Morgunblaðið - 11.12.1990, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐiJUDAGTUR 11. ÐESEMBER 1990
15
Á heimamiðum
Bókmenntir
Ingi Bogi Bogason
Guðlaugur Arason: Blint í sjó-
inn. (73 bls.) Mál og menning
1990.
Segja má að Guðlaugur sé á
heimamiðum í þessari bók. Hún
er allfjölbreytileg að efni en aftur
og aftur er vettvangurinn hafið og
sjómannslífið.
Bókin skiptist í 4 hluta sem
heita Blint í sjóinn, Mor, í kross
og Spegill, spegill.
Málfar er að jafnaði tært, ein-
falt, blandið eftirsjá. Sem dæmi
um þetta skal birt brot úr fyrsta
ljóði bókarinnar:
Þau eru mörg sporin
sem þú geymir
litla bryggja
á langri ævi
létt skref sem stigin voru
ef hlaðinn bátur birtist
og kætin flaut undir sólum
þung
þegar hinn sami
kom ekki aftur.
Ófáir eru bingirnir og balamir
á vogarskál þinni
/.../
og manstu bamshjartað
sem hvíldi við bijóst þitt
/.../
Nú ertu horfin
fóstra mín
sern hélst á mér ungum.
(í framhjáhlaupi: Er ekki inn-
bakaður í þessar línur einhver virð-
ingarvottur við meistaraverk frá
miðri öldinni, Þorpið Jóns úr Vör?)
Markverðast við þessa bók eru
lifandi hversdagsmyndir í nálægð
Guðlaugur Arason
hafsins. Höfundi tekst að færa al-
geng atvik í fang lesandans með
því að halda til haga ýmsu smáu.
Einstök verkfæri, sérstök stemmn-
ing, dagsdaglegt háttemi: allt
þetta ber vitni um persónulegt
handbragð:
Þúnpr ertu á bárunni
bátur minn
/.../
rétt eins og ófrísk kona
á leið sinni úr kaupfélaginu
vaggar þú þungstígur með pokann
og hlakkar til
að verða aftur léttari .
á bámnni.
Annar hlutinn, Mor, geymir m.a.
fáein ljóð sem endurspegla heim
hraðraog mótsagnakenndra breyt-
inga. í gær fólst staðreyndin í
„múr, handjárnum, einræði, Stalín,
boðum og bönnum“. En í dag er
það frelsið. Frelsi til hvers? „Til
að banna í nafni lýðræðis? / Til
Falleg bók um
íslenskar fjörur
að kjósa nýjan Stalín í fijálsum
kosningum? / Til að setja lög og
brjóta þau?“
(Einkennilegt hvað skáldskapur
getur enn og aftur orðið beint inn-
legg í pólitísk hitamál.)
Niðurstaða þessa Ijóðs er í anda
þess að hver skuli rækta sinn garð
og tátla sitt hrosshár í friði: „græn
er hún flötin þín / granni góður.“
í þriðja hlutanum, í kross, er
íjallað um þegar leiðir karls og
konu skerast. Hér eru ástarljóð (Þú
komst, í skóginum) en svo eru
önnur sem lýsa því þegar karl og
kona eins og tali, hugsi og fram-
kvæmi í kross:
Eftir árið
Eftir árið
sagðist þú sjá
það á mér
að ég hefði
haldið fram hjá þér
synd
því strax
við okkar fyrstu kynni
hélstu þvi fram
að ástin væri blind.
Með seinasta hlutanum, Spegill,
spegill, má segja að bókin tengist
upphafi sínu. Hér er efnið að mestu
bundið hafi og veiðum nema blær
endurminninganna svífur yfir.
Andi gærdagsins gerist nærgöng-
ull, sbr. Vorið 1966:
Það var tjörulykt úr nótinni.
Þegar fangalínan
hafði verið hringuð niður
settist hann niður í mjúkt garnið
og taldi marglytturnar
sem veltust í kjölfarinu
Þessi bók er engin blaðbijótur,
hún rýfur engan múr. En hún er
heldur engin meðalmennska. Hún
er sérstök fyrir persónulegt yrkis-
efni sem um leið er hluti af
klassísku viðfangsefni í íslenskri
ljóðagerð.
eftir Unnstein
Stefánsson
Á undanförnum árum hefur
bókaútgáfan Bjallan gefið út merk-
ar bækur um íslensk dýr og íslenska
náttúru. Nægir í því sambandi að
nefna Húsdýrin okkar (1982), Fugl-
arnir okkar (1985), Villtu spendýrin
okkar (1987) og íslenskir steinar
(1988). Við útgáfu þessara bóka
sem skrifaðar hafa verið fyrir al-
menning hefur mjög verið vandað
til texta og mynda. Á bókaútgáfan
þakkir skilið fyrir það áræði að
gefa út slík öndvegisrit, þrátt fyrir
þröngan fjárhag.
Og nú er komin út bókin íslensk-
ar fjörur eftir Agnar Ingólfsson
prófessor í líffræði við Háskóla ís-
lands. Bókin skiptist í eftirfarandi
aðalkafla: Fjaran og sjávarföllin,
Umhverfið í fjörunni, Lífríki fjör-
unnar, Fjörugerðir, Fjörudýr, Fjöru-
gróður, Gildi fjörunnar og verndun
hennar, Fjörunytjar, og loks Skoðun
ijörulífvera. Þá fylgir skrá yfir
lífverur ásamt latneskum nöfnum.
í formála segir höfundur: „Þessari
bók er ætlað að vera alþýðlegt
fræðslurit um íslenskar fy'örur og
lífríki þeirra.“ Hún stendur sannar-
lega undir nafni. Hún er unnin af
einstakri vandvirkni og nákvæmni
eins og allt sem Ágnar Ingólfsson
lætur frá sér fara. Umfjöilun um
fjöruna og lýsing á lífriki hennar
er skýr og greinargóð, skrifuð á
góðu íslensku máli. Asamt lýsingum
á einstökum dýrategundum og
plöntugróðri eru víða beinar tilvitn-
anir í eldri rit. Þessar tilvitnanir eru
til ánægjuauka og bregða upp
Agnar Ingólfsson
„áhugaverðum myndum af viðhorfi
manna fyrr á tíð til íjörunnar og
fjörunytja", eins og segir á einum
stað. Bókina prýða yfir 80 skýrar
og fallegar litmyndir sem höfundur
hefur sjálfur tekið, en hann er mjög
snjall ljósmyndari.
Þessi fallega bók ætti að vera til
í öllum skólum landsins og helst á
hveiju heimili í grennd við sjó. Hún
mun án efa glæða áhuga almenn-
ings á fjörunni og fjöruferðum og
verða jafnt ungum sem öldnum
hvatning til þess að ganga vel um
sameign okkar íslendinga, náttúru
landsins, og njóta hennar á heil-
brigðan hátt.
Höfundur erprófessor íhaffræði
við H&skólá Islands.
Þvottavél fyrir
þá sem þvo
mikið og vilj a
hafa gaman
af þ ví
HOOVER þvottavélarnar eru hannaðar til að þvotturinn verði leikur einn.
Kynntu þér kosti HOOVER þvottavélanna.
HEIMILISKAUP H F
• HEIMIUSTÆKJADEILD FÁLKANS •
Suðurlandsbraut 8 - sími 84670
Á
v *
e 4 Sft c+
& ■b