Morgunblaðið - 11.12.1990, Qupperneq 80
I/#/k_ CfiU 090
VJ
IR\
SNORRABRAUT 56
C13505 + C14303
... að sjálfsögðu!
ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1990
VERÐ I LAUSASOLU 100 KR.
Víxilvextir
hækka um 0,5%
Sparisjóðirnir hækka forvexti
víxla úr 12,25% í 12,75%, og vexti
á almennum sparisjóðsbókum úr
2% í 2,5% í dag. Eru þá þessir
vextir jafnháir samsvarandi
vöxtum flestra bankanna.
Vaxtabreytingardagur er í dag,
en samkvæmt upplýsingum frá
Seðlabankanum voru aðrar vaxta-
breytingar ekki tilkynntar þangað
í gær.
SNJÓKOMA og hvassviðri var um suðvestanvert landið í gærkvöldi
og áttu vegfarendur í nokkrum erfiðleikum vegna hálku og hvassviðr-
is. Bílstjórar nokkurra bíla sem leið áttu um Svínahraun urðu að skilja
farartæki sín eftir og fá far með betur búnum bílum. Færð var þ5
þokkaleg víðast hvar annars staðar á landinu og flestir fjallvegir fær-
ir vel búnum bílum. Hálka var mikil innan borgarmarkanna og lögð-
ust ferðir SVR um Bústaðahverfi niður um tíma í gærkvöldi vegna
hálku. Þar ók ljósmyndari Morgunblaðsins fram á Ásmund Jóhannes-
son sem beið árangurslaust eftir vagni. Á Skúlatúni fauk jólatré í
vindhviðu, sömuleiðis járnplötur við byggingarlóð í Lækjargötu. Veður-
stofan spáir norðanátt í dag og kólnandi veðri, með hagléljum um
norðanvert landið en björtu veðri sunnanlands.
DAGAR
TIL JÓLA
Viðræður Landsvirkjunar og Atlantsáls:
Aukin bjartsýni á að orku-
samningar takist í janúar
- segir Davíð Oddsson borgarstjóri
„VIÐRÆÐURNAR hafa gengið
mjög vel að mínu mati. Það hefur
ríkt góður andi í viðræðunum og
þær hafa aukið bjartsýni á að
ljúka megi samningum um þau
atriði sem lúta að Landsvirkjun
fyrir lok janúar á næsta ári,“
sagði Davíð Oddsson' borgar-
stjóri í samtali við Morgunblaðið
í gærkvöldi. Hann var þá staddur
ásamt öðrum samninganefndar-
mönnum Landsvirkjunar í höfuð-
stöðvum bandaríska álfyrirtæk-
isins Alumax í Atlanta til að ræða
orkusamning við Átlantsál. I dag
ræða tveir nefndarinenn í ráð-
gjafarnefnd iðnaðarráðuneytis-
ins, Jóhannes Nordal og Geir A.
Gunnlaugsson, við fulltrúa Atl-
antsáls um stöðu samninganna í
heild.
Sovétmenn kaupa bensín í Rotterdam til að selja íslendingum:
Bensínið keypt af öðrum ef ekki
semst við þá um hagstæðara verð
- segir framkvæmdasljóri Olís
SOVÉTMENN geta ekki afgreitt 92 oktana bensín til Islendinga af
eigin birgðum og framleiða það jafnvel ekki heldur sjálfir. Þess í
stað mundu þeir kaupa bensínið, líklega á Rotterdammarkaði, og
selja síðan íslendingum. Þetta Sagði Hörður Helgason framkvæmda-
stjóri markaðssviðs Olís í samtali við Morgunblaðið í gær og jafn-
framt að af þessum sökum verði bensínið keypt af öðrum, ef ekki
semst um hagstæðara verð við Sovétmenn. Jón Sigurðsson viðskipta-
ráðherra sagði í gær að vel geti komið til álita að gefa olíufélögun-
um frjálsar hendur til bensínkaupa.
í viðræðum íslendinga og Sovét-
manna sem fram fóru í Lundúnum
'síðustu viku var rætt um kaup á
92 oktana blýlausu bensíni, 30 til
40 þúsund tonnum á sex mánuðum.
Sovétmenn segjast geta afhent
þetta bensín, að sögn Harðar
líelgasonar. „En, hins vegar hafa
menn auðvitað ákveðnar efasemdir
um það. Þeir geta ekki afgreitt
þetta af eigin birgðum, þeir kaupa
þetta í rauninni á markaði, á Rott-
erdammarkaði hreinlega. Sennilega
framleiða þeir þetta ekki sjálfir.“
Hörðui' sagði að væntanlega
verði ekki boðaður annar fundur
um bensínkaupin, heldur verði
skipst á tilboðum við Sovétmennina
í gegnum síma og með símskeytum.
Hann sagði að Sovétmenn geti
ekki afgreitt 95 oktana bensín sem
stendur. Sovétmenn segjast geta
afgreitt það einhvern tíma í náinni
framtíð. „En menn eru ekkert farn-
ir að sjá hilla undir það að neinu
leyti,“ sagði Hörður.
Jón Sigurðsson sagði hugsanlegj;
að af þessu leiddi að bensínkaup
yrðu gerð annars staðar og kæmi
það í ljós í framhaldi viðræðna við
Sovétmenn. Hann sagði hins vegar
að íslendingar, og þá olíufélögin
fyrst og fremst, væru að ræða við
viðskiptaaðila sína til margra ára
og áratuga. „Og það er nú með það
eins og annað í viðskiptum að menn
líta líka á gróin viðskiptasambönd
og ef Rússarnir geta útvegað þetta
á skikkanlegu verði þá er það auð-
vitað til athugunar," sagði Jón.
Viðræður nefndar Landsvirkjun-
ar við fulltrúa Atlantsáis hófust á
sunnudagsmorgun og þeim lauk í
gærkvöldi. í dag fara nefndarmenn
í skoðunarferð í álver Alumax í
Mt. Holly í Suður-Karólínufylki.
Viðræðunefnd Landsvirkjunar er
að ræða mikilvægustu málin í
samningunum við Atlantsál, þ.e.
orkusölumálin. Jóhannes Nordal
sagði í gærkvöldi að menn væru
ánægðir með gang mála í viðræðun-
um. Farið hefði verið yfír öll atriði
væntanlegs orkusölusamnings og
ýmis mál leyst. Áfram yrði unnið
að ýmsum málum fram að næsta
fundi aðila. „Það hefur miðað áleið-
is í mörgum atriðum, t.d. hvað varð-
ar endurskoðunarákvæði, og mörg-
um minni háttar málum, sem hafa
verið að þvælast fyrir, hefur verið
ýtt út af borðinu," sagði Davíð
Oddsson.
Næsti fundur aðilanna verður
8.-10. janúar, væntanlega í Evrópu.
Einnig er áformaður fundur fyrir
lok janúar og segist Davíð Oddsson
vonast til að samningar takist á
fundinum um þau atriði heildarsam-
komulags, sem lúta að Landsvirkj-
í viðræðunefnd Landsvirkjunar
eru auk Jóhannesar og Davíðs þeir
Birgir Isleifur Gunnarsson og Páll
Pétursson og tóku þeir einnig þátt
í viðræðunum í Atlanta.
Neðri deild Alþingis;
Forseti kvart-
ar sáran und-
an lélegri
fundasókn
FRESTA varð atkvæðagreiðslum
í neðri deild í gær vegna þing-
mannafæðar. Forseti deildarinn-
ar, Árni Gunnarsson, segir að
mætingar þingmanna séu fyrir
neðan allar liellur og grípa verði
til aðgerða.
Þegar ganga átti til atkvæða á
20. fundi neðri deildar í gær, brá svo
við að ekki mætti nema 17 þing-
menn, þrátt fyrir háværan bjölluklið
þingforseta og fundarboð þingþjóna.
Árni Gunnarsson deildarforseti lét í
ljósi mikil vonbrigði með fundarsókn
því 24 þingdeildarmeðlimir voru bók-
aðir í húsi.
Morgunblaðið innti forseta neðri
deildar nánar eftir því til hvaða ráð-
stafana hann hygðist grípa. Árni
Gunnarsson sagðist ætla að ræða það
nánar við formenn þingfiokkanna.
En það væri alvarlegt þegar stjórnar-
andstæðingar væru fleiri en stjórnar-
sinnar eins og í þetta sinn. „Allt
getur gerst,“ sagði Árni.
Sparisjóðir:
Morgunblaðið/Þorkell
Þæfingsfærð í borginni