Morgunblaðið - 14.11.1991, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
Arvakur semur
við ístak hf.
STJÓRN Árvakurs hf. hefur af samvinnu við ístak hf., sem
ákveðið að leita eftir samningum
við Istak hf. skv. tilboði félagsins
og á grundvelli útboðsskilmála
fyrir 2. áfanga nýbyggingar
Morgunblaðsins að Kringlunni
1-3 í Reykjavík.
Árvakur hf. hefur ágæta reynslu
byggði 1. áfanga nýbyggingarinnar
við Kringluna 1-3 á árunum 1983-
1984.
Árvakur hf. þakkar þeim öllum,
sem tilboð gerðu og óskar þeim
velfarnaðar.
Fundur Landsbanka íslands og-
Byggðastofnunar um málefni Freyju:
Starfshópur athugar
málefni fyrirtælganna
Á FUNDl fulltrúa Landsbanka íslands og Byggðastofnunar í gær
vegna ákvörðunar bankans um að taka ekki fiskiðjuna Freyju á Suður-
eyri í viðskipti var ákveðið að skipa starfshóp stofnanana tveggja til
að fara yfir málefni þeirra fyrirtækja sem í hlut eiga, en Norðurtang-
inn á Isafirði og Frosti á Súðavík höfðu ákveðið að að kaupa hlut
Byggðastofnunar í Freyju. Niðurstaða þeirrar athugunar á að liggja
fyrir næstu daga.
Matthías Bjarnason, stjórnar-
formaður Byggðastofnunar, sagði
að á fundinum hefði verið farið
ítarlega yfir þessi mál og niður-
staðan hefði orðið að ákveðið hefði
verið að fela starfsölki þessara
tveggja stofnana að athuga betur
ákveðna hluti í sambandi við þessi
fyrirtæki og reyna að hraða því
svo sem kostur væri. Að því loknu
yrði farið yfír málið aftur og þar
til væru kaup Norðurtangans og
Frosta á fiskiðjunni Freyju í bið-
stöðu. Aðspurður hvort hann væri
vonbetri eftir fundinn en áður
sagði hann að þegar á móti blési
væri hann bjartsýnastur. Hann
gæti ekkert fullyrt en vonaði að
þessi athugun ætti eftir að skila
árangri.
Sverrir Hermannsson, banka-
stjóri Landsbanka íslands, sagði
að á fundinum hefði verið ákveðið
að athuga málin betur og gera
frekari úttekt á stöðu fyrirtækj-
Helgi efstur
með 2 vinninga
HELGI Ólafsson stórmeistari er
efstur með tvo vinninga eftir að
fjórum skákum af átta er lokið í
úrslitakeppni um íslandsmeistara-
titilinn í skák, en á Skákþingi Is-
lands í vor urðu þeir þrír efstir
og jafnir Helgi, Margeir Péturs-
son og Karl Þorsteins.
í fyrstu skákinni gerðu Margeir
og Helgi jafntefli. í annarri skákinni
tapaði Margeir fyrir Karli og í þriðju
skákinni Karl fyrir Helga, en í fjórðu
skákinni sem tefld var í gær gerðu
Margeir og Helgi jafntefli.
anna sem ættu í hlut. Vinna þyrfti
þessa athugun eins hratt og mögu-
legt væri. Aðspurður hvort þetta
þýddi að það kæmi til greina að
Freyja yrði tekin í viðskipti sagði
Sverrir, að engin ný ákvörðun hefði
verið tekin í þeim efnum. Gerðar
yrðu athuganir á stöðu þessara
fyrirtækja og þeim áætlunum sem
uppi væru vegna þessa reksturs
og kaupa.
Morgunblaðið/KGA
Tíminn útrunninn
Fjöldi fólks er á ferli í miðbænum á daginn og eflaust eiga margir í
vandræðum með að finna stæði fyrir bifreiðar sínar. Ekki er þó allur
vandinn leystur þó stæði fáist því hafa þarf smámynt í stöðumælinn og
koma aftur á tilsettum tíma. Annars er hætt við að fólk hitti fyrir stöðu-
mælavörð eins og þennan sem var að störfum á Barónsstíg síðdegis í gær.
Notkun nagla-
dekkja verði
ekki mótmælt
LÖGÐ hefur verið fram tillaga í
borgarráði um að beina því til
gatnamálastjóra, að hætta að
birta auglýsingar, sem mæla
gegn notkun nagladekkja í
vetrarumferðinni.
Tillagan er frá Alfreð Þorsteins-
syni, sem bendir á að reynslan hafi
sýnt, að verulegur íjöldi Reykvík-
inga telji öryggi sínu betur borgið
í umferðinni með notkun nagla-
dekkja, þrátt fyrir áróður um hið
gagnstæða. Auglýsingar gatna-
málastjóra séu því óþarfar.
Borgarráð samþykkti að vísa til-
lögunni til umferðamefndar.
Sigurður Skaiphéðinsson aðstoð-
ar gatnamálstjóri, sagði sjálfsagt
að ræða þessi mál. Á haustin hafi
menn verið beðnir um að hugsa
sinn gang áður en þeir velji vetrar-
búnað á bifreíðina. „Við höfum ekki
legið á því að það eru vissulega til
aðstæður, þar sem nagladekk eru
betri en annar búnaður,” sagði Sig-
urður. „Við höfum bent á að það
sé hópur manna, sem verður að
vera á nagladekkjum og þá sérstak-
lega þeir sem aka um á nætuma
eða eru mikið á ferðinni utan bæjar-
markanna. Ég er þeirrar skoðunar,
að mjög margir hafi ekkert með
nagladekk að gera þegar komin eru
mjög góð snjódekk, sem við flest
skilyrði jafnast fullkomlega á við
góð nagladekk. Þau veita oft falskt
öryggi og em þá verri en snjódekk.
Að mínu mati hefur þetta verið inni-
haldið í okkar auglýsingum og
áróðri.”
Meitillinn í Þorlákshöfn:
Togarúin Þorlákur seldur utan
og kvóti færður á Jón Vídalín
MEITILLINN í Þorlákshöfn hefur gengið frá sölu á togaranum
Þorláki til útlanda. Togarinn var keyptur af aðila í Suður-Afríku
en mun væntanlega verða skráður undir þægindafána í Karíbahaf-
inu. Meitillinn hefur einnig til athugunar að selja ónýttan skattfrá-
drátt sinn vegna taprekstrar á undanförnu ári og nú munu komin
vilyrði fyrir um 100 milljónum af 150 miiljóna króna nýju hlutafé
sem afla átti.
Með sölunni á Þorláki mun kvóti
hans verða færður yfir á togarann
Jón Vídalín en samtals er togara-
kvóti Meitilisins nú um 3.600 tonn
af þorskígiidum. Marteinn Friðriks-
son stjórnarformaður Meitilsins vill
ekki gefa upp hve mikið fyrirtækið
fékk með sölunni á Þorláki en seg-
ir það snöggtum betra en að sökkva
skipinu. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins munu þetta vera
um 60 milljónir króna ef tekið er
með í dæmið það sem fyrirtækið
fær úr Hagræðingarsjóði við söluna
en það er nú 10% af húftryggingu
skipsins. Raunar gæti þetta orðið
hærri upphæð ef frumvarp sjávar-
útvegsráðherra um að hækka þetta
hlutfall í 30% nær fram að ganga.
Marteinn Friðriksson segir að
með sölunni á Þorláki náist veruleg
hagræðing á rekstri Meitilsins en
það sé jafnframt ljóst að huga verði
að kaupum á öðru fiskiskipi því
kvótinn sem Meitillinn á nú er ekki
nægilega mikill til rekstrar á svo
stóru fiskvinnsluhúsi sem Meitillinn
er.
Tími til hlutafjáraukningar hjá
Meitlinum um 150 milljónir króna
var framlengdur frá 1. nóvember
sl. til 1. desember. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins eru nú
þegar komin vilyrði fyrir um 100
milljónum af þessu hlutafé. Er þar
m.a. um að ræða Sambandið, Olíu-
félagið og starfsfólk Meitilsins.
Marteinn Friðriksson segir að eins
og málin standi í dag sé hann hóf-
lega bjartsýnn á að rekstur Meitils-
ins verði kominn í viðunandi horf
um næstu áramót.
Breytingu á 300 millj.
kr. skuld E.G. í lán
eða hlutafé hafnað
w w
Þorsteinn O. Steph-
ensen leikari látinn
ÞORSTEINN Ö. Stephensen leik-
ari lést í Reykjavík í gærmorgun,
86 ára að aldri.
Þorsteinn fæddist 21. desember
árið 1904 að Hurðarbaki í Kjós,
sonur hjónanna Ögmundar Hans-
sonar Stephensen bónda og Ingi-
bjargar Þorsteinsdóttur. Hann varð
stúdent frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1925, cand. phil frá
Háskóla íslands 1926 og las síðan
læknisfræði um hríð. Hann lærði
leiklist við leiklistarskóla Konung-
lega leikhússins í Kaupmannahöfn
1933-34. Þorsteinn hóf störf við
Ríkisútvarpið 1935, fyrst sem að-
stoðarþulur og þulur og síðan sem
leiklistarstjóri frá 1946-75. Þor-
steinn lék mikið í útvarpsleikritum
um árabil og stjórnaði oft leikritum
þar, auk þess að stjórna bamatíma
Ríkisútvarpsins á árunum 1946-55.
Hann þýddi fjölmörg leikrit til flutn-
ings í útvarpi og gaf auk þess út
bókina Krakkar nn'nir komiðþið sæl
1951, sem er safn barnaljóða.
Þorsteinn lék óslitið við leikhúsin
í Reykjavík frá því hann kom frá
námi og hlaut fyrir það margvísleg-
ar viðurkenningar. Hann hlaut tví-
vegis Silfurlampa Félags íslenskra
leikdómenda sem veittur var fyrir
besta leikafrek ársins, fyrst 1957
og síðan 1966. Hann var formaður
Leikfélags Reykjavíkur um skeið
og var í heiðurslaunaflokki Alþing-
is.
Þorsteinn hafði forgöngu um
stofnun Starfsmannafélags Ríkisút-
varpsins 1936 og var formaður þess
fyrstu árin. Hann var einnig fyrsti
formaður Félags íslenskra leikara,
en það var stofnað 1941 og var
hann sæmdur gullmerki félagsins
1966. Þá sat hann í stjórn Banda-
lags íslenskra listamanna um árabil.
Kona Þorsteins er Dóróthea Guð-
mundsdóttir Stephensen og eignuð-
ust þau fimm börn.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra hefur hafnað þeirri mála-
leitan Ólafs Kristjánssonar bæj-
arstjóra í Bolungarvík að breyta
300 milljón króna skuld Einars
Guðfinnssonar hf. við Atvinnu-
tryggingarsjóð í hlutafé eða víkj-
andi lán. Þetta kom fram á fundi
sem Ólafur átti með Davíð í
gærdag en þar ræddu þeir stöðu
þá sem komin er upp á Bolungar-
vík í kjölfar erfiðleikanna í
rekstri Einars Guðfinnssonar hf.
Ólafur Kristjánsson segir að
beiðni þessi hafí komið frá bæjar-
stjórn Bolungarvíkur en hafi ekki
verið gerð að undirlagi stjórnenda
E.G. Bæjarstjórnin ásamt öðrum
aðilum íhugi nú að setja um 100
milljónir króna sem nýtt hlutafé í
E.G. en vilji að tryggt sé að það
fé komi að tilætluðum notum. „Mið-
að við þær rekstraráætlanir sem
við höfum séð frá stjómendum Ein-
ars Guðfínnssonar myndi rekstur-
inn verða vel tryggður með því að
þessum 300 milljónum yrði breytt
í hlutafé eða víkjandi lán og við
kæmum svo inn í reksturinn með
100 milljónir,” segir Ólafur. „Áður
en bæjarsjóður hinsvegar leggur
fram fé í fyrirtækið verður að vera
tryggt að áframhaldandi . rekstur
þess sé byggður á traustum
grunni.”
Ólafur Kristjánsson heldur heim
til Bolungarvíkur í dag og mun þar
á fundi með bæjarstjóm gera grein
fyrir viðræðum sínum við Davíð
Oddsson.
Ekki brodd-
göltur heldur
strákústur
ÍBÚI I húsi í Reyly'avík
hringdi í lögreglu aðfaranótt
þriðjudagsins og óskaði að-
stoðar þar sem torkennileg
skepna sem líktist helst
broddgelti væri að krafsa í
útidyr húss síns. Óstuddur
vildi maðurinn ekki leggja til
atlögu við dýrið.
Lögreglan kom á staðinn en
fann ekki broddgöltinn þrátt
fyrir ítarlega vettvangsrann-
sókn. Niðurstaða þeirrar rann-
sóknar var sú að yfirgnæfandi
líkur bentu til að húsráðandinn
hefði villst á broddgelti og rauð-
hærðum strákústi sem fokið
hafði til og hafnað við þröskuld-