Morgunblaðið - 11.12.1990, Síða 45

Morgunblaðið - 11.12.1990, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPnfflVINNULÍF ÞRIÐJUDAGURi 11. DESEMBER 1990 45 Ný tækni í skiltaframleiðslu Fyrirtæki STIMPLAGERÐIN hf. hefur nýhafið framleiðslu á sérstökuni málm- skiltum sem nefnast Málmmyndir. Þessi skilti eru framleidd með ljósmyndatækni, efnablöndum og þar til gerðum tækjabúnaði. I fréttabréfi frá Stimplagerðinni kemur fram að þessi aðferð gefur mikla möguleika til fjölbreytileika í framleiðslu og eins eru skilti sem framleidd eru með þessari aðferð mjög endingargóð. Á málmskiltunum eru texti og mynd innsigluð í rafliúðaða filmu og varin af safírhertu yfirborði sem stenst núning og flögnun og flest upplausnarefni og efnablöndur sem notaðar eru í iðnaði. í fréttabréfinu segir að tákn, texti og strikamerki prentist mjög skýrt á málmskiltin. Málmmyndir fást í ýmsum stærðum og þykktum og með mismunandi áferð á yfir- borði. Ennfremur kemur fram að málmskiltin eru, vegna eiginleika sinna, sérlega hentug í hvers konar vélamerkingar, framhliðar á stjórn- borð, merkingar á varahluti, hús- gögn, tölvur og síðast en ekki síst hefðbundin skilti svo sem hurða- skilti, barmmerki o.fl. Þá er þess getið að skiltin eru sérstaklega góð til notkunar utanhúss þar sem hin sérstaka tækni í framleiðslu leiðir til þess að þau halda sér óbreytt í allt að 20 ár. Fundur Fjárfesting- ar erlendis VERSLUNARRÁÐ Islands efnir til morgunverðarfundar á morg- un, iniðvikudag, um fjárfesting- arkosti erlendis. Á fundinum munu tveir yfirmenn Enskilda Asset Management Ltd. í London fjalla um fjárfestingar í erlend- uni verðbréfum. Hugo Petersen, framkvæmda- stjóri, fjallar um helstu fjárfesting- arkosti sem í boði eru út frá sjónar- hóli íslendinga. Þá mun David Söd- en, forstöðumaður Norður- Ameríkudeildar fyriilækisins fjalla um horfur á erlendum hlutabréfa- mörkuðum, segir í frétt frá Skrif- stofu viðskiptalífsins. Báðir ræðumennirnir munu sitja fyrir svörum a,ð framsöguræðum loknum. Fundurinn er öllum opinn og stendur frá 8.00 til 9.30 í Átt- hagasal Hótels Sögu. Mikilvægt er að tilkynna þátttöku fyrirfram til Skrifstofu viðskiptalífsins vegna skipulagningar fundarins. Morgunblaðið/Hanna Vilhjálmsdóttir TOLVUR — Frá undirritun samnings mílli Örtölvutækni-Tölvu- kaupa og Innkaupastofnunar ríkisins um kaup á einmennignstölvum fyrir ríkisstofnanir. Samningurinn ér til eins árs og er verðmæti vörunn- ar milli 100 og 200 milljónir króna. Heimir Sigurðsson (t.v.) fram- kvæmdastjóri OT og Ásgeir Jóhannesson framkvæmdastjóri Innkaupa- stofnunar ríkisins takast í hendur eftir undirskriftina. Fyrir aftan þá f.v. standa Arnlaugur Guðmundsson, Karl Wernersson og Tryggvi Þorsteinsson allir frá ÖT. Og því næst þeir Birgir Guðjónsson og Pálmi Jónsson frá Innkaupastofnun ríkisins. VAKORTALISTI Dags. 11.12.1990 Nr. 20 Korl nr 5414 8300 1024 2104 5414 8300 1486 2105 5414 8300 1564 8107 5414 8300 2460 7102 5414 8301 0314 8218 5414 8301 0342 5103 Erlend kort (öll kort) 5411 07** **** **** 5420 65** **** **** 5217 0010 2561 2660 5217 9840 0206 0377 5217 9500 0114 5865 Ofangreind korl eru vákorl sem laka ber úr umferð. VERÐLAUN KR. 5.000,- lyrir þann sem nær korli og sendir sundurklippt lil Kurocards. Útlektarleyfissími Kurocards cr 687899. Djónusta allan sólarhringinn. Klippið auglýsinguna út oggeymið. KREDITKORT HF. Ármúla 28,108 Reykjavík, simi 685499 X ný leið til bættrar þjónustu og aukinna viðskipta mmt Grænt númer er ný þjónusta hjá Pósti og síma, sem gerir íyrirtækjum og stofnunum kleift að bjóða viðskiptavinum sínum um land allt upp á betri \u/„ <5. Grænt numer: 99-6360 > / ''//ni'' . símaþjónustu á lágmarkskostnaði. Sá sem hringir I grænt númer greiðir aðeins gjald fyrir staðarsímtal. Græn númer hafa rutt sér til rúms víða um lönd á mjög skömmum tíma. Komið hefur í ljós að neytendur hringja frekar í græn númer en senda t.d. pöntunarseðla, auk þess sem viðskiptin taka mun skemmri tíma. Hringdu í grænt númer Pósts og síma, 99 - 6360, og leitaðu nánari upplýsinga um þessa nýju þjónustu. Ef þú óskar færðu bækling sendan til þín. *r - POSTUR OG SÍMI Viö spörum þér sporin *æim- ríi£?$$r- ‘jSi.-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.