Morgunblaðið - 14.11.1991, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
Fiskihagfræði
__________Bækur________________
Yngvi Harðarson
Nýverið kom út á vegum Iðunnar
ritið Fiskihagfræði eftir Gylfa Þ.
Gíslason, prófessor. Bókin, sem
skiptist í sjö kafla, er 152 blaðsíður.
Að grunni til er bókin fjölrit sem
höfundur notaði um árabil við
kennslu í Háskóla íslands. Þannig
hefur uppistaða ritsins þegar hlotið
gagnrýna umfjöllun mikils fjölda
hæfra einstaklinga.
í fyrstu tveimur köflunum er fjail-
að um náttúruskilyrði til fískveiða,
fijósemi og fiskitegundir í Atlants-
hafi. Hér er fjallað um hafið og höf-
uðdrætti landslagsins neðansjávar,
fæðukeðjuna og lífsskilyrði helstu
fiskitegunda. Slík kynning er mörg-
um gagnleg á þeim þáttum sem
móta skilyrði til fískveiða frá náttúr-
unnar hendi.
Lengsti kafli bókarinnar er sá
þriðji. Þessi kafli ber yfirskriftina
„Hagfræði sjávanítvegs”. Hérkynnir
Gylfi helstu grundvallarhugtök. Við-
fangsefni fiskihagfræðinnar er skil-
greint, en hún fjallar um „ . .. þau
sérstöku efnahagsvandamál, sem af
því hljótast að fískistofnarnir í heims-
höfunum, og þó einkum á vissum
svæðum, eru takmörkuð auðlind,
sem þó hefur til skamms tíma yfir-
leitt verið fijálst að hagnýta,...”
VITASTÍG 13
26020-26065
Vesturvallagata. 2ja
herb. falleg 50 fm ib. i góðu stiga-
húsi. Mikið endurn. Nýtt eldh.
Verö 4,8 millj.
Lækjarhjalli — Kóp.
Neðri sérhæð 2ja-3ja í tvíb. ca.
73 fm. íb. verður seld tilb. u. trév.
Húsið fullb. að utan. Verð 6,5
millj. Teikn. á skrifst.
Hraunbær. 3ja herb.
endaíb. 64 fm. Stórar suö-vest-
ursv. Verð 5,8 millj. Laus.
Álftahólar. 3ja herb. ib. 69
fm á 3. hæð. Góðar svalir. Laus.
Verð 5,8 millj.
Skarphéðinsgata.
Glæsil. 3ja herb. íb. á 1. hæð ca
60 fm. Nýjar innr. Nýtt parket,
gler og gluggar. ib. í sérfl.
Dvergabakki. 3ja herb. góð íb. á 2. hæð 68 fm. Tvennar svalir. Fallegt útsýni. Góðar innr. Góð lán áhv.
Kambasel. 3já herb. gleesil. íb. í tvib. á 2. hæð 104 fm. Sér- ■ lega fallegar innr. Stðrar svaiir.f*
Orrahólar. 3ja herb. 65 fm á 8. hæð. Parket. Suðursv. Fráb. útsýni. Þvherb. á hæðinni.
Kleppsvegur. Glæsíl. 4ra herb. íb. á 2. hæð, 83 fm, með aukaherb. í risi með aðgangi að snyrtingu. Nýtt gler og gluggar. íb. er ný uppgerð. Verð 7 mllfj. Laus.
Básendi. 4ra herb. sérhæð 114 fm á 1. hæð í þríb. Tvennar svalir. Mikið endurn. Góð lán áhv.
Graenahlíð. Falleg 5 iterb. íb. á 3. hæð ca 120 fm. Nýl. innr. Suðursv. Góð lán áhv.
Bergstaðastræti. 4ra herb. íb. á 2. hæð 112 fm í tvíbhúsi auk bílsk. Ákv. sala. Laus fljótl.
Tjarnarflöt - Gb. Glæsil. einbhus á eínni hæð, 173 ím. 39 fm bílsk. 28 fm garðstofa. Fallegur garður. Góðar innr. Ákv. sala.
Gunnar Gunnarsson, lögg. fasteignasali, hs. 77410. 1
(bls. 31). í kaflanum er því einnig
fjallað um líffræðilegar forsendur
fyrir vexti fiskistofna og samhengið
við nýtingu þeirra. Þetta er gert á
einfaldan hátt og hugmyndirnar
skýrðar með myndum. Fjallað er um
þá sérstöðu sjávarútvegs sem felst í
að hann hefur ekki greitt fyrir öll
þau aðföng sem hann notar.
Ofveiði er skilgreind þannig að
....notuð séu meiri aðföng en nauð-
synlegt ertil þess að ti-yggja hámark
hreinna tekna.” Þetta er borið saman
við hina líffræðilegu merkingu þar
sem átt er við......að stærð stofns
sé minni en hún á að vera til þess
að tryggja varanlegan hámarksafla.”
(bls. 42).
Sýnt er fram á óhagkvæmni
fijálsrar og ókeypis sóknar á fiskim-
ið. Sú niðurstaða er tvíþætt: í fyrsta
lagi þýðir óheftur og ókeypis aðgang:
ur að fiskimiðum ofveiði fiskistofna
þar sem við slíkar aðstæður er litið
fram hjá því að fiskistofnarnir séu
yfirhöfuð nokkurs virði. í öðru lagi
taka einstakar útgerðir ekki tillit til
áhrifa eigin sóknar á afla annarra.
Þetta gerist þrátt fyrir að einstakir
útgerðarmenn hegði sér fuilkomlega
skynsamlega að gefnum skilyrðum
sem þeim eru sett.
Gylfi fjallar um ákvörðun hag-
kvæmasta afla í bráð og lengd og
frá sjónarhóli einstaks útgerðar-
manns og þjóðarbúsins. Því næst
gerir hann þróun fiskihagfræðinnar
skil og tekur sérstaklega fyrir hlut
danska prófessorsins Jens Warming
og kanadísku prófessoranna H. Scott
Gordon og Anthony Scott. Hvað
varðar síðari tíma rannsóknir í fiski-
hagfræði nefnir hann m.a. þátt
kunnra islenskra hagfræðinga,
þeirra Rögnvaldar Hannessonar við
Viðskiptaháskólann í Bergen pg
Ragnars Árnasonar við Háskóla ís-
lands. í síðasta hluta þessa megink-
afla bókarinnar ijallar Gylfi síðan
um áhrif ýmissa breytinga í forsend-
Gylfi Þ. Gíslason
um á hagkvæmustu sókn.
Umljöllunin það sem eftir er bók-
arinnar er að mestu án beinnar tilvís-
unar í hina fræðilegu greiningu í
þriðja kafla. Þetta er líklega bæði
kostur og galli. Fyrir þá sem náð
hafa mjög góðu vaidi á efninu er
þetta ef til vill galli þar sem slík
tenging skerpir umfjöllunina. Á hinn
bóginn þá hentar hinum almenna
lesanda líklega betur það form sem
Gylfi velur. Að auki er erfitt að fram-
kvæma slíka tengingu þar sem um-
ijöllunin víkkar nokkuð. Þannig fjall-
ar Gylfi um stjórn fiskveiða frá fræði-
legu sjónai-miði, alþjóðasamninga um
fiskveiðar, fiskveiðilögsöguna og
þróun hennar og lýkur bókinni á
umfjöllun um stjórn fiskveiða við
ísland.
í fyrri kaflanum um stjórn fisk-
veiða er umfjöllunin frá fræðilegu
sjónarmiði. Þar er m.a. skilgreint
markmið fiskveiðistjórnar, „ . . . að
hæfilegt magn sé veitt hveiju sinni
úr hvetjum stofni, að dreifing aflans
á stærð fiska sé sem hagkvæmust
og að veitt sé á sem ódýrastan hátt.”
(bls. 84). í þessum kafla varpar Gylfi
ljósi á þann reginmun sem er á ýms-
um aðferðum fiskveiðistjórnar. Í
fyrsta lagi nefnir Gylfi þann grund-
SUÐURHVAMMUR - HF. + BÍLSK.
Ný mjög góð íb. á 2. hæð ásamt bílsk., samtals ca 144
fm. Nýjar innr. Tvennar svalir. Útsýni. Þvottahús í íb.
Áhv. húsnstjlán 3,6 millj. Verð 10,4 millj.
VANTAR - SKIPTI
SELÁS
Vantar einbýli á þessum slóðum, má kosta allt að 20 millj.
FURUGRUND
Okkur vantar góða 4ra herb. íb. í Furugrund eða Ástúni.
KÓPAVOGUR
Gott einbýli, þar sem möguleiki er að láta 4ra herb. íb. uppí.
ÞIMiIIOLT
SuðurlandsbréKJt 4A,
HfJ
sími680666
21150-21370
LARUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjóri
KRISTINN SIGURJ0NSS0N, HRL. ioggiltur fasteignasali
Til sýnis og sölu er að koma m.a. eigna:
Skammt frá Hlémmtorgi
2ja herb. íb. á 3. hæð, 50,4 fm, auk geymslu og sameignar í reisu-
legu steinhúsi. Þarfn. nokkurra endurbóta. Svalir. Sameign vel með
farin. Skuldlaus. Laus strax. Verð aðeins 3,5 millj.
Rétt við Álftamýrarskóla
Á vinsælum stað mjög góð 3ja herb. íb. á 3. hæð. 80,2 fm nettó.
Rúmg. stofa, sólsvalir. Ágæt sameign. Bílskúrsplata fylgir.
Glæsileg ný íbúð
við Sporhamra á 1. hæð, 118,3 fm. Svalir, sér lóð. sér þvottah. Full-
gerð sameign. Góður bílskúr frágenginn. Húsnæðislán. kr. 5 millj. til
40 ára.
Glæsileg sérhæð við Stigahlíð
nýlega endurbyggð. Tvöf. stofa, 3 svefnherb. Forstofuherb m. snyrt-
ingu. Góður bílskúr, 28 fm. Rúmg. föndur- og geymsluherb. í kj. Þribýis-
hús. Skipti mögul. á 90-100 fm nýl. íb. miðsvæðis í borginni.
Við sjóinn á Nesinu
einbýlishús hæð og rishæð m. 5 herb. íb. Ennfremur sérbyggður bílskúr
31,5 fm. Margskonar hagkvæm eignaskipti möguleg.
• • •
Nokkrar 2ja og 3ja herb.
ódýrar íb. í gamla bænum.
Opið á laugardaginn.
AIMENNA
FASTEIGNtSALAW
LAUGAvÉGTÍ8SÍMAR2n5Ö^21370
vallarmun sem er á aðferðum frá
hagfræðilegu sjónarmiði, þ.e. hvort
beitt sé beinni skömmtun eða hvort
verðmyndunarkerfið og þar með
markaðurinn fái að ráða ferðinni.
Jafnframt ijallar Gylfi um hin ýmsu
áhrif mismunandi aðgerða og að-
ferða við fiskveiðistjórn á fiskistofna
og hagkvæmni veiða. Eins og áður
segir er þessi kafli með fræðilegu
sniði. Ekki er unnt að merkja neina
ákveðna skoðun höfundar fyrir utan
að hann telur beitingu skatta og
styrkja til að stjórna sókn í einstakar
tegundir afar vandasama sökum
skorts á þekkingu á mörgum atrið-
um.
í umíjöllun um alþjóðasamninga
um fiskveiðar kemur Gylfi víða við.
Fjallað er um Alþjóðahafrannsókna-
ráðið, Alþjóðahvalveiðiráðið, Norð-
austur-Atlantshafs fiskveiðinefnd-
ina, Norðvestur-Atlantshafs fisk-
veiðistofnunina og Matvæla- og land-
búnaðarstofnun Sameinuðu þjóð-
anna. Gerð er grein fyrir aðdraganda
þessara samninga, hlutverki þeirra
og starfsemi vegna þeirra.
í næstsíðasta kafla bókarinnar
fjallar Gylfi um fiskveiðilögsöguna
og þróun hennar allt frá þjóðveldis-
tímum. Hér fjallar Gylfi um aðdrag-
anda breytinga á fiskveiðilögsög-
unni, hvernig þeim var komið til leið-
ar og þýðingu þeirra fyrir þjóðina.
Þannig má segja að umfjöllunin hefj-
ist á kröfu Noregskonunga til yfir-
ráða á hafsvæðinu frá Shetlandseyj-
um, Færeyjum, íslandi og Græniandi
árið 1723. Fjallað er m.a. um land-
grunnslögin frá 1937, og þorska-
stríðin þijú sem tengdust útfærslu
landhelginnar úr 4 í 12 mílur árið
1958, úr 12 í 50 mílur árið 1972 og
úr 50 í 200 mílur árið 1975. Kaflan-
um lýkur á umfjöllun um hafréttar-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna frá
1982.
Síðasti kaflmn íjallar um stjórn
fiskveiða við ísland. Greint er frá
upphafi og þróun fiskveiðistjórnar
hér á landi. Síðan er fjallað um fisk-
veiðistjóm Nýsjálendinga, en hún er
talin hafa borið góðan árangur. Því
næst fjallar Gylfi um gildandi reglur
pm fiskveiðistjórn og hugmyndir um
endurbætur. Töluverð umíjöllun er
um möguleikann á gjaldtöku fyrir
veiðiheimildir og þau átök sem nú
eiga sér stað um fiskveiðistjórnina
hér á landi.
I þessum kafla fer ekki á milli-
mála hveija skoðun Gylfi hefur á
núgildandi fyrirkomulagi fiskveiða
og hveijar endurbætur séu nauðsyn-
legar. Það er þó mat Gylfa að núgild-
andi kvótakerfi ......til stjórnar á
fiskveiðum við ísland, ..., er eflaust
betur til þess fallið að ná þeim ár-
angri sem að er stefnt, en kerfið, sem
það leysti af hólmi, „skrapdagakerf-
ið”, að ekki sé talað um þær fijálsu
fiskveiðar, sem ríkjandi voru áður
en „skrapdagakerfið” var tekið upp.”
(bls. 135-136). Gylfi efast þó um að
kvótakerfið í uúverandi mynd muni
leiða til þeirrar niðurstöðu að heimil-
aður afli verði veiddur með sem
minnstum tilkostnaði. Að auki telur
hann að núverandi skipan fiskveiði-
stjórnarinnar hafi „ .. .alvarlegt
þjóðfélagslegt misrétti í för með sér,
. ..” (bls. 140).
Þær endurbætur sem höfundur
telur að gera eigi á kvótakerfinu í
núverandi mynd felast í álagningu
veiðigjalds. Þetta þýðir að ókeypis
úthlutun veiðiheimilda verði afiögð
og þess í stað greiði útgerðarmenn
leigu af úthlutuðum veiðiheimildum.
Þessi endurbót hafi í för með sér
„ ... að flotinn minnki með hæfileg-
um hraða og þau skip verði eftir við
veiðar, sem hafi hagkvæmastan
rekstur, ...”. Jafnframt verði þá
virt „ .. . lagaákvæði um, að fiskim-
iðin séu sameign þjóðarinnar og að
úthlutun veiðiheimilda myndi ekki
eignarrétt eða óafturkallanlegt for-
ræði yfir veiðiheimildum.” (bls. 138).
Gylfi hrekur með sannfærandi
hætti fjórar helstu mótbárur sem
komið hafa_ fram gegn gjaldi fyrir
veiðileyfi. „í fyrsta lagi er því haldið
fram, að með innheimtu gjalds fyrir
veiðileyfi væru útvegsmenn og sjó-
menn sviptir hefðbundum rétti til
þess að stunda atvinnuveg sinn. í
öðru lagi er talið, að með þessu
móti yrði sjávarútvegurinn skatt-
lagður umft'am aðra atvinnuvegi. í
þriðja lagi er sagt, að með þessu
móti yrðu sérstakar byrðar lagðar á
dreifbýli og efnt til varhugaverðrar
byggðaröskunar. Og í fjórða lagi er
sagt, að gjald fyrir veiðileyfi tíðkist
hvergi.” (bls. 143).
Að mínu mati á rit Gylfa erindi
til ailra þeirra sem áhugasamir eru
um málefni sjávarútvegsins og fisk-
veiðistjórn. Jafnframt ættu þeir að
tiyggja sér eintak sem vilja fræðast
um þau átök sem eiga sér stað varð-
andi fiskveiðistjórn og virkni lagaá-
kvæða um sameign þjóðarinnar á
fiskimiðunum. Ritið er og aðgengi-
legt sem fyrsta kennslubók í grund-
vallaratriðum fiskihagfræðinnar.
AR OG EILIFÐ
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
TALAÐ INN í DIMMAN DAL
FRÁ LJÓSSINS VELDI. 148 bls.
Pétur Magnússon. Reykjavík,
1991.
Hér eru birt boð og bréf frá fólki
sem farið er yfir um. Sumt er nafn-
kennt, annað ekki. Meðal bréfritara
er Roosevelt Bandaríkjaforseti. Upp-
lýst er að hann sé sami maðurinn
og Úlfljótur á Úlfljótsvatni, sá sem
Úlfljótslög eru við kennd. Hann hafi
sem s'agt endurfæðst til forystuhlut-
verks þess sem hann löngu síðar
gegndi i voldugasta ríki veraldar.
Nú er hann að búa sig undir næstu
jarðvist. »Líklegast lendi ég á
Spáni.«
Fleiri frægðarpersónur koma hér
við sögu en einnig óþekkt fólk. Og
það er síður en svo jarðbundið. Hug-
urinn er miklu fremur bundinn við
ríki ljóssins þangað sem það nú er
flutt: »í gyllingasal ljósvakans eru
margir menn og englar til þess
kjörnir að gylla línurnar sem liggja
inn í þroskahleðslur mannssálarinn-
ar.«
Þetta er mikil mælskubók. Mynd-
ir og líkingar eru óþrjótandi og þó
allt einhvern veginn eftir sömu rás-
inni. Orðalag er víða háfleygt og
ekki sem auðveldast til skilnings
fyrir réttan og sléttan meðallesanda,
t.d.: »Formið er hugsun hins guðum-
dregna bands sem er í hafblysi sálar-
kenndanna.« Auðskildara er þetta
þó íjarlægt sé: »Frumstæðar verur
byggja hvern einasta hnött og sál-
hleðslur þeytast út frá.hverri sál sem
hnettina byggja og þess vegna hafa
legur stjamanna áhrif á flóð og ijöru
Sveinbjörg Sveinsdóttir
myndast er hinir hugsandi hvílast í
hugsun.«
Höfundur tekur fram í formála
að efni bókarinnar beri »að þakka
Sveinbjörgu Sveinsdóttur og með-
hjálpurum hennar«.
Fleira verður ekki tilfært hér úr
bók þessari. Hvort þetta ber að
flokka sem trúarrit eða dulspekirit
eða hvort tveggja - það verða þeir
um að dæma sem vit hafa á. Þó
sagt sé að efnið sé til komið gegnum
miðil eru þeim þætti málanna lítil
skil gerð. Langmest er útmáluð hug-
ljómun sú sem framliðinn upplifir
þegar yfir um er komið.
Hvað sem öðru líður eru víða til-
þrif í stíl þessarar bókar. En þar
koma líka fyrir ótal orð og hugtök
sem svífa hátt ofar hversdagslegum
þankagangi. Skilningurinn verður
þá að taka á sínurn stóra ef hann á
ekki að missa af samhenginu.