Morgunblaðið - 11.12.1990, Side 13
MORGtíNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1990
13
Bókmenntir
Súsanna Svavarsdóttir
Það hálfa væri nóg
Lífssaga Þórarins Tyrfings-
sonar læknis
Skrásetjari: Guðrún Guðlaugs-
dóttir
Utgefandi: Orn og Orlygur
Eiginlega hef ég alltaf haldið að
Þórarinn Tyrfingsson hafi lifað í
hundrað ár. Það virðist vera svo
langt síðan maður heyrði hans get-
ið í sambandi við meðferð áfengis-
sjúklinga og svo margt hefur gerst
síðan. Þó eru það varla nema tíu
til tólf ár.
Enda er saga hans forvitnileg.
Hún greinir lítillega frá æsku hans
og uppvexti, námi og íþróttastarfi
og starfi hans sem læknis. Ég verð
að segja að þegar ég kom á síðu
67 — að kafla sem heitir „Áfengis-
meðferð“ og fjallar um það afdrifa-
ríka skref Þórarins að leita hjálpar
við drykkjuskap sínum — leist mér
ekki á blikuna. Þarna var hann
búinn að afgreiða þijátíu ár af lífi
sínu, og engar skemmtilegar fyll-
eríssögur. Það var eins og hann
hefði aldrei verið fullur.
En það er fyrst í þessum kafla
sem bókin verður verulega áhuga-
verð, því þar hefst frásögnin af
lífsstarfi Þórarins. Smátt og smátt
verður manni ljóst að það er í raun-
inni ekkert fyndið við fylleríssögur.
Þær eru sorglegar — og auðvitað
hlaut Þórarinn að eyða meira púðri
í uppbygginguna en niðurrifið. Og
uppbyggingin er greinilega hugsjón
hjá honum. Samt er hann með
báða fætur á jörðinni.
Þórarinn lýsir mjög ítarlega ein-
kennum alkóhólisma, ræðir um for-
dóma samfélagsins, segir frá með-
ferðarstöðvunum, Vogi, Sogni og
Staðarfelli og frá Reykjadal og SiÞ
ungapolli, þar sem starfsemi SAA
var í upphafi. Jafnhliða þessu
greinir hann frá því hvernig með-
ferð sjúkdómsins hefur breyst og
þróast. Án þess að ræða sjálfan sig
mikið í því sambandi, er ljóst að
hann hefur aflað sér ótrúlegrar
þekkingar á sjúkdómnum og með-
ferð alkóhólista.
Þórarinn státar sig ekki af sínum
eigin bata. Hann er þakklátur fyrir
hann en fer ekki út í neinar yfirlýs-
ingar umfram það. En ekki hefur
sá bati gengið þrautalaust fyrir sig
hjá honum, fremur en öðrum og í
kafla sem nefnist „Uppbygging“
segir Þórarinn frá líðan sinni,
fyrsta „edrú“ árið. Þar er líðan og
upplifun, sem hlýtur að virka und-
arlega á fólk sem ekki er alkóhólist-
ar. Þar segir hann, meðal annars:
„Alkóhólistar hafa yfirleitt litla
reynslu í að segja nei ef þeim er
boðið áfengi. En það þurfa þeir
bráðnauðsynlega að læra og það
■ SKJALDBORG hefur gefíð út
bókina Sögur úr sveitinni. Þetta
eru smásögur skrifaðar sérstaklega
fyrir byijendur í lestri. Teikningar
eru eftir Stephen Cartwright.
Sögurnar heita: Grísinn sem fest-
ist, Óþekkta kindin, Illöðubruni
og Traktorinn sem stakk af.
JRtvgnn*
fytaMfr
í Kaupmannahöfn
FÆST
í 8LAÐASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁDHÚSTORGI
fljótt. Í þessu þjóðfélagi er sífellt
verið að bjóða mönnum vímuefni.
Alkóhólistinn þarf að læra að neita
á eðlilegan hátt án þess að það
valdi honum spennu. Ef maður fer
að útskýra vandlega fyrir fólki að
maður sé alkóhólisti og hafi verið
í meðferð er maður áður en við er
litið kominn á kaf í heitar umræður
sem geta valdið miklu tilfinninga-
legu uppnámi." og „Ég vildi ekki
undir neinum kringumstæðum
breytast í ofstækisfullan mann sem
félagar mínir hefðu ekki gaman
af að umgangast. Mér fannst því
að ég þyrfti að geta látið mér líða
vel innan um fólk sem væri að
drekka og skemmta sér. Þetta gekk
vægast sagt illa. En lengi vel var
ég samt að „snobba" fyrir þessu,
vildi alls ekki sýnast „fanatískur"
eða skrítinn. Svo rann það upp
fyrir mér að það var ekkert að
mér. Það er bara eðlilegt að ódruk-
knu fólki leiðist innan um fullt fólk.
Það endurtekur sig og er barnalegt
og skelfilega þreytandi.“
En þótt Þórarinn segist hafa
tekið harðari afstöðu í bindindis-
málum með árunum, er langt frá
því að í bókinni sé að finna vott
af prédikun eða ofstæki. Hún sýnir
umburðarlyndan, raunsæjan, hlýj-
an og skemmtilegan mann sem,
eins og hann segir sjálfur í'eina
skiptið sem hann hrósa'r sér, „er
með báða fætur á jörðinni.“
Bókin er skemmtilega skrifuð,
Guðrún Guðlaugsdóttir
frásögnin hröð og kemur persónu-
leika Þórarins vel til skila, ásamt
hugsjónum hans og starfi. Hún
gefur raunsæja og góða mynd af
þeim vanda sem af áfengi og öðrum
Þórarinn Tyrfingsson
vímugjöfum stafa og ætti að vera
holl fræðsla öllum þeim sem þjást
af fordómum. Kannski ekki vitlaust
að láta lesa hana í samfélagsfræði
í grunnskólum.
Soný CFS-204 er snoturt, létt og lipurt stereó
ferðaútvarp með segulbandi. Það er með innbyggðum
hljóðnema, FM stereó og miðbylgju. Útvarpið er til í
tveimur litum: Svörtum og hvítum.
Þetta Sony tæki er á frábæru jólatilboðsverði,
áðeins kr. 7.980 stgr.
Matá vátallt um þau...
Panasonic RXFS420 er kraftmikið stereó ferðaútvarp
með segulbandi. Það er 20 wött og með fjórum hátölurum.
Það er með innbyggðum hljóðnema, þriggja banda
tónjafnara og fjórum útvarpsbylgjum (FM/MB/LB/SB).
Jólatilboðsverð á þessu kraftmikla tæki er
aðeins kr. 9.980 stgr.
Sony CFD-50 er hljómgott og meðfærilegt ferðaútvarp
fyrir þá sem vilja aðeins það besta.T^að er með góðu útvarpi
(FM/MB/LB/SB), afar vönduðu segulbandi og
fullkomnum geislaspilara.
Þetta gæðatæki er á einstöku jólatilboðsverði,
aðeins kr. 24.950 stgr.
JAPISS
• BRAUTARHOLTI ■ KRINGLUNNI ■ AKUREYRI
Hugsjón og þekking