Morgunblaðið - 11.12.1990, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDÁGUR 11. DESEMBER 1990
Átök í stjórn Stöðvar 2:
Stjómarmaður segir
af sér vegna brottvikn-
ingar fj ár málastj óra
Við upphaf stjórnarfundar Stöðvar 2 og Bylgjunnar í gær sagði
Hreinn Loftsson lögmaður sig úr stjórninni, en Hreinn var fulltrúi
Sýnarhópsins svonefnda í stjórninni. Varamaður Hreins, Steingrímur
Eliingsen, tók sæti hans á fundinum. Hreinn segir ástæðu úrsagnar
sinnar fyrst og fremst óánægju með það hvernig staðið var að brott-
vikningu Kristjáns B. Ólafssonar fjármálastjóra félagsins, en ákveðið
hefur verið að framlengja ekki starfssamning hans sem rennur út í
janúar. Jóhann J. Ólafsson stjórnarformaður Stöðvar 2 segir það alfar-
ið á ábyrgð sjónvarpsstjóra að starfssamningur Kristjáns var ekki
endurnýjaður,
Hreinn Loftsson sagði við Morgun-
blaðið að hann þekkti engin efnisleg
rök fyrir því að Kristján ætti að
hætta störfum, þar sem hann væri
mjög hæfur í þessu starfi. „í bréfi
mínu til stjórnarinnar segist ég hafa
séð gögn, sem bendi til þess að ein-
stakir stjómarmenn hafi látið félagið
standa straum af framlengingar-
kostnaði persónulegra víxla sem
teknir voru vegna hlutabréfakaupa í
félaginu. Kristján mun hafa mót-
mælt þessari meðferð á fjármunum
félagsins, eins og hans hlutverk er
ef hann telur að um rangar ákvarð-
anir sé að ræða. Ég óttast að þetta
sé fyrst og fremst ástæðan fyrir
brottvikningu Kristjáns, það er að
hann hafi staðið sig í sínu starfi,"
sagði Hreinn.
Hreinn tók það fram að þótt Sýn-
arhópurinn hefði beðið sig að taka
sæti í stjóm Stöðvar 2, bæri ekki
Siðanefnd blaðamanna:
Hallur Magnús-
son brotlegnr
SIÐANEFND Blaðamannafélags
íslands hefur úrskurðað, að Hall-
ur Magnússoji hafi brotið gegn
siðareglum BÍ með grein í Tíman-
um 14. júlí 1988 um séra Þóri
Stephensen og framkvæmdir í
kirkjugarðinum í Viðey. Fjórir af
fimm fulltrúum I siðanefnd stóðu
að þessum úrskurði, en einn skil-
aði séráliti og taldi ekki um brot
að ræða.
Þórir Stephensen vísaði máli þessu
til siðanefndar BÍ 12. október sl. og
í úrskurði siðanefndar segir meðal
annars, að Hallur Magnússon fari í
greininni með rangt mál um ábyrgð
Þóris Stephensen á framkvæmdum
við kirkjugarðinn í Viðey. Að gefnum
röngum forsendum sé Þórir harka-
lega gagnrýndur, vafasamar álykt-
anir dregnar og óþörf stóryrði notuð.
Á fyrmefndum rangfærslum um
ábyrgð Þóris Stephensen reisir siða-
nefnd úrskurð sinn, en ekki þeim
skoðunum, sem settar eru fram í
greininni.
að iíta á ákvörðun sína nú sem af-
stöðu Sýnarhópsins til Stöðvar 2.
Jóhann J. Ólafsson stjórnarfor-
maður Stöðvar 2 sagði við Morgun-
blaðið, að starfssamningur Kristjáns
B. Ólafssonar hefði alfarið verið á
ábyrgð sjónvarpsstjóra, og vegna
þess að Þorvarður Elíasson sjón-
varpsstjóri lætur senn af störfum,
hefði hann talið réttast að Páll Magn-
ússon, sem tekur við sjónvarpsstjóra-
starfinu, leiddi þetta til lykta eins
og hann teldi hentugast miðað við
sitt starf í framtíðinni. Stjórn Stöðv-
ar 2 hefði ekki komið nálægt því
máli.
Jóhann sagði að fjórir hluthafar í
Stöð 2 hefðu leigt stöðinni veð og
fengju fyrir það greiðslur sem lagðar
væru inn á viðskiptareikning. Af
þeim reikningi væru greiddir vextir
af umræddum hlutafjárvíxlum, sem
hljóða samtals upp á 51 milljón
króna. Fyrir þessu hefði margoft
verið gerð grein. Lögmenn og endur-
skoðendur hefðu fjallað um þessi
mál og teldu þetta ekki óeðlileg við-
skipti. Þá sagði Jóhann að engar
athugasemdir hefðu komið til stjórn-
arinnar frá Kristjáni varðandi þetta
mál.
Morgunblaðið/Þorkell
Jólasveinar og jólatré á Austurvelli
FJÖLDI fólks lagði leið sína á
Austurvöll í Reykjavík á
sunnudag, þar sem tendruð
voru jjós á Óslóartrénu svo-
nefnda, gjöf Óslóarbúa til
Reykjavíkinga.
Per Aasen sendiherra af-
henti tréð en Magnús L.
Sveinsson forseti borgar-
stjórnar tók við því fyrir hönd
Reykvíkinga. Að því loknu
skemmtu Askasleikir og bræð-
ur hans höfuðborgarbörnun-
um af þaki ísafoldarhússins
að venju, og þrátt fyrir kuld-
ann tóku börnin vel undir jóla-
sveinalögin.
Hafnarfjörður og Garðabær:
Engin skýring finnst á þrýst-
ingsfalli í heitavatnsæðinni
Kvartanir berast hvaðanæva af þjónustusvæði Hitaveitunnar
ÞRÝSTINGUR í heitavatnsæðinni
til Hafnarfjarðar hefur verið með
lægsta móti undanfarna sólar-
hringa með þeim afleiðingum að
heitt vatn hefur verið af skornum
skammti í Garðabæ og Hafnar-
firði. Að sögn Gunnars Kristins-
sonar hitaveitustjóra hefur enn
engin skýring fundist á þrýstings-
fallinu en sérfræðingar á vegum
Hitaveitunnar leita hennar með
mælingum. Einna helst er þó hall-
ast að því að um bilun í loka ein-
hvers staðar á æðinni sé að ræða.
Fyrir hádegi í gær bárust 140
kvartanir um heitavatnsskort
hvaðanæva af þjónustusvæði Hita-
veitu Reykjavíkur.
„Það er meiri mótstaða í æðinni
en við áttum voh á og það eru menn
að störfum að mæla þetta. Það hefur
Tillaga um stofnun deildar
fyrir geðsjúka afbrotamenn
gengið hálftreglega fram að þessu
því við byrjuðum að mæla þrýstjng
síðastliðinn laugardag," sagði Gunn-
Hann sagði að fyrir hádegi í gær
hefðu borist hátt í 140 kvartanir frá
öllu þjónustusvæði Hitaveitu
Reykjavíkur, ekkert síður frá Reyk-
víkingum en Hafnfirðingum. Á föstu-
dag og laugardag bárust á annað
hundrað kvartanir á dag úr Hafnar-
firði og Garðabæ vegna ónógs hita:
Gunnar sagði að nýlega hefði ver-
ið boraður út hluti úr Hafnarfjarð-
aræðinni og hann rannsakaður. Hefði
ekkert komið í ljós sem benti til þess
að útfellingar úr æðinni hefðu valdið
þrýstingsfallinu. „Það var innan við
eins millimetra húð af járnsúlfíði eða
sílíkati innan í æðinni eins og alltaf
er í okkar æðum.“
Gunnar sagði að Hafnarfjarðar-
æðin væri komin til ára sinna, en
hún var lögð árið 1974. Ráðgert
væri að hefja lagningu nýrrar æðar
til Hafnarfjarðar næsta vor en verk-
ið tæki þrjú ár. Hann taldi ólíklegt
að bilanirnar mætti rekja til Nesja-
vallavirkjunar.
Á sunnudag bilaði aðalæðin í
Kópavogi og var gert við hana í
gær. Gat kom á æðina við Nýbýlaveg
og hiti fór af húsum í Kópavogi.
Ástæðan fyrir biluninni var tæring
í aðalæðinni en lagnirnar eru orðnar
17 ára gamlar.
SAMSTARFSHOPUR á vegum heilbrigðis- og dómsmálaráðuneyt-
is skilar væntanlega af sér áliti í dag um úrbætur á sviði vistun-
ar geðsjúkra afbrotamanna. Guðmundur Bjarnason heilbrigðis-
ráðherra hyggst kynna málið á ríkisstjórnarfundi í dag. í tillögum
nefndarinnar er rætt um stofnun sérstakrar deildar fyrir geð-
sjúka afbrotamenn.
„Ég vona að það þurfi engin
lagasetning að koma til í þessu
Vestmannaeyjar:
Rafmagnslaust
í öllum bænum
RAFMAGNSLAUST varð í Vest-
mannaeyjum laust fyrir kl. 20 í
gærkvöldi og komst rafmagn
ekki á aftur fyrr en að 40 mínút-
um liðnum.
Orsök bilunarinnar var ísing á
línum á Landeyjasandi. Rafmagn
fór af öllum bænum og voru dísel-
rafstöðvar ræstar. Um klukkan
8.40 tókst að komast fyrir bilunina
og rafmagn komst á.
sambandi heldur verði ráðist í það
á grundvelli tillagna samstarfs-
hópsins að bæta eitthvað úr þess-
ari þörf, það er að segja að koma
upp einhvers konar réttargeðdeiid
og veita þessum mönnum aðhlynn-
ingu og aðsetur," sagði Guðmund-
ur Bjarnason.
Þær tillögur sem starfshópurinn
hefur fjallað um er stofnun sér-
stakrar deildar fyrir geðsjúka af-
brotamenn, en deilt hefur verið
um hvort hægt sé að koma slíkri
deild fyrir á geðdeildum sjúkra-
húsanna eða hvort stofnun sér-
stakrar deildar sé nauðsynleg. Að
sögn heilbrigðisráðherra ganga til-
lögur hópsins-út á-að stofnuð verði •
sérstök deild sem starfi í nánum
tengslum við geðdeildir sjúkrahús-
anna.
„Við myndum auglýsa strax
eftir forstöðumanni fyrir þessari
deild ef þetta verður niðurstaðan,
þannig að sá aðili sem kemur til
með að veita deildinni forstöðu
hefði áhrif á mótun hennar, upp-
byggingu og hvar hún yrði til
húsa,“ sagði Guðmundur.
Hann sagði að þeir einstakling-
ar sem einkum væri horft til í
þessu sambandi væru ósakhæfir
afbrotamenn, en um væri að ræða
4-5 einstaklinga. „Við sitjum þvi
miður uppi með nokkra slíka ein-
staklinga eins og er og þar af
hafa tveir verið vistaðir í Svíþjóð
vegna aðstöðuleysis hér og því
fylgir gífurlegur kostnaður,“ sagði
Guðmundur.
Sjá einnig viðtöl við Oiaf
Olafsson landlækni og Tómas
Helgasongeðlækniá-bls. 34. >-
Guðmundur Ágústsson alþingismaður:
Ætlaði að fella frum-
varp um fiskveiðisijórn
Guðmundur Ágústsson þingflokksformaður Borgaraflokksins
ætlaði að greiða atkvæði gegn frumvarpi um stjórn fiskveiða í
efri deild Alþingis sl. vor og fella þannig stjórnina. Skömmu áður
en greiða átti atkvæði féllst Guðmundur á að breyta um afstöðu
gegn því að frumvarp um verkefni umhverfisráðherra yrði af-
greitt á því þingi.
Þetta kemur fram í grein sem
Guðmundur Ágústsson skrifar í
Morgunblaðið í dag. Þar gerir hann
grein fyrir ástæðum þess að hann
hefur sagt skilið við ríkisstjórnina.
Guðmundur segist hafa tjáð að-
stoðarmanni forsætisráðherra það
í október, að hann væri orðinn
dauðleiður á yfirganginum í ein-
stökum ráðherrum og hefði ekki
áhuga á að eiga samstarf við menn
sem gengiu yfir sig á skítugum
skónum og litu á sig og Borgara-
flokkinn sem atkvæði en ekki sam-
starfsaðila. Eftir að krafa Borgara-
flokksins um mann í bankaráð
Seðlabankans var ekki tekin til
greina, ritaði Guðmundur svo for-
sætisráðheiTa bréf þar sem hann
sagði sig frá ríkisstjórninni.
Sjá grein Guðmundar á bls. 28.