Morgunblaðið - 10.12.1988, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 10.12.1988, Blaðsíða 20
i c- j®f #K<AffWTWAI <ff<?A I-9MTJx'HOIir. ; : 20........................................................ MORGUNBLÁÐIÐ; LAUGARDAGUR IO.- DESEMBER 1988 W^> iWjWjW ,W^\fSí®p3 Wm kl. 11.00 í dag er von á fyrstu jólasveinunum í KRINGLUNA. Með söng og glensi munu þeir skemmta „þægum jólabörnum". Seinna í dag koma fleiri góðir gestir: Léttsveit Tónmenntaskólans, Blás- arakvintett Reykjavíkur og síðast en ekki síst. Skólakór Garðabæjar. VERSLUN OG SKEMMTUN í EINNI FERÐ OPIÐ I dag verslanir, til kl. 18.00 Mánud.- föstud.: Verslanir opnar til 19.00 Laugard.: Verslanir opnar til kl. 16.00 Veitingastaðir, alla daga til kl. 21.00/23.30 VELDU AUÐVELDU LEIÐIIMA - 1600 ÓKEYPIS BÍLASTÆÐI /J j 0vWm fc, rMV W Bjórkassinn á 5.400 krónur eftir Arnór Ragnarsson Fyrir nokkrum dögum var boðað til blaðamannafundar þar sem Ólaf- ur Ragnar Grímsson fjármálaráð- herra _og Höskuldur Jónsson for- stjóri ÁTVR kynntu landslýð fyrir- hugað bjórverð. Ég er ekki viss um að landsmenn hafi áttað sig á þeim tölum sem fram komu á þessum fundi. Það kemur í ljós að bjórkass- inn á að kosta 5.40Ó krónur — þ.e.a.s. bjórkassi með 24 dósum þar sem hver dós tekur 0,5 lítra. Hér er um að ræða bjór að styrkleika 2,26-5,6% eins og landinn kaupir í Fríhöfninni og kostar 1.600 krónur sem er dýrt miðað við annan vínanda sem þar er seldur. Á þessum fundi hélt Ólafur Ragnar því fram að búast megi við því að 7 milljónir lítra seljist á næsta ári. Heldur hann virkilega að almenningur muni kaupa þennan rándýra mjöð? Mér er það til efs. Það má t.d. benda á að fýrir sama pening má kaupa tvær flöskur af fyrsta flokks vodka, rússneskum eða bandarískum, og auk þess tvo kassa af pilsner með næstum sama áfengismagni, eða 2,25%. Þessi bjór er svo dýr að hann er hrein munað- arvara. Hvað verður svo um sprúttarana þegar bjórinn kemur? Jú, þeir munu halda áfram að blómstra. Þeir munu smygla inn bjórtegundum sem ekki fást í Ríkinu og selja á svipuðu verði og þeir hafa gert — stærri kassinn á 4.500 krónur, og ekkert vandamál að finna kaupendur. Það er því eðlilegt að spurt sé: Má búast við því að annars ágætur pilsner sem nú er hér á boðstólum og kostar um 40 krónur (0,5 1) verði hækkaður upp úr öllu valdi eða verður 5—600% verðmunur á pilsner og bjór? Ég tel að bjórand- stæðingar hafi unnið glæsilegan sigur í fyrstu orustunni þó að stríðinu sé ekki lokið. Ég vil einnig taka það fram til skýringar að í þessum greinarstúf er aðeins verið að tala um verð á erlendum bjór. Hingað til hefir íslenski bjórinn ekki verið samkeppnishæfur vegna lakari gæða þó hann hafi verið á sama verði og sá erlendi í Fríhöfn- inni á Keflavíkurflugvelli. Vonandi verður breyting þar á. íslendingar hafa sótt í miklum mæli til Bretlands og Þýskalands Arnór Ragnarsson. „Það má t.d. benda á að fyrir sama pening má kaupa tvær flöskur af fyrsta flokks vodka, rússneskum eða banda- rískum, og auk þess tvo kassa af pilsner með næstum sama áfengis- magni.“ nú í haust. Þeir koma heim með fullar töskur af fatnaði sem þeir kaupa á hálfvirði. Síðan fara þeir í gegnum Fríhöfnina og versla bjór og áfengi. Þeir bera saman verð á áfenginu við verðið hjá ÁTVR og á bjórnum hjá sprútturunum og kom- ast að því að kostnaðurinn við að fljúga til útlanda er lítill sem eng- inn, og má segja að helsti keppi- nautur kaupmanna, ÁTVR og mat- sölustaðanna á íslandi séu Flugleið- ir hf. Það er nefnilega að verða æ algengara að Islendingar skreppi til Lúxemborgar í kvöldverð þar sem hægt er að fá mat á bestu veitingastöðunum fyrir 1.000-1.500 krónur á meðan samsvarandi máltíð kostar 5.000-7.000 krónur hér heima. Höfundur er blaðamaður. p [flfeife to cn lO co Gódan daginn!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.