Morgunblaðið - 30.08.1988, Side 33

Morgunblaðið - 30.08.1988, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1988 38 Háskóli íslands: Nýir hjóna- garðarvígðir NÝIR hjónagarðar voru vígðir á laugardag, og bættust þá 15 íbúðir við það húsnæði sem Fé- lagsstofnun stúdenta hefur yfir að ráða. Alls verða 93 íbúðir í nýju hjónagörðunum, tveggja og þriggja herbergja, og er gert ráð fyrir að þær síðustu verði tilbúnar í ágúst á næsta ári, en 60 nýjum íbúðum verður væntanlega ráðstafað i vetur. Fyrsta skóflustungan að hjóna- görðunum var tekin 1. desember 1986 og jarðvinna hófst í febrúar 1987. Bygging garðanna hefur því tekið um eitt og hálft ár. í húsinu verða 93 íbúðir, þriðjungur þeirra þriggja herbergja, 60 fermetra, en hinar um 50 fermetra, tveggja herbergja. í húsinu eru sameigin- leg þvottahús, lesstofur, geymslur o.fl. Að sögn Eiríks Ingólfssonar, framkvæmdastjóra Félagsstofn- unar stúdenta, var bygging hjóna- garðanna boðin út í mörgum hlut- um, en yfirumsjón með verkinu hafði Sigurður K. Eggertson byggingarmeistari. Eiríkur sagðist telja að sú tilhögun að bjóða verk- ið út í mörgum smáum þáttum hefði gert það að verkum að bygg- ingarkostnaður hefði orðið mjög lítill, en kostnaður á hvem fer- metra, að meðtaldri sameign, er um 42 þúsund krónur. „Hjónagarðamir flokkast undir félagslegar byggingar og fékkst því lán frá Húsnæðisstofnun fyrir 85% byggingarkostnaðar. Félgs- stofnun stúdenta, sem bygginga- raðili, þarf síðan að standa straum af öðmm kostnaði og hafa stúd- entar sjálfír átt stærstan hlut í því með hækkun skólagjalda, en einn- ig hefur fengist styrkur frá Háskó- lanum og nokkmm fyrirtækjum. Búið er að útvega helminginn af því fé sem þarf til að ljúka bygg- ingu hússins, en það em um 50 milljónir" sagði Eiríkur. Við vígsluathöfnina á laugardag flutti Eiríkur ávarp fyrir hönd Félagsstofnunar stúdenta, Valdi- mar K. Jónsson, formaður bygg- ingamefndar talaði og sömuleiðis Guðmundur Gunnlaugsson, arki- tekt húsins. Teikning hans og Péturs Jónssonar landslagsarki- tekts, hlaut fyrstu verðlaun í sam- keppni sem efnt var til 1984 þeg- ar ákveðið var að byggja nýja hjónagarða og varð því fyrir val- inu. Leiga fyrir tveggja herbergja íbúð á hjónagarði er nú 17,700 krónur, en 22.100 fyrir þriggja herbergja íbúð. Að sögn Eiríks fá nú innan við 5% Háskólastúdenta inni á stúdentagörðum, en verða um 6— 7% eftir að húsinu verður lokið. Hjónagarðamir em einkum ætlaðir hjónum eða fólki í sambúð með böm, sem og einstæðum for- eldrum. AUs hefur Félagsstofnun stúdenta á sínum snæmm 100 ein- staklingsherbergi og 69 íbúðir, en í sumar hafa borist yfír 400 um- sóknir um húsnæði fyrir næsta vetur. Sauðfjárbændur: Vilja flytja kindakjöts- birgðirnar út í einu lagi Kostnaður við 3.500 tonn er 670 milljónir Siglingamálastofnun ríkisins: Prófanir á sjósetning- arbúnaði standa yfir Selfossi. „Birgðimar era alltaf að þvælast fyrir okkur hvar sem borið er niður,“ sagði Jóhannes Kristjánsson, formaður félags sauðfjár- bænda. Um síðustu mánaðamót námu birgðir kindakjöts 3.500 tonn- um. Vaxta- og geymslukostnaður af þessum birgðum er 670 milljón- ir króna. Jóhannes hefur varpað fram þeirri hugmynd að óska eftir tílboðum í birgðirnar i einu lagi erlendis frá svo losna megi við þær fyrir fullt og allt. Þetta mál var ásamt öðrum rætt á aðalfundi Land- sambands sauðfjárbænda á Flúðum á föstudag og laugardag. „UM þessar mundir standa yfir athuganir á sjósetningarbúnaði gúmbjörgunarbáta hjá Siglinga- málastofnun rikisins samhliða athugun á staðsetningu gúm- björgunarbáta um borð i íslensk- um skipum,“ sagði Magnús Jó- hannesson, siglingamálastjóri, í samtali við Morgunblaðið. Tilefni þess að haft var samband við siglingamáiastjóra eru greinar- skrif Þórhalls Ottesens, stýrimanns á ms. Heklu, í Morgunblaðið í síðustu viku um bilanir í sjálfvirkum sleppibúnaði björgunarbáta. í grein sinni skrifar Þórhallur að sjálfvirkur sleppibúnaður hafí ekki reynst sem skyldi og þvi séu íslenskir sjómenn betur settir án hans. „Sá búnaður sem um er rætt var fyrst settur í íslensk skip árið 1984 ■ að afloknum prófunum," sagði Magnús. „Einu til tveimur árum seinna komu fram gallar við skoðun og gerðar voru kröfur um að fram- leiðendur lagfærðu búnaðinn. Það var gert en síðar kom í ljós að lag- færingar reyndust ekki fullnægj- andi og var viðurkenning Siglinga- málastofnunar á búnaðinum þá dregin til baka. Það er ljóst að regl- ur um sjálfvirkan sleppibúnað voru settar áður en nægileg reynsla hafði fengist til þess að gera viðhlítandi prófanir á búnaðinum," sagði Magnús. „Þessi ákveðni búnaður var aðeins settur upp í 6 skipum og þegar hefur verið skipt um bún- að í 3 þeirra." Magnús sagði að um þessar mundir stæðu yfír prófanir á sjó- setningarbúnaði hjá Iðntæknistofn- starfi við Siglingamálastofnun en of snemmt væru að segja nú hveij- ar niðurstöður þessara athugana yrðu. Auk prófana væri nú einnig lögð sérstök áhersla á að kanna staðsetningu björgunarbáta við skoðun skipa. Að sögn Magnúsar hafa siglingamálayfírvöld á Norður- löndunum mikinn áhuga á niður- stöðum þessara prófana og fylgjast vel með framgangi mála hér á landi. „Það þýðir ekki að velta þessu svona áfram ár eftir ár. Við lftum þannig á að þetta kjöt sé eign ríkis- ins og með þessu er verið að eyða peningum út í loftið. Við erum fastir í þessari stöðu, kindakjötið er eina kjötið sem er með fast verð og það er leiðbeinandi fyrir verð á öðru kjöti. Það er verið að geyma lélega vöru sem við höfum ekkert við að gera og það þarf að taka til hendinni strax í haust við að losna við þetta," sagði Jóhannes. Hann sagði einnig að þegar birgðimar væru famar væri hægt að tala um það sem væri raun- hæft. Ein þeirra hugmynda sem komið hefur upp til að spara geymslupláss er að grófstyklq'a kjötið eftir slátmn, saga það niður í kassa og flokka eftir þyngdar- flokkum. Með þessu væri hægt að spara 40% geymslupláss. Hægt er að losna við afskurðinn, Morgunblaðið/Ámi Sæberg Kaþólska biskuparáðið á Norðurlöndum. Frá vinstri: Hr. biskup, Hans Martensen, Kaupmannahöfn, varaformaður biskuparáðsins, sr. Georg MUller, Þrándheimi, hr. biskup, Gerhard Goebel, Tromso, hr. biskup, John Gran, aðalritari biskuparáðsins, hr. biskup, Páll Verschuren, Helsinki, formaður biskupar- áðsins, hr. biskup, Alfreð Jolson SJ, Reykjavík, hr. biskup, Gerhard Schwnzer, Osló, hr. William Ken- ney, aðstoðarbiskup, Stokkhólmi og hr. biskup, Húbert Brandenburg, Stokkhólmi, varaformaður biskup- un sem unnar væm í nánu sam- aráðs. 1—2 þúsund tonn, í refafóður og þegar hann er dreginn frá þeim 11 þúsund tonnum sem verðábyrgð ríkisins nær til þá nægir kjötmagn- ið sem eftir er innanlandsneyslunni og Færeyjamarkaðnum. Jóhannes sagði að kjötbirgðimar kæmu einnig i veg fyrir að slátur- leyfíshafar gætu tekið á móti kjöti af fé sem slátrað væri fyrr því þeir væm alltaf með allt fullt af kjöti. Á aðalfundinum var einnig varp- að fram hugmyndum um útflutning á lifandi fé, mögulega til Evrópu líkt og hrossabændur hafa gert. Jóhannes sagði að bent hefði verið á þann möguleika að flytja hross og sauðfé út f sama skipi. — Sig. Jóns. Kaþólskt bisk- uparáð Norð- urlanda fund- ar í Reykjavík BISKUPARÁÐ Kaþólsku biskup- anna á Norðurlöndum kom sam- an til fundar í Reykjavík dagana- 20.— 25. ágúst. Fundurinn var haldinn í biskupshúsinu í Landa- koti. Biskupamir ræddu einkum komu páfans til Norðurlanda í júní á næsta ári, en hann verður staddur hér á landi 3. og 4. júní n.k. Einn- ig var rætt um lagalega og guð- fræðilega stöðu biskuparáðsins og samband biskuparáðanna við ein- staka biskupa og páfann. Sendiherra páfans á Norðurlönd- um, erkibiskupinn Henri Lema itre, var sérstakur gestur fundarins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.