Morgunblaðið - 14.11.1991, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
Erfið staða banka á Norðurlöndum:
Staða Islendinga á lánsfjár-
mörkuðum hefur veikst
ERFIÐ staða banka í Noregt og
Svíþjóð hefur veikt stöðu Islend-
inga á alþjóðapeningamörkuð-
um, að því er fram kom í máli
Davíðs Oddssonar, forsætisráð-
herra, í utandagskráðumræðu á
Alþingi um álmálið. Með sama
hætti hafi Islendingar áður not-
ið góðs af sterkri stöðu banka á
Norðurlöndum.
Olafur ísleifsson, forstöðumaður
alþjóðadeildar Seðlabanka íslands,
segir að það sé rétt mat hjá forsæt-
isráðherra að erfiðleikar banka í
Noregi og Svíþjóð hafí ekki orðið
stöðu okkar til framdráttar vegna
þeirrar tilhneigingar í fjarlægum
löndum að líta á Norðurlöndin sem
eina heild. Hins vegar hefði ísland
yfirleitt áður notið góðs af því að
vera flokkað með Norðurlöndun-
um.
Ólafur sagði að annað tveggja
þekktustu fyrirtækja Bandaríkj-
anna sem legði mat á lánstraust
ríkja hefði nýlega látið frá sér fara
mat og væri staða íslands óbreytt
frá því sem verið hefði. Erlend lán-
taka ríkissjóðs hefði verið lítil það
sem af væri þessu ári, en ráðgert
væri að afla talsverðs erlends láns-
fjár á næstunni samanber frum-
varp þar að lútandi sem lagt hefði
verið fram á_ Alþingi. Að undanf-
ömu hefðu íslendingar notið til-
tölulegra hagstæðra kjara á lánsfj-
ármörkuðum.
Reynt að sækja jeppana
í dag ef veður leyfir
FÉLAGSSKAPUR jeppabílaeig-
enda á Keflavíkurflugvelli hyggst
halda til fjalla í dag og gera til-
raun til að ná bílum Bandaríkja-
manna sem lentu í hrakningum á
Kjalvegi um síðustu helgi. Þó get-
ur brugðið til beggja vona með
hvort ferðin verði farin og ræðst
það af veðri.
Joseph Quinby liðþjálfí í upplýs-
ingadeild vamarliðsins sagði að enn
væri beðið eftir veðurspá fyrir kvöld-
ið og spá frá veðurathugunarstöðinni
á Hveravöllum. Ráðgert er að um
20 manna hópur, þar af nokkrir
reyndir íslenskir björgunarsveitar-
menn, haldi af stað á Kjöl og verði
í stöðugu sambandi við veðurathug-
unarstöðvar á Hveravöllum og á
Keflavíkurflugvelli. Bílarnir eru
dreifðir á um 10 km svæði nálægt
veginum inn í Kerlingarfjöll.
11 bílar í eigu bandarískra vam-
arliðsmanna vom skildir eftir.
VEÐUR
VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hlti veður Akureyri +1 snjókoma Reykjavík - +1 alskýjað
Bergen 5 Þrumuv. síð.klst.
Hclsinki 3 alskýjað
Kaupmannahöfn 7 léttskýjað
Narssarssuaq •i-18 heiðsidrt
Nuuk +6 ekkert veður
Osló 6 skýjað
Stokkhólmur 6 rigning
Þórshöfn 6 alskýjað
Aigarve 19 alskýjað
Amsterdam 6 skúr
Barcelona 1B þokumóða
Berlin 10 rigning á síð.klst.
Chicago 2 léttskýjað
Feneyjar 9 þokumóða
Frankfurt 7 alskýjað
Glasgow 4 skýjað
Hamborg 8 skýjað
London 9 skýjað
LosAngeles 19 heiðskírt
Lúxemborg S rignlng
Madríd 11 þokumóða
Malaga 18 alskýjað
Mallorca 19 skýjað
Montreal +0 snjóél
New York 4 léttskýjað
Orlando 9 heiðskfrt
París 10 skýjað
Madeira 19 skýjað
Róm 16 skýjað
Vín 11 skýjað
Washington vantar
Winnipeg 2 heiðskírt
/ DAG kl. 12.00
VEÐURHORFUR íDAG, 14. NÓVEMBER
YFIRLIT: Skammt norður af Skotlandi er 960 mb víðáttumikil lægð
sem þokast norðaustur en vaxandi hæð yfir Norður-Grænlandi.
Kólnandi veður.
SPÁ: Hægt minnkandi norðanátt. Strekkingur austanlands, en
heldur hægari vestanlands. Él norðan- og einkum norðaustan-
lands, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Kólnandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Minnkandi norðanátt. Él norðan- og norð-
austanlands, en bjartviröi sunnan- og vestanlands. Vaxandi frost.
HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg breytileg eða norðlæg átt. Lítils-
háttar él norðaustanlands, en víöast bjartviðri í öðrum landshlut-
um. Kalt og víða hörkufrost inn til landsins.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
Heimíld: Veöurstofa íslands
(Byggt á veöurspá kl. 16.151 gær)
TAKN:
Heiðskirt
Léttskýjað
Hálfskýjað
týjað
Alskýjað
y. Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* ■¥■ *
0 HRastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
CO Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Fjölskyldan sem datt í lukkupottinn sl. þríðjudagskvöld, f.v.
Erling, Aðalbjörg, með vinningsmiðann sem gaf þeim rúmar
þijár milþ'ónir, Halldóra og Guðrún Ýr.
Þykkvibær:
Keypti Happómiðann
fyrir Happaþrennu
Hellu.
„ÉG ATTI 1.000 kr. happaþrennuvinning sem ég fékk greiddan
og var búin að ákveða að kaupa mér miða í Happó fyrir pening-
inn. Ég fór í Þríhyrning á Heilu og keyti einn Mogga og þrjá
happómiða,” sagði Halldóra Gunnarsdóttir í Þykkvabæ sem datt
í lukkupottinn sl. þriðjudagskvöld er hún fékk rúmar þijár millj-
ómr í vinning í happóinu.
„Ég var ákveðin í að vera með,
átti 1.000 kr. happaþrennuvinn-
ing sem ég var búin að þvælast
með í vasanum í hálfan mánuð.
Svo ég gerði mér ferð upp á Hellu
og keypti mér Happómiða fyrir
vinninginn, var fyrir löngu búin
að ákveða að nota peninginn í
þetta. Ég fylgdist spennt með
útdrættinum og var að vonast til
að fá eitthvað, þó ekki væri nema
lægsta vinning. Dóttir mín eldri
var að tala um það á meðan á
útdrættinum stóð að við fengj-
um aldrei neitt og við ætluðum
bara ekki að trúa þessu, þegar
sá stóri birtist á skjánum, geðs-
hræringin var mikil.”
Halldór og eiginmaður henn-
ar, Erling Jónsson, eiga tvær
dætur, 1 árs og 8 ára, en Erling-
ur starfar í kartöfluverksmiðj-
unni í Þykkvabæ. Þau segja
vinninginn koma sér mjög vel,
sérstaklega núna fyrir jólin, en
þau séu eigmlega ekki alveg
búin að átta sig á þessari stað-
reynd og ekkert farin að spá í
hvernig þau muni ráðstafa pen-
ingunum.
A.H.-
Ipasco Steel tapar
600 milljónum kr.
-segir stjórnarformaður o g aðaleigandi
fyrirtækisins um gjaldþrot Stálfélagsins
HELGI Jóhannesson, sem skipaður hefur verið búsfjóri þrotabús
Islenska stálfélagsins, segir að engar ákvarðanir hafi verið teknar
um hvort þrotabúið, veðhafar eða einhverjir aðrir aðilar tækju að
sér að reka verksmíðjuna. „Það er allt í mikilli athugun og þreifingar
í gangi,” sagði hann. Sagðist hann vonast til að ákvörðun um hvort
verksmiðjan verður gangsett á ný lægi fyrir fljótlega. Björn Halle-
nius, stjórnarformaður Islenska stálfélagsins og eigandi móðurfyrir-
tækisins Ipasco Steel Ltd. í London, segir að Ipasco muni tapa 600
milljónum króna sem það hafi lagt Stálfélaginu til í hlutafé og víkj-
andi lánum við gjaldþrotið.
Hann segir að bjarga hefði mátt
fyrirtækinu og forða lánadrottnum
frá miklu fjárhagstjóni ef viðskipta-
bankar hefðu sýnt aðeins meiri
skilning. Hann segir að sænsku við-
skiptabankar fyrirtækisins og ís-
lenskir bankar hefðu þó verið reiðu-
búnir að taka þátt í endurreisn fé-
lagsins ef það hefði fengið greiðslu-
stöðvun en óútskýrð breyting á af-
stöðu hollenska bankans Mees &
Hope hefði hins vegar Ieitt til þess-
arar niðurstöðu.
„Við viljum ekki tjá okkur mikið
um þetta mál áður en kemur í ljós f
hvort finnst lausn á því en við erum
að leita leiða til að finna grundvöll
fyrir áframhaldandi starfsemi,”
sagði Hallenius. „Við hefðum þurft
að hafa betri daglega stjórnun fyrir-
tækisins og stuðning banka, sem
hefði skilning á þörfum þess,” sagði
hann. Hann sagði jafnframt að fyr-
irtækið hefði leitað til opinberra
aðila á Islandi um möguleika á
stuðningi en ekki hefði orðið við því.
Kannað hefur verið að undan-
fömu hvort einhveijir íslenskir og
erlendir aðilar væru tilbúnir til að
taka yfir rekstur fyrirtækisins.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa nokkrir aðilar svnt
því áhuga. Er þá sérstaklega horft
til þess að fyrirtækið hefur hag-
stæðan raforkusamning við Lands-
virkjun og kaupir rafmagnið á tæp-
lega 7 mill samkvæmt upplýsingum
Halldór Jónatanssonar, forstjóra
Landsvirkjunar.
Halldór sagði að miklar vonir
hefðu verið bundnar við framleiðslu
íslenska stálfélagsins og Lands-
virkjun hefði stuðlað að vexti og
viðgangi fyrirtækisins með hag-
stæðum orkusölukjörum. Nú væri
fyrirtækið í vanskilum við Lands-
virkjun sem ætti um 2,5 milljóna
kr. kröfu á hendur þrotabúinu.
„Við höfðum gert þeim viðvart að
ef þeir greiddu ekki vanskilaskuld-
irnar myndum við loka fyrir raf-
magnsafhendingu til fyrirtækisins
og gáfum þeim frest til 6. desemb-
er,” sagði Halldór.
Kristinn Svansson, trúnaðarmað-
ur starfsmanna Stálfélagsins, sagði
að Iðja, félag verksmiðjufólks, hefði
samþykkt að greiða starfsmönnum
í félaginu en þeir eru um 90% starfs-
manna verksmiðjunnar laun sem
þeir ættu inni hjá félaginu fram til
12. nóvember, en fiestir þeirra eiga
inni um fjögurra vikna laun.______