Morgunblaðið - 14.11.1991, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
Lögfræðingur Maxwell-fjölskyldumiar;
Blaðakóngurinn
lést af slysförum
EKKI er ólíklegt, að breski fjölmiðlakóngurinn Robert Maxwell
hafi svamlað í sjónum í nokkrar klukkustundir eftir að hann féll
fyrir borð á snekkju sinni við Kanaríeyjar, líklega af slysförum.
Er þetta haft eftir lögfræðingi Maxwell-fjölskyldunnar á Spáni.
Spánski lögfræðingurinn, Julio hefði Maxwell látist af slysförum
Hernandez Claverie, sagði í viðtali
við breska útvarpsstöð, að niður-
stöður lækna væru þær, að líklega
Sendifulltrúa
Iraks vísað
frá Svíþjóð
Stokkhólnii. Frá Erik Liden, fréttaritara
Morgunblaðsins.
STAÐGENGLI sendiherra íraks í
Svíþjóð, Mohammad Said Hani
sendifulltrúa, var vísað úr landi í
gær fyrir að hafa njósnað um
íraska og kúrdíska innflytjendur.
Hani er sjötti íraski sendiráðsmað-
urinn sem vísað hefur verið frá Sví-
þjóð á árinu. Fjórum var gert að
fara úr landinu í mars fyrir njósnir
um innflytjendur og áform um
hermdarverk. Sá fimmti varð að fara
þaðan eftir að hafa beitt skotvopni
er Kúrdar reyndu að ráðast inn í
íraska sendiráðið í apríl.
Þegar Carl Bildt forsætisráðherra
var í stjórnarandstöðu krafðist hann
þess að sendiráðinu yrði lokað. Flest
bendir nú til að svo verði því nú eru
aðeins tveir starfsmenn eftir í sendi-
ráðinu.
þótt ekki væri útilokað, að hann
hefði verið myrtur. Sagði hann
ekki koma til greina, að Maxweli
hefði sjálfur stytt sér aldur enda
hefðu skipveijar á snekkjunni bor-
ið, að vel hefði legið á honum
áður en hann hvarf. Þjónustu-
stúlka frá Danmörku er í áhöfn
snekkjunnar og segir hún í viðtali
við danska blaðið Jyllandsposten
að öllum skipveijum, alls ellefu
manns, sé stranglega bannað að
tjá sig við fjölmiðla um málið.
Erfið staða Maxweil-samsteyp-
unnar og ásakanir um tengsl hans
við ísraelsku leyniþjónustuna,
Mossad, hafa kynt undir alls kyns
sögum um dauða hans en verði
úrskurðað, að hann hafi dáið af
slysförum, verða tryggingafélög
að greiða fjölskyldu hans rúmlega
tvo milljarða ÍSK í bætur. Fengu
tryggingarfélögin kunnan lækni
og meinafræðing til að skoða líkið
og er álits hans beðið.
Reuter
Astmögur Frakka kvaddur
Syrgjendur bera skuggamynd af Yves Montand og er myndin gerð
úr blómum. Leikarinn og söngvarinn heimskunni, sem lést á laugar-
dag, var borinn til grafar í gær í París og var fjölmenni við göturnar
þar sem líkfylgdin fór um. Montand var sjötugur er hann lést.
Framkvæmdastjóri SÞ:
Egypti
líklegastur
Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
ÞRÍR Afríkumenn urðu efstir í
skoðanakönnun, sem gerð var á
meðal fastafulltrúa hjá Samein-
uðu þjóðunum á þriðjudag, um
hver skyldi taka við stöðu fram-
kvæmdastjóra stofnunarinnar af
Javier Perez de Cuellar.
Bernard Chidzero, fjármálaráð-
herra Zimbabwe, fékk flest atkvæði
í skoðanakönnuninni, eða 11. Næstur
kom Boutros Boutros Ghali, aðstoð-
arforsætisráðherra Egyptalands,
með 10 atkvæði og Kenneth Dadzie
frá Ghana, framkvæmdastjóri Ráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna um við-
skipti og þróunarmál (UNCTAD),
með sex atkvæði.
Ríkin fimm, sem eiga fastaaðild
að öryggisráði Sameinuðu þjóðanna,
geta beitt neitunarvaldi gegn fram-
bjóðendum í stöðuna en samkvæmt
könnuninni hafnar ekkert þeirra
þremur efstu mönnunum.
Noregur:
Ríkisstjómin o g 10 bank-
ar til bjargar laxeldinu
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins.
ERLENT
NORSKA sljórnin og 10 bankar
náðu seint í fyrrakvöld samkom-
ulagi um aðgerðir til bjargar
norsku laxeldi og sagði Oddrunn
Pettersen sjávarútvegsráðherra
ísland eitt tryggir ekki
viðhald hvíta kynstofnsins
- segir aðstoðarmaður Davids Dukes, frambjóðanda I Louisiana
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara
Morgunblaðsins.
DAVID Duke, ríkisstjórafram-
bjóðandi í Louisiana, hefur þrá-
faldlega neitað því í kosninga-
baráttu sinni að hann aðhyllist
enn málstað nasista og Ku
Klux-Klan-hreyfingarinnar.
Hann heldur því fram að hann
sé breyttur maður og þakkar
það trú sinni. Andstæðingar
Dukes og ýmsir gagnrýnendur
halda því fram að grunnt sé á
hans gömlu skoðunum og undir
grímunni, sem hann hafi sett
upp til að laða að kjósendur,
leynist nasismi, kynþáttafor-
dómar og hatur. Duke hefur
sagt að hvíti kynstofninni eigi
aðeins eitt ómengað vígi eftir:
Island. Þessi orð lét hann falla
fyrir tveimur árum. Því hefði
mátt búast við því í ljósi nýfeng-
ins umburðarlyndis Dukes að
reynt yrði að draga úr þegar
Morgunblaðið grennslaðist fyr-
ir um það hvað lægi að baki
þessum orðum í kosningaher-
búðum hans. En það var öðru
nær.
Ríkisstjórakosningarnar verða
haldnar á laugardag og sagði
blaðafulltrúi Dukes að frambjóð-
andinn hefði ekki tíma til að veita
fjölmiðlum utan Louisiana áheyrn
á lokaspretti kosningabaráttunn-
ar. Fulltrúinn vísaði til Howies
Farrells, sem hefur skipulagningu
kosningabaráttunnar með hönd-
um. Hann var spurður hvernig
túlka bæri orð Dukes: „Viðhald
hvíta kynstofnsins í heiminum er
í hættu og það er ekki nóg að
hafa aðeins eitt land hvítra á
hnettinum til að trvggja viðhald
hans,” sagði Farrell. „Eftir fímm
ár verða Bandaríkin orðin ríki þar
sem hvítir eru í minnihluta.” Hann
sagði að þessa þróun mætti rekja
til bæði kynblöndunar hvítra og
David Duke í hópi stuðningsmanna sinna.
fólks af öðrum kynþáttum og fijó-
semi minnihlutahópa og bæri að
harma hana.
Duke lýsti því yfír á árum áður
að hann vildi ekki sitja auðum
höndum meðan hvíti kynstofninn
hyrfí. „Við höfum ekki áætlun um
að senda [svarta] aftur til Afr-
íku,” sagði Duke í viðtali við blað-
ið Baton Rouge State-Times árið
1985. „Okkur fínnst að það mætti
vera hugsjón, ef til vill ófram-
kvæmanleg hugsjón, að skilja
kynþættina landfræðilega að,
annáð hvort innan þessa lands eða
milli heimsálfa.” Um gyðinga
sagði hann árið 1986 að þeir
hefðu „sýkst og þegar smitað
okkur af þeim sjúkdómi. Hann er
kallaður kynblöndun og þeir eru
að ná miklum árangri.”
Farrell var spurður hvort Duke
hygðist á einhvern hátt sporna
við þeirri þróun sem hann heldur
fram að sé að verða í Banda-
ríkjunum. „Það er ekki á okkar
valdi að gera neitt,” var svarið.
Farrell kvaðst telja að íslendingar
reyndu vísvitandi að forðast „kyn-
blöndun”. „Okkur skilst að inn-
flytjendalög á íslandi séu mjög
ströng og til þess gerð að halda
öðrum kynþáttum frá landinu,”
sagði hann og bætti við: „Okkur
skilst að íslendingar vilji þannig
tryggja viðhald sitL”
Hugmyndir um ísland á borð
við þessar eru ekki nýjar af nál-
inni. Þór Whitehead segir í bók
sinni íslandsævintýri Himmlers
að ísland hafi verið helgur staður
samkvæmt hugmyndafræði nas-
ista. „[íslendingar] höfðu varð-
veitt sitt „hreina”, norræna blóð,
meðan germanskir frændur þeirra
höfðu að nokkru spillt kynstofni
sínum og menningu með sambýli
við óæðri kynþætti eins og Gyð-
inga og Slafa,” skrifar Þór þegar
hann lýsir hugmyndaheimi
Heinrichs Himmlers, ríkisforingja
SS. Þessar hugmyndir eiga sér
enn greinilega fótfestu á ofan-
verðri tuttugustu öldinni.
--------------'---------------------
að það ætti að afstýra gjaldþroti
flestra eldisstöðva landsins.
Ríkisstjórnin samþykkti að veita
400 milljóna króna lán, jafnvirði
3,7 milljarða ÍSK, til þess að stofna
ný sölusamtök laxeldisins. Yrði það
megin viðfangsefni þess fyrst um
sinn að selja 32.000 tonna fram-
leiðslu sem Norðmenn eiga nú í
frystigeymslum. Til þess að raska
ekki mörkuðum í Vestur-Evrópu
og kalla ekki yfir sig refsitolla af
hálfu Evrópubandalagsins (EB)
verður frysti laxinn seldur til Sovét-
ríkjanna og Austur-Evrópu fyrir
slikk. Bjarne Myrstad, talsmaður
sjávarútvegsráðuneytisins í Ósló,
sagði að hluti birgðanna kynni
reyndar að verða gefinn sem mat-
vælaaðstoð.
Bankarnir samþykktu að leggja
fram 335 milljónir norskra króna,
jafnvirði 3ja milljarða ÍSK, til bjarg-
ar laxeldinu. Verður fjárhæðinni
nær eingöngu varið til að borga
skuldir Sölusamtaka laxeldisins við
einstakar laxeldisstöðvar. Verða
sölusamtökin formlega lýst gjald-
þrota.
Norska stjórnin beitti sér fyrir
aðgerðum til bjargar fískeldinu til
þess að koma í veg fyrir að allt að
15.000 manns, sem hafa framfæri
sitt af greininni, misstu vinnuna.
Ennfremur er það mat ríkis-
stjórnarinnar að framtíðarhorfur
fiskeldis séu góðar. Oddrunn Pett-
ersen sagðist þess fullviss að að-
stoðin við fiskeldið yrði ekki til
þess að EB setti refsitolla á nor-
skan lax en Norðmenn hafa verið
með 80% laxsölunnar á markaði
EB í sínum höndum.
Indónesía:
Skotárás hersins á mót-
mælasöneru fordæmd
Jakörtu. Reuter. ^ ^
RÍKISSTJÓRN Indónesíu sagði í gær að opinber rannsókn færi fram
á skotárás hersins á hóp fólks á Austur-Tímor í fyrradag en talið er
að þá hafi allt að 100 óbreyttir borgarar beðið bana. Atburðirnir
hafa verið fordæmdir um heim allan.
Að sögn sjónai’votta tóku þús-
undir manna þátt í mótmælagöngu
í Dili, höfuðborg Austur-Tímor, í
fyrradag til þess að minnast þeirra
sem féllu í uppþotum á eynni fyrir
hálfum mánuði.
Mótmælti fólkið jafnframt yfir-
ráðum Indónesíumanna sem innlim-
uðu eyjuna árið 1976, en talið er
að um 200.000 manns hafi týnt lífí
í skæruhernaði eftir innlimunina.
Heimildir herma að hermenn
hafi skyndilega hafið skothríð á
kröfugönguna. Nokkrir útlendingar
sem fylgdust með mótmælunum
særðust og lumbruðu hermenn m.a.
á bandarískum blaðamanni. „Ég sá
ijölda líka á götunni og hermennirn-
ir héldu áfram skothríðinni meðan
einhver stóð uppi,” sagði blaðamað-
urinn en göngumenn tvístruðust í
allar áttir er herinn lét til skarar
skifða.
Lífsförunautarins
leitað í siálfsalanum
The Daily Telegraph.
JAPANIR eru mjög hrifnir af alls konar tækjum og tólum og það
nýjasta á þeim vettvangi er „hjónabandsmiðlarinn” en hann gefur fólki
í makaleit upplýsingar um liklegan lífsförunaut. Er um að ræða nokk-
urs konar sjálfsala og segja má, að hann fari eins og eldur í sinu um
allt Japan.
Það eru ekki síst konurnar, sem
leita til sjálfsalans, en fyrir um 135
kr. lætur hann af hendi lítið plast-
hylki með miða innan í og eru þar
skráðar upplýsingar um karlmann,
sem vill kynnast góðri konu. Þar er
nafnið hans, símanúmer, mynd og
það, sem kann að ríða.baggamuninn;
á hvernig bíl hann ekur. Á bakhlið
miðans er stjörnuspá. Það kostar um
900 ÍSK að auglýsa í sjálfsalanum
og eru þá plasthylkin með upplýsing-
unum 10 talsins.
Mikil samkeppni er meðal fyrir-
tækja á þessum markaði og sum
stæra sig. af því að bjóða aðeins upp
á úrvalsmenn.