Morgunblaðið - 11.12.1990, Side 56
ORKIN/SIA
56
GJAFA
VORU
VERSLUNI
ÍTALSKUR KRISTALl,
LISTGLER . POSTULIN
HANDUNNAR
STYTTUR OQ FLEIRI
GJAFAVÓRUR
FÁKAFENl 9
SÍMI 679688
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1990
JC-Rey kj avíkstofn-
ar JC-félag á ísafirði
eftir Kristínu
Alfreðsdóttur
JC-hreyfingin á íslandi hélt ný-
lega upp á 30 ára afmæli sitt á
Hótel Islandi. JC er félagsskapur
ungs fólks á aldrinum 18 ára til
fertugs sem vill þiálfa sig í ræðu-
mennsku og stjórnunarstörfum svo
eitthvað sé nefnt. JC býður upp á
margvísleg tækifæri — tækifæri
sem einstaklingar geta síðan nýtt
sér úti í þjóðfélaginu.
Sagt er að tækifærin séu til að
grípa þau. Og það gerðum við svo
sannarlega í JC-Reykjavík þegar
landsforseti hreyfingarinnar kom
að máli við okkur í stjórninni og
bað okkur um að taka að okkur að
reyna að stofna JC-félag á ísafírði.
Við fengum til liðs við okkur tvo
eldri félaga úr JC-Reykjavík, þá
Kára Jónsson og Jakob Kristjáns-
son og samþykktu þeir að taka
þetta verkefni á sér.
Farin var ferð vestur í byijun
október með nafnalista og rætt við
nokkra hugsanlega 'félaga. Síðan
voru send út 240 bréf til Isfirðinga
á aldrinum átján ára til fertugs þar
sem viðtakanda var kynnt örstutt
út á hvað JC gengi og um leið boð
á kynningarfund þann 18. október.
Þeir Kári Jónsson og Bjarni Ingi-
bergsson fóru vestur þann 18. okt.
og héldu kynningarfund þar sem
27 ísfirðingar mættu og höfðu þeir
mikinn áhuga á að kynnast JC-
hreyfingunni meira og taka þátt í
störfum hennar. Þar með var
grundvöllur að stofnun JC-félags á
Isafirði kominn.
Helgina 26.-28. október sl. fóru
þau Kári Jónsson, Kaj Durhuus og
undirrituð á ísafjörð og héldu kynn-
ingu á námskeiðum sem JC býður
upp á og skipuðu stjórn: Forseta
Oðin Svan Geirsson, ritara Ingi-
björgu Snorradóttur, gjaldkera
Samúel Grímsson varaforseta með
svið einstaklings og byggðarlags
Björn Garðarsson og varaforseta
með svið stjórnunar og alþjóða sam-
starfs Þóreyju Guðlaugsdóttur.
Stjómin hefur fengið upplýsingar
um þau störf sem bíða hennar á
komandi vetri.
Stofnfundur JC-ísafjarðar var
Frá stofnfundi JC-ísafjarðar.
haldinn á Hótel ísafirði sunnudag-
inn 28. október sl. og gengu 27
ísfirðingar til liðs við JC-ísaíjörð.
Seantor Fyikir Ágústsson afhenti
félaginu gögn frá gamla JC-ísafirði
og ávarpaði félagana hlýjum orðum.
Ætlunin var að landsforseti hreyf-
ingarinnar, Hlynur Árnason, um-
sjónarmaður með fjölgun, Valdimar
Hermannsson, varalandsforseti
með svið byggðarlags, Guðni Þór
Jónsson og varaforseti JC-
Reykjavíkur, Sigríður ísafold,
kæmu að morgni sunnudags og
yrðu á stofnfundinum. En vindáttin
var ekki hliðholl okkur Reykvíking-
um svo að þetta heiðursfólk komst
ekki til ísaijarðar og varð af stofn-
fundinum.
Það var kominn tími til að stofna
nýtt-JC-félag á ísafirði enda kom
í ljós að þörfin var orðin mikil hjá
fólki að grípa þau tækifæri sem
JC-störf bjóða upp á, kynnast nýju
fólki frá öðrum JC-félögum á
landinu, læra skipulögð vinnubrögð
og þjálfa upp leiðbeinendur fram-
tíðárinnar.
Einn af stofnfélögum JC-ísa-
fjarðar, Bergrós Kjartansdóttir,
mun starfa með okkur í JC-
Reykjavík þetta starfsárið á meðan
hún dvelur hér sunnanlands. Hún
tók þátt I ræðukeppni fyrir hönd
JC-Reykjavíkur 8. desember sl. og
varð ræðumaður kvöldsins. Hún
komst að því eins og svo margir
aðrir að viljinn er allt sem þarf svo
Kristín Alfreðsdóttir
„Það var kominn tími
til að stofna nýtt JC-
félag á ísafirði enda
kom í ljós að þörfin var
orðin mikil hjá fólki að
grípa þau tækifæri sem
JC-störf bjóða upp á.“
og metnaður til að gera vel. Berg-
rós mun síðan miðla reynslu sinni
fyrir vestan og þjálfa upp ræðulið
JC-ísafjarðar á næsta starfsári.
Stjórn JC-ísaijarðar kom suður
helgina 7.-9. desember sl. í boði
JC-Reykjavíkur, sat námskeið fyrir
stjórn aðildarfélags undir styrkri
stjórn Þorsteins Fr. Sigurðssonar
og sameiginlegan jólafund JC-
Reykjavíkur og JC-Breiðholts þar
sem voru teknir inn í JC-hreyfing-
una_ 10 nýir félagar. Jólafundur
JC-ísaíjarðar verður haldinn
fimmtudaginn 13. desember og vil
ég hvetja þá ísfirðinga er áhuga
hafa á JC-störfum að hafa samband
við stjórnina og mæta á jólafundinn
þeirra. í janúar er áætlað að félagi
úr JC-Reykjavík fari vestur og haldi
ræðunámskeið 1 fyrir ísfirðingana.
Ég vil nota þetta tækifæri og
þakka þeim aðilum úr JC-Reykjavík
sem gerðu JC-ísafjörð að veruleika
og ykkur félagar góðir í JC-ísafirði
óska ég alls velfarnaðar á komandi
starfsári og um ókomna framtíð.
Við munum styðja ykkur áfram.
Notið ykkur þau tækifæri sem JC
býður upp á því annars missið þið
af þeim.
Sjáumst í leik og starfi.
Höfundur er forseti
JC-Reykja víkur.
MJÖG VANDAÐIR MOKKAJAKKAR ■ BLÁSARAKVINTETT Reykjavíkur ásamt félögum heldur sína árlegu jólatónleika þriðjudag- inn 11. desember undir heitinu Kvöldlokkur á jólaföstu. Að þessu sinni verða tónleikarnir haldnir í
DÖMU OG HERRA SENDUM MYNDALISTA — SENDUM í PÓSTKRÖFU Seltjarnarneskirkju. Þetta er í 10. sinn sem sveitin kemur saman til að leika blásaraserenöður fyrir borgarbúa í mesta skammdeginu fyrir jólin. Verkin sem leikin verða . eru . eftir Mozart, Triebensee, Castil-Blaze og Beethoven. Tónleik- J arnir hefjast kl. 20.30. í
Safalinn, Laugavegi 25, 2. hæð. Sími 17311
Seltjarnarneskirkja
inn sem velur gæöi og gott verö.
lÐEÍNS KR. 21.755,-staðgr.
Komdu viö hjá okkur eða hringdu og
fáöu frekari upplýsingar, þaö borgarsig örugglega.
Einar J. Skúlason hf
Grensásvegi 10, sími 686933
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT