Morgunblaðið - 10.12.1988, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. DESEMBÉR 1988
Jóna Gróa Sigurðardóttir, formaður Verndar:
Eining' um afgreiðslu mála
Fimm menn gengu af fimdi áður en fiindarstörf hófiist
Framhaidsaðalfundur félagasamtakanna Verndar var haldinn á
fimmtudagskvöld og sóttu hann 118 manns. Jóna Gróa Sigurðardótt-
ir var endurkjörin formaður samtakanna á aðalstjórnarfundi, sem
haldinn var eftir aðalfundinn. Að sögn Jónu Gróu ríkti eining um
afgreiðslu mála á fundinum, en áður en aðalfundarstörf hófust gengu
þeir af fundi, Guðmundur J. Guðmundsson, Ásgeir Hannes Eiríksson
og fimm eða sex menn að auki.
„Guðmundur J. Guðmundsson
kvaddi sér hljóðs áður en gengið
var til dagskrár og lýsti yfir sárind-
um sínum og Guðmundar Áma
Stefánssonar yfir því að þeir töldu
sig ekki hafa fengið tækifæri til
að sætta hinar svokölluðu tvær
stjómir Vemdar," sagði Jóna Gróa
í samtali við Morgunblaðið. „Þessi
sárindi virðast byggð á einhveijum
misskilningi þar sem fógetaréttur
hafði órskurðað á þá leið að upp-
reisnarstjómin væri markleysa og
þeim, sem hugðust hrifsa til sín
félagið, tókst það ekki.“
Jóna Gróa sagði að Guðmundur
hefði að lokinni ræðu sinni sagt sig
úr aðalstjóm Vemdar, gengið úr
sal og honum hefðu fylgt Asgeir
VEÐUR
Hannes Eiríksson og fimm eða sex
menn aðrir, þar af þrír skjólstæð-
ingar Verndar, sem gerst hefðu
brotlegir við húsreglur á heimili
samtakanna fyrir skömmu.
„Aðalfundarstörfin gengu síðan
vel og það var eining um alla af-
greiðslu mála,“ sagði Jóna Gróa.
Hún sagði að á fundinum hefði
verið lesið upp bréf frá Hönnu Jo-
hannessen, þar sem hún óskaði
þess að gefa ekki kost á sér til~
endurkjörs í framkvæmdastjóm
samtakanna, vegna þess að sonur
hennar, Haraldur Johannessen hdl.,
hefði verið skipaður forstjóri hinnar
nýju fangelsismálastofnunar ríkis-
ins, sem tæki til starfa um næstu
áramót. „Fundarmenn risu úr sæt-
um og hylltu Hönnu lengi og inni-
lega,“ sagði Jóna Gróa.
Jóna Gróa sagðist hafa flutt
skýrslu stjómar _um liðið starfsár á
aðalfúndinum. „Égtel þessa skýrslu
lýsa öflugu starfi," sagði hún.
„Starfsemin hefur vaxið jafnt og
þétt síðustu ár og æ fleiri leita til
Vemdar. Álagið á starfsfólki okkar
hefur því verið mikið og miðað við
þá þjónustu sem veitt er, held ég
að óhætt sé að fullyrða að við séum
undirmönnuð, ef svo má að orði
komast.
Það var ljóst að meginerfiðleik-
amir á þessu starfsári yrðu við að
brúa rekstrarkostnaðinn og standa
skil á greiðslum vegna heimilis sam-
takanna að Laugateig 19. Stand-
setning lóðarinnar, vextir og af-
borganir vega þar þyngst og róður-
inn er þungur. Það er þó ánægju-
legt að geta þess að sambúðin við
nágrannana er eins góð og hún
getur verið og húsið og lóðin falla
vel inn í götumyndina. I maí héldum
við vígsluhátíð í tilefni þess að heim-
I/EÐURHORFUR I DAG, 10. DESEMBER 1988
YFIRLIT { GÆR: Gert er ráð fyrir stormi á vestur-, suðaustur-, suður- og
suðvesturdjúpi. Um 150 km norður af Horni er 986 mb laegð sem þokast
norðnorðaustur, en um 600 km austur af Nýfundnalandi er 993ja mb vax-
andi lægð, sem hreyfast mun fyrst norður og siðan norðaustur. Verður hún
á sunnanverðu Grænlandshafi um miðjan dag á morgun. Kólna mun í veðri
i kvöld og nótt, en tekur aftur að hlýna þegar líður á morguninn.
SPÁ: (fyrramálið verður norðan- eða norðvestanátt á landinu með óljum á
annesjum norðanlands en þykknar fljótlega upp með austan eða suðaustan-
átt um sunnan- og vestanvert landiö og fer að hlýna í bili. Snjókoma eða
slydda suðvestanlands undir hádegi, og síðdegis færist úrkomusvæðið lengra
inn á landið með vaxandi austanátt.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á SUNNUDAG: Norðvestanátt, líklega allhvöss um suðvestan- og
vestanvert landið, norðan- og vestanlands verða él, en bjart verður um aust-
HOR^Ur'a m'aNUDAG: Suðvestan-átt, víða stinningskaldi um suð-vestan
og vestanvert landið, en heidur hægari annarsstaðar. Sunnan og vestan-
lands verður súid eða rigning, en að mestu þurrt í öðrum landshlutum. Hiti
2—4 stig.
TAKN:
Heidskírt
Léttskýjað
Gk Hálfskýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
v Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-jq< Hitastig:
10 gráður á Celsíus
\7 Skúrir
V Él
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
P? Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 5 skúr Ravkiavík S haolél
Bergen 4 úrkoma
Helsinki 4-1 snjóél
Kaupmannah. 4 skýjað
Narssarssuaq +13 lóttskýjað
Nuuk +9 skýjað
Osió 3 léttskýjað
Stokkhólmur léttskýjað
B ftkýpA
Algarve 16 Heiðskírt
Amsterdam 9 skýjað
Barcelona 11 léttskýjað
Beriin 5 skýjað
Chicago +7 snjóél
Feneyjar 2 skýjað
Frankfurt 6 þokumóða
Glasgow 11 rlgning
Hamborg 6 skýjað
Las Palmas 22 rykmistur
London 12 skýjað
Los Angeles 16 heiðskfrt
Lúxemborg 7 skýjað
Madríd 8 léttskýjað
Malaga 14 heiðskirt
Mallorca 14 skýjað
Montreal +10 skýjað
New York 0 alskýjað
Orlando 16 þokumóða
París 9 súld
Róm 10 skýjað
San Diego 19 heiðskírt
Vfn 4 rigning
Washington 3 snjókoma
Winnipeg +22 heiðskírt
ilið var fullbúið og það var mikil
gleðistund fyrir okkur,“ sagði Jóna
Gróa.
Hún sagði að á síðasta ári hefðu
40 manns komið til dvalar á heimil-
inu, sá elsti 58 ára en sá yngsti
21 árs. Af- þessum 40 hefðu 15
verið á heimilinu áður.
Jóna Gróa sagði að samtökin
hefðu unnið mikið starf í fangelsum
á starfsárinu. Félagsmálafulltrúi
Vemdar heimsækti þau reglulega
og veitti föngum aðstoð og ráðgjöf.
Þá aðstoðaði Vernd fanga við að
semja um skuldir, leita leiðréttingar
á sköttum og útvegaði þeim vinnu.
„AA-menn hafa skipulagt AA-
fundi tvisvar í viku á árinu og það
er óhætt að fullyrða að það starf
hefur skilað árangri," sagði Jóna
Gróa. „Þetta starf hefur verið
skipulagt í samvinnu við félags-
málafulltrúa Vemdar. Þá er mikið
og gott samstarf milli fangelsanna,
skilorðseftirlits ríkisins og Vemdar,
enda væri Vemd ómögulegt að
vinna sitt starf nema svo væri.“
Jóna Gróa nefndi einnig Vemdar-
blaðið, sem væri aðaltekjulind sam-
takanna og birti fræðandi greinar
um málefni þau, sem samtökin ynnu
að, og árlegan jólafagnað, sem
haldinn væri á aðfangadag. Þar
kæmi fólk, sem ekki ætti í önnur
hús að venda, fengi jólamat oggjaf-
ir og hlýddi á helgistund.
Stjóm Vemdar skipa nú um 40
manns, auk Jónu Gróu. Fram-
kvæmdastjórn skipa Hrafn Pálsson,
Siguijón Kristjánsson, Stella Magn-
úsdóttir og Ottó Öm Pétursson.
Varamenn eru Sigríður Heiðberg,
Hróbjartur Lúthersson, Jón Dalbú
Hróbjartsson, Þórhallur Runólfsson
og Áslaug Cassata.
Jóna Gróa Sigurðardóttir, form-
aður Veradar.
Aðalstjóm skipa Áreiíus Níels-
son, Ámi Johnsen, Axel Kvaran,
Birgir Isleifur Gunnarsson, Björn
Einarsson, Bragi Sigurðsson, Bryn-
leifur Steingrímsson, Edda Gísla-
dóttir, Elísabet Hauksdóttir, Friðrik
Sophusson, Guðmundur Ámi Stef-
ánsson, Halldór Einarsson, Her-
mann Gunnarsson, Ingibjörg
Bjömsdóttir, Jón Bjarman, Jón
Guðbergsson, Jóhanna Sigurðar-
dóttir, Kristján Guðmundsson, Már
Egilsson, Margrét Sigurðardóttir,
Ólafur Hauksson, Ragnhildur Pála
Ófeigsdóttir, Sigríður Valdimars-
dóttir, Sigurður Guðmundsson,
Sjöfn Sigurbjömsdóttir, Sveinn
Skúlason, Unnur Jónasdóttir, Þor-
steinn Guðlaugsson og Þorsteinn
Sveinsson. Varamenn í aðalstjóm
em Ásgrímur Þ. Lúðvíksson, Frank
Cassata, Sigríður Hannesdóttir,
Guðrún Beck og Helga Guðmunds-
dóttir.
Viðskiptaþvinganir
geta skaðað sameigin-
lega öryggishagsmuni
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
JÓN Baldvin Hannibalsson átti í gærmorgnn viðræður við Leo Tin-
demanns, utanríkisráðherra Belgíu, í höfuðstöðvum Atlantshafs-
bandalagsins í Brussel. Á fundinum ræddu ráðherramir samskipti
íslands og Evrópubandalagsins og áherslur í væntanlegum samning-
um EB og íslendinga.
Jón Baldvin kvaðst hafa gert
Tindemanns grein fyrir vaxandi
mikilvægi viðskipta íslendinga við
EB, sérstaklega eftir inngöngu
Spánar og Portúgals í bandalagið.
Þeir hefðu rætt fríverslunarsam-
komulagið frá 1972 en á þeim tíma
hefði svokallaður GATT-kvóti á
saltfiski nægt vegna innflutnings
frá Islandi. Við inngöngu Spánar
og Portúgals hefði þetta gjörbreyst
og útfluttur saltfiskur frá íslandi
lenti í vaxandi mæli í hærri tollum.
Af margvíslegum ástæðum væm
þau atriði í fískveiðistefnu EB sem
varða aðgang að fískimiðum fyrir
aðgang að mörkuðum óaðgengileg
fyrir íslendinga. Þar kæmu til bæði
efnahagslegar forsendur og ástand
fískistofna við ísland. Jón Baldvin
sagðist hafa bent Tindemanns á,
þar sem þeir vom báðir á fundi hjá
Atlantshafsbandalaginu, að skiln-
ingur meginlandsbúa í Evrópu á
gildi og mikilvægi íslands í þessu
vamarsamstarfí hefði ákveðin
tengsl við viðskiptamálefni. Sam-
kvæmt 8. gr. Atlantshafssáttmál-
ans væri það eitt af hlutverkum
Atlantshafsbandalagsins að ryðja
úr vegi ágreiningsefnum á efna-
hags- og viðskiptasviði sem yrðu
til þess að hindra pólitíska sam-
stöðu. Við væmm hér að ræða um
mál sem væri svo stórt miðað við
íslenska þjóðarhagsmuni að ef ís-
lendingar yrðu útilokaðir frá eðli-
legum viðskiptatengslum og jafn-
réttisstöðu á mörkuðum í Evrópu
þá hlyti það að hafa alvarlegar
pólitískar afleiðingar og þá hugsan-
lega einnig hvað varðar hlut Islend-
inga að varnarsamstarfí þjóðanna.
Jón Baldvin sagði að Tindemanns
hefði tekið vel í erindi hans og hann
hefði rifjað það upp að á sínum tíma
hefðu Belgar samið við íslendinga
án erfiðleika. Hann hafi heitið því
að koma þessu áleiðis til belgíska
sjávarútvegsráðherrans. Jón Bald-
vin kvaðst telja að þessar viðræður
hefðu verið mjög gagnlegar og til
stæði að taka fljótlega upp viðræð-
ur við frönsk og spænsk stjómvöld.
Jón Baldvin hélt frá Bmssel í gær
áleiðis til Parísar þar sem hann mun
sitja kvöldverðarboð Mitterrands
Frakklandsforseta.
Jón Baldvin
til Póllands
JÓN Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra og frú fara í
opinbera heimsókn til Póllands
dagana 12. til .14. desember nk.
í boði Tadeuz Olechowski, ut-
annkisráðherar Póllands.
Á meðan heimsókninni stendur
mun utanríkisráðherra eiga fund
með Mieczyslaw F. Rakowski for-
sætisráðherra og Dominik
Jastrzebski utanríkisviðskiptaráð-
herra. í fréttatilkynninnngu frá ut-
anríkisráðuneytinu segir að hann
muni einnig, meðal annarra, hitta
forseta pólska þingsins og Jemz-
elski hershöfðingja.
(Fréttatilkynning)