Morgunblaðið - 30.08.1988, Page 56

Morgunblaðið - 30.08.1988, Page 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 1988 Arsskýrsla SIL: Mikill vandi steðj- ar að loðdýrarækt NÚ eru starfandi hér á landi 236 loðdýrabú, en voru 249 um síðustu áramót. Þá var refarækt stunduð á 169 loðdýrabúum, en þeim hefur síðan fækkað um 18 það sem af er þessu ári, og eru nú 151 talsins. Flest urðu refabúin 187 i fyrra, og hafa því 36 bændur hætt búskap með refi frá því í ársbyrjun 1987. Minkabændum hefur fjölgað mjög hér á landi, einkum undanfarin tvö ár, og eru þeir nú 163 talsins. Af þeim stunda 80 eingöngu minkarækt, en 83 búa bæði með ref og mink. Á landinu eru nú starfandi 13 loðdýraræktarfélög og 10 fóðurstöðvar, en þeim hefur fækkað um þijár frá því í fyrra. Kem- ur þetta fram í ársskýrslu Sambands íslenskra loðdýraræktenda, sem þeir Einar E. Gislason, formaður, og Jón R. Björnsson, framkvæmda- stjóri, fluttu á aðalfundi SÍL, sem haldinn var á Hvanneyri í síðustu viku. Refastofninn var um 18.000 læð- ur í ársbyijun 1987, en var rúmlega 16.800 um síðustu áramót, en það svarar til um 7% fækkunar milli ára. Minkastofninn var 23.900 læð- ur í ársbyijun 1987, en var orðinn 53.150 læður um síðustu áramót. Samsvarar það 122% aukningu milli ára. Ekki liggja fyrir endanleg- ar tölur um frjósemi á þessu ári, NÚ eru starfandi hér á Iandi 10 fóðurstöðvar, sem selja ioðdýra- bændum fóður, en nokkrir bænd- ur framleiða sjálfir fóður fyrir eigin bú. Áætluð framleiðsla fóð- urstöðvanna á þessu ári er 21.000 tonn, og er framleiðsluverðmæt- ið áætlað um 231 milijón krónur. Fóðurframleiðslan á siðasta ári var 15.500 tonn, og er aukningin á milli ára um 35%. Minkaræktin notar um 51% fóðursins og refa- ræktin um 49%. í ársskýrslu Samtaka fóðurfram- leiðenda kemur fram að fjárhags- staða fóðurstöðvanna er erfið, og hefur vinna við fjárhagslega endur- skipulagningu þeirra staðið yfír undanfarna mánuði, en er hvergi nærri lokið. Mikil óvissa ríkir um framtíð fóðurframleiðslunnar á næstunni, og veldur mjög erfíð staða refabænda auk óvissu um þróun loðdýraræktarinnar í heild þar mestu. Ríkisstjómin skipaði í vetur þing- mannanefnd til að vinna að tillögum til lausnar á vanda loðdýraræktar- en um 80.000 refahvolpar munu vera á fóðrum, og samsvarar það um 6 hvolpum á paraða læðu. Áætlaður fjöldi minkahvolpa er um 220.000, eða um 4,5 hvolpar á par- aða læðu. Uppbygging loðdýraræktarinnar hefur verið mjög ör frá árinu 1980, en þá hófst refarækt á ný hér á landi, og hlaut hún mjög góðan innar, og í framhaldi af því var Byggðastofnun falið að gera fjár- hagslega og tæknilega úttekt á hverri fóðurstöð. Þá skyldi lánum fóðurstöðvanna hjá Byggðastofnun breytt i hlutafé, sem stofnunin gæti síðan selt nýjum aðilum í loð- dýrarækt, og auk þess var stofnun- inni falið að taka 30—50 milljón króna lán til að leggja fram sem viðbótarhlutafé, eða til að endur- lána eftir atvikum. Athuganir Byggðastofnunar leiddu í ljósað um 80 milljónir króna þyrfti til viðbótar til að breyta lausaskuldum fóðurstöðvanna í föst lán, og fól ríkisstjómin stofnuninni að taka þetta fé að láni og endur- lána síðan fóðurstöðvunum. í árs- skýrslu Samtaka fóðurframleiðenda segir að Byggðastofnun hafí enn ekki afgreitt þessi mál fóðurstöðv- anna. Skapi þetta mikla óvissu um framtfðina, auk þess sem fjárhags- staðan versni stöðugt hjá fóður- stöðvunum og bændum vegna fjár- magnskostnaðar. stuðning hins opinbera og vom miklar vonir við hana bundnar. Hámarki náði refaræktin á síðasta ári og stunduðu hana þá 187 bænd- ur, en meðalbústærðin var um 100 læður á hvert bú. I ársskýrslu SÍL segir að bænd- um hafí tekist að ná góðum tökum á refaræktinni, og lífdýrastofninn hafí verið bættur með innflutningi lífdýra og kynbótastarfí. Gæði framleiðslunnar séu nú svipuð því sem best gerist á Norðurlöndum, og bestu skinnin meðal þess sem best þekkist erlendis. Vandi refaræktar Afkoma refabænda hefur verið afar erfið undanfarin tvö ár, og verð á blárefaskinnum hefur verið lélegt undanfarin þijú ár. Uppistaða fram- leiðslunnar hér á landi hefur verið blárefaskinn, og hafa íslenskir refa- bændur því í litlu notið hagstæðs afurðaverðs, sem verið hefur á blendingum og silfurref undanfarin ár. Forráðamenn SÍL segja í árs- skýrslunni, að heimatilbúin vanda- mál hafí leikið loðdýrarræktina illa. Sé framleiðsluverðmæti refarækt- arinnar athugað frá því hún hófst árið 1980 og fram til framleiðslu- ársins 1987-1988, þá komi í ljós að á því tfmabili hafi verið fram- leiddir um 290.000 refahvolpar, en framleiðsluverðmæti þeirra á verð- lagi í febrúar á þessu ári er um 660 milljónir króna. Ef gengi hefði hins vegar fylgt verðbólgu þennan tíma hefði framleiðsluverðmætið verið 855 milljónir króna. Misgengi hafí því valdið um 23% tekjutapi að meðaltali hjá refabændum á þessu tímabili, og hafí þeir þurft að greiða um 195 milljónir króna í kostnað, sem ekki kom inn í verðlagningu afurðanna. Innlendar, heimatilbún- ar aðstæður hafi þannig að miklu leyti skapað þann vanda sem refa- bændur eiga við að glíma í dag, og valdið stórfelldri eignaupptöku hjá þeim sem hætt hafa sér út í þessa atvinnugrein. Heimsframleiðsla á refaskinnum hefur vaxið ört undanfarin ár, og virðist hún nú vera um 20—25% umfram eftirspum. Gengi dollars, verðbréfahrun og minni áhugi á langhærðum skinnum eru taldar helstu orsakir verðfalls á refaskinn- um. Erfiðleikar eru einnig til staðar annars staðar á Norðurlöndum, og Samband fóðurframleiðenda: Vandi fóðurstöðv- anna óleystur enn Morgunblaðið/Hallur Stjórn Sambands Sslenskra loðdýraræktenda. Talið frá vinstri: Emil Sigurjónsson, Arvid Kro, Jón R. Björnsson, framkvæmdastjóri, Einar E. Gíslason, formaður, Ágúst GSslason og Jónas Jónsson. þykir samdráttur í framleiðslunni því vera óhjákvæmilegur. Er áætlað að hvolpum muni fækka um 20—25% frá síðastliðnu ári, og sam- kvæmt því ætti framboð á refa- skinnum að verða svipað og á sSðastliðnu ári, en um það bil 30% af framleiðslu síðasta árs er enn óselt. Hjálparaðgerðir hafa gengið seint í ársskýrslunni segir, að langan tíma hafí tekið að ákveða hjálparað- gerðir fyrir refabændur vegna hins mikla vanda þeirra, og enn sé ekki að fullu frá þeim gengið. Hafí þetta skapað mikla óvissu og óöryggi hjá refabændum, sem almennt hafi staðið vel að sínum rekstri, skapað umtalsverðar gjaldeyristekjur, létt á vandamálum hefðbundinna bú- greina og þorað að fara ótroðnar slóðir í atvinnuuppbyggingu. Það sé því kaldhæðni örlaganna að þetta fólk verður fómarlömb vandamála, sem að miklu leyti séu heimatilbúin og hafa kippt flestum stoðum undan afkomu þess, og þar með framtíð loðdýraræktar á íslandi. Fjárfestingin nálægt 2 milljörðum Fjárfesting í loðdýrarækt nemur nú um 1.9 milljarði króna, og skipt- ist þannig að í refaræktinni er hún um 700 milljónir, í minkaræktinni um 800 milljónir, og í fóðurstöðvun- um nemur fjárfestingin um tæplega 400 milljónum króna. Áætlað er að framleiðsluverð- mæti loðdýraræktarinnar verði um 430 milljónir króna á þessu ári. Verðmæti minkaframleiðslunnar á skinnaverði er áætlað um 300 millj- ónir og refaframleiðslunnar um 130 milljónir. Af loðskinnaframleiðslu ársins 1987 voru flutt út um 60.400 minkaskinn og 72.300 refaskinn. Af skinnum sem seld voru á upp- boðum í Danmörku, þar sem mikill meirihluti skinnanna var seldur, hafa 79% refaskinnanna selst og 69% minkaskinnanna. Meðalverðið á minkaskinnunum var 1.226 krón- ur, og er það 34% lægra verð en fékkst árið áður. Meðalverð refa- skinnanna var tæplega 1400 krón- ur, en það er um 38% lægra verð en fékkst árið áður. Óvissa ríkir varðandi framtíðina Forráðamenn SÍL segja í árs- skýrslunni að erfitt sé á þessari stundu að hafa mikla framtíðarsýn varðandi loðdýraræktina. Mestur tími samtakanna undanfama mán- uði hafí farið í að leita lausnar á þeim vandamálum sem við er að etja, og því lítið tækifæri gefíst til að gera framtíðaráætlanir, enda sé það erfitt þegar ekki liggi fyrir fullnaðarúrlausn aðsteðjandi vandamála. _ Orðrétt segir í árs- skýrslunni: íslensk loðdýrarækt er samkeppnishæf við það sem gerist erlendis. Hins vegar þarf lítið að velta fyrir sér framtíð loðdýrarækt- ar á íslandi ef efnahagslegar for- sendur breytast ekki. Loðdýrarækt getur ekki frekar en aðrar atvinnu- greinar staðist verðbólgu með föstu gengi og íjármagnskostnað með því hæsta í heimi. Samband íslenskra loðdýraræktenda: Mikill taprekst- ur á síðasta ári REKSTUR hagsmunasamtaka íslenskra loðdýraræktenda, SÍL, kom til umfjöllunar á aðalfundi samtakanna, en á síðasta ári varð nærri 2.4 mil^óna króna tap á honum. Eiginfjárstaða samtak- anna var þá orðin neikvæð um rúmlega 5 milljónir króna, og f áritun kjörinna endurskoðenda með ársreikningum SÍL segir að reksturinn sé kominn í greiðslu- þrot og stefni f gjaldþrot. Á aðalfundinum voru lagðar fram rekstraráætlanir fyrir árin 1988 og 1989, og samkvæmt rekstraráætl- uninni þessa árs, sem byggð er á upplýsingum úr bókhaldi fyrstu 7 mánuði ársins, kom fram að tekist hefur að rétta reksturinn nokkuð af, og lfkur eru taldar á að hann verði hallalaus á árinu. Um síðustu áramót setti land- búnaðarráðuneyið sérstakt kjarn- fóðurgjald á innflutning kolvetna- fóðurs, og nemur það nú 2 krónum á hvert innflutt kíló. Samtök fóður- framleiðenda fá 1,20 kr. af þessu gjaldi til starfsemi sinnar, en 80 aurar fara til starfsemi SÍL, og er áætlað að heildarupphæð kjarnfóð- urgjaldsins, sem rennur til SÍL á þessu ári, verði rúmlega ein og hálf milljón króna. Á aðalfundi SÍL var samþykkt tillaga um að hækka þetta gjald um helming frá og með næstu ára- mótum, og jafnframt að binda það við lánskjaravísitölu miðað við 1. september á þessu ári. Ætti kjarn- fóðurgjaldið samkvæmt þessu að skila rúmlega 3 milljónum króna til rekstrar SIL á næsta ári, og sam- kvæmt rekstraráætlun ætti með því að nást hallalaus rekstur á árinu. Miklar umræður urðu á aðalfund- inum vegna tillögunnar um hækkun kjarnfóðurgjaldsins, og fannst mörgum fulltrúum ekki veijandi að samþykkja hækkun gjalds, sem leiðir til hækkunar á verði loðdýra- fóðurs, á sama tíma og farið væri fram á aðstoð frá opinberum aðil- um, sem stuðla ætti að lækkun fóð- urverðs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.