Morgunblaðið - 11.12.1990, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1990
KJÖRBÓK
...kjörin leið
til spamnðar
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Starfsfræðsla nemenda í 10. bekk
eftir Guðrúnu
Þórsdóttur
í greinarkorni sem Gylfi Pálsson
skrifaði í Morgunblaðið um starfs-
val kemur fram að um heildarskipu-
lag í starfskynningarmálum nem-
enda í 10. bekk sé ekki að ræða.
Ég vil leiðrétta þetta hér og nú.
Fræðsluskrifstofa Reykjavíkur-
umdæmis hefur nú í tvö ár boðið
öllum 10. bekkjar nemendum í
Reykjavík að velja sér að ræða við
starfandi aðila í atvinnulífinu. Þar
er aðaláherslan lögð á að nemendur
fái upplýsingar um nám og kröfur
í starfi. Þegar nemendur hafa feng-
ið sínum grunnspurningum svarað
gefa móttökuaðilar nemendum
frekari innsýn inn í starfið og dvelja
þá nemendur frá tveim til 5 klst. á
staðnum.
í haust höfðu nemendur úr 100
tilboðum að velja. Jafnframt þeim
lista velja nemendur sér að hitta
einhverja, sem ekki eru á áður-
nefndum lista. Það er mjög forvitni-
legt að skoða niðurstöðurnar úr
vali nemenda og er það efni í stóra
grein.
Mjög góð samvinna hefur tekist
við aðila atvinnulífsins, bæði við
einstök fyrirtæki og stofnanir og
SKUGGSJÁ hefur gefið út
bókina Sonur sólar eftir Ævar
Kvaran.
í kynningu útgefanda m.a.:
„Sonur sólar hefur að geyma nokkr-
ar ritgerðir Ævars Kvaran og grein-
ar sem flestar fjalla um dulræn
efni. Hann segir hér frá faraónum
Ekn-Aton, sem dýrkaði sólarguðinn
og var langt á undan sinni samtíð;
hann greinir einnig frá sveppinum
helga og heimspekingnum Sweden-
borg.
Meðal annarra greina í bókinni
eru: Hver var Fást?; Hafsteinn
Björnsson miðill; Máttur og mikil-
vægi hugsunar; Er mótlæti í lífinu
svo heildarsamtök. Þar hafa allir
verið sem einn maður í að taka vel
á móti nemendum, einum í senn sem
fleirum.
Allir eru sammála um nauðsyn
fræðslunnar. Það hefur bara verið
spurning um að gera hana fram-
kvæmanlega og árangursríka. En
menn eru tilbúnir að leggja í þetta
bæði tíma og peninga þegar þeir
hafa viðráðanlegt skipulag í hönd-
um og sjá árangur í áhugasömum
nemendum. Og þá er auðvelt fyrir
menn að sjá þann þjóðfélagslega
ávinning sem felst í að sinna þess-
ari fræðslu vel.
En eins og þeir vita sem eitthvað
þekkja til unglinga, þá eru vænting-
ar þeirra til starfa oft óljósar og
stundum rangar. En svör við þeim
væntingum geta þeir best svarað
sem vinna tiltekið starf. Og þegar
nemendur fá góða og hnitmiðaða
móttöku og svör við öllum nauðsyn-
legustu spurningum, auðveldar það
nemendum mikið að gera upp hag
sinn.
En starfsval nemenda ræðst ekki
af einni eða fleiri heimsóknum á
vinnustaði í 10. bekk. Ferillinn að
endanlegu starfsvali nemenda er
mislangur og fer bæði eftir aðstæð-
um og þroska nemenda. Einmitt
þess vegna er nauðsynlegt að upp-
Ævar Kvaran
böl?; Himnesk tónlist; Hefur þú lifað
áður?“
Bókin er 246 blaðsíður.
lýsa nemendur sem fyrst um störfin
í þjóðfélaginu.
I tilboðum fræðsluskrifstofunnar
til 10., 11. og 12 ára nemenda er
sérstök áhersla lögð á að gefa nem-
endum innsýn inn í hin ýmsu störf
sem tengist námi þeirra í skólum.
Jafnframt þessum tilboðum frá
fræðsluskrifstofunni í Reykjavík,
er 10. bekkjar nemendum boðið að
koma á dagnámskeið, sem hinir
ýmsu aðilar halda og kosta.
Hannes Sveinbjörnsson og Páll
Ólafsson, kennarar, hafa í tvo vetur
stjórnað og skipulagt þessi nám-
skeið, sem flest hafa verið haldin í
félagsmiðstöðinni í Gerðubergi.
Menntamálaráðuneytið hefur yfir-
umsjón með þessu úrræði.
Sérstök nefnd á vegum mennta-
málaráðuneytisins hefur nú verið
starfandi á annað ár, til þess m.a.
að fjalla sérstaklaga um starfs-
fræðslu og námsráðgjöf og skila
áliti þar um til framtíðarskipulags.
Gerður G. Óskarsdóttir er for-
maður nefndarinnar. Hún hefur lát-
ið mikið til sín taka á þessum vett-
vangi og skilað þar góðu dagsverki.
Margir skólar hér í Réykjavík
hafa undanfarin ár boðið nemend-
um að taka starfsfræðslu í vali og
hafa séð. þar um vettvangsferðir
fyrir nemendur sína. Hefur þar
margt verið vel gert og unnið af
hugsjón.
Námsgagnastofnun hefur fram-
leitt myndbönd um margar starfs-
greinar, þar sem fjallað er um nám
og störf. Stöð tvö hefur sömuleiðis,
í samvinnu við Námsgagnastofnun,
framleitt myndbönd um nám og
störf nokkurra starfsstétta.
Gerður G. Óskarsdóttir og Helga
Sigurjónsdóttir hafa samið náms-
gögn fyrir starfsfræðslu.
Eg vil. meina að eitt og annað
hafi verið gert síðan Ólafur Gunn-
arsson frá Vík í Lóni var og hét,
án þess að ég tíundi fleira hér. En
mér 'þykir það æði sérkennileg
fréttamennska, eins og segir í grein
Gylfa Pálssonar; „nemendur velja
sér oft heimsóknir í kvikmyndahús
þar sem þeir geta setið í makindum
og horft á hveija myndina af ann-
arri“ (tilv. lýkur).
Ég hef aldrei heyrt að nokkur
skóli hafi staðið þannig að málum.
Það vantar töluvert upp á að
Gylfi Pálsson hafi eitthvað kynnt
Guðrún Þórsdóttir
„í haust höfðu nemend-
ur úr 100 tilboðum að
velja. Jafnframt þeim
lista velja nemendur
sér að hitta einhverja,
sem ekki eru á áður-
nefndum lista.“
sér málin, áður en hann fer að
skrifa um starfsfræðslu í blöðin.
Og grein hans er eins og köld
kveðja til þeirra tuga fyrirtækja og
stofnana sem og hundruð starfs-
manna þeirra, sem hafa sinnt þessu
af alúð undanfarin tvö ár og varið
til þess bæði fjármunum og tíma.
Ég býð Gylfa Pálssyni hér með
að koma og kynna sér það heildar-
skipulag sem fræðsluskrifstofan
hefur upp á að bjóða í starfs-
fræðslu fyrir grunnskólanema í
Reykjavík.
Höfundur er kennslufulltrúi
Fræðsluskrifstofu
Reykja víkurumdæmis.
Ritgerðir eftir
Ævar Kvaran
ERU JAKKAFÖTIN AÐ MINNKA INNI í SKÁP?
ER SPARIKJÓLLINN AÐ ÞRENGJAST?
* 5 MIN. ÆFING MEÐ BUMBUBANANUM
JAFNAST Á VIÐ 20 MÍN. AF BOLBEYGJUM
* EKKERT ÁLAG Á MJÓHRYGGINN.
* ALLT ÁLAGIÐ Á MAGAVÖÐVANA.
mamw.
N0TAÐU BUMBUBANANN IVIKU
0G MÁTAÐU SPARIFÖTIN AFTUR!
Sendum t póstkröfu um land allt.
Breska Verslunarfelagiö
Faxafeni 10 - Húsl Framtlöar -108 Reykjavík
PONTUNARSIMAR 91-82265,680845.