Morgunblaðið - 10.12.1988, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 1988
Islendingnrinn sem fann jarðlagasprungur undir Los Angeles:
„ Vitum ekjá hyenær
von er á stórskjálfta“
„VIÐ höfum það litlar upplýs-
ingar um sprungurnar undir
Los Angeles að það er ekki
hægt að segja til um hvenær
stór skjálfti kann að verða.
Borgarbúar eru vanir skjálft-
um og hafa tekið fréttinni um
fund þeirra með ró,“ sagði
Egill Hauksson, prófessor i
jarðeðlisfræði við Háskóla Suð-
ur-Kaliforníu (USC) I samtali
við Morgunblaðið í gær. Eins
og skýrt var frá í blaðinu í gær
hefur Egill uppgötvað tvö jarð-
lagamisgengi undir Los Ange-
les og telur hann að borgarbú-
um kunni að stafa meiri hætta
af jarðskjálfta á þeim en San
Andreas-sprungunni. Uppgötv-
un hans hefur vakið athygli og
sagði m.a. stórblaðið New York
Times frá henni í forsíðuviðtali
við Egil.
„Því nær sem menn eru upptök-
um skjálfta því meiri verður hrist-
ingurinn. Þess vegna kann borg-
arbúum að stafa meiri hætta af
þessum sprungum því þær eru
beint undir fjölmennum íbúða- og
háhýsahverfum. Sán Andreas-
sprungan er hins vegar í 40 kíló-
metra fjarlægð þar sem hún er
næst borginni.
Skjálftar geta þó orðið öflugri
á San Andreas-sprungunni, eða
um 8 stig á richter-kvarða, miðað
við 6,5-7 stig á Los Angeles-
sprungunum. A San Andreas-
sprungunni eru jarðplötuskil, þar
mætast Kyrrahafsplatan og Norð-
ur-Ameríkuplatan. Hún er mun
lengri og hreyfíst um 3,5 senti-
metra á ári miðað við að hreyfing-
in nemur 2-5 millimetrum á aust-
ur-vestur sprungunni undir Los
Angeles.
Mér hefur tekizt að sanna að
á þessum sprungum hafi verið
samfelld hreyfing, örsmáir
slq'álftar, undanfarin 10 ár. Áreið-
anlegar mælingar með skjálfta-
mælum ná ekki lengra aftur í
tímann en sprungumar eru líklega
fjögurra milljóna ára gamlar. Því
verður að fylgjast með þeim í
nokkur ár áður en hægt verður
að segja til um með einhverri vissu
hvenær stór skjálfti verður næst
á þeim. Við vitum ekki hvenær
síðast varð stórskjálfti á þeim,
hvort það var fyrir rúmum 200
árum eða 2000, eða hvenær von
er á þeim næsta. Saga byggðar
hér bc ekki nema 200 ára. Það
er því erfítt um vik að meta hver
hættan er,“ sagði Egill.
- Hefur uppgötvun þín ekki
skotið borgarbúum skelk í bringu?
„Hún hefur vakið nokkra at-
hygli fjölmiðla og áttu t.a.m. 5-6
sjónvarpsstöðvar við mig viðtal á
þriðjudag og sýndu frá fyrirlestr-
inum. Viðbrögð flölmiðlanna hafa
ekki einkennzt af æsingi, þvert á
móti. Hér fylgjast fréttamenn
náið með og eru vel að sér. Þeir
hugsa um að koma upplýsingun-
um til skila en reyna að róa fólk-
ið um leið.
íbúar Los Angeles skilja þá
hættu sem kann að vera jarð-
Egill Hauksson
skjálfta samfara, aðeins rúmt ár
er frá því öflugur skjálfti olli hér
talsverðu tjóni. Mikið er gert af
því að undirbúa borgarbúa fyrir
skjálfta og mikill áróður er rekinn
fyrir réttum viðbrögðum fyrir og
í skjálfta, bæði á heimilum og
vinnustað. Menn eru m.a. hvattir
til að styrkja gamlar byggingar
og til þess að eiga alltaf góðar
vatns- og matarbirgðir til þess að
geta lifað af hjálparlaust í nokkra
daga eftir stórskjálfta. Það hefur
verið rannsakað og leitt í ljós, að
því meiri sem skilningur manna á
skjálftahættunni er, eðli skjálfta
og hugsanlegum afleiðingum, því
skynsamlegar bregðast þeir við.
Ég lít því svo á að ég sé einungis
að auka fróðleik manna með því
að koma þessum uppgötvunum
mínum á sprungunum undir borg-
inni á framfæri.
Mig langar að nota tækifærið
og biðja Morgunblaðið að koma á
framfæri kveðju til vina minna
og kunningja heima á íslandi.
Einnig vil ég hvetja ráðamenn til
þess að veita dijúgu fjármagni ti!
rannsókna á Suðurlandsskjálftan-
um, sem vinir mínir Sveinbjöm
Bjömsson, Páll Einarsson og
Ragnar Kjartansson hafa barizt
fyrir að fá. Meiri vitneskja um
hugsanlegan Suðurlandsskjálfta
eykur líkumar á að menn lifi hann
af,“ sagði Egill Hauksson að lok-
um.
Egill er fæddur í Reykjavík
árið 1949, sonur Ásu Ársæls-
dóttur og Hauks Herbertssonar,
sem rak Herbertsprent og verzl-
unina Stellu í Bankastræti, sem
Ása og dóttir hennar reka nú.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1969, hélt þá til Noregs og tók
próf í hagnýtri eðlisfræði frá há-
skólanum í Þrándheimi 1974.
Kom þá heim og vann hjá
Raunvísindastofnun háskólans í
tvö ár, en hélt til framhaldsnáms
í New York haustið 1976. Egill
lauk doktorsprófi í jarðskjálfta-
fræðum frá Columbia-háskólan-
um þar í borg 1981. Hann vann
við jarðskjálftarannsóknir í Al-
aska á vegum skólans til hausts-
ins 1983 en þá fluttist hann til
Los Angeles og tók við núverandi
stöðu við Háskóla Suður-Kali-
forníu (USC).
l2 Big Faults Found Deep Under Los Angelesi
By SANDRA BLAKESLEE
Sporial to The Ncw York Timcs
LOS ANGELES, Dec. 5 — In a find-
kg that may unsettle the nerves of mil-
Iions of Southern Californians, geolo-
fgists have discovered two major faults
Ldeep below some of the most densely
[eveloped parts of the Los Angeles
netropolitan area.
The area affected includes the down-
ftown se£tion, the WjJj^ire Boulevard
fanta
Los Angeles area may lie deep under-
ground and have yet to be discovered,
presumably doubles the risk that a
devastating earthquake will eventually
occur in the metropolitan area, said
Don Anderson, director of the seis-
mology laboratory at the California In-
situte of Technology. But scientists do
not know enough about these faults to
calculate the actual risk.
State disaster officials, who have
of thejajfliBíindings '
Unlike the region’s previously knownl
faults, which produce visible featur^
on the earth’s surface, the new fauj
are “in the basement” and have |
such features at ground level, said
Egill Hauksson, a research assistaril
professor of geophysics at the Univer-j
sity of Southern California.
Dr. Hauksson is scheduled to give
report Tuesday describing the faull
which are 6 to 10 miles beneath tn|
streetsjf Los Angeles, at a session o|j
eophysicajJÉÚPn’s j
Forsíðufrétt og viðtal stórblaðsins New York Times við Egil Haukson um uppgötvun hans á jarð-
lagamisgengjum undir Los Angeles.
Hörður Karlsson opnar
sýningu á Kjarvalsstöðum
HÖRÐUR Karlsson listmálari,
sem um langt árabil hefur verið
búsettur í Washington, opnar
málverkasýningu á Kjarvalsstöð-
um, laugardaginn 10. desember
nk. kl. 17.00. Hún nefnist Fjórar
árstíðir, II.
Hörður er Reykvíkingur, sem fór
ungur vestur til Bandaríkjanna og
Mexíkó til listanáms. Hann var í
fjölda ára forstöðumaður mynd-
smíðadeildar Alþjóðagjaldeyris-
JNNLENT
sjóðsins í Washington. Málverk og
myndverk Harðar hafa verið sýnd
víða um lönd; þtjár sýningar í
Bandaríkjunum, ein á Spáni og er
þetta þriðja einkasýning hans í
Reykjavík.
Hörður hefur hlotið margar við-
urkenningar fyrir myndverk sín og
má þar m.a. nefna fyrir Frímerki
Sameinuðu þjóðanna til heiðurs
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum 1961,
Frímerki Pósts- og símamálastofn-
unar Evrópu (CEPT) 1962 og 50
ára afmæli Flugpóstþjónustu Ban-
aríkjanna 1968.
Málverkasýningin Fjórar Árstí-
ðir, II er opin daglega frá kl.
14.00—22.00 fram til 24. desember
nk.
Hörður Karlsson í vinnustofu sinni.
Þýskur skóla-
sérfræðing1-
ur á íslandi
DR. Wolfgang Edelstein dvaldist
í vikutíma hér á landi nú nýlega
í boði Svavars Gestssonar,
menntamálaráðherra, til við-
ræðna um ýmis stefhuatriði varð-
andi íslenska skólastefhu.
Edelstein er forstöðumaður Max
Planek-rannsóknastofnunarinnar í
þroskavísindum og skólarannsókn-
um í Vestur-Berlín. Hann var
vísindalegur ráðgjafi menntamála-
ráðuneytisins á árunum 1966-’83
og hafði einkum skólaþróun og end-
urnýjun námsefnis á sinni könnu. Á
næsta ári lýkur viðamikilli rannsókn
Edelsteins á þroskaferli íslenskra
skólabama, sem staðið hefur í tíu
ár.
ÞRJÁR FALLEGAR SÖGUBÆKUR FYRIR BÖRNIN
BRÁDUM KOMA
BLESSUÐ JÓUN
Einstaklega falleg og vönduð bók með sögum um
jólaundirbúning, tilhlökkun, jólahald og fleira
sem tengist jólunum. í bókinni eru ennfremur
fjölmargar jólavísur, leikir og skemmtanir. Bók
sem iðar af sannkallaðri jólagleði.
Stefán Júlíusson þýddi, valdi og endursagði efnið.
TVÆR HEIÐU-BÆKUR
Bækurnar um Heiðu eru líklega með þekktustu
barnasögum, sem komið hafa út. Bækurnar tvær
sem hér um ræðir heita HEIÐA FER AÐ
HEIMAN og HEIÐA HEIMSÆKIR AFA og eru
þær endursagðar á góðu máli með skýru letri.
Fallegar, litprentaðar bækur í þýðingu Óskars
Ingimarssonar.