Morgunblaðið - 11.12.1990, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1990
65
Auðvitað kemur röðin síð-
ar að leðrinu o g ullinni
eftir Magnús H.
Skarphéðinsson
Allmargir hafa að undanförnu, í
kjölfar Moggagreinarinnar frá 23.
nóvember sl. um loðfeldastríðin er-
lendis, spurt mig og aðra hvalavini
og loðdýravini og annað lífstefnu-
fólk hvort röðin komi ekki bara
næst að leðrinu og ullinni á eftir
friðun hvalanna og loðdýranna, og
um verndun annarra dýra og fugla
yfirleitt sem tekist er á um um þess-
ar mundir um heim allan — hvort
þyrma eigi eða slátra.
Því er fljótsvarað. Auðvitað kem-
ur röðin síðar að sauðkindinni og
þorskinum og öðrum dýrum og fisk-
um sem leidd eru í dag í blóðugri
helför okkar mannanna á hendur
þeim. Það skyldi enginn fara í
minnstu grafgötur með það.
En það er ýmis skoðanamunur
innan náttúruverndarhreyfíngarinn-
ar um málið í heild. Það er í stuttu
máli sagt mismunur á hægfara og
hraðfara fólki. Eða réttara sagt
mismunandi þor fólks við að horfast
í augu við vanda lífsins á jörðinni,
og hve miklir lífstefnusinnar og
kærleikssinnar fólk yfirleitt er. Hve
langt á kærleikur minn að ganga?
A hann aðeins að ganga til nær-
stöddustu fjölskyldumeðlima minna,
eða á hann að ná til allra í víðustu
merkingu orðanna?
Hinar mismunandi tegundir
náttúruverndarsinna
1. Hvaða dýr og fugla og fiska á
yfirleitt að vernda og við hvað á
að miða? Á að miða eingöngu
við útrýmingarhættu eins og
hægfara fólk og flestir Grænfrið-
ungar miða yfirleitt við? Eða á
að miða við önnur gildi s.s.
greind dýranna, stærð, félags-
lega hegðun og sögulega frægð
og fleira þess háttar? — Eða á
bara að hafa einfalt. og klárt gildi
fyrir alla sem segir að þyrma
eigi öllu lífi sem nokkur kostur
er og aðstæður leyfa? — Ég er
maður síðasttöldu skoðunarinnar
og telst því víst „öfgamaður" í
lósi slátraramenningarinnar hér
Magnús H. Skarphéðinsson
„ Auðvitað ætti að taka
mestallan þennan hel-
stefnulandbúnað fyrir
og greiða honum náðar-
höggið sem fyrst. Því
hann er tvöfaldur söku-
dólgur.“
sem langflest þjóðfélög mann-
anna byggjast á í dag.
2. Fyrir þá sem hástemmdustu og
fegurstu hugsjónirnar hafa og
vilja þyrma öllu lífi er síðan deilt
um í hvaða röð eigi að raða dýr-
unum og verndunarverkefnun-
um. Því verkefnin eru meira en
næg. Og það er víst engin hætta
á að þau þrjóti í bráð. A.m.k. sé
ég ekki fram á neitt sérstakt
verkefnaleysi við að hugsa og
vinna hér heima á íslandi né
annars staðar meðan siðferðis-
þroski okkar mannanna er ekki
meiri en raun ber vitni.
3. Svo það þarf engum blöðum um
það að fletta að alvöru náttúru-
verndarsinnar allra ianda munu
.ekki unna sér minnstu hvíldar
fyrr en raunverulegur friður
verður kominn á jörðu. Ekki bara
friður á milli mis-heimsvalda-
sinnaðra ríkja og mannfélaga
Stelpu-
bleiur
Stráka-^-^.
bleiur
Nú er líka teygja að aftan, sem heldur ^
bleiunni á réttum stað. m
sí
Allar Libero bleiur Verndið náttúruna ^
eru óbleiktar
og ofnæmisprófaðar
(??? eins og kommarnir kalla flest
ríki yfirleitt), heldur friður lífsins
á jörðunni. Ekkert minna en al-
ger friður lífsins á jörðinni er að
sjálfsögðu lokatakmarkið.
Því miður er ég alls ekki
nógu öfgafullur
Ég tek það fram að ég tel mig
sjálfan alls ekki öfgamann. Öðru
nær. Ég tel mig því miður vera
sjálfselskan smáborgara sem hef
ekki þorað eða nennt að taka aðra
skjólstæðingá upp á arma nn'na af
neinni alvöru en hvalina. Auðvitað
ætti að taka mestallan þennan hel-
stefnulandbúnað fyrir og greiða
honum náðarhöggið sem fyrst. Því
hann er tvöfaldur sökudólgur. ■
Það eru ekki bara dýrin í landbún-
aðinum sem eru terroriseruð og
drepin að lokum, heldur þarf að
drepa og terrorisera milljarða af
hinum ýmsu fiskum á hveiju ein-
asta ári í kringum landið til þess
eins að halda landbúnaðarterrornum
gangandi efnahagslega. Því eins og
allir vita (en vilja samt fæstir) þá
heldur ekki bara sjávarútvegurinn
þessari þjóð uppi með kúgun Sinni
á sjávardýrunum, heldur ber hann
einnig blóðugan landbúnaðinn á
baki sér svo flestir bændur landsins
geti haldið áfram þeirri listgrein
sinni að framleiða kjöt hérna í næstu
götu við norðurpólinn.
En þeir tímar munu örugglega
koma að tekið verður af krafti á
þessum ljótu málum okkar bæði hér
heima og eriendis, — þ.e. alls staðar
af lífstefnufólki allra landa. Það
fólk mun aldrei unna sér hvíldar
fyrr en fullnaðarsigur lífsins er í
höfn. Ég er að vísu stundum fullur
efasemda um að ég muni ná að lifa
þann dag á þessari jörð. En sá dag-
ur mun svo sannarlega koma rati
mannkynið á annað borð út úr þeim
ógöngum gereyðingarhættu vopna
og mengunar sem það hefur sjálf-
viljugt komið sér í um þessar mund-
ir. Af lokatakmarkinu þurfa menn
heldur ekki að hafa neinar áhyggjur.
Eina leið mannkynsins út úr
ógöngunum
Það e alls engin önnur leið út úr
þessum ógöngum sem mannkynið
hefur ratað í með líferni sínu, matar-
ræði, firringu, hamingjuleysi og
heilsuleysi önnur en að friðmælast
við sjálft sig og allt umhverfi sitt í
víðasta skilningi orðsins umhverfi.
Alls engin.
Það er óbifanleg sannfæring mín
að taka verði á þessu máli allra
mála fyrr og síðar og það ekki
seinna en strax. Við höfum til ráð-
stöfunar til að hugsa málið í lengsta
lagi 30 til 40 ár á sömu braut án
breytinga (sbr. niðurstöður Náttúru-
verndarráðs bandarísku alríkis-
stjórnarinnar). Eftir það verður tæp-
lega aftur snúið. Borðliggjandi hrun
alls lífkerfis heimsins sem og alirar
siðmenningar okkar mannanna þar
með blasir annars við og ekkert
annað.
Hvað ætlar þú lesandi góður að
bíða lengi? Og hvað ætlar þú að
segja barnabörnunum þínum þegar
allt verður komið í óefni?
Við skulum gera okkur grein fyr-
ir því að plánetan jörð er ekki ein-
nota eins og vestræn menning notar
hana í dag. Og við skulum gera það
áður en það er um seinan. — Lengi
lifi Greenpeace, Sea Shepherd, Lynx
og Animal Liberation Front og allt
annað lífstefnufólk heimsins!
Höfundur er nemi í HÍ og
meðlimur í Hvalavinafélagi
Islands.
Nemendur Tónlistarskóla Kópavogs.
■ TVENNIR jólatónleikar verða
á vegum Tónlistarskóla Kópa-
vogs. Þeir fyrri verða miðvikudag-
inn 12. des. kl. 20.30 í sal skólans
og seinni tónleikarnir verða í Kópa-
vogskirkju sunnudaginn 16. des. og
hefjast kl. 15.00. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
c
í iááU\
Krakkar í angóruull
hía á
veturinn
f nærfatnaði úr angóruull
verður veturinn leikur einn.
Angóruullin gefur meiri
einangrun og er fínni og léttari
en aðrar ullartegundir.
Hún hrindir vel frá sér vatni
og síðast en ekki síst klæjar
krakkana ekki undan henni.
í nærfatnaði úr angóruull er
krökkunum ennþá heitt þegar
þeir koma heim eftir að hafa
leikið sér úti allan daginn.
Fáanleg í hvxtu og bláu.
sími 666006
ÚTSÖLUSTAÐIR:
REYKJAVÍK: GARÐABÆR: HF.LUSSANDUR: BLÖNDUÓS: SEYÐISFJÖRÐUR:
Apótek Austurbœjar Apótek Garðabœjar Virkið Apótek Blönduóss Versl. E.J. Waage
Alafossbúöin HAFNARFJÖRÐUR: BÚÐARDALUR: SAUÐARKRÓKUR: NF.SKAUPSTADUR:
Árbcejarapótek Apótek Norðurbcejar Dalakjör Skagfiiðingabúð S. Ú. N.
Borgarapótek Hafnarfjaröarapótek PATREKSFJ ÖRÐUR: VARMAHLIÐ: EGILSSTAÐIR:
Bretðholtsapólek KEFIAVÍK: Versl. Ara Jónssonar Kf. Skagflrðinga Kf. Héraðsbúa
Ellingsen Samkaup TÁLKNAFJÖRÐUR: SIGLUFJÖRÐUR: IiSKIFJÖRDUR:
Garðsapótek KEFLAVIKURFLUG- Bjamabúð Versl. Sig. Fanndal Sportv. Hákons Sófttss.
Háaleitisapótek VÖLLUR: BILDUDALUR: ÓLAFSFJÖRÐUR: FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR:
Holtsapótek íslenskur markaður Versl. Edinborg Valberg Kf. Fáskrúösflarðar
Ingólfsapótek MOSFELLSBÆR: FLATEVRI: DALVIK: SIÖDVARFJÖRÐUR:
Laugavegsapótek Mosfellsapótek Brauögerðin Dalvikurapótek Kf. Stöövarjjarðar
Lyfjabúðin Iöunn Versluntn Fell ÞINGEYRI: Versl. Kotra BREIÐDALSVÍK:
Rammagerðtn Verksmiðjuútsala Álafoss Kaupf. Dvrflrðinga AKUREYRI: Kf. Stöðvarjjarðar
Reykjam'kurapótek AKRANES: SÚGANDAFJÖRÐUR: Versl. Paris HÖFN:
Skátabúðin Bjarg Suðutver Eyfjörö Kf A-Skafifellinga
Sportval Sjúkrahúsbúðin BOLUNGARVÍK: HUSAVÍK: VESTMANNAEYJAK:
Ull 08 giafavörur BORGARNES: Einar Guðfinnsson Bókav. Þórarins St. Apótek Vestm.eyja
Útilif Kf. Borgfiröinga ÍSAFJÖRÐUR: REYKJAHIÍÐ: Sandfell
Veiðihúsið ÓLAFSVÍK: Sporthlaðan Verslunin Sel HELLA:
SF.LTJARNARNES: Sölusk. F.inars Kr. HÓLMAVÍK: RAUFARHÖFN: Rangárapótek
Sportlíf STYKKISHÓLMUR: Kf. Steingrímsjjarðar Snarlið SELFOSS:
KÓI’AVOGUR: Hólmkjör HVAMMSTANGI: VOPNAFJÖRÐUR: Vöruhús KÁ.
Kópavogsapótek GRUNDARFJÖRÐUR: Vöruh. Hvammst. Kaupf. Vopnafjaröar HVERAGERÐI:
Hvönn Ölfusapótek