Morgunblaðið - 14.11.1991, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NOVEMBER 1991
Frelsi og ábyrgð
eftir Helgu
Sigurjónsdóttur
Hvað er að gerast í íslensku þjóð-
félagi? Hvernig stendur á því að
nú falla fleiri unglingar fyrir eigin
hendi en þeir sem látast í umferðar-
slysum og er sú tala þó óhugnan-
lega há? Þettá eru viðamiklar
spurningar sem ég mun að sjálf-
sögðu ekki svara til neinnar hlítar
í stuttri blaðagrein. Mig langar
samt til að leggja orð í belg í til-
efni af þeirri umræðu sem er nú
að hefjast um málið og minnast lítil-
lega á þátt skólans í umönnun barna
og unglinga.
Sjálfsvíg unglinga eru ekki ný
af nálinni og sem námsráðgjafi í
framhaldsskóla í bráðum 10 ár hef
ég kynnst og haft afskipti af all-
mörgum unglingum sem hafa reyna
að taka eigið líf en verið forðað frá
því, oft á síðustu stundu. í flestum
tilvikum hefur verið um að ræða
svokallað unglingaþunglyndi sem
herjar á suma unglinga um stundar-
sakir og stafar af óþekktum orsök-
um. Þunglyndi af þessum toga
læknast nær alltaf en getur varað
í marga mánuði og allt upp í ár eða
meira. Með réttri hjálp ná þessir
unglingar yfirleitt fullri heilsu. Rétt
er að taka fram að aðeins fáir þeirra
unglinga sem eru þunglyndir reyna
sjálfsvíg.
Ungviði í hættu
Þegar ungviðinu liður illa og er
í hættu statt hljóta þeir sem bera
ábyrgð á velferð þess að staldra við
og aðgæta aðstæður og uppvaxtar-
skilyrði. A Islandi er víðast hvar
vel búið að börnum og unglingum
hvað varðar húsbúnað, fæði og
klæði. Ytri ramminn um líf þeirra
í skólanum er einnig góður. Þau
hafa úr mörgum og fallegum bókum
„Ég held að nú sé kom-
inn tími endurskoðunar
og uppgjörs við margar
þær svokölluðu nýjung-
ar í uppeldis- og mennt-
amálum sem liggja
einkum til grundvallar
kennslu og uppeldi á
Islandi nú á dögum. Það
á við bæði um heimili
og skóla. Foreldrar og
kennarar þurfa að
vinna saman að þeirri
endurskoðun sem
jafningjar og sam-
starfsmenn.”
að velja og kennslutæki eru ekki
skorin við nögl. En málið er ekki
jafnljóst þegar kemur að því sem
snýr inn á við. Allir vita að við-
kvæmur gróður þarfnast næringar
og hlýju eigi hann að dafna og
þroskast. Og því meiri hlýju og
kærleika þeim mun viðkvæmari
sem hann er. Fátt er eins brothætt
og þurfandi fyrir alúð og elsku og
mannanna börn. Þessa elsku fá þau
fyrst og fremst á heimilum sínum,
hjá góðum foreldrum, öfum og
ömmum. Engin stofnun kemur í
stað þeirra þó að góðar séu.
Skólinn er sú stofnun sem sinnir
nokkrum hluta uppeldis og umönn-
unar barna og unglinga. Þó að skól-
ar hafi mildast mikið og mýkst á
undanförnum 10-15 árum eru þeir
samt enn fremur ópersónulegir og
fjarlægir og lokaðir foreldrum. A
grunnskólastigi eru tengsl og sam-
starf heimilis og skóla samt víða
mjög góð en hið sama verður ekki
sagt um framhaldsskólann. Þar eru
unglingar á aldrinum 16 ára til tví-
tugs og eru því lögum samkvæmt
sjálfráða og lausir undan margs
konar valdi, þar á meðal valdi for-
eldra. íslenski framhaldsskólinn,
með annir sínar og áfanga, er ákaf-
lega ópersónuleg stofnun sem er
ekki sniðin að sálrænum og félags-
[egum þörfum viðkvæmra unglinga.
í þessum skóla er erfitt að mynda
tengsl við nokkurn mann. Kennarar
koma og fara, kenna eina önn og
eru svo horfnir. Nýr hópur, nýir
félagar, nýir kennarar tvisvar á ári
og enginn „á” mann. Ungum nem-
anda við þessar aðstæður finnst
kannski að öllum standi á sama um
sig, hann er ekki einu sinni skamm-
aður svolítið fyrir að mæta illa eða
læra ekki heima. „Þetta er þitt
mál, þú ert að læra fyrir þig en
ekki fyrir mig,” segja sumir kennar-
ar. En sannleikurinn er sá að mörg-
um kennurum líður líka illa við
þessar aðstæður og vildu fegnir ná
að mynda frekari tengsl við nem-
endur sína. En þannig er kerfið,
fast og skorðað og lítt breytanlegt.
Hvers konar frelsi?
En þessi skóli er líka lokaður
foreldrum og tíðarandinn segir að
unglingarnir eigi að bera ábyrgð á
sér sjálfir eftir 16 ára aldur, einnig
á námi sínu og skólagöngu. Foreldr-
ar og kennarar vita betur. Þeir vita
að 16 ára unglingar eru ekki fáerir
um að standa einir og óstuddir í
námi. Allt ungviði þarfnast festu
og reglu í uppeldi, unglingar og
ungt fólk þarfnast styrkrar handar
foreldra og annarra fullorðinna
fram undir tvítugsaldur. Uppvaxt-
arskeið mannsins er langt og hann
verður að fá tíma og skjól fyrir
hretviðrum lífsins meðan hann er
ungur og viðkvæmur. Þegar ég var
á unglingsaldri kom engum til hug-
ar annað en að unglingar í fram-
haldsnámi þyrftu alla þá uppörvun,
stuðning og aðhald sem skólinn
krefst. Maður gat gengið að vísum
stuðningi hinna fullorðnu heima
fyrir og aðhaldi og festu af hálfu
skólans.
Fyrir um 20 árum fóru frelsis-
kröfur ungs fólks um lönd og álf-
ur. Þá var mörgu gömlu og feysknu
kastað á eldinn. Eldri kynslóðin
kom til móts við þessar kröfur að
mörgu leyti, bæði heimili og skólar.
En á miklum breytingatímum er
ekki allt gull sem glóir. Var ekki
einhveijum þeim verðmætum varp-
að á bálið sem ekki mega missa
sín? Eða getur verið að ábyrgðar-
lausir menn hafi gripið frelsiskröf-
urnar fegins hendi til að firra sjálfa
sig ábyrgð? Er margumrætt frelsi
Helga Sigurjónsdóttir
unglinga að snúast upp í martröð
firringar og ábyrgðarleysis þar sem
hver vísar á annan og enginn er
ábyrgur. Það er erfítt að ala upp
börn, oft er auðveldara að láta und-
an duttlungum þeirra ög barnaleg-
um kröfum en standa staðfastur
og ábyrgur. Allar stofnanir sem
sinna börnum og unlingum verða
að vita þetta og skilja, kunna að
veita aðhald án þess að meiða og
veita frelsi og svigrúm án þess að
það fari úr böndunum.
Nú er ég ekki að segja að gamli
skólinn hafí verið sérstaklega vin-
samlegur börnum og unglingum,
síður en svo. En gamli skólinn hafði
ákveðnar reglur og ákveðin mörk
sem allir þekktu og skildu og for-
eldrar voru þeim sammála. En þessi
gamli skóli var einnig fjarlægur og
Markús Örn sagði í samtali við
Morgunblaðið að ljóst væri að bið
yrði á því að ráðist yrði í byggingu
flugstöðvar á Reykjavíkurflugvelli
að frumkvæði ríkisvaldsins vegna
fjárskorts.
kaldur, hann ræktaði ekki tilfinn-
ingar ungmennanna, hann tróð út
höfuð þeirra með visku og þekkingu
rétt eins og sá nýi gerir en skildi
hjartað eftir úti í kuldanum. Nýr
skóli er ekki endilega betri en gam-
all skóli. Skóli verður því aðeins
góður að inn í hann verði veitt þeirri
hlýju sem kemur frá mannlegu
hjarta. Þeirri hlýju og þeim kær-
leika sem gefur öllu líf. Allar um-
bætur í skólum og öðrum stofn-
unum sem ekki hvíla á þessum
grunni eru dæmdar til þess að mis-
takast. Þær verða sem „hljómandi
málmur og hvellandi bjalla”, dýr
og vönduð kennslutæki breyta þar
engu um.
Abyrgðin er okkar
Ég held að nú sé kominn tími
endurskoðunar og uppgjörs við
margar þær svokölluðu nýjungar í
uppeldis- og menntamálum sem
liggja einkum til grundvallar
kennslu og uppeldi á íslandi nú á
dögum. Það á við bæði um heimili
og skóla. Foreldrar og kennarar
þurfa að vinna saman að þeirri
endurskoðun sem jafningjar og
samstarfsmenn. Hvorir tveggja eru
að vinna að heill og velferð ungrar
kynslóðar þar sem hvert og eitt líf
er svo óendanlega dýrmætt. Um
árabil hefur skólakerfið sjálft skip-
að mest rúm í endurbótum á skólum
en nú er því skeiði lokið og ekki
Iengur til neins að sópa ruslinu
undir teppið. Slíkar blekkingar
hæfa ekki fullorðnu fólki sem er
tilbúið að axla þá ábyrgð sem því
fylgir að vera maður.
Höfundur er kennari og
námsráðgjafi í Menntaskókinum í
Kópavogi.
„Þetta er hins vegar orðið tölu-
vert áhyggjuefni manna sem stunda
þessa starfsemi. Flugleiðir hafa t.d.
orðið að byggja hvað eftir annað
við þá bágbornu aðstöðu sem þeir
hafa fyrir afgreiðslu innanlands-
flugsins á vestursvæði flugvallarins
og þar eru ekki neinar líkur á að
hægt verði að gera varanlegar ráð-
stafanir sem fullnægjandi þyki,”
sagði Markús Örn.
„Önnur flugfélög eru svo þegar
komin til sögu í innanlandsflugi og
vafalaust má gera ráð fyrir að þau
verði fleiri í framtíðinni. Sumir þess-
ir rekstraraðilar eru með afdrep í
skúrbyggingum á flugvellinum en
auðvitað væri eðlilegra og æskilegra
að hafa þetta allt undir einu þaki.
Eg tel að það gæti verið vænlegt
að ’stofna félag þeirra sem nálægt
flugrekstrinum eiga eftir að koma
til að hrinda byggingu flugstöðvar
af stað ásamt Reykjavíkurborg og
síðan mætti væntanlega virkja ríkið
til samstarfs,” sagði Markús Örn.
Til er skipulag af flugvellinum
þar sem gert er ráð fyrir byggingu
flugstöðvar fyrir neðan Öskjuhlíðina
í námunda við flugskýli og aðstöðu
Landhelgisgæslunnar og nokkuð
fullnægjandi teikningar liggja þegar
fyrir, að sögn Markúsar Arnar.
„Eg tel það afar brýnt fyrir höf-
uðborgina að hér verði komið upp
sómasamlegri flugstöð á aðalinnan-
landsflugvelli landsins sem þjónað
geti fólki utan af landi sem á erindi
til Reykjavíkur, höfuðborgarbúum
sem ferðast innanlands og erlendum
ferðamönnum sem sækja okkur
heim,” sagði Markús Örn að lokum.
SIEMENS-gæð/
ÓDÝRAR OG GÓÐAR
ELDAVÉLAR FRÁ SIEMENS
Þessar sívinsælu eldavélar frá SIEMENS eru einfaldar í
notkun, traustar, endingargóðar og á mjög góðu verði.
HS 24020 HN 26020
■ Breidd 60 sm ■ Breidd 50 sm
■ Grill ■ Grill
■ 4 hellur . ■ 4 hellur
■ Geymsluskúffa ■ Geymsluskúffa
Munið umboðsmenn okkar víðs vegar um landið
Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs.
Borgarnes: Glitnir.
Borgarfjöröur: Rafstofan Hvitárskála.
Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir.
Grundarfjörður: Guðni Hallgrímsson.
Stykkishólmur: Skipavik
Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar.
ísafjörður: Póllinn hf.
Blönduós: Hjörleifur Júlíusson.
Sauðárkrókur: Rafsjá hf.
Siglufjörður: Torgið hf.
Akureyri: Sir hf.
Húsavík: Öryggi sf.
Þórshöfn: Norðurraf.
Neskaupstaður: Rafalda hf.
Reyðarfjörður: Rafnet.
Egilsstaðir: Raftækjav. Sveins Guðmundss
Breiðdalsvik: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss.
Höfn i Hornarfirði: Kristall
Vestmannaeyjar: Tróverk hf.
Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga.
Selfoss: Árvirkinn hf.
Garður: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar.
Keflavik: Ljósboginn.
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • S(MI 28300
KÚREKASTÍGVÉL
fÆ LAUGAVEGI 95
SKÓR Á ALLA FJÖLSKYLDUNA...
Innanlandsflug frá Reykjavík:
Brýnt að koma upp
sómasamlegri flugstöð
- segir Markús Orn Antonsson borgar-
stjóri, sem hyggst kanna möguleika á stofn-
un félagsskapar til að hrinda málinu af stað
MARKÚS Örn Antonsson borgarstjóri hyggst kanna mögulcikana á
því að stofnaður verði félagsskapur til að hrinda af stað byggingu flug-
stöðvar á Reykjavíkurflugvelli. Um yrði að ræða félagsskap þeirra
aðila sem síðar mynda stunda flugafgreiðslu, rekstur bílaleigu, veitinga-
starfsemi, bankaþjónustu o.fl. í byggingunni auk Reykjavíkurborgar
og ríkis. Að sögn Hauks Haukssonar varaflugmálastjóra er flugstöð í
Reykjavík skilgreind sem sérverkefni og hún er ekki í tillögu að fjögurra
ára flugmálaáætlun, 1992 til 1995, sem nú liggur fyrir Alþingi.