu með til-
komu fræðsluvarps, sem gæti orðið
til að efla umræðu og áhuga á
skólamálum og gefa foreldrum betri
möguleika á að fylgjast með því sem
verið er að kenna í skólunum og
ræða það við böm sín.
Ýmislegt námsefni gæti höfðað
betur til áhuga sumra nemenda á
þennan hátt, og stuðlað að því að
nemendur fengju jafn betri og ljós-
ari fræðslu í sumum tilfellum. Skól-
ar myndu ýmist geta nýtt sér beina
útsendingu sjónvarpsins eða tekið
efnið á myndbönd.
En það má segja, að fræðsluvarp-
ið sé nú rétt í fæðingu og það er
dýrt að koma því á laggimar og
því mun ekki veita af ríflegum
„fæðingarstyrk". Því vil ég hreyfa
þeirri hugmynd að þeir aðilar, for-
eldrar, kennarar og nemendur, sem
mest samstarf þurfa að eiga um
fræðsluvarp og mest not af því,
taki höndum saman og færi barninu
„vöggugjöf'.
Tillagan væri eitthvað í þá átt,
að hver bekkjardeild, ein eða fleiri,
taki saman dagskrá um eitthvert
efni t.d. náttúm eða umhverfis-
vernd, — varðveislu móðurmálsins,
— skógrækt, — sögulega atburði, —
heilsuvernd eða hvað sem væri, þar
sem hver og einn nemandi kæmi
fram og gerði eitthvað. Samkoma
með tilheyrandi dagskrá yrði síðan
fyrir foreldra eða afa, ömmur eða
eldri systkini og aðgangur seldur
t.d. eins og á kvikmyndasýningu.
Skólinn safnaði þannig peningum
og veitti þeim í fræðsluvarp. Síðan
mætti velja einhver dagskráratriði
úr skólanum sem ástæða þætti til
að taka upp, jafnvel með lagfæringu
og nota í fræðsluvarpi.
Með auknu sjálfstæði skóla,
fræðsluvarpi og stórefldu samstarfi
við foreldra getur skólinn orðið
vagga nýs og betra samfélags.
Höfundur er fræðslustjóri
Reykja víkurumdæmis.
KOSTABOÐ TIL KORTHAFA VISA !
Fyrstu 15 daga Septembermánaðar fá allir korthafar VISA sérstakan auka - afslátt:
10 % VISA - AFSLÁTT
ef öll upphæðin er greidd með VISA
5% VISA - AFSLÁTT
ef kaupverðinu er skipt í 2 mánaðargreiðslur eðafleiri með VISA RAÐGREIÐSLUM,
sem geta verið til allt að 11 mánaða.
KORTHAFAR ! KYNNIÐ YKKUR ,TEPPATRAUSTM OKKAR !
Teppabúðin hf. býður úrvalsgólfteppi frá WESTON - ensku ullarteppin frá STODDARD
ásamt mörgum öðrum merkjum frá helstu teppaframleiðendum.
Fjölbreitt úrval af stökum teppum og mottum á parket og flísagólf.
í Teppabúðinni hf. fást hinir rómuðu ARMSTRONG gólfdúkar, sem ekki þarf að líma,
norska BOEN gæðaparketið og úrval CORCEMA korkflísa.
í þessum mánuði bætast svo keramikflísar og marmari við gólfefnaúrvalið.
Teppabúðin hf. er því sannkallaður gólfefnamarkaður.
VISA
TEPPABCÐIN
GÓLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRAUT 26 S - 91 681950
HAPPDRÆTTI
5 Ford Bronco - 40 Fiat Uno
Dregið 12. september.
Heildarverðmœti vinninga 21,5 milljón.
/i/tt/r/mark
4/1 l«i 4il
. U i 1
U14
5-iili