Morgunblaðið - 11.12.1990, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 11.12.1990, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1990 31 Treystiröu annarri filmu fyrir dýrmœtu minningunum þínum? Jörðin fyrir Sam eftir Hallfríði G. Schneider I blíðviðri haustsins dokaði ég við læk og horfði á hornsílin skjót- ast til og frá. Þarna hugsaði ég til þess, þegar Jóhannes Kjarval sagði okkur systkinunum 1928 af hveiju sílin í krukkunni okkar voru farin að gráta. Þegar heim kom las ég bæklinginn „The Earth for Sam“, skrifaðan 1937 af Kjarval um sam- nefnda bók eftir ameríska vísinda- manninn William Maxwell Reed, hvað ég hefi oft gerf. áður. Nú vildi ég meira og fór niður á þingbókasafnið í Washington, D.C., en á þessu safni eiga. að vera eintök af flestum bókum, tímaritum, greinum og dagblöðum þessa heims. Ég rétti inn mína beiðni en þurfti að bíða 45 mínútur eftir bók- inni. Á þessum tíma fór ég í upplýs- ingatölvu, en ekki er búið að full- komna tölvukerfið, svo flestar tölur eru of lágar. ísland, hvað eru marg- ar bækur um það? Síðan 1968 eru það 1.149, af þeim 394 á íslenzku. Bækur með lýsingarorðinu íslenzk- ur í titlinum eru 209,103 á íslenzku. Kjarval hefur þijár bækur (ég spurði aðeins um bækur) undir sínu nafni, Laxness 49. Einar Benediktsson, ekki í kerf- inu. Þá fór ég í gömlu spjaldskrána og þar var hann undir Einari, ekki Benediktsson, og hafði þijú spjöld. Þarna er skrásett eftir reglum heimalands höfunda. Á leið að leita að Jónasi Hallgrímssyni, rakst ég á 26 íslenzka Jóna. Áf þeim hafði Jón Helgason, f. 1899, flest spjöld eða 28. Það er spjald fyrir hveija bók eða hvert rit. En ég fór aftur í tölvuna og sá að þarna er hægt að lesa Morgun- blaðið á mikrofilmu. Og ég stakk inn sjö nöfnum bekkjarsystkina, sem ég veit að hafa skrifað bækur. Ekki voru þær allar þarna, en bæk- ur eftir Guðrúnu P. Helgadóttur, Björn Þorsteinsson, Sturlu Friðriks- son og Þórhall Vilmundarson voru þarna. Bókin um Jörðina er komin og sezt ég með hana inn í lestrarsal, því aðeins þingmenn fá að taka út bækur. Verðir skoða innihaldið í töskum við útgöngudyr. Bók Reeds, útgáfa 1930, 390 blaðsíður, er þægileg aflestrar. Höfundur segir frá kenningum vísindamanna um upphaf jarðar fyrir ca. 2000 til 1500 milljónum ára síðan, kannski við hamfarir náttúrunnar úr t.d. samanþjöppuð- um rykkornum eða glóandi eld- hnetti, sem síðar kólnaði. Hvernig efnin í lofti og vatni kynnu að hafa myndast, þá sellur í vatni, sem urðu að' amöbum, marglyttum, fiskum og landdýrum, loks risaeðlum, sem svo dóu út við önnur náttúruundur. Hvergi eru staðhæfingar, heldur skoðanir og kenningar. „Við verðum að muna, að það tekur milljónir ára fyrir verulegar breytingar að eiga sér stað á fjall- görðum og dýrum. — Aðeins nýlega hafa fremdardýr þroskast svo, að heilinn er kröftugri en vöðvarnir. I framtíðinni munu þeir ef til vill vita meira um sjálfa sig og vitrast svo, að þeir hætti að beijast í stórum hópum í skipulögðu stríði. Því vitr- ari sem þeir verða, því meiri líkur eru til þess, að þeir viti jafn mikið um lífið eins og þeir vita t.d. um rafmagn. — En svo getum við líka dáið út eins og risaeðlurnar. — Hins vegar skulum við vera bjartsýnir, Sam, og halda áfram að læra meira um Jörðina og alheim og allar lif- andi verur.“ Á meðan ég las bókina hafði ég grein Kjarvals í huga og fann hversu fijór og djúphugsandi þessi friðarsinni var í sinni náttúrudýrkun og hversu litríkur penni hans var ekki síður en penslar hans, eins og sjá má af eftirfarandi: Kjarval The Earth for Sam. Jóhannes Kjarval Höfundur er búsettur í Bandaríkjunum. Ábætissprengja bls.76 Lambalæri með myntu og rjómasósu bls. 56 NIÐURHENGD LOFT CMC kerfl fyrir niöurhengd loft, er ur galvaniseruðum málmi og eldþolið. CMC kerfl er auövelt i uppsetningu og mjög storkt. CMC kertl er fest með sttllanlegum upphengjum sem þola allt að 50 kg þunga. CMC “erf'f*st I mörgum gerðum bæði sýnilegt og fallð og verðlð er otrulega lágt. CMC kerfl er serstaklegá hannad Hringið eftir fyrir loftplötur frá Armstrong frekari upplysingum Cmftiumboð i lllandi. tö Þ. ÞQRGRÍMSSON & CQ Ármúla 29 - Reykavík - sími 38640 Heit skelfiskmús bls.44 Ný ALÍSLENSK MATREHISLUBÓK ' Manstu eftir Ostalyst? Nú er komin MATARLYST. Það eru gleðitíðindi fyrir alla þá sem hafa gaman af góðri matseld og vilja reyna nýjar uppskriftir. í bókinni em 120 uppskriftir, forréttir, súpur, fiskréttir, kjötréttir, bakstur, sósur og salöt auk drykkja og smárétta, svo af nógu er að taka. Þessi vandaða bók kostar u.þ.b. kr 1.390.- og á örugglega eftir að gleðja marga um jólin. Fæst í verslunum um land allt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.