Morgunblaðið - 11.12.1990, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1990
63
Margrét Róbertsdóttir á Litla-Kollabæ í Fljótshlíð rúmum 30 árum
eftir að hún yfirgaf húsráðendur þar.
án ára barninu upp að skítugum
einkennisbúningi sínum átti Marg-
arete aðeins eitt ráð:
— ... Faðir vor ... þú sem ert á
himnum ... helgist þitt nafn ... til-
komi þitt ríki ... verði þinn vilji ...
mamma hjálpaðu mér!
Þá var eins og eitthvað brysti
innra með Rússanum. Hann lét
byssuna síga, klappaði Margarete
á kinnina og sagði henni að fara
aftur inn til móður sinnar. Heidwig
kom hlaupandi á móti dóttur sinni
og grátbólgið andlit h$nnar gaf
barninu engin svör þegar augu
þeirra mættust. Rússinn stóð
álengdar með glott á vör, beindi
byssum sínum upp í loft og skaut
tveimur skotum til himins. Fuglarn-
ir flugu úr túninu og dráttarklárinn
leit upp.
Það liðu ekki nema nokkrar
mínútur þar til annar Rússi birtist
í dyragættinni, áþekkur hinum fyrri
í fasi og klæðaburði nema hvað
þessi var aðeins með eina skamm-
byssu. Sagan endurtók sig. Rússinn
leit yfir hópinn þar til augun stað-
næmdust á Margarete sem enn
grét í fangi móður sinnar. Aðrar
konur á heimilinu höfðu hnýtt á sig
höfuðklúta og sátu álútar í rúmum
sínum til að líta út fyrir að vera
eldri en þær í raun og veru voru.
— Ég tek stelpuna.
Enn var byssuhlaupi beint að
Margarete en hún gat sig ekki
hreyft.
Heidwig, móðir hennar, var hins
vegar búin að fá nóg. Hún stóð
upp, gekk í átt að Rússanum og
tilkynnti honum hárri röddu að
barnið færi hvorki með honum né
öðrum.
— Þá drep ég ykkur öll, hreytti
Ein síðasta myndin sem tekin var áður en Rauði herinn lagði Glansee í rúst. Margarete (fyrir aftan
til hægri) við kartöfluuppskeru ásamt móður sinni og vinum. Maðurinn í ljósu fötunum með kaskeitið
er rússneskur stríðsfangi sem dvaldi á heimili Margarete.
Rússinn út úr sér og var bersýni-
lega skemmt.
— Þá skaltu drepa okkur öll en
barnið færðu ekki.
Margarete hafði aldrei séð móður
sína svo ákveðna þar sem hún stóð
bein í baki frammi fyrir gínandi
byssukjafti. Rússinn miðaði byssu
sinni á höfuð hennar, spennti gikk-
inn og færði hlaupið svo yfir á
Margarete og þaðan yfir á annað
heimilisfólk. Það var eins og hann
væri að hugleiða hvern hann ætti
að skjóta fyrst. Loks snerist hann
í hálfhring, virti sjálfan sig fyrir sér
í stofuspeglinum, hleypti af og gekk
hlæjandi út.
Um nóttina lést Roosevelt
Bandaríkjaforseti. Hitler kættist í
fyrsta sinn í langan tíma þar sem
hann sat í neðanjarðarbyrgi sínu
undir kanslarahöllinni í Wilhelms-
stræti í Berlín. Hitler taldi Roose-
velt hafa verið köngulóna í haturs-
vef þeim sem gyðingar höfðu
spunnið um Þýskaland og áleit að
nú yrði hægt að semja frið við
Vesturveldin og einbeita sér að
Rússum sem sóttu fram úr austri.
Friðarumleitanir Hitlers voru með
öllu árangurslausar. Vesturveldin
kröfðust tafarlausrar uppgjafar.
Hitler hélt áfram að halda herráðs-
fundi sína þar sem hann skipulagði
stórsóknir þýska hersins á öllum
vígstöðvum og flutti til herfylki þó
svo að þau væru ekki til lengur.
Þar kom að rússneskar og banda-
rískar hersveitir náðu saman við
Saxelfi 25. apríl 1945. Berlín stóð
eftir sem síðasta virki Hitlers og
foringinn neitaði að gefast upp.
Frá Ítalíu bárust þær fréttir að
Mussolini hefði reynt að flýja til
Sviss en verið handtekinn ásamt
Klöru Petacci, hjákonu sinni. ítalsk-
ir skæruliðar tóku þau af lífi og
fluttu líkin til Mílanó þar sem þau
voru hengd upp á fótunum í mið-
borginni eins og sýningargripir.
Þrátt fyrir að heilsu Hitlers hrak-
aði stöðugt og hann væri orðinn
líkastur gamalmenni gafst hann
ekki upp. Nánustu samstarfsmenn
hans, Himmler og Göring, höfðu
yfirgefið hann og voru báðir hand-
téknir eftir misheppnaða tilraun til
að semja um frið við óvininn.
Himmler reyndi að komast undan
með því að dyljast í hópi flótta-
manna en var gripinn af Bretum á
Liineburgarheiði. Drakk hann þá
blásýru og lést samstundis. Göring
var handtekinn af Bandaríkjamönn-
um og dreginn fyrir rétt. Honum
tókst einnig að fremja sjálfsmorð.
Hitler hafði ekki lengur við neinn
að styðjast nema áróðursmeistara
sinn, Göbbels, sem stóð með for-
ingja sínum fram á síðustu stund —
og degi betur.
Námskeið
sem hefjast á luestunni.
Laugardaginn 15. desember kl. 10-17
JÓLAVERKSTÆÐI
TÓMSTUNDASKÓLANS
Þú lærir að gera óvenjulegar jólaskreytingar
og smágjafir.
* perlur ☆ gler * leir ☆ silki ☆
Innritun og nánari upplýsingar um tíma og verð:
Skólavöröustig 28 Simi 621488
1ÓMSTUNDA
SKOLINN
GILBERT ÚRSMIÐUR JÓN OG ÓSKAR
LAUGAVEGI 62, S. 14 100 LAUGAVEGI 70, S. 2 49 30
Ijúfir til
hátíðabrigða
eða á rólegum |
síðkvöldum. |
^SKÍMMII j
•Jk goh m