Morgunblaðið - 11.12.1990, Síða 53
53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1990
námsleiða og útskrifuðust nemend-
ur með sérnám í skurðhjúkrun 29.
júní sl. og í svæfingarhjúkrun 31.
október sl.
Með tilstilli til takmarkaðra fjár-
veitinga til þessa nýja verkefnis
námsbrautar í hjúkrunarfræði fyrir
árið 1990 var úr vöndu að ráða um
síðustu áramót. Ekki var séð fram
á snögga leiðréttingu fjárlaga og
var því ákveðið að nota hluta þess
fjármagns sem nýtast átti í stöðurn-
ar tvær til að reka fyrrnefndar
námsleiðir. Ennfremur var Ragn-
heiður Haraldsdóttir ráðin til þess
að skipuleggja viðbótar- og endur-
menntun fyrir hjúkrunarfræðinga
innan námsbrautar í hjúkrunar-
fræði og Sigríður Halldórsdóttir til
að skipuleggja BS-leið fyrir hjúkr-
unarfræðinga. Hluti af undirbún-
ingi Sigríðar að sérskipulögðu
styttu BS-námi fyrir hjúkrunar-
fræðinga er könnun meðal þeirra
sem áhuga hafa á þessu námi. Eðli-
lega var einungis hjúkrunarfræð-
ingum úr HFÍ send þessi könnun,
því allir hjúkrunarfræðingar í Fhh
hafa þegar háskólapróf. Tilgangur
könnunarinnar er að fá fram mat
hjúkrunarfræðinga á drögum að
námsskrá. í bréfinu til hjúkrunar-
fræðinganna er ekkert sem segir
að um endanlega námsskrá sé að
ræða. Þvert á móti þá tekur Sigríð-
ur skýrt fram að það sé eindregin
ósk hennar að þetta sérskipulagða
nám sé í sem mestu samræmi við
þarfir og óskir þeirra sem munu
stunda þetta nám í framtíðinni. í
bréfinu stendur orðrétt „þar sem
ýmsar ákvarðanir verða teknar
varðandi þetta nám innan skamms
og ráðgert er að endanleg náms-
skrá liggi frammi fyrir áramót
þætti mér mjög vænt um ef þú
gætir sent mér svörin sem allra
fyrst“. Um fyrrnefnd drög skrifar
Svanfríður í grein sinni að þau eigi
að betrumbæta það þarsem skórinn
kreppir hjá hjúkrunarfræðingum
frá Hjúkrunarskóla íslands (ská-
letrun Svanfríðar) að mati Sigríðar
Halldórsdóttur. Hið rétta er að í
bréfinu til hjúkrunarfræðinga
stendur: „Þessi endurunnu drög
hafa orðið til eftir viðræður við
ýmsa aðila s.s. kennara námsbraut-
arinnar, menntanefnd HFÍ, hjúkr-
unarkennara sem fóru í gegnum
slíkt sérskipulagt BS-nám og ýmsa
hjúkrunarfræðinga sem tekið hafa
Nýborg-#
Ármúla 23, sími 83636
Borðbúnaður
og gjafavara
FÆST
f BLAOASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
BS-próf eða eru í þann mund að
gera það. Þau eru einnig í samræmi
við reynslu mína frá Nýja hjúkr-
unarskólanum varðandi það hvar
skórinn kreppir helst hjá hjúkrunar-
fræðingum úr Hjúkrunarskóla ís-
lands.“
Til upplýsingar má geta þess að
Sigríður var námsstjóri hjá Nýja
hjúkrunarskólanum um árabil.
Svanfríður getur þess að háskól-
inn hafi ekki boðið upp á sérnám
eftir grunnnám í hjúkrun nú í ár.
Hún virðist ganga út frá því að það
sé stefna námsbrautar í hjúkrunar-
fræði að hjúkrunarfræðingar skuli
sækja allt framhaldsnám erlendis
og þá helst í Ameríku. Eins og fram
hefur komið er það ekki rétt að
ekkert nám hafí verið í gangi því
héðan útskrifuðust nemendur
tvívegis á árinu að loknu sérnámi
í hjúkrun. Að auki hefur verið unn-
ið að stefnumótun og skipulagningu
viðbótarmenntunar fyrir hjúknmar-
fræðinga, en hjúkrunarfræðingar
gera kröfur um að vandað verði til
þess. Ragnheiður Haraldsdóttir,
lektor, hefur unnið að því verkefni
í fullu starfí frá því 1. september
sl. Ragnheiður hefur lagt mikla
áherslu á að afla upplýsinga um
nám og stefnu í menntunarmálum
hjúkrunarfræðinga í Evrópu og þá
sérstaklega á Norðurlöndum. Það
er talið mikilvægt að hafa stefnu-
mörkun í Evrópu til hliðsjónar, þeg-
ar lagt er upp með viðbótarnám
(þar með talið sérnám) fyrir hjúkr-
unarfræðinga hér heima. Ragnheið-
ur hefur leitað mikið til fagfélaga
hjúkrunarfræðinga um ráðgjöf og
er nú að heija, í samvinnu við Jónu
Siggeirsdóttur og Ástu Thoroddsen,
mjög viðamikla athugun á vilja
hjúkrunarfræðinga í báðum hjúkr-
unarfélögunum á viðbótarmenntun
og fleiru. Að tilstuðlan Ragnheiðar
hafa ennfremur verið lög drög að
stofnun ráðgjafarnefndar hjúkr-
unarfræðinga í samræmi við nefnd-
arálit frá 1987.
Undirrituð og Sigríður Halldórs-
dóttir skrifuðu fréttatilkynningu
fyrir ári, sem birt var í fréttabréfum
beggja hjúkrunarféiaganna. Á
stjórnarfundi námsbrautar í hjúkr-
unarfræði sem haldinn var 14. nóv-
ember sl. var viðbótar- og endur-
menntun til umræðu. í tengslum
við þá umræðu kom fram að tíma-
bært væri að kynna hjúkrunarfræð-
ingum stöðuna í viðbótar- og endur-
menntunarmálum innan náms-
brautar í hjúkrunarfræði og mun
hún birtast í fagblöðum hjúkrunar-
fræðinga í byijun árs 1991. Það
er og skoðun mín að á þessu stigi
eigi umræða um menntunarmál
heima þar.
Að endingu vil ég hvetja alla
hjúkrunarfræðinga til að svara
könnun Sigríðar nú og könnun
þeirra Ragnheiðar, Ástu og Jónu
þegar hún berst. Hjúkrunarfræð-
ingar sem ekki lenda í úrtaki kann-
ananna, en vilja láta rödd sína heyr-
ast eru hvattir til að hafa samband
við Ragnheiði, Sigríði, undirritaða
eða skrifa í fagtímaritin um viðhorf
sín og skoðanir. Að gefnu tilefni
vil ég minna hjúkrunarfræðinga á
að kynna sér stöðuna í menntamál-
um áður en greinaskrif eru hafin.
Frekari stefnumótun í viðbótar- og
endurmenntun hjúkrunarfræðinga
verður best unnin með þekkingu á
því sem þegar hefur verið unnið.
Höfundur er formaður stjórnar
námsbrautar í hjúkrunarfræði við
Háskóla íslands.
Pennavinir
Átján ára Lundúnastúlka vill
skrifast á við jafnaldra eða -öldrur:
Susan Smith,
73 Debenham Court,
Pownall Road,
Hackney,
London.
E8 4PY England.
Þýsk 21 árs stúlka með margv-
ísleg áhugamál:
Sandra Kieslich,
Königsberger Strasse 5,
3167 Burgdorf/Han,
Germany. ,
Frá Tékkóslóvakíu skrifar 19 ára
stúlka:
Dása Cervenkova,
Marakova 9,
Praha 6-16000,
Czechoslovakia,
Tíu ára sænsk stúlka með margv-
ísleg áhugamál:
Desirée Eriksson,
Magasinsgatan 37,
S-73600 Kungsör,
Sverige.
Fullorðin austur-þýsk ekkja með
mikinn áhuga á íslandi:
Lina Lendricii,
5068 Erfurt-Gispersleben,
Germany.
Frá Svíþjóð skrifar 62 ára kona
með margvísleg áhugamál sem vill
skrifast á við konur á einhverju
norðurlandamálanna:
Inga-Brita Gertsson,
Parkgatan llc,
S-24033 Löberöd,
Sverige.
Dé Longhi Momento
Combi er hvort
tveggja í senn
örbylgjuofn og grillofn
Ofninn sameinar kosti beggja aðferða,
örbylgjanna sem varðveita best
næringargildi matarins - og grillsteik-
ingarinnar, sem gefur hina eftirsóttu
stökku skorpu.
Z'crt) dóciiis
29.400
27.V.10 si/fr.
DeLonghi
Dé Longhi erfallegur
fyrirferbarlítill ogfljótur
/FOnix
HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420
IÞESSARI
FYRIRSÖGN
UM BÓKINA
„AHA! EKKI
ER ALLT SEM
SÝNISF ERU
15 ORÐ
1 ÞE'ýiéPi FYRIRSOálf
UMBÓmrA
„AHA! EfSŒ
ERALCT
SEttsrtJTsr"
ERU
Á myndinni eru 14 orö i setningunni.
Þess vegna hlýtur hún a6 vera ósönn.
Þar af leiOandi hlýtur andstæfia hennar
að vera sönn.
r
I ÞES&ART EYRlRSOéiN
UMBÓíONA
,AHA! Efaa ER
ALIT SEAT
sÝmsr" ERU
EKKI15 OM>.
Eða hvaö? Þessi setning hefur
nákvæmlega 15 orð. Hvað erðl ráöa?
Rökleysur, þversagnir oq andstæöur
eru efniviðurinn i bók Martins Gardnens,
Aha! Ekki er allt sem sýnist".
Lengi vel hafa þessar sömu
þversagnír valdiö mönnum miklum
heilabrotum. í bókinni eru sett upp fræg
dæmi um slikar þversagnir og útskýrö
i íslenskri þýöingu Benedikts Jóhannessonar.
Stæröfræöi hefur oft veriö óskiljanlegt
torf I hugum margra, en hér gefur aö lita
nýja og óvenjulega hlið á þeirri grein.
Sannariegur ánægjuauki I hversdagsumræöuna
á aöeins 1.300,- krónur. Gefiö út af
Talnakönnun, Siöumúla 1, simi 91-68 86 44.
Fæst I bókabúöum.
áfVrALN AKÖNNUN Hf,
vj j^/ Siðumúla 1, slmi 91 -68 86 44