Morgunblaðið - 11.12.1990, Síða 78
78
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1990
Þýddum skáldsögnm og frum-
sömdum bamabókum fjölgar
Heimsmeistaraeinvígið í Lyon:
Kasparov með forystu
____________Skák________________
Karl Þorsteins
SÍÐASTA vikan hefur verið við-
burðarík í heimsmeistaraeinvíg'-
inu í Lyon í Frakklandi. Eftir níu
jafnteflisskákir í röð í einvíginu
náði heimsmeistarinn, Garrí
Kasparov, forystu með sigri í
sextándu einvigisskákinni.
Karpov jafnaði að bragði í sautj-
ándu skákinni en á sunnudaginn
náði Kasparov forystunni á ný
þegar 18. einvígisskákinni var
fram haldið eftir að hún fór í
bið á laugardaginn. Karpov gaf
skákina eftir 57 leiki. 19. einvíg-
isskákinni' var frestað að beiðni
Karpovs, en hana átti að tefla í
gær. Hún verður væntanlega
tefld á morgun, miðvikudag.
Misheppnaðri byrjunartafl-
mennsku hjá Karpov má kenna um
hrakfarirnar í 18. einvígisskákinni.
Kasparov náði undirtökunum strax
eftir byijunina, sem framan af
tefldist eins og 12. einvígisskákin
í New York. Karpov koni með nýjan
leik þegar hann lék riddara sínum
til bG í 13. leik. Kasparov tefldi
áframhaldið á rökréttan hátt. Hann
lét fúslega hvítreita biskup sinn
fyrir riddarann sem farið hafði alla
leið frá g8 reitnum fyrir uppskiptin
á a4. í kaupbæti sundraðist peða-
staða Karpovs. Mótvægi áskorand-
ans var fólgið í biskupaparinu sem
undir hefðbundnum kringumstæð-
um reynist riddurunum sterkari.
Sú varð ekki raunin í þetta skiptið.
Peðsfórn Karpovs í fi'amhaldinu var
einungis örvænting. Eftir sat áskor-
andinn með sörnu veikleikana og
peði fátækari. Eftir 25 leiki var það
einungis spurning um tæknilega
úrvinnslu við að koma vinningnum
í höfn hjá hvítum. Skákinni var
fram haldið á sunnudaginn eftir að
hún fór í bið eftir fjörutíu leiki á
laugardaginn. Karpov gaf skákina
eftir 57 leiki.
Það verður á brattann að sækja
fyrir Karþov að endurheimta heims-
meistaratitilinn. Til þess þarf hann
fjóra vinninga úr síðustu sex skák-
unum, því Kasparov nægir að halda
jöfnu í einvíginu til þess að halda
heimsmeistaratitlinum. Staðan í
einvíginu er núna 9,5 — 8,5 vinning-
um, Kasparov í vil. 19. einvígis-
skákin verður líklega tefld á mánu-
daginn, nema Karpov kjósi að taka
frídag.
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Spánskur leikur
1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3 Bb5
Kasparov leggur skoska leikinn
til hliðar að þessu sinni. Nú kýs
hann að beina skákinni á hefð-
bundnari mið.
3. - a6, 4. Ba4 - Rf6, 5. 0-0 -
Be7, 6. Hel - b5, 7. Bb3 - d6,
8. c3 - 0-0, 9. h3 - Rd7, 10. d4
- Bf6, 11. a4 - Bb7, 12. Ra3!
Staðan eftir ellefta leik Karpovs
hefur þrívegis áður komið fyrir í
einvíginu. 6. einvígisskákin tefldist,
12. axb5 — axb5, 13. Hxa8 —
Dxa8, 14. d5 - Ra5, 15. Ba2 -
Rc4!. í síðari skákum hefur Kasp-
arov kosið að biða með uppskiptin
á b5. Hann lék 12. Be3 í 8. skák-
inni en í 12. einvígisskákinni lék
hann fyrst 12. Ra3. Fyrri viðureign-
um í afbrigðinu lauk öllum með
jafntefli.
12. — exd4, 13. cxd4 — Rb6
Vörn Karpovs var ekki auðveld
í 12. einvígisskákinni eftir 13. —
Ra5, 14. Ba2 — b4, 15. Rc4 —
Rxc4, 16. Bxc4 - He8, 17. Db3.
Staðan núna hefur svipað yfirbragð
og Karpov er hagvanur í Zaitsev
afbrigðinu eftir 9. — Bb7. Af þeim
sökum er hreint ótrúlegt hversu
auðveldlegar heimsmeistarinn
skapar sér vinningsstöðu strax eftir
byijunina.
14. Bf4! — bxa4,15. Bxa4 — Rxa4,
16. Dxa4 — a5?
Byijunin hefur beðið skipbrot
eins og Kasparov sýnir fram á í
nokkrum leikjum. Undir eðlilegum
kringumstæðum mætti álíta að
biskupaparið svarta gæfi þokkalegt
mótspil fyrir stijála peðastöðu en
svo er ekki hér. 16. — d5 er ekki
fallegur leikur fyrir augað en gaf
e.t.v. betri möguleika. Eftir 17. e5 ,
— Be7, 18. Hacl — Rb4 á svartur
þokkalega möguleika á mótspili.
17. Bd2!
Riddarastökk á b4 kostar svartan
héðan í frá peð. Biskupaparið nýtist
svörtum ekki sem skyldi og næsti
leikur hans er vanhugsaður. 17. —
d5 var haldbetri vörn.
17. - He8?, 18. d5! - Rb4
18. — Re5, 19. Rxe5 — Bxe5,
20. Rc4 var engu skárra.
19. Bxb4 — axb4, 20. Dxb4 —
Hb8, 21. Dc4!
Mjög sterkur leikur. Vörnin er
svörtum mjög erfið eftir 21. —
Bxb2, 22. Ha2 með bakstætt peð
á c7 og óvirka biskupa. Eftir 22. —
Bxa3, 23. Hxa3 hótar hvítur
óþyrmilega 24. Ha7 og Hcl. 22. —
Df6, 23. Rb5 er engu skárra. Leik-
ur Karpovs bjargar engu. Hann kýs
að tefla taflið peði undir og aðeins
kraftaverk gæti komið í veg fyrir
tap þegar hér er komið til sögu.
21. - Dc8, 22. Rd4 - Ba6, 23.
Dc3 — c5, 24. dxc6 framhjáhlaup
- Bxd4,25. Dxd4 - Dxc6,26. b4
Hvíti riddarinn er sterkari en
biskupinn og að auki er hvítur peði
yfir. Taflmennska Kasparovs ber
þess merki fram að bið að hann
vill ekki taka neina áhættu. Hann
flýtir sér hvergi og vill eftirláta
aðstoðarmanni sínum að finna ör-
uggustu vinningsleiðina eftir aO
skákin hefur farið í bið.
- h6, 27. He3 - He6, 28. f3 -
Hc8, 29. Hb3 - Bb5, 30. Hb2 -
Db7, 31. Rc2 - De7, 32. Df2
32. Re3 var eðlilegri leikur.
kynningarvettvang.
Helstu breytingar sem verða í
bókaflokkum frá síðasta ári til
ái'sins 1990 eru þær að þýddum
skáldsögum fjölgar nokkuð og
einnig frumsömdum íslenskum
barnabókum og í heild eykst fram-
boð barna- og unglingabóka mik-
ið. A hinn bóginn sýnist ævisögum
og viðtalsbókum fækka nokkuð.
Samanburður á verði bóka frá
ári til árs er alltaf erfiður, en sé
litið á verð „dæmigerðra“
íslenskra skáldsagna síðustu árin
kemur í lós að „meðalskáldsagan“
sem í fyrra kostaði út úr búð 2.842
krónur kostar i ár 2.440. Hefði
ekkert verið að gert, virðisaukV
skattur lagst á bækur og þær
hækkað með byggingarvísitölu
hefði meðalbókin í ár átt að kosta
3.131 krónu og er því um 28%
ódýrari en annars hefði orðið.
Þetta þýðir það að ekki hefur að-
eins tekist að láta virðisaukaskatt-
inn skila sér beint til neytenda
heldur hefur hagræðing i útgáf-
unni leitt til enn frekari lækkunar.
Sé samanburður teygður til
fleiri ára kemur i ljós að verð
íslenskra skáldsagna (á núvirði,
stuðst við byggingarvísitölu) hefur
verið hæst árið 1987 en siðan far-
ið ofurlítið lækkandi með hveiju
ári. Samsvarar t.d. verð „meðal- -
bókarinnar" frá 1987 því að hún
kostaði í dag án virðisaukaskatts
kr. 2.744 í stað 2.440, eins og
áður sagði.
Sigfús Halldórsson ásamt útgáfustjórn.
Sönglög Sigíúsar Hall-
dórssonar gefin út
í TILEFNI af sjötugsafmæli Sigfúsar Halldórssonar, tónskálds og
listmálara, 7. sept. sl. var ákveðið fyrr á þessu ári í bæjarstjórn
Kópavogs að standa að útgáfu bókar með lögum hans.
Lagavel í þessari bók hafa þeir
Guðni Þ. Guðmundsson organisti
og Friðbjörn G. Jónsson söngvari
annast í samráði við tónskáldið.
Nýju lögin í bókinni hefur Guðni
Þ. Guðmundsson búið til prentunar,
en Magnús Kjartansson, tónlistar-
maður, sá um tölvusetningu. Auk
framantaldra hafa Guðni Stefáns-
son forseti bæjarstjórnar og Krist-
ján Guðmundsson'fyrrverandi bæj-
arstjóri verið í útgáfustjórn.
Umbrot, filmuvinnu og prentun
annaðist prentsmiðja Guðjóns Ó.
og hönnun á kápu Björgvin Páls-
son. Þessi sönglagabók sem er 118
bls. að stærð og hefur að geyma
42 lög verður til'sölu í bóka- og
tónlistarbúðum um land allt og
kostar 1.500 krónur. Umsjón með
dreifingu hefur Bókasafn Kópa-
vogs.
Morjrunblaðið/Björn Blöndal
Kór Keflavíkurkirkju ásamt börnum úr
Myllubakkaskóla og fermingarbörnum
sungu jólalög undir stjórn Einars Arnars
Einarsson organista. A innfelldu myndinni
eru Heiðrún Klara Jóhannsdóttir sem
tendraði ljósin á jólatrénu og Margit
Tweitn sendiráðsrilari í norska sendiráð-
inu sem aflienti Keflvíkingum tréð.
Kveikt á jóla-
trénu í Keflavík
Keflavík.
KVEIKT var á jólatrénu í Keflavík á sunnudaginn. Jólatréð, sem
er gjöf frá Kristiansand, vinabæ Keflavíkur í Noregi, stendur við
Tjarnargötu og setur skemmtilegan svip á bæinn. Margit Tweitn,
ritari í norska sendiráðinu, afhenti jólatréð, en liún er fædd í Krist-
iansand. Jónína Guðmundsóttir bæjarfulltrúi tók við trénu fyrir
hönd Keflvíkinga og ung stúlka, Heiðrún Klara Jóhannsdóttir, nein-
andi í Myllubakkaskóla, kveikti á því ljósin.
Við athöfnina, sem Kjartan Már
Kjartansson skólastjóra Tónlista-
skólans í Keflavík stjórnaði, komu
fram nemendurí tónlistafskólanum.
Kór Keflavíkurkirkju ásamt börnum
úr Myllubakkasóla og fermingar-
börnum sungu nokkur jólalög undir
• stjórn Einars Arnars Einarssonar
og síðan komu jólasveinar og
skemmtu þeim yngstu. Ágæt þátt-
taka vaf og fjölmenntu Keflvíkingar
ásamt börnum sínum við athöfnina
sem fram fór í þokkalegu veðri
miðað við fyrri ár. -BB
Húsavík:
Aldrei fleiri sýning-
ar í Safnahúsinu
Ævisögum og viðtalsbókum fækkar
IJT ERU komin á vegum Félags
íslenskra bókaútgefenda Bóka-
tíðindi 1990. í ritinu kynna fjöl-
margir útgefendur bækur sínar
og er þar að finna margvíslegar
upplýsingar m.a. um efni og
verð.
í fréttatilkynningu frá J’élagi
íslenskra bókaútgefenda segir:
„Bókatíðindin hafa komið út í
nokkur ár og má orðið fá af þeim
talsverðan samanburð um ísjenska
bókaútgáfu frá ári til árs. í fyrra
voru kynntir í tíðindunum liðlega
300 titlar en í ár hefur þeim fjölg-
að í rösklega 340. Þetta er þó
ekki vísbending um svo mikla hlut-
fallsaukningu í bókaútgáfunni
heldur sýnir einkanlega að útgef-
endur telja Bókatíðindin góðan
Bókatíðindi 1990.
Húsavík.
Ljósmyndasýning Guðmundar
Bjartmarssonar frá Sandi hefur í
síðustu viku staðið yfir í Safnahús-
inu á Húsavík og verið vel sótt.
Allt myndefnið er úr Þingeyjar-
sýslu og mjög fjölbreytt og margar
myndirnar vöktu eftirtekt og bentu
sjáendum á ýmsa staði sem athygl-
isverðari eru en menn gera sér al-
mennt ljóst, þó um héraðið fari og
telji sig þekkja flesta bletti þar.
Þetta er níunda myndlistarsýn-
ingin í Safnahúsinu á þessu ári og
hafa þær ekki áður verið fleiri og
hafa verið mjög vel sóttar. Einnig
eru gestir í Safnahúsinu á þessu
ári orðnir fleiri en áður eða alls um
fimm þúsund.
- Fréttaritari
Morgunblaðið/Silli
Guðmundur Bjartmarsson frá
Sandi við eitt verka sinna.