Morgunblaðið - 10.12.1988, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 10.12.1988, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988 33 Björn Níelsson Sigurbjörn Magnússon frystihússins, og Bjöm ívarsson og Jónas Jónasson sem reka fisk- vinnslufyrirtækið Árver. Þeir voru sammála um að menn þar nyrðra væru mjög uggandi um sinn hag. Margir óttuðust að lagður yrði á þorpsbúa 25 prósent aukaskattur vegna hins slæma fjármálaástands hreppsins. Ástaeðumar fyrir þessu ástandi sögðu þeir að menn teldu að ráðamenn þorpsins hefðu sýnt alltof mikla Qárfestingargleði sem ekki hefði átt sér nema takmarkað- an íjármálalegan grundvöll. Hins vegar hefði verið nauðsynlegt að framkvæma þetta allt saman, en það sýndi sig að farið hefði verið of geyst í sakimar. Um málefni frystihússins sögðu þeir að samein- ing frystihússins og Skagaskeljar hf. hefði verið misráðin. Skuldir Skagaskeljar hefðu reynst mun meiri en sumir stjómarmenn frysti- hússins höfðu gert sér grein fyrir þegar kaupin vom gerð. Hafi þessi sameining gert það að verkum að skuldastaða fiystihússins í dag væri mun verri en ella hefði verið. Tíu tU tólf ársverk réðu mestu um kaupin á Skagaskel hf. Blaðamaður ræddi einnig við Jón Guðmundsson stjómarformann Hraðfrystihússins á Hofsósi. Hann benti á að rekstur frystiiðnaðarins væri slæmur um allt land og væri ftystihúsið á Hofsósi engin undan- tekning frá því. Því væri hins vegar ekki að neita að kaup ftystihússins á Skagaskel hf. hefðu þyngt greiðslubyrði þess talsvert. Hann var spurður um hvort stjómarmenn hefðu verið sammála um þessi kaup. Hann kvað það vera og sagði að þar hefði mestu ráðið að talið var að með þessum kaupum hefðu tíu til tólf mikilvæg ársverk haldist í þorpinu sem ella hefðu farið burtu hefði bátur fyrirtækisins Hafborg verið seldur á brott. Hann sagði að menn hefðu gert sér ljóst að staða fyrirtækisins væri fremur slæm en hefðu þó ekki vitað hve slæm hún var. Einnig hefðu menn ekki gert sér grein fyrir hve fljótt myndi síga á ógæfuhliðina í ftystiiðnaðinum. „Frystihúsið hafði verið rekið með hagnaði undanfarin ár og við gerð- um okkur ekki grein fyrir að hlut- imir væm að snúast við,“ sagði Jón. „Við vildum fyrir alla muni halda í bátinn Hafborgu og þau störf sem honum fylgdu og vildum ganga langt til þess, nú má segja eftir á að við hefðu ekki átt að gera þetta." Spumingunni um það hvort forráðamenn frystihússins, sem jafnframt vom eigendur Skagaskeljar, hafí að mati Jóns misnotað aðstöðu sína svaraði hann neitandi. Hann kvaðst hafa tekið sína afstöðu til þessara kaupa án þrýstings frá þeim mönnum, hins vegar mætti segja að það hafí ver- ið klaufaskapur hjá þeim sömu mönnum að hafa ekki látið aðra um að taka ákvarðanir um þessi kaup sem svo mjög snertu hags- muni þeirra. Verður Hofsóshreppi skip- aður Qárlialdsstjóri? Að lokum var haft samband við Húnboga Þorsteinsson sem fer með þetta mál hjá félagsmálaráðuneyt- inu. Hann sagði að Endurskoðun hf. væri að að ljúka við skýrslu um þessi fjármál Hofsóssmanna en á þessu stigi er ekki ljóst hvort hún verður birt almenningi. Um hugsan- leg viðbrögð ráðuneytisins við að- stoðarbeiðni Hofsósshrepps sagði Húnbogi að tvennt kæmi til greina. Samkvæmt 90. grein sveitarstjóm- arlaga er ráðuneytinu heimilt að veita Hofsóshreppi lán eða styrk úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til þess að koma fjármálum hreppsins á réttan kjöl og þá með skilyrðum sem ráðuneytið setur. Svo kæmi einnigtil greina skv. 91. grein sömu laga að setja Hofsóshreppi fjár- haldsstjóra til tiltekins tíma. Ákvörðun um viðbrögð ráðuneytis- ins verður tekin á grundvelli fyrr- nefndrar skýrslu frá Endurskoðun hf. Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir Ljósmyndir: Benedikt Jónsson upp og sú heila klofín um hrygginn og hausinn. Innyflin eru hreinsuð úr og allt saman skolað. Þá er hún tilbúin í reykinn, „kiyddmeðferðina og litun". Neytandinn fær hana síðan tilbúna eða í pottinn. Yngra fólki fínnst beinin í heilu sfldinni skemma annars gómsætan rétt og því er svo mikið magn flakað en sú sfld er alveg tilbúin til vinnslu eftir að hafa verið þídd. Flökin fara sem sagt einnig í „kippers“. Elvar Einarsson, framleiðslu- stjóri fískiðjuversins, og Kristján Jónsson verkstjóri voru þó á einu máli um að rtiiðað við þá vinnu sem Iögð væri í flökunina væri verðmun- ur vart nægilega mikill en flökin eru um 60% dýrari en heila sfldin. Það sem af er vertíð, en henni lýkur þann 15. desember, hefur •ifíöH b Bgnill9lfli:M8-ndeuA egnl: fískiðjuverið tekið á móti 2.924.790 kg af sfld úr sjó. Framleiðslan skipt- ist svo þannig (frá 15.10,—4.12.). Heilftyst sfld 414.423 kg, síldarflök 995.220 kg, beitusfld 98.559 kg, Japanssfld 1.344 kg, Saltsfldarflök 13.800 kg. Framleiðsla alls 1.523.346 kg. Beitusfldin fer aðallega til línu- báta er róa frá HÖfn en hluti henn- ar hefur þó alltaf farið í aðra lands- hluta. Það má ekki skilja svo við fískiðjuverið hjá Kaupfélagi Aust- ur-Skaftfellinga, að ekki komi fram að engar uppsagnir verða hjá fyrir- tækinu nú á næstunni. Menn reikna með að byija vinnslu af fullum krafti strax eftir áramótin, en við ftystingu síldar hafa starfað allt að 100 manns. - JGG jub>1 ri9vujbi><gi''I i TinlIidaai'irJc I I FRASOGUR FÆRANDI eftir Richardt Ryel Höfundur kemur víSa við á ferðum sínum um fjarlæg lönd og vekur jafnframt athygli á ýmsum áhuga- verðum efnum, sem honum eru ofar- lega í huga. Bókin er 31 kafii, þar er sannarlega margt i frásögur færandi úr lifi ís- lendings og heimsborgara, sem dvalist hefur erlendis um áratuga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.