Morgunblaðið - 11.12.1990, Page 47

Morgunblaðið - 11.12.1990, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1990 47 ÚR DAGBÓK LÖGREGLUIMNAR í REYKJAVÍK: 7. -10. desember 1990 — Talsverður erill var hjá lög- reglunni um helgina, en fátt stór- tíðinda. Aðfaranótt laugardags gisti 21 fangageymslur vegna ölv- unaróláta. Fjórir þeirra voru færð- ir fyrir dómara að morgni vegna, óspekta og óhlýðni við lögreglu. Sex rúður víðs vegar um borgina voru brotnar og hafðist upp á flestum afbrotamannanna. Óku- menn voru iðnir við umferðaró- höpp því alls var tilkynnt um 20 slík á föstudag, en í þeim skemmdust 45 ökutæki. í þremur tilvikum var um að ræða slys á fólki. Nokkuð var um slys þar sem gangandi vegfarendur féllu í hálku. Um miðjan dag urðu tveir drengir fyrir bifreið í Logafold, en ekki var um alvarleg meiðsí að ræða. Talsvert hefur borið á að fólk hefur hringt til lörgeglu og tilkynnt um að börn væru að hanga aftan í bifreiðum. Lögregl- an hefur reynt að stöðva þennan leik, m.a. með því að biðja borgar- starfsmenn um að sandbera ákveðin svæði. Á föstudagskvöld óskaði lögreglan eftir slíku, en einhverra hluta vegna varð ekkert úr framkvæmdum. Síðar um kvöldið var síðan tilkynnt um slys á þessum stað er barn lenti utan í bifreið, sem ekið var um götuna. Sem betur fer urðu meiðsli lítil. — Aðfaranótt sunnudags gistu 11 fangageymslurnar, en um nóttina hafði verið talsvert um rúðubrot og önnur skemmdar- verk. Enn var kvartað yfir börnum að hanga aftan í bílum. Rétt er að geta þess að foreldrum ber að sjá til þess að börn þeirra undir 12 ára aldri séu ekki úti eftir kl. 20.00 og börn undir 15 ára aldri eftir kl. 22.00. Þeim tilmælum er komið til foreldra að þau brýni fyrir börnum sínum að hanga ekki aftan í bifreiðum. — Aðfaranótt mánudags var með rólegra móti. 6 gistu fanga- geymslurnar. — Alls var tilkynnt um 42 umferðaróhöpp um helgina, 7 inn- brot og 13 þjófnaði. Þá var til- kynnt um 3 líkamsmeiðingar, en þær urðu allar á „skemmtistöð- um“ borgarinnar. Á laugardag brunnu spennar yfir á Landspíta- lanum. Um kvöldið var lýst eftir 7 ára gömlum dreng, sem ekki hafði komið heim til sín á tilskild- um tíma. Hann fannst síðar um nóttina í fylgd vanheils manns, sem haldið hafði honum upptekn- um .þennan tíma. Daginn eftir báru tveir áhyggjufullir foreldrar sig upp við lögregluna vegna þess að börn þeirra höfðu ekki skilað sér á réttum tíma. Þau komu þó fljótlega í leitirnar. Eigendur hárgreiðslustofunnar Alexanders, Gunnar Ásgeirsson og Brynja Sigurðardóttir. ■ OPNUÐ hefur verið Hár- greiðslustofan Alexander, Laugavegi 45, 2. hæð. Eigendur eru Gunnar Ásgeirsson og Brynja Sigurðardóttir. Fallegir hlutir gefa iífinu gildi Það á einnig við um penna. Parker Duofold blekpenninn hér að neðan er vissulega fall- egur, enda hefur ekkert verið til sparað. Hitt er þó mikilvægara að hann er mjög vandaður. Parker Duofold dansar um blaðið með jöfnu flæði af bleki og gæðir rithöndina persónu- legum þokka. Það er hrein unun að skrifa með Parker Duofold. Parker Duofold fæst hjá eftirtöldum söluaðilum. t PARKER REYKJAVÍK Penninn, Hallarmúla Mál og menning, Síðumúla Eymundsson, Mjódd Penninn, Kringlunni Griffill, Síðumúla Mál og menning, Laugavegi Eymundsson, við Hlemm Penninn, Austurstræti KÓPAVOGUR Bókaverslunin Veda HAFNARFJÖRÐUR Bókabúð Olivers Steins KEFLAVÍK Bókabúð Keflavíkur ÍSAFJÖRÐUR Bókaverslun Jónasar Tómassonar AKUREYRl Bókaverslun Jónasar Jóhannssonar Tölvutæki - Bókval Stórfróöleg bók um ár og vötn á íslandi, prýdd litmyndum og kortum. Ómiss- andi uppflettirit fyrir áhugamenn um náttúru landsins. HAF- RANNSÓKNIR VIÐ ÍSLAND Jón Jónsson HAFRANNSÖKNIR VIÐ fSLAND II. Eftir 1937 Jón Jónsson VATNS ER ÞÖRF Sigurjón Rist Síðara bindi. Tíma- bilið frá 1937 til nútímans. Helstu þættir hafrann- sóknas.l. hálfa öld. Undirstöðurit um hafiö og fiskinn. Bókaúfgáfa A1ENNING4RSJÓÐSI SKÁLHOLTSSTlG 1 • REYKJAVlK SÍMI 6218 22

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.