Morgunblaðið - 10.12.1988, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988
- - ■- - - - - ^ t ■ ''_i_r : í : ... .1 r ;ia-
44
Nýja fískihöfiiin:
Leggjast fyrstu skip
að um hátíðarnar?
ALLT bendir til þess að fyrstu skipin leggist að nýju fiskihöfn-
inni milli athafnasvæða Slippstöðvarinnar og Utgerðarfélags Akur-
eyringa nú um hátíðarnar, að sögn Guðmundar Sigurbjörnssonar,
hafnarstjóra.
„Aðstaðan þarna verður bara
til bráðabirgða, en ég vona að við
verðum búnir að dýpka höfnina
nægiiega mikið til að geta hleypt
skipum þar inn nú um jólin. Við
eigum von á svo mörgum skipum
að það er nauðsynlegt að nota
fiskihöfnina. Aðstaða verður
reyndar ekki eins góð og menn
eiga að venjast. Það verður ekki
rafmagn á staðnum og lýsing tak-
mörkuð."
Guðmundur sagði að von væri
á mun fleiri skipum í höfn á Akur-
eyri nú en undanfarin jól. „Flest
heimaskipin verða í höfn, öll nema
eitt held ég, og einnig er töluvert
búið að biðja um pláss fyrir að-
komuskip," sagði hafnarstjóri.
Svartfiigl hf.: >
Óskað eftir gjald-
þrotaskiptum í gær
STJÓRN Svartfugls hf., sem
rak veitingastaðinn Fiðlarann í
Alþýðuhúsinu á Akureyri, ósk-
aði í gær eftir því að fyrirtækið
Allt til jólanna
Mikið úrval af inni- og útiserí-
um, kertum, servíettum o.fl.
Verðið kemur á óvart.
SÍR HF.
Furuvölium 1, Reynishúsinu,
600 Akureyri. S. 96-27788.
yrði tekið til gjaldþrotaskipta.
Að sögn Arnar Sigfússonar hjá
bæjarfógetaembættinu verður
beiðnin fljótt tekin til úrskurðar
og fljótlega eftir helgi liggur fyrir
hvort orðið verður við beiðni
stjómar fyrirtækisins.
Veitingastaðurinn hefur verið
lokaður í nokkrar vikur. Hússtjóm
Alþðuhússins átti á dögunum í
viðræðum við forráðamenn Baut-
ans hf., um að fyrirtækið tæki
rekstur veitingahússins í Alþýðu-
húsinu á leigu, en ekkert varð af
samningum. Það sem strandaði á
var að Bautamenn gátu ekki sætt
sig við að ekki var boðin lengri
leiga en sex vikur — sem var til
áramóta.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Hermann Árnason, umdæmisstjóri Lions á svæði 109B afhendir
Helgu Rakel Kristjánsdóttur skjöldinn í tilefni af því að hún hlaut
1. verðlaun á íslandi í samkeppninni.
Helga Rakel með verðlaunamynd sína.
Alþjóðleg samkeppni Lions um gerð friðarveggspjalda:
Helga Rakel Kristjáns-
dóttir fiilltrúi Islands
8
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á síðum Moggans!
HELGA Rakel Kristjánsdóttir,
nemandi í 5. bekk Barnaskóla
Akureyrar, varð hlutskörpust
grunnskólanema hér á landi í
myndlistarsamkeppni sem al-
þjóðahreyfing Lionsklúbba efndi
til um gerð friðarveggspjalda.
Hún verður því fiilltrúi Islands í
áframhaldandi keppni á alþjóða
vettvangi.
„Við Lionsfélagar vonum að þessi
samkeppni hafi hvatt nemendur til
að íhuga innihald friðar, og hvatt
þá til umhugsunar um hvemig hver
einstaklingur getur haft áhrif á al-
heimsfrið eða hvaða þýðingu friður
nýjar bæknr fast nú í
á aðeins kr. 995
bækur
jó»a
Skafið af hrirtgnum
SJá vjnningar á bakhlið
GbjIfft,
eldri bækur í jólapakkningu
á aðeins kr. 495,-
í heiminum hefur fyrir þá sjálfa.
Við vonum að sköpunargleðin hafi
hjálpað til í þessu skyni,“ sagði
Hermann Árnason, umdæmisstjóri
Lions á svæði 109B, er hann af-
henti Helgu Rakel í fyrrakvöld
ágrafínn skjöld því til staðfestingar
að hún hefði hlotið 1. verðlaun á
Islandi. Samkeppni þessi var ætluð
öllum nemendum 5., 6. og 7. bekkja
landsins. Einn sigurvegari var val-
inn úr hveijum skóla, þijár myndir
vom síðan valdar úr hvoru Lions-
umdæmi — en þau em tvö hér á
landi — og loks var ein af þeim
valin úr. í umdæmakeppninni vom
úrslit þau að í umdæmi 109A, sem
nær frá Hvalfjarðarbotni suður og
austur um til Vopnafjarðar, fengu
eftirtalin börn verðlaun: Arnar
Snær Davíðsson, Kópavogsskóla,
hlaut 3. verðlaun, Vigdís Jóhanns-
dóttir, Millubakkaskóla, Keflavík,
fékk 2. verðlaun og 1. verðlaun
hlaut Ólöf Eiríksdóttir, Hjallaskóla,
Kópavogi. í umdæmi 109B fengu
eftirtalin böm verðlaun: Þórkatla
Ragnarsdóttir, Gmnnskóla Eyrar-
sveitar, Snæfellsnesi, 3. verðlaun,
Kristín Guðmundsdóttir, Dalvíkur-
skóla, 2. verðlaun og fyrmefnd
Helga Rakel 1. verðlaun.
Lokastig keppninnar verður
þannig að sérstök dómnefnd á veg-
um alþjóðastjómar Lions mun velja
sigurmyndina. Sigurvegarinn fær í
verðlaun ágrafinn skjöld, jáfngildi
500 Bandaríkjadala, ferð fyrir sig
og tvo úr fjölskyldu sinni til New
York, en verðlaunaafhending fer
fram 13. mars nk., á degi Lions
hjá Sameinuðu þjóðunum. Eigendur
hinna 23 úrlausnanna sem komust
í úrslit hljóta sérstakt viðurkenning-
arskjal, auk jafngildis 100 Banda-
ríkjadala í verðlaun.
Fjölnýtikatlar
til kyndingar með raf-
magni, olíu eða timbri,
margar gerðir.
Mjög góð hitanýting og
möguleiki á stýrikerfum,
til að fá jafnara hitastig.
C.T.C. Total er öflugur nýr
ketill fyrir rafmagn, timbur
og olíu með innbyggðu
álagsstýrikerfi, sem nýtir
vel rafmagnið fyrir þá sem
kaupa árskílóvött.
Dæmi: C.T.C TOTAL
Viður..
Olía....
kW
5.75
..15
.. 15
UOSGJAFINN HF.
GBÁNUFÉLAGSGÖTU 49 SÍMI23723 • 600 AKUREYRI
FYRIRTÆKISNÚMER 6148-9843