Morgunblaðið - 14.11.1991, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
25
Gyrðir Elíasson
Ljóðabók og
smásögur eftir
Gyrði Elíasson
ÚT ERU komnar hjá Máli og
menningu tvær bækur eftir
Gyrði Elíasson, smásagnasafnið
Heykvísl og gúmmískór og ljóða-
bókin Vetraráform um sumar-
ferðalag.
í kynningu útgefanda segir: „í
bókinni Heykvísl og gúmmískór er
21 smásaga, mörg hver örstutt,
undarleg ævintýri þar sem segir af
ketti á heitu þaki í regnþorpi, gam-
alli konu sem deyr og flýr burt í
samfylgd fugla, presti sem safnar
undarlegum blöðum, dreng sem
drukknaði á Snæfellsnesi, hrúti sem
var ónotalegur með víni og stang-
aði fólk, fyrsta meðaladraugi á Is-
landi svo eitthvað sé nefnt. Bókin
sem er 89 blaðsíður er prýdd níu
tréristum eftir Elías B. Halldórsson.
Vetraráform um sumarferðalag
geymir á hálfan sjöunda tug nýrra
kvæða. Bókin er 73 blaðsíður. Elías
B. Halldórsson gerði kápumynd og
eina mynd í bókinni.”
Bækumar voru báðar prentaðar
hjá Prentsmiðjunni Odda hf.
■ SÝNING á myndum fvars A.
Einarssonar verður opnuð í Hlað-
varpanum laugardaginn 16. nóv-
ember kl. 14.00. ívar fæddist í
Reykjavík 11. nóvember árið 1901
og ólst upp á ívarsseli við Vestur-
götu. Eftir andlát hans árið 1985
fundust myndir hans í gömlu koff-
orti. Meðal annars eru þar myndir
af kunnum andlitum og horfnum
húsum og einnig sýna þær atvinnu-
hætti fyrri tíma. A opnuninni leika
ungir listamenn frá tónlistarskóla
Suzuki á fiðlu og selló og Steinunn
Sveinbjarnardóttir syngur lög eft-
ir Pétur Pálsson en hann var syst-
ursonur ívars. Guðmundur Hall-
varðsson leikur undir á gítar. Sýn-
ingin er sölusýning og stendur frá
16.-30. nóvember. Hún ber heitið
Gamlir dagar og eru ailir velkomn-
ir.
ERT ÞÚ VIÐBÚINN AÐ FÁST VIÐ
SNJÓINN OG HÁLKUNA í VETUR?
Það verður leikur einn ef þú ekur
LANCER
IVÍEÐ SÍTENGT ALDRIF 4x4
Meiri veghæð: Felgur 14" - Hjólbarðar 175/70
Meiri orka: 1800 cm3 hreyfill með fjölinnsprautun
Þriggja ára ábyrgð - Verð kr. 1.286.400
HEKIA
LAUGAVEG1174
SÍMI695500
A
HVARFAKUTUR MITSUBISHI
MINNIMENGUN MOTORS
Blombero
KÆ L I S K A PAR
Hér sést hluti af úrvalinu,
sem við bjóðum af
BL0MBERG
kæliskápunum.
BL0MBERG er vestur-
evrópsk gæðaframleiðsla
á verði, sem fáir geta
keppt við.
Biðjið um nýja íslenska
60 síðna litprentaða
BL0MBERG
heimilistækjabæklinginn.
KS180
Kælir
Mál:Hl09B50D58 cm
Einar Farestveit &Co.hf.
Borgartúni 28 S 622901 og 622900