Morgunblaðið - 11.12.1990, Qupperneq 28
28 MÖRGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR II. 'd'ESÉMBER 1990
Lengiskal
manninn reyna
eftir Guðmund
*
Ægústsson
i.
Með bréfi til forsætisráðherra
dags. 27. nóvember sl. sagði ég
skilið við ríkisstjórnina. Þessi
ákvörðun mín hefur verið túlkuð
misjafnlega í fjölmiðlum en þó eink-
um með þeim hætti að ég hafi farið
í fýlu þar sem ég hafí ekki fengið
sæti í bankaráði Seðlabanka Is-
lands. Ég tel því rétt til að fyrir-
byggja þann misskilning að skýra
í stuttu máli af hveiju ég tók þessa
ákvörðun og hver aðdragandinn var
að henni.
II.
Því er ekki að leyna að skipan
bankaráðs Seðlabankans hafði áhrif
þegar ákvörðun mín var tekin en
e.in og sér réði hún engum úrslitum.
Ákvörðun rriína hafði ég þegar tek-
ið og án tillits til þess hvernig
bankaráðið yrði skipað.
III.
Þegar Borgaraflokkurinn gekk
til samstarfs við þáverandi stjórnar-
flokka um myndun nýrrar ríkis-
stjórnar hafði ég miklar efasemdir
um að flokkurinn ætti að taka þátt
í þessu ríkisstjórnarsamstarfi.
Ríkisstjórnin var búin að marka sér
stefnu og þátttaka Borgaraflokks-
ins yrði til lítils annars en að tryggja
ríkisstjórninni setu út kjörtímabilið.
Á okkur yrði litið sem atkvæði en
ekki samstarfsflokk. Þrátt fyrir
þessa hugsun var ég bjartsýnn og
trúði því að Borgaraflokkurinn
gæti sett mark sitt á gjörðir ríkis-
stjórnarinnar með þátttöku í stjóm-
arsamstarfinu. Þau atriði sem réðu
úrslitum í mínum huga voru þær
breyttu áherslur sem hin nýja ríkis-
stjórn samþykkti að setja á oddinn
og Borgaraflokkurinn hafði barist
fyrir. Var þar annars vegar lækkun
á framfærslukostnaði heimilanna í
landinu með það að markmiði að
lækka matvælaverð og lækka fjár-
magnskostnað. Hins vegar að sú
víxlverkun sem væri í þjóðfélaginu
milli verðlags og lána yrði aftengd
með afnámi vísitölutengingar á lán-
um. Hvoru tveggja var skjalfest í
málefnasamning ríkisstjórnarinnar
sem mynduð var 10. sept. 1989.
Fyrsta skrefið sem taka átti í lækk-
un matarverðs átti að koma til
framkvæmda við upptöku virðis-
aukaskatts þá um haustið með því
að ákveða að lægra virðisauka-
skattsþrep yrði á ýmsum tegundum
matvæla á framleiðslustigi þannig
að verð landbúnaðarvara lækkaði í
ársbyijun 1990. Sú aðgerð má með
rökum segja að hafi haft veruleg
áhrif á að þjóðarsátt tókst í febrúar
1990. Um síðargreinda atriðið um
afnám vísitölutengingar var um það
samið að þegar verðbólga yrði und-
ir 10% í sex mánuði yrðu gerðar
tillögur í þá átt að aftengja lán við
vísitölur til að koma í veg fyrir sjálf-
virkar hækkanir verðlags og lána.
Þó verðbólga hafi mælst undir 10%
sl. 12 mánuði bólar ekkert á tillög-
um í þessu efni.
IV.
Eftir að ríkisstjórnin með þátt-
töku Borgaraflokksins tók til starfa
bar strax á því viðhorfi innan ríkis-
stjórnarinnar að tilgangurinn með
því að bjóða honum til samstarfs
var sá einn að hafa meirihluta á
Alþingi. Um mál flokksins og tillög-
ur var lítið gert og muna víst flest-
ir eftir þeirri rimmu þegar að stofn-
un umhverfisráðuneytisins kom á
Alþingi og frumvarpinu um verk-
efni þess ráðuneytis. Var það hvað
eftir annað látið víkja fyrir frum-
vörpum annarra ráðherra og við
stjómarandstöðuna samið um fram-
gang annarra mála gegn því að
frumvarpið um verkefni umhverfis-
ráðuneytis yrði látið bíða. Undir lok
þingsins vorið 1990 var farið fram
á það við Borgaraflokkinn annað
hvort að fresta frumvarpinu um
verkefni umhverfisráðuneytisins
fram á haustið eða afgreiða frum-
varp sem fæli í sér verulega fækkun
verkefna frá því sem samkomulag
hafði tekist um innan stjórnarliðsins
til að þóknast stjómarandstöðunni.
Geri ég ráð fyrir að önnur hvor
þessara tveggja leiða hafi verið far-
in ef ekki hefði komið til þess að
frumvarp sjávarútvegsráðherra til
laga um stjórn fiskveiða var í hættu
í efri deild Alþingis. Valt þar á af-
stöðu minni. Ætlaði ég að fella
fmmvarpið og fella þá um leið
stjórnina en forsætisráðherra hafði
lýst því yfir, félli það frumvarp þá
væri ríkisstjórnin þar með fallin.
Það sem vakti fyrir mér þá voru
ekki síður vonbfigði mín með sam-
Guðmundur Ágústsson
„Tjáði ég honum að
ákvörðun mín stæði og
ég ætlaði ekki lengur
að sitja undir þeirri nið-
urlægingu sem sam-
starfsflokkarnir sýndu
Borgaraflokknum. “
starfsflokkana og framkomu þeirra
við mál Borgaraflokksins. Skömmu
áður en greiða átti atkvæði um
frumvarpið í efri deild féllst ég á
að breyta um afstöðu gegn því að
frumvarpið um verkefni umhverfis-
ráðherra yrði afgreitt á því þingi
og ákveðnar breytingar yrðu gerðar
á frumvarpinu um stjórn fiskveiða.
Andstætt því sem ég taldi rétt
greiddi ég atkvæði með frumvárp-
inu í þeirri trú að tímar mundu
breytast og meira tillit yrði tekið
til mála og skoðana Borgarafiokks-
ins í framtíðinni.
V.
Áður en Alþingi var sett í októ-
bermánuði sl. tjáði ég aðstoðar-
manni forsætisráðherra þegar færi
gæfist myndi ég segja skilið við
þessa ríkisstjórn. Ég væri orðinn
dauðleiður á yfirganginum í ein-
stökum ráðherrum ríkisstjórnarinn-
ar og sumum þingmönnum stjórn-
arliðsins. Ég hefði ekki áhuga á að
eiga samstarf við menn sem gengju
yfir mig á skítugum skónum og litu
á mig og flokkinn sem atkvæði en
ekki sem samstarfsaðila. Þegar
kosning bankaráðs Seðlabankans
nálgaðist lagði ég sem formaður
þingflokks Borgaraflokksins kröfu
um að Borgaraflokkurinn fengi eitt
sæti af þremur sem koma átti í
hlut ríkisstjórnarflokkanna. Taldi
ég þessa kröfu eðlilega með tilliti
til þess að jafnhliða ákvörðun um
þessi þijú sæti átti að skipa tvo
bankastjóra annars vegar í Seðla-
bankann og hins vegar í Lands-
bankann. Einnig var til umræðu
sæti ríkisstjórnarflokkanna í stjórn
Landsvirkjunar sem ég var tilbúinn
að ræða að félli í hlut Borgara-
flokksins yrðu vandamál í tengslum
við skipan bankaráðs Seðlabank-
ans. I mínum huga var það sú
málamiðlun sem flokkurinn gat
sætt sig við. Við mig var ekki rætt,
lítillega við dómsmálaráðherra og
við formann Borgarafiokksins þeg-
ar hinir stjórnarflokkarnir höfðu
tekið ákvörðun hveijir skyldu til-
nefndir og honum aðeins tilkynnt
hveijir ættu að skipa bankaráðið.
VI.
Menn mega. núa mér því um
nasir að ég hafi farið í fýlu og ég
tekið ákvörðun í fljótfærni og í
bræði. Hins vegar finnst mér það
ekki stórmannlegt þegar því er
bætt við „þar sem hann fékk ekki
sæti í bankaráði Seðlabankans“.
Þar tala menn gegn betri vitund.
Sú umræða hafði aldrei farið fram
innan þingflokks Borgaraflokksins
hver skyldi skipa þetta sæti félli
það í hlut flokksins. Hins vegar
skal það upplýst að átta aðilar höfðu
Þetta er góð bók
Þessi nýja skáldsaga
Guömundar Halldórssonar frá
Bergsstöðum gerist á
heiðarbýli í byrjun fyrra strfðs.
Aöalpersónur sögunnar eru
hjón sem strita hörðum
höndum fyrir Iffsbjörg sinni og
barna sinna en hrekkur þó ekki
til. Ómegð vex, og skuldir
hlaðast upp. Hreppsnefndin er
sem á nálum um að fá þau á
sveitina með alla ómegðina.
Taliö er að svipaðir atburðir og
lýst er í þessari skáldsögu hafi
verið að gerast vítt og breitt um
landið í tíð þeirra sem nú eru
liðnir eða á efstu árum.
BÓKAÚTGÁFAN HILDUR
N eytendasamtökin
o g landbúnaðurínn
eftir Agnar Guðnason
Laugardaginn 1. desember héldu
Neytendasamtökin landbúnaðar-
ráðstefnu á Hótel Örk í Hvera-
gerði. Ég hefí fengið Ijósrit af til-
lögu til ályktunar, sem lögð var
fram á fundinum. Með ályktuninni
fylgdi ítarleg greinargerð. Þar er
minnt á baráttu Neytendasamtak-
anna fyrir auknum gæðum ís-
lenskra búvara, m.a. er samtökun-
um þakkaðar betri mjólkurafurðir
en áður og góðan árangur í afnámi
einokunar í verslun með kartöflur.
Þá er einnig bent á baráttu Neyt-
endasamtakanna fyrir breytingu í
sölu garðávaxta, sem borið hefur
góðan árangur bæði neytendum og
framleiðendum til góðs.
Nú veit ég ekki hvort þessi álykt-
un var samþykkt _en ég geri þó frek-
ar ráð fyrir því. Ég hefi fylgst með
starfsemi Neytendasamtakanna um
langt árabil, þótt ég sé nýlega geng-
inn í samtökin. Það verður að segj-
ast eins og er að það hefur farið
fram hjá mér ef Neytendasamtökin
hafa haft einhver áhrif á aukna fjöl-
breytni í framleiðslu mjólkurvara
eða bætta meðferð þeirra. Þó vil
ég ekkert fullyrða í því efni. For-
maður Neytendasamtakanna er
mjólkurfræðingur og hefur starfað
sem slíkur um eitthvert árabil og
þar hefur hann eflaust notið sín.
Það er þáttur Neytendasamtak-
anna í bættri markaðsstarfsemi og
meðferð og sölu garðávaxta, sem
ástæða er til að staldra við.
Hafa garðávextir lækkað í
verði og batnað?
Forráðamenn Neytendasamtak-
anna, svara þessari spurningu ját-
andi og þakka sér þann árangur.
Ég vil aftur á móti fullyrða að
bæði neytendur og framleiðendur
hafi tapað á breyttum verslunar-
háttum með garðávexti. Það getur
vel verið að meira hafi borið á
skemmdum kartöflum fyrir 8 til 10
árum en nú í verslunum. Það hefur
bara ekkert að gera með fyrirkomu-
lag dreifingarinnar, hvort um
einkasölu var að ræða eða fijálsa
verslun.
Mjög oft gerðist það að kartöflur
skemmdust i verslunum, þær voru
geymdar á óhentugum stöðum. Það
gátu orðið mistök í dreifingu frá
Grænmetisverslun landbúnaðarins
og skemmdar kartöflur sloppið út
í verslanir, en það gerist enn þann
dag í dag. Hér áður fyrr voru kart-
öflur oft útlitsljótari en þær eru í
dag, þetta voru þá grunnar hýðis-
skemmdir, en innri skemmdir eru
síst minni nú en áður. Fyrir 10
árum var thiabendazoli ekki úðað
yfír allar kartöflur, það þekktist þá
ekki hér á landi, en nú er þessu
lyfi úðað nær undantekningarlaust
yfir allar kartöflur sem fara í sölu.
Þessvegna mætti varpa fram þeirri
spumingu hvort kartöflur hafa ekki
verið hollari hér áður fyrr, þrátt
fyrir útlitsgalla.
Er verð á kartöflum hlut-
fallslega lægra nú en á
tímum einkasölunnar?
Það held ég að sé af og frá.
Verð til bænda fer nokkuð eftir því
hvert og hvernig þeir selja kartöfl-
urnar. I flestum tilvikum fá þeir
hlutfallslega minna fyrir kartöflur,
nú en áður. Heildsalarnir eru mjög
illa haldnir svo ekki sé meira sagt.
Þá ættu nú neytendur aldeilis að
hafa grætt á umskiptunum. En það
er nú öðru nær. Kartöflur hafa aldr-
ei verið eins dýrar og nú undanfar-
in ár eftir að verslunin með þær
var gefin fijáls - hvort sem um er
að ræða innlenda framleiðslu eða
innfluttar kartöflur. Það vita flest-
ir, sem kaupa í matinn hvað 1.
flokks kartöflur kosta hér í verslun-
um. Verð a'l kg af 1. flokks kart-
öflum í smásölu um miðjan nóvem-
ber sl. miðað við ísl. kr. var eftirfar-
andi í nokkrum löndum: í Hollandi
22 kr., í Þýskalandi 32 kr., í Frakk-
landi 27 kr., í Englandi 31 kr., í
Svíþjóð 46 kr. og í Danmörku 41
kr. Þessi munur á verði kartaflna
hér og erlendis var ekki jafnmikill
á tímum einkasölunnar.
Sala á kartöflum hefur dregist
saman eftir að breyting varð á
heildsöludreifíngu þeirra. Það væri
langsótt ef ég mundi kenna Neyt-
endasamtökunum um þá þróun.
Niðurstaðan verður sú að það hafa
fáir hagnast á þeirri breytingu sem
varð við afnám einkasölunnar. Or-
ugglega ekki bændur, ennþá síður
neytendur, af og frá með heildsal-
ana, en hvað með kaupmanninn og
þá fáu bændur sem selja beint? Þar
væru kannski einhveijir örfáir, sem
hafa hagnast:
Breyttir verslunarhættir með
grænmeti hafa ekki fært neytend-
um né framleiðendum meira vöru-
úrval, betri vöru, bændum hærra
verð né neytendum lægra.
Það hefur eitthvað farið úrskeið-
is þetta með frelsið í verslun með
garðávexti, ég trúi ekki að það
hafi verið eftir forskrift Neytenda-
Agnar Guðnason
„Breyttir verslunar-
hættir með grænmeti
hafa ekki fært neytend-
um né framleiðendum
meira vöruúrval, betri
vöru, bændum hærra
verð né neytendum
lægra."
samtakanna. Hvernig væri að Neyt-
endasamtökin stæðu fyrir fijálsum
opnum mörkuðum um allt land á
landbúnaðarafurðum til hagsbóta
fyrir þá sem samtökin beijast fyrir
og þá um leið fyrir framleiðendur
sem jafnframt eru neytendur og
eiga því heima í Neytendasamtök-
unum.
Ilöfinnhir er ráðunautur.