Morgunblaðið - 11.12.1990, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.12.1990, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. ÐESEMBER 1990 32 MorgunDlaoio/PorKeii Indriði G. Þorsteinsson, höfundur nýútkominnar ævisögu Hermanns Jónassonar, með börnum Her- manns, Steingrími og Pálínu. Ævisaga Hermanns Jónassonar komin út: Set Hermann 1 fremstu röð stjómmálamanna aldarinnar - segir Indriði G. Þorsteinsson, höfundur bókarinnar FYRSTA bindi ævisögu Hermanns Jónassonar fyrrverandi forsætisráð- herra er komið út, ritað af Indriða G. Þorsteinssyni rithöfundi og ritstjóra. Nefnist bókin Fram fyrir skjöldu og fjallar um árin 1896 til 1939, eða fram að myndun Þjóðstjórnarinnar svonefndu sem var við völd þegar Þjóðveijar leituðu eftir aðstöu hér á landi og Bretar hernámu ísland. Þegar Indriði G. Þorsteinsson af- henti syni Hermanns, Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra, fyrsta eintak bókarinnar, sagði Steingrímur við það tækifæri að fað- ir sinn hefði ekki viljað skrifa ævi- minningar sínar sjálfur, og talið að þær yrðu aðeins karlagrobb. Sú væri þó vonandi ekki raunin með þessa bók, enda fjallaði hún um merkilega tíma sem nauðsynlegt væri að geyma. í æviminningunum er fjallað um uppvaxtarár Hermanns, starf hans sem lögreglustjóra í Reykjavík, þátt- töku hans í starfi Framsóknarflokks- ins, þingmennsku og ráðherradóm, en Hermann fór í framboð í Stranda- sýslu árið 1934, gegn Tryggva Þór- hallssyni fyrrverandi formanni Framsóknarflokksins og varð sama ár forsætisráðherra í stjórn hinna vinnandi stétta, sem svo var nefnd. Indriði sagði við Morgunblaðið, að hann sjálfur setti Hermann mjög framarlega af íslenskum stjórnmála- mönnum á öldinni og hann hafi far- sællega stýrt þjóðfélagi sem var illa statt á kreppuárunum. Hann sagði það hafa verið einkenni Hermanns sem stjómmálamanns, að hann hafi aldrei hugsað um skyndiávinninga heldur eingöngu um virðingu og hagsmuni þjóðarinnar til lengri tíma. Bókin Fram fyrir skjöldu er 200 blaðsíður að stærð, gefin út af Reyk- holti hf. Bók um stjörnumerkin IÐUNN hefur gefið út bók eftir Gunnlaug Guðmundsson, stjörnu- speking, Stjörnumerkin - Merkin þín og þekktra íslendinga. í kynningu útgefanda segir m.a.: „Þetta er þriðja bók höfundar um þessi efni og þar er rætt um lifandi stjörnuspeki, um stjörnumerki og um þekkta Islendinga og merki þeirra. Hver maður á sér mörg stjörnu- merki. í þessari bók er fjallað um öll merkin, um tilfinningar, hugsun, ást, vinnu og framkomu í öllum merkjunum. í bókinni er því til dæm- is svarað hvemig sé að vera Rísandi Sporðdreki, hvað það þýði að hafa Venus í Bogamanni o.s.frv. Fjallað er um afstöður milli pláneta, húsin, að lesa úr stjömukortum og um eðli mannlýsinga." Bókin er prentuð í Odda hf. Gunnlaugur Guðmundsson Jólin koma í Landsbókasafni LANDSBÓKASAFN efnir til sýn- ingar á frummyndum Tryggva Magnússonar við kvæði Jóhann- esar úr Kötlum. Sýningin mun standa fram á þrettándann í anddyri Safnahússins við Hverfisgötu á opnunartíma safnsins kl. 9-19 mánudaga til föstudaga og kl. 9-12 á laugardög- um. Ein mynda Tryggva Magnússonar við Ijóð Jóhannesar úr Kötlum. Stúdentaráð Hí sjötíu ára: Stúdentar kunna vel að meta núverandi stjórnarhætti - segir Siguijón Þ. Árnason, formaður SHÍ STÚDENTARÁÐ Háskóla íslands er sjötíu ára í dag, 11. desember. Af því tilefni verður haldinn sérstakur hátíðafundur Stúdentaráðs, þar sem fjórir fyrrverandi stúdentaráðsliðar munu segja frá veru sinni í ráðinu. Þetta eru þeir Friðrik Sophusson alþingismaður, Höskuldur Þráinsson prófessor, Matthías Johannessen ritstjóri og Ingi R. Helga- son forstjóri. Að sögn Siguijóns Þ. Árnasonar, formanns Stúdentaráðs, hafa stúd- entar átt með sér samtök frá því fjórum árum eftir að Háskóli íslands var settur á stofn. 1915 var stofnað Stúdentafélag Háskóla Islands. I því voru ekki aðeins stúdentar í námi, heldur einnig eldri nemendur. „1920 var svo Stúdentaráð stofnað. Hlut- verk þess hefur frá upphafí verið að vera fulltrúi háskólastúdenta, gæta hagsmuna þeirra innan Há- skólans sem utan og fara með sam- eiginleg málefni þeirra," sagði Sig- urjón. Hann sagði að Stúdentaráð hefði snemma hafíð rekstur ýmissar þjón- ustu við stúdenta. „Þar má nefna mötuneyti stúdenta, sem var rekið 1921-1929, bóksölu, vinnumiðlun og kaffísölu. Stúdentaráð beitti sér fyr- ir byggingu stúdentagarða, rak les- stofu stúdenta um árabil og hafði um skeið umsjón með Lánasjóði íslenzkra námsmanna, sem var stofnaður á vegum SHI. Þá má ekki gleyma því að fyrir forgöngu Stúd- entaráðs var 1. desember gerður að hátíðisdegi stúdenta 1922 og var haldið upp á daginn með sérstaklega glæsilegum hætti nú á afmælisár- inu,“ sagði Sigutjón. Siguijón sagði að meðal þeirra verkefna, sem stúdentaráð hefði nú með höndum væri rekstur Atvinnu- miðlunar námsmanna og húsnæði- smiðlunar og hefði starfsemi beggja þessara fyrirtækja verið efld mjög á seinustu þremur árum. Þá veitir Stúdentaráð upplýsingar uia. Lána- sjóð íslenzkra námsmanna og starf- rækir Réttindaskrifstofu stúdenta, en þangað geta þeir stúdentar ieitað sem telja sig órétti beitta. SHÍ gefur út símaskrá og handbók stúdenta, Studiosus, og fréttablaðið Háskól- ann/Stúdentafréttir, sem kemur út á tveggja til þriggja vikna fresti og flytur fréttir af vettvangi félags- starfs og hagsmunabaráttu stúdenta og háskólans almennt. „í samvinnu við Háskólann og menntamálaráðuneytið reka stúd- entar Félagsstofnun stúdenta, sem er mjög öflugt fyrirtæki," sagði Sig- uijón. „Þar er starfrækt Bóksala stúdenta, sem er ein stærsta bóka- og ritfangaverzlun landsins, Ferða- skrifstofa stúdenta, sem er í mikilli sókn, auk kaffistofa í flestum bygg- ingum Háskólans, þar sem kennsla fer fram. Þá hefur FS með höndum byggingu og rekstur stúdentagarða, og fyrir rúmu ári var lokið við bygg- ingu nýrra hjónagarða, sem bættu mjög úr þörf stúdenta með börn fyrir ódýrt leiguhúsnæði. Markmiðið með rekstri FS er að tryggja stúd- entum lágt verð, og það er óhætt að segja að bæði Bóksala stúdenta og Ferðaskrifstofa stúdenta eru í algerum sérflokki hvað verð varðar, og kaffið hefur ekki hækkað í tvö ár hjá kaffisölunum," sagði Sigur- jón. Siguijón situr í Stúdentaráði fyrir Vöku, félag lýðræðissinnaðra stúd- enta, sem haft hefur stjórn SHÍ með höndum í tæp þijú ár. Vökumenn hafa nú sextán fulltrúa í Stúdenta- ráði en Röskva, samtök félags- hyggjufólks, fjórtán. „Ég held að stúdentar kunni vel að meta þá stjórnarhætti, sem Vaka hefur við- haft í Stúdentaráði undanfarin þijú ár,“ sagði Sigurjón. „Það kom ákveðið millibilsástand í starfsemi ráðsins undir stjórn vinstrimanna, Sigurjón Þ. Árnason, formaður SHÍ. þar sem stúdentaráð vakti meiri at- hygli fyrir stórkarlalegar yfirlýsing- ar um innanlandspólitík og utanrík- ismál en fyrir að vinna að hagsmun- um stúdenta. Stefna Vökumanna hefur verið sú að ýta pólitíkinni út úr Stúdentaráði og einbeita kröftun- um þess í stað að hagsmunabaráttu stúdenta. Það hefur líka sýnt sig að sú barátta hefur borið margvíslegan árangur. Það má nefna að það hefur fengizt í gegn að stúdentar eigi sitt jólafrí eins og aðrir með því að færa próf frá janúar til desember, og eins hefur náðst í gegn mjög brýnt hags- munamál, sem er könnun á gæðum kennslu í öllum deilduin Háskólans." Ný stjórn Kvikmynda- sjóðs Menntamálaráðherra hefur skipað í stjórn Kvikmyndasjóðs Islands tii næstu þriggja ára. Formaður stórnar sjóðsins er Ragnar Arnalds alþingismaður en aðrir stjórnarmenn eru: Lárus Ýmir Óskarsson tilnefndur af Félagi kvikmyndagerðarmanna, Hrafn Gunnlaugsson tilnefndur af Sambandi íslenskra kvik- myndaframleiðenda, Friðbert Pálsson tilnefndur af Félagi kvikmyndahúsaeigenda og Edda Þórarinsdóttir tilnefnd af Banda- lagi íslenskra listamana. Varamaður formanns er Þórunn J. Hafstein deildarstjóri en aðrir varamenn eru: Jón Hermannsson tilnefndur af Félagi kvikmynda- gerðarmana, Ágúst Guðmundsson tilnefndur af Sambandi íslenskra kvikmyndaframleiðenda, Grétar Hjartarson tilnefndur af Félagi kvikmyndahúsaeigenda og Erlingur Gíslason tilnefndur af Bandalagi íslenskra listamanna. Þegar fjallað er um málefni Kvik- myndasafns taka þátt í stjórnar- störfum: Árni Björnsson tilnefndur' af Þjóðminjasafni íslands og Karl Jeppesen tilnefndur af Námsgagna- stofnun. Varamenn þeirra eru: Gróa Finnsdóttir tilnefnd af Þjóðminja- safni íslands og Anna G. Magnús- dóttir tilnefnd af Námsgagnastofn- un.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.