Morgunblaðið - 11.12.1990, Side 71
MORQUKBIADH) ÞRI^JUpAG.V^, U- DESEiyiBER 1,99,0
ValgerðurK. Tómas-
dóttir - Minning
Fædd 11. mars 1903
Dáin 2. desember 1990.
Amma Þingholt, eins og við köll-
uðum hana fyrr á árum, er látin.
Þingholtsnafnbótin var til komin af
því að amma og afi Jóhannes
bjuggu lengst af í Þingholtsstræt-
inu, nánar tiltekið í húsinu nr. 26.
Hún var fædd 11. mars 1903 og
var því 87 ára gömul þegar hún
kvaddi þennan heim sunnudaginn
2. desember sl. á heimili sínu í
Furugerði 1, Reykjavík.
Hún hét fullu nafni Valgerður
Karólína Tómasdóttir. Foreldrar
hennar voru Ólafía Bjarnadóttir og
Tómas Snorrason, skósmiður. Hún
var elst af þeím sjö systkinum sem
upp komust en tvö dóu í æsku.
Eftir lifa Margrét, Asta og Guðrún,
sem fluttist ung til Kaupmanna-
hafnar. Af þeim er upp komust eru
látin Málfríður, Ólafur og Karl.
Amma ólst upp að mestu hér í
Reykjavík en um tíma bjó fjölskyld-
an í Viðey þar sem faðir hennar
starfaði við vélgæslu. Eitt ár bjuggu
þau líka í Staðarsveit þar sem þau
reyndu fyrir sér við búskap.
Eftir að amma flutti úr foreldra-
húsum vann hún fyrir sér sem
vinnukona á heimilum í Reykjavík
og með saumaskap. Hún fór eitt
sumar í kaupavinnu að Varmadal
á Kjalarnesi og þar kynntist hún
fyrri eiginmanni sínum, Ágústi
Jónssyni, fyrrum löreglumanni og
síðar verslunarmanni í Reykjavík.
Hún óg Ágúst eignuðust þrjú börn.
Elstur var Haraldur sem fæddist
1928. Hann var myndar drengur
en hefur sennilega fengið berkla
og dó rúmra 14 mánaða. Var mik-
ill harmur að þeim kveðinn við missi
frumburðar síns. Síðar eignuðust
þau Björgu og Svan. Björg giftist
Baldri Tryggvasyni, framkvæmda-
stjóra og eignuðust þau fímm böm,
Tryggva, Valgerði, Stefán, Harald
og Magnús. Svanur kvæntist Jó-
hönnu Stellu Þorvaldsdóttur og
eignuðust þau þrjú börn, Ágúst,
Svandísi og Þorvald. Svanur lést
árið 1987 aðeins 54 ára gamall.
Árið 1939 skildu Ágúst afi og
amma Valgerður og varð þá að
vonum mikil breyting á högum fjöl-
skyldunnar. Amma flutti eftir skiln-
aðinn með bömin að Reynimel 44
og vann fyrir þeim með saumaskap.
Á þessum árum söng hún í
Fríklrkjukórnum en hún hafði alla
tíð mikla unun af söng. Hún giftist
seinni manni sínum Jóhannesi Kol-
beinssyni, trésmið og fararstjóra,
árið 1950. Bjuggu þau í Þingholts-
strætinu þar til þau gerðust ein af
frumbyggjum í nýreistu fjölbýlis-
húsi fyrir aldraða í Furugerði 1
árið 1978. Jóhannes lést árið 1982.
Hannyrðir skipuðu alltaf stóran
sess í lífi ömmu. Hún byijaði korn-
ung að sauma dúkkur og dúkkuföt
handa sér og systrum sínum. Hún
gerði síðar saumaskapinn að lifi-
brauði sínu. Sem ung kona vann
hún við saumaskap í húsum í
Reykjavík en formlegt nám fékk
hún í Kvennaskólanum í Reykjavík.
Frekari saumaskap lærði hún síðan
á saumastofu frænku sinnar,
Sigríðar Þorsteinsdóttur, kjóla-
meistara. Seinni hluta ævinnar voru
það þó einkum börnin og barna-
börnin sem nutu góðs af kunnáttu
hennar og smekkvísi á þessu sviði.
En fleira átti hug ömmu. Jóhann-
es smitaði hana af „fjallabakter-
íunni“ og er óhætt að fullyrða að
eftir miðjan aldur voru ferðalög
með Ferðafélagi íslands og Útivist
eitt helsta kryddið í tilveru hennar.
Hafði hún stundum á orði að henni
væri eftirsjá í því að hafa ekki far-
ið að ferðast með Jóhannesi strax
á fyrstu árum sambúðar þeirra. Það
var í þessum ferðum sem við barna-
börnin kynntumst óbyggðum lands-
ins, enda í samfloti við mann sem
var fróðari um landið okkar en flest-
ir aðrir. Við kynntumst því hve
mikilvægt væri að vanda til alls
undirbúnings þegar farið er á fjöll
og ekki síst var okkur innprentuð
virðing fyrir náttúniöflunum. Raun-
ar má í þessu sambandi segja að
amma hafi sífellt verið á ferðalög-
um. Hún heyrði t.d. ekki þá ferða-
sögu sagða að hún tæki ekki upp
landabréfabókina sína og endur-
tæki ferðina heima í stofu. Ekki
heyrði hún heldur þann stað nefnd-
an í ijölmiðlum að hún fletti honum
ekki upp ef hún þekkti hann ekki
fyrir. Þetta kallaði amma að „ferð-
ast á kortinu“.
Amma hafi hæfileika til að breyt-
ast og þroskast til síðasta dags.
Hún hafði mikla þörf fyrir það sem
hún kallaði „heilatrimm", sem fólst
í hvers kyns virkri hugarstarfsemi
og því að læra eitthvað nýtt. Hún
fylgdist með þjóðmálaumræðunni,
las íslenskar sem erlendar bækur
og naut samvista við fólk í ríkum
mæli. Okkur barnabörnunum
fannst að amma yngdist með hverju
árinu. Persónuleiki hennar opnaðist
og í hana færðist meira líf eftir því
sem hún eltist frá áhyggjum hins
daglega amsturs. Meðan hún gat
tók hún þátt í leikfiminni sem fram
fór í Furugerði og var það með
eftirsjá þegar hún hætti að geta
stundað hana fyrir örfáum mánuð-
um. Hún fór þó eftir það í alllanga
göngutúra um nágrennið. Amma
sýndi líka útliti sínu áhuga. Hún
hafði gaman af að klæða sig vel
og naut þess heiðurs áð fá viður-
kenningu sem elsta sýningardaman
á tískusýningu sem haldin var í
Furugerðinu fyrir nokkrum árum.
Hún lét sér líka mjög annt um hvað
hún lét inn fyrir sínar varir, bæði
heilsunnar vegna og útlitsins.
Við barnabörnin minnumst henn-
ar sérstaklega fyrir þann ómetan-
lega eiginleika að una glöð við sitt
t
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengamóðir, amma og langamma,
SALOME LOFTSDÓTTIR,
Álfaskeiði 64, Hafnarfirði,
lést í St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, 10. desember.
Jarðarförin auglýst siðar.
Gunnar Þ. Ólafsson,
Halldór Ólafsson, Elín Bjarnadóttir,
Elísabet Guðmundsdóttir, Erlendur Björgvinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför mannsins míns og föður,
ÁGÚSTAR KJARTANSSONAR,
Jökulgrunni 3c,
Reykjavík,
Iðunn Kristinsdóttir,
Þórhildur Ágústsdóttir.
og að vera ánægð með lífið. Ekki
fann maður fyrir biturð í huga
hennar og að eigin sögn leiddist
henni aldrei. Það er mikils virði
fyrir okkur sem yngri erum að fínna
að hægt sé að njóta lífsins þrátt
fyrir háan aldur og smá þverrandi
kraft. Voru það ekki síst þessir
góðu eiginleikar ömmu sem ollu því
að við barnabörnin sóttum til henn-
ar. Áttum við þar víst athvarf í
dagsins önn. Það kom okkur heldur
ekki á óvart að amma eignaðist
unga vinkonu úr götunni sem heim-
sótti hana reglulega fram á síðasta
dag.
Með þessum orðum jcveðjum við
ástkæra ömmu okkar. Amma var
sátt við hvert stefndi. Fyrir henni
voru þetta ekki endalokin heldur
aðeins ferð í annan heim. Móður
okkar og ömmusystrum sendum við
samúðarkveðjur. Einnig sendum við
sambýlingum hennar í Furugerðinu
og starfsfólki þar kærar þakkir fyr-
ir umhyggju þeirra og hlýhug sem
var svo mikils virði þessar síðustu
vikur þegar amma þurfti mest á
stuðningi að halda.
Barnabörnin
Blómastofa
Fríöfinns
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Slmi 31099
Opið öli kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
%
Sl
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SÖLVI VALDIMARSSON
vélstjóri,
Digranesvegi 44,
Kópavogi,
lést í hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 30. nóvember.
Útförin hefur farið fram.
Guðrún Zakaríasdóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN GUÐMUNDSSON
frá Stóra-Laugardal, Tálknafirði,
áður til heimilis á Langholtsvegi 168,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 12. desem-
ber kl. 13.30.
Sigurrós Jónsdóttir, Eyjólfur Magnússon,
Erna Jónsdóttir, Theódór Jónsson,
Gerða Jónsdóttir, Sveinn B. Hálfdánarson,
Leifur Jónsson, Ingibjörg Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
INGVELDUR FJELDSTED ÓLAFSDÓTTIR,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni i Hafnarfirði fimmtudaginn
13. desember nk. kl. 13.30.
Elísabet Hannesdóttir, Sveinn Skaftason,
Sigurjón Þ. Hannesson, Guðrún Hallvarðsdóttir,
Eggert Ó. F. Hannesson, Þórey Valgeirsdóttir,
Auðbjörg Hannesdóttir, Gabríel Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
ÞÓRUNN FINNBOGADÓTTIR
frá Moshlíð, Barðaströnd,
elliheimilinu Seljahlið,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu í dag, þriðjudaginn 11.
desember kí. 13.30.
Kristrún Helgadóttir, Jóhann Pétur Margeirsson
Ingibjörg Elín Jóhannsdóttir,
Margeir Pétur Jóhannsson,
Lilly Aletta Jóhannsdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð við fráfall móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
GUÐNÝJAR INGIBJARGAR BJÖRNSDÓTTUR.
Auður Aðalsteinsdóttir, Erlendur Björnsson,
Ragnheiður Aðalsteinsdóttir,
Bessi Aðalsteinsson, Sigrún Ágústsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Náttföt - náttkjólar - sloppar - undirfatnaður
úr mjúku silki og satíni.
Einstakir hlutir á einstöku verði.
Silkislæðuir frá Louis Férand - engu líkar.
Gjafakort - góð lausn fyrir marga.
Sendum í póstkröfu.
Verið velkomin.