Morgunblaðið - 11.12.1990, Síða 4
MORUUNBLAÐIÐ ÞRIDJUDAGÚR 11. ÍÉ^EtóÉER 1990
Sautján tíma í blæjujeppa
uppi á Þorskafjarðarheiði
TVEIR menn tepptust á Þorska-
fjarðarheiði í fyrrinótt þegar bíll
þeirra bilaði. Fóru þeir úr ísa-
fjarðardjúpi síðdegis á sunnudag
og ætluðu í Mosfellsbæ. Þeir
komu ekki fram á þeim tíma sem
þeir áætluðu og hófst þá leit í
gærmorgun. Fundust þeir fljót-
lega heilir á húfi í bíl sínum á
heiðinni.
Mennirnir eru úr Mosfellsbæ og
voru í heimsókn í ísafjarðardjúpi.
Þeir voru á Willy’s-jeppa með blæj-
um. Snemma á sunnudagskvöld,
þegar þeir voru komnir upp á
Þorskafjarðarheiði, sem er á milli
ísafjarðardjúps og Þorskafjarðar í
Austur-Barðastrandarsýslu, brotn-
aði afturöxull bílsins þannig að þeir
komust ekki lengra. Létu þeir fyrir-
berast í bílnum um nóttina, voru
vel kiæddir og létu bílinn ganga á
meðan bensínið dugði.
í gærmorgun var farið að svipast
um eftir mönnunum. Benedikt Egg-
ertsson á Nauteyri í ísafjarðardjúpi
frétti af því klukkan 9 í gærmorgún
að þeir hefðu ekki komið fram og
hélt þá strax af stað upp á heiðina
og keyrði fram á bílinn um klukkan
11. Skömmu síðar kom björgunar-
sveitarbíll úr Reykhólasveit þar að.
Björgunarsveitin á Hólmavík var
einnig tilbúin til leitar. Benedikt
sagði í gær að ekkert hefði amað
að mönnunum, þeir hefðu verið
heitir. Hann sagði að slæmt veður
hefði verið á sunnudagskvöld og
aðfaranótt mánudags en í gær-
morgun hefði verið komið ágætis
veður.
Fór hann með mennina að Naut-
eyri og síðan fengu þeir far suður.
Steingrímur Hermannsson:
Mun ekki beita þingrofsheimild
A FUNDI ríkisstjórnarinnar sem
haldinn var síðdegis á sunnudag
var farið yfir helstu málin sem
ríkissljórnin telur að Ijúka þurfi
fyrir þinghlé. Að sögn
Steingríms Hermannssonar for-
sætisráðherra fór drjúgur fund-
artími í að fara yfir stöðu fjár-
lagafrumvarpsins.
„Ég greindi ríkisstjórninni frá því
að ég muni ekki beita þingrofsheim-
ildinni og ég væri ekki reiðubúinn
að tjúfa þing á þessari stundu, enda
sæi ég enga ástæðu til þess,“ sagði
forsætisráðherra í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Steingrímur sagðist ekki sjá
ástæðu til þess að nota þingrofs-
heimildina eins og hún væri notuð
víða erlendis. ,,Ég tel það vera stöð-
ugleikamerki að ríkisstjórnir sitji
út kjörtímabilið, ef unnt er. Þetta
mál er því út úr heiminum, nema
Sjálfstæðisflokkurinn geri einhvetja
aðra svona „fína gloríu“,“ sagði
forsætisráðherra.
VEÐURHORFUR í DAG, 11. DESEMBER
YFIRLIT í GÆR: Skammt norðaustur af Jan Mayen er 985 mb
lægð sem fer norðaustur. Á suðvestanverðu Grænlandshafi er 982
mb lægð á hreyfingu austnorðaustur.
SPÁ: Allhvöss norðan- og norðaustanátt víða um landið með snjó-
komu eða éljagangi norðanlands og austan. Lægir síðdegis með
minnkandi éljum við norður- og austurströndina og léttir til sunnan-
lands og vestan. Fer að þykkna upp með austlægri átt með kvöld-
inu. Frost um mestallt land.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Suðaustlæg átt. Víða snjókoma en síðar
slydda eða rigning um sunnan- og vestanvert landið er minni úr-
koma norðaustanlands. Hlýnandi veður.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Suðlaeg eða suðvestlæg átt og hlýtt í
veðri. Rigning eða súld sunnanlands og vestan en þurrt að mestu
á norðaustur- og' austurlandi.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
Q° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
SJ Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
[T Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hlti veður
Akureyri 0 úrkomaigr.
Reykjavik 1 úrkomaígr.
Bergen 2 skýjað
Helsinki 41 þokumóða
Kaupmannahöfn 4 skýjað
Narssarssuaq 0 snjókoma
Nuuk léttskýjað
Osló ■5-3 léttskýjað
Stokkhólmur 2 rigning og súld
Þórshöfn 4 skýjað
Algarve 12 skúrás. klst.
Amsterdam 2 mistur
Barceiona ð skýjað
Berlín 1 rigning
Chícago vantar
Feneyjar vantar
Frankfurt 2 kornsnjór
Giasgow 3 hálfskýjað
Hamborg 2 þokumóða
Las Patmas vantar
London 7 skýjað
Los Angeles 12 heiðskirt
Lúxemborg +1 snjókoma
Madríd 6 hálfskýjað
Malaga 13 skýjað
Mallorca 12 skýjað
Montreal 3 léttskýjað
NewYork 8 skýjað
Orlando 8 heiðskírt
París vantar
Róm 12 skýjað
Vín 3 rigning á s. klst.
Washington 5 skýjað
Winnipeg 9 alskýjað
Morgunblaðið/Juha-Pekka Laakio
Sigrún leikur fyrir dómendur í Sibelíusarkeppninni.
Sibelíusarkeppnin:
Sigrún komin í úrslit
SIGRÚN Eðvaldsdóttir hefur tryggt sér sæti í úrslitum Sibelíusar-
keppninnar sem fram fer í Finnlandi. Þetta er keppni fiðluleikara
og það voru 44 fiðluleikarar sem hófu keppni. Sigrún er ein af
átta fiðluleikurum sem komnir eru í úrslit.
„Ég er í sjöunda himni með
árangurinn hingað til. Ég bjóst
ekki við að komast áfram í keppn-
inni og ánægjan er því enn meiri
fyrir vikið,“ sagði Sigrún í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Keppni þessi er haldin fimmta
hvert ár í Finlandia Hall í Hels-
inki. Hún hófst 2. desember með
því að þátttakendur léku fyrir dóm-
nefndina og fullan sal áheyrenda.
í aðra umferð komust 18 keppend-
ur og léku þeir öðru sinni fyrir
dómnefndina. Á sunnudaginn var
síðan tilkynnt hvaða átta fiðluleik-
arar kæmust áfram í úrslitakeppn-
ina.
í gærkvöldi lék Sigrún Sibel-
íusarkonsertinn og á morgun ætlar
hún að leika verk eftir Brahms,
en þátttakendur völdu sjálfir eitt
verk til að flytja. Á föstudags-
kvöldið verður síðan tilkynnt um
úrslit og sagðist Sigrún vera án-
iegð með að vera komin þetta
langt, en sagðist auðvitað stefna
að því að standa sig vel á miðviku-
daginn.
„Það var dregið um í hvaða röð
við ættum að leika og ég átti að
vera önnur. Sá sem átti að vera
fyrstur veiktist þannig að ég hef
alltaf byijað. Það er ágætt, þá er
þetta eins og tónleikar hjá mér og
það er gott að vera fyrst. Áheyr-
endur eru mjög góðir. Það hefur
alltaf verið fullur salur og fólk
kemur greinilga hingað til að
hlusta,“ sagði Sigrún.
Þeir sem komnir eru í úrslit eru
frá Finnlandi, Japan, Kína, Pól-
landi, Sovétríkjunum og Rúmeníu
auk Islands. Yngsti keppandinn er
frá Finnlandi en hann er aðeins
16 ára gamall. Sigrún er ein
þriggja kvenna sem komnar eru í
úrslit.
Framfærsluvísitalan:
0,3% hækkun þrátt fyrir
verðlækkun á matvælum
VISITALA framfærslukostnaðar hækkaði um 0,3% frá nóvember til
desember. Verðækkun á áfengi og tóbaki og ýmsum öðrum vöru- og
þjónustuliðum hækkaði vísitöluna en verðlækkun á matvöru lækkaði
hana á móti. Hækkun vísitölunnar í þessum mánuði sanjsvarar 3,3%
verðbólgu þegar hún er umreiknuð miðað við heilt ár en undanfarna
tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 7.2%.
Samkvæmt útreikningi kauplags-
nefndar er framfærsluvísitalan 148,3
stig miðað við verðlag í byijun des-
embermánaðar, eða 0,3% hærri en í
nóvember. Af einstökum verðhækk-
unum má nefna að 2,7% hækkun á
áfengi og 2,2% hækkun á tóbaki 27.
nóvember sl. olli tæplega 0,1% hækk-
un vísitölunnar. Verðhækkun ýmissa
annarra vöru- og þjónustuliða olli
um 0,4% hækkun á vísitölunni, en á
móti lækkaði verð á matvöru um
1,1% sem olli um 0,2% lækkun á vísi-
tölu framfærslukostnaðar. Lækkun
matvöruliðarins er vegna lækkunar
á liðunum „mjólk, ijómi, ostar og
egg“ og „grænmeti, ávextir og ber“.
Hækkun vísitölunnar nú samsvar-
ar 3,3% verðbólgu á ári. Hækkun
hennar síðustu þijá mánuði samsvar-
ar 5% verðbólgu og hækkun hennar
síðustu sex mánuði samsvarar 4,4%
verðbólgu. Framfærsluvísitalan hef-
ur hækkað um 7,2% undanfarna tólf
mánuði.
EinarJ. Skúlason látinn
EINAR J. Skúlason fyrrverandi
forstjóri í Reykjavík lést á Land-
spítalanum síðastliðinn laugar-
dag, 72 ára að aldri.
Einar fæddist 13. janúar 1918 á
Söndum í Vestur-Húnavatnssýslu.
Foreldrar hans voru Jón J. Skúlason
bóndi þar og Salóme Jóhannesdótt-
ir kona hans. Einar stundaði nám
í skrifstofuvélaviðgerðum í vinnu-
stofum í Danmörku og Svíþjóð og
lauk prófi frá iðnskóla í Kaup-
mannahöfn 1939. Hann stofnaði
eigin skrifstofuvélaverslun og
vinnustofu í Reykjavík 1939 og er
fyrirtækið rekið enn undir hans
nafni.
Eftirlifandi eiginkona Einars er
Kristjana Þorkelsdóttir.
Einar J. Skúlason.