Morgunblaðið - 14.11.1991, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
55
Morgunblaðið/Sverrir
Örvar og Grettir í Rauða ljóninu.
SKEMMTANIR
Harmonikkuhetj ur
Orvar Kristjánsson á sér langan
skemmtanaferil og ekki verð-
ur tölu komið á þau skipti sem
hann hefur troðið upp sem söngv-
ari og harmonikkuleikari, aukin-
heldur sem hann hefur sent frá sér
breiðskífur sem selst hafa í stóru
upplagi. Grétar Björnsson er annar
skemmtikraftur og harmonikku-
leikari, sem víða hefur komið og
leikið í áratugi, en nú hafa þessi
tveir slegið saman.
Grettir sagði þá félaga hafa ver-
ið að músísera í öllum mögulegum
samsetningum, í hljómsveitum og
utan, í fjölda ára, hér á landi og
erlendis. í gegnum árin hefðu þeir
spilað saman nokkrum sinnum, en
ekkert fast. Örvar segir að síðustu
misseri hafi honum þótt sem ekkert
væri að gerast í kringum þá og því
tilvalið að reyna að gera eitthvað í
málinu. „Þetta var hálfgerð logn-
molla og ég sagði við Gretti í vor
í Bláa lóninu: Nú förum við að spila
samán. Við fengum okkur svo
trommara í haust og höfum mátt
hafa okkur alla við að sinna öllum
spilabeiðnum.”
Grettir segist telja að fólk sæki
svo í þá, því það sé orðið leitt á
hávaðatónlist úr rafmagnshljóðfær-
um og Örvar segir að það sé gríðar-
mikið um að fólk sé að biðja þá um
að spila uppáhaldslög. „Það verður
að taka^ tíma undir það,” segir
Grettir, „við eyðum alltaf drjúgum
tíma í óskalög á hveiju kvöldi.”
Þeir félagar segjast ætla að halda
áfram á meðan þeir hafi gaman af
þessu og fólk vilji hlusta og Örvar
segist ætla að taka upp plötu eftir
áramót, „og Grettir verður með í
því”.
XJöföar til
11 fólks í öllum
starfsgreinum!
KOMNIR
AFTUR
þessir fallegu pelsar
í öllum stærðum.
Mörg snið.
Verö frá
kr. 125.000,-
(Fenjabjór)
Opið kl. 13.00-18.00,
laugard. kl. 11.00-14.00.
PELSINN
Kirkjuhvoli -sími 20160
Danny Glover. Clarence Thomas
KVIKMYNDIR
Leikur Danny
Glover hlut-
verk Clarence
Thomas?
Orðrómur er á kreiki um að í
undirbúningi sé gerð kvik-
myndar um hinar frægu vitnaleiðstur
og orðaskak í kring um ráðningu
Clarence Thomas í stöðu hæstarétt-
ardómara í Bandaríkjunum á dögun-
um, en hann þurfti að sitja undir
áburði fyrrum samstarfskonu um
grófa kynferðislega áreitni er þau
störfuðu saman fyrir fáum árum.
Bandaríkjamenn fylgdust með mál-
inu eins og um sápuóperu væri að
ræða, en sú líking þótti oft og tíðum
alls ekki út í hött. Það væri svo eft-
ir öllu að gerð væri kvikynd um allt
saman og þeir eru til í Holtywood
sem segja það fremur spurningu um
hvenær heldur en hvort.
Einn er sá maður sem telur sig
eiga meiri möguleika en aðrir að
landa lilutverki söguhetjunnar Clar-
ence Thomas. Það er leikarinn Danny
Glover. „Það hafa furðu margir haft
orð á því að undanförnu að ég líkist
Thomas mjög og slíkt skiptir alltaf
miklu máli er valið er í hlutverk í
þannig sannsögulegum myndum.
Það er rétt, við Thomas erum tíkir.
Hin svegar er það svo sem ekkert
gefíð að ég hefði áhuga á hlutverk-
inu þó það byðist. Ég myndi skoða
handritið vel. Kynferðisleg áreitni er
alvarlegt mál og ef það væri ekki
tekið réttum tökum í slíkri kvikmynd
myndi ég hvergi nærri koma. Ef á
málinu væri tekið af festu væri ég
spenntur. Ég get vel séð fyrir mér
vinkonu mína Robin Givens í hlut-
verki ungfrú Hill, hún hefur til þess
skapgerðina og kynþokkann,”
ségir Glover.
HRESS ÍVETUR
Hvort heldur ætlun er að styrkja, liðka,
megra, auka þol eða allt þetta I senn
þá getur þú verið viss um að fínna
námskeið við þitt hæfi hjá HRESS, á
tíma sem þér hentar. Frábærir kennarar
Líkamsrækt
Átak í megrun
Vaxtamótun
fitubrennsla (Púl)
* Fyrir barnshafandi
Start
Nýr lífsstíll
Old boys
Kvennaleikfimi
Morguntfmar
Dagtímar
Jazzballettet
Vigtun
Matseðlar
og góð aðstaða tryggja góðan árangur.
Meiri styrkur og þol gefur þér nýjan
lífsþrótt, bætt útlit og aukið sjálfsöryggi
og vellíðan. _ _
Vertu með í hressum hópi.
Fitumæling
’ Ráðgjöf
Æfingar með lóðum
Æfingar með teygjum
Vatnsgufubað
.* * Ótakmörkuð mæting
Frábærir Ijósabekkir
Barnagæsla frá 9.30 -16.00
7 mínútur úr Breiðholti
HRESS
IJKAMSRÆKT OG IJOS
BÆJARHRAUM 4/VIO KERAVKURVECINN/SMI 652212
Tískusýning
í kvöld kl. 21.30
, Sýnd verða föt frá
Alalossbúðinni
og frá versluninni
ÚTILÍF1
______SÝNA______
NAUSTKJALIARINN
V
XJöfiðar til
XTL fólks í öllum
starfsgreinum!