Morgunblaðið - 30.08.1988, Side 37

Morgunblaðið - 30.08.1988, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1988 37 Bretland: Aukínn þrýstingur á frekari hækkun vaxta St. Andrews, frá Guðmundi Heiðari Frímannsyni, frétUu-itara Morgunblaðsins. I KJOLFAR vaxtahækkunarinnar síðastliðinn fimmtudag og mesta halla á viðskiptajöfnuði við útlönd í einum mánuði nokkurn tíma, hafa komið fram efasemdir um stefnu fjármálaráðherrans, Nigel Lawsons. Talsmenn Verkamannaflokksins segja alla sína gagnrýni á síðasta fjárlagafrumvarp komna fram. Hækkun vaxta um 1%, upp í 12%, í kjölfar viðskiptahallans í júli skað- ar samkeppnisaðstöðu iðnaðar. Hækkun pundsins hefur einnig kom- ið illa við útflutningsiðnað. Fjármál- asérfræðingar í City, Qármálahverfi Lundúna, telja að vextir verði enn að hækka um 1% til að slá á mikla neysluaukningu. Pjármálaráðher- rann hefur hins vegar sagt að 12% grunnvextir verði um langa hríð og þeir verði ekki hækkaðir. Talið er að verðbólgan muni fara úr 4,8% í 6% síðar á árinu vegna of mikils vaxtar í efnahagslífmu. Andstæðingar ráðherrans, bæði innan íhaldsflokksins og talsmenn Verkamannaflokksins, hafa átalið hann fyrir að grípa ekki til aðhalds á útlánum í stað þess að hækka vexti. Það hefur einnig verið lagt til að skattar verði hækkaðir, en ein af ástæðunum fyrir mikilli aukningu neyslu er mikil skattalækkuní síðustu fjárlögum. Þar voru skattar í hæsta skattþrepi lækkaðir úr 60% í 40%. Það er talið útilokað að snúið verði af braut skattalækkana og takmörk á útlánum þýða höft á fjár- magnsflutninga milli landa, sem fyrsta stjóm frú Thatcher aflétti árið 1981. Frú Thatcher styður aðgerðir Lawsons nú en telur, að þau sjónar- mið, sem hún setti fram fyrr á ár- inu, að vextir og verðlag pundsins ættu að ráðast af markaðsaðstæð- um, hafi reynst á rökum reist. Þá voru ummæli hennar skilin sem óbein gagnrýni á fjármálaráðher- rann. Húsnæðislánavextir hækkuðu í 12,5% og búist er við frekari hækk- unum á þeim. Þær koma illa við lántakendur og þurrka út skatta- lækkanimar, sem fengust fyrr á árinu. Vaxtahækkunin er einnig talin munu lækka verð á Breska stálfyrir- tækinu, sem ríkið hyggst selja síðar á þessu ári, úr 2,5 milljarði punda í tvo milljarða vegna aukins kostnað- ar og minni hagnaðar. Alþjóðlegir fjármálamenn, sem hafa íjárfest fyr- ir milljarða punda í Bretlandi, hafa áhyggjur af því að efnahagslífið sé ekki eins traust og af er látið. Ef þeir drægju fé sitt úr landinu gæti það haft mjög afdrifaríkar afleiðing- ar fyrir gengi pundsins. ERLENT Reuter Geimskotí Sovétríkjunum Sovéskri geimflaug var skotið á loft frá Baikonur-geimrann- sóknarstöðinni í Asíuhluta Sov- étríkjanna á aðfaranótt mánu- dags. Um borð eru þrír menn, þar af einn Afgani en maður þeirrar þjóðar mun ekki hafa haldið í ferð um óravíddir himingeimsins áður. Sjónvarpað var beint frá Baikon- ur-rannsóknarstöðinni er Sojuz- geimfarinu var skotið á loft. Á morgun, miðvikudag, hyggst áhöfnin tengja geimfarið við „Mír“-geimstöðina, sem er á braut umhverfís jörðu. Hinn 29 ára gamli Abdol Ahad Mohammand og annar sovésku geimfaranna munu dvelja í viku í geimstöðinni áður en þeir snúa aftur til jarðar. Hinn Sovétmaður- inn, Valerí Poljakov, sem er lækn- ir að mennt, munu hins vegar verða eftir í „Mír“ og fylgjast með heilsufari þeirra Vladimírs Títovs og Musa Manarovs sem verið hafa um borð í geimstöðinni frá því í desember á síðasta ári. Þeir þrír munu síðan halda aftur til jarðar 21. desember og munu þeir Títov og Manarov þá hafa sett nýtt dvalarmet í geimnum. Reuter Blóðug- ar óeirðir SL AndrewB, frá Guðmundi Heiðari Frímannsyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Á laugardagsmorgun síðastlið- inn var féiagi i írska lýðveldis- hernum (IRA) framseldur frá ír- landi til Norður-írlands. Robert Russell, hryðjuverkamaður IRA, flýði úr Maze-fangelsinu fyrir fimm árum síðan, þar sem hann afplánaði tuttugu ára dóm fyrir hryðjuverk. Blóðugar óeirðir hafa verið á N-írlandi um helgina. Russell hafði haldið sig á írlandi og hlotið þar dóm fyrir ofbeldisverk. Sinn Fein , stjómmálaarmur IRA, stóð fyrir mótmælum báðum megin landamæranna gegn framsalinu. í kjölfar þess hófust blóðugar óeirðir á N-írlandi, sem stóðu alla helgina. Á einum sólarhring var ráðist 193 sinnum á lögreglu og her á N-ír- landi, fjöldi sprengja sprakk og skot- ið var á lögreglu, hermenn og óbreytta borgara. Þetta eru verstu róstur á N-Irlandi í fímmtán ár. Hækkuð hafa verið verðlaun fyrir upplýsingar sem leiða til þess að vopn IRA finnast eða hryðjuverka- menn verði gripnir, úr 400 þúsund í átta milljónir ísl. kr. Fjölgað hefur verið í sérsveitum hersins og leyniþjónustan efld í kjöl- far hryðjuverka IRA undanfarið. í breska dagblaðinu The Sunday Tim- es síðastliðinn sunnudag kemur fram að njósnir höfðu borist af sumum hryðjuverka IRA, en mannlegum mistökum kennt um, að ekki var komið í veg fyrir þau. TEIKNAÐU MEÐSTÍL NÝJUNG: TEIKNIVÉLAR FYRIR ÖRVHENTA LÍKA! í ítölsku Tecnostil teikniborðunum og -vélunum felst snilldarhönnun sem kemur íslenskum teiknurum - nemum jafnt sem atvinnumönnum - til góða. Þar sameinast nákvæmni, fjölhæfni og þægindi í notkun um að gera þér sem auðveldast að teikna sem best. Með Tecnostil gengurðu að gæðunum vísum - verð- ið eróvæntánægja! Magnum80x 140cm, Plata hallanleg í 85° Hækkun/laakkun Exact2000teiknivéí. Kr. 54.340,- Studentl Hallanleg plata í 85° Hækkun/laekkun Exact/Full TG/b teiknivél Kr. 38570,- Nýjung: T eiknivélar fyrir örvhenta Ifka! Omni80x140cm. Hallanleg plata í 35° Haekkun/lækkun Kr. 11.258,- FYRIR FAST EINGÖNGU í RITFANGAVERSLUN MÁLS OG MENNINGAR •7 og menning Ritföng. Síðumúla 7- 9. Sími 68 9519.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.