Morgunblaðið - 14.11.1991, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
31
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir ELINU PALMADOTTUR
Valdastólar rugga und-
ir einræðisherrum Afríku
Áhrifanna af breyttri Evrópu og viðhorfum stórveldanna er farið
að gæta í þriðja heiminum. Um miðbik Afríku eygja þjóðir, sem
búið liafa við einræði og einsflokksstjórnir, nú von um lýðræðis-
legri stjórnarhætti. Lok kalda stríðsins og fall Sovétríkjanna hafa
svipt einræðisherrana því vopni sínu að leika á kapphlaupið milli
stórveldanna, svo þeir geta ekki lengur treyst á hernaðarstuðning.
Hersveitir kommúnista eru víða horfnar og verndin með.
Nelson Mandela
Suður-Afríka:
Mandela
boðar
viðræður
Jóhannesarborg. Reuter.
NELSON Mandela, leiðtogi
blökkumanna í Suður-Afríku,
segir, að viðræður blökkumanna
og ríkisstjórnar hvítra manna
um nýja stjórnarskrá í landinu
verði um næstu mánaðamót.
Talsmenn stjórnvalda segja hins
vegar, að engar dagsetningar
hafi verið ákveðnar.
Mandela kom jafnt samheijum
sínum sem fulltrúum ríkisvaldsins
á óvart þegar hann tilkynnti, að
viðræðumar yrðu 29. og 30. nóv-
ember og segja þeir síðamefndu,
að tíminn hafi ekki verið ákveðinn
enn. Gill Marcus, talsmaður Af-
ríska þjóðarráðsins, sem Mandela
stjórnar, segir, að þessir dagar séu
líklegir en ekki endanlega afráðnir.
í viðræðunum verður rætt um
nýja stjórnarskrá fyrir aðskilnað-
arlausa Suður-Afríku og er einnig
vonast til, að þær geti bundið enda
á manndrápin og átökin milli
blökkumanna sjálfra. íhaldsflokk-
urinn og fleiri stjórnarandstöðu-
flokkar, sem hlynntir eru aðskiln-
aði kynþátta, ætla ekki að taka
þátt í viðræðunum.
Um leið sjá einræðisherrarnir
völd sín veikjast, enda sjá
þeir fram á minnkandi efnahagsað-
stoð frá iðnríkjunum, nema þeir
sýni einhveija lýðræðistilburði.
Afríkulöndin óttast það að gleym-
ast alveg nú þegar aðstoð velmeg-
andi ríkja beinist að Austur-Evr-
ópuþjóðunum. í þessum löndum í
Vestur- og Mið-Afríku er því mik-
ill órói og tímamót. Merki þess
mátti t.d. sjá í Zambíu þar sem
gömlu kempunni Kenneth Kaunda
hafði verið ýtt út í að leyfa lýðræð-
islegan þjóðfund og féll svo í eftirf-
arandi kosningum. Sama gildir í
Zaire, þar sem Mobutu Sese Seko
lét hafa eftir sér að ef hann hefði
bara ekki látið undan með þennan
þjóðfund, sem hófst 7. ágúst sl.,
þá væri hann ekki í þessu klandri.
I Benin, Gabon, Kongó, Togo, Ka-
merún og víðar er tekist á um lýð-
ræðislegri stjórnarhætti.
Ekki er langt síðan flestir ein-
ræðisherrarnir hefðu blásið á svona
kröfur, hrópað „uppreisn” og barið
hana niður með fangelsunum. En
nú hika margir þeirra, þótt ekki
láti þeir allir undan kröfunum.
Margir hafa þó rétt lýðræðinu litla
fingur, oft fyrir þrýsting frá lönd-
um eins og Frakklandi, til að fyrir-
gera ekki allri efnahagsaðstoð,
meðvitaðir um að þeir eru ekki
lengur forgangsverkefni á alþjóða-
vettvangi. Stjórnendur í Benin,
Kongo, Gabon, Mali, Niger, Togo
og Zaire hafa neyðst til að láta
undan kröfunum um þjóðfund.
Þótt Mobutu forseti yrði eftir
heils árs andstöðu með þeim fyrstu
með sinn 2000 manna þjóðfund í
Zaire þá leystist þingið upp í alls
hetjar uppreisn. I nágrannaríkinu
Kongó eru sovésku hersveitirnar
farnar heim, fólk hætt að nota
ávarpið félagi og virðist þarmeð
hafa gieymt öllum marxisma, eins
og kunnugur maður orðaði það við
mig þama suður frá. Síðan í júlí
eru fréttir ekki lengur ritskoðaðar
og hinn eini sanni verkamanna-
flokkur lagður niður. í febrúar
hófst þjóðfundur og boðaðar eru
kosningar til sveitarstjórna i janúar
1992, til þings í apríl og forseta-
kosningar í júní, hvernig sem það
verður. Forsetinn vill efia lýðræðið
í einsflokkskerfi.
Kúbumenn eru farnir heim frá
Angoia sem er skammt frá þessum
löndum. í Zaire kom raunar í ljós
að Bandaríkjamenn voru ekkert
uppveðraðir lengur að styðja Mob-
utu, þótt hann vildi ekki viðurkenna
það. Ef við höldum norður eftir
ströndinni, þá samþykkti Omar
Bongo forseti í Gabon nærri strax
lýðræðislegan þjóðfund 27. mars,
en tókst við lok hans 19. apríl að
halda með lagni öllum sínum völd-
um, sigri hrósandi yfir að hann
hefði verið einna fyrstur Afríkufor-
seta til þess að fallast á „nýja, lýð-
ræðislega fjölflokkaskipan”. Er sá
eini sem virðist hafa komið niður
á fæturna í slíkum átökum. En í
nágrannalandinu neitar Biya for-
seti í Kamerún alfarið að gefa kost
á þjóðfundi þótt hann boði kosning-
ar á sínum eigin kjörum. Hefur nú
endanlega slitnað upp úr viðræðum
og búist á hverri stundu við stjóm-
lausri uppreisn eins og í Zaire.
í Miðafríkulýðveldinu hefur
André Kolingba staðið í heilt ár
gegn kröfunum um lýðræðislegan
þjóðfund, kveðst frekar vilja fallast
á kosningar en þennan fjandans
þjóðfund. I Niger inni í landi neydd-
ist Ali Saibou, sem er tiltölulega
nýr í forsetastóli og ekki búinn að
festa sig almennilega í sessi, til að
gefa upp einsflokkskerfi sitt fyrir
einhvers konar þjóðfund. í Guineu
varð Lansana Conté, sem hafði
ekki trúað að hjá sér væri hættuleg
stjórnarandstaða, að láta undan
eftir mikinn útifund í Conacry, sem
hlaut stuðning frá nágrannaríkinu
Senegal. í Mali voru þegar komnar
fram kröfur um fjölflokkakerfi
sumarið 1990 og í janúar 1991 var
skipulagt fyrsta ailsherjarverkfall-
ið í landinu. En Moussan Trakoni
forseti tók þó ekki að gefa eftir
fyrr en í mars á þessu ári. Eyadema
hershöfðingi í Togo, sem stundum
er líkt við Hitler, kaus eftir mikil
átök í mars 1991 og þrýsting frá
Frökkum að lokum að leyfa þjóð-
fund. En Mathieu Kerekou í ná-
grannaríkinu Benin hafði ekkert
vitað út í hvað hann var að fara
þegar hann leyfði iýðræðislegan
þjóðfund í sínu landi. Hafði þó vit
á að leika leikinn til enda. Dæmið
frá Benin-hefur einmitt kennt ýms-
um forsetum öðrum sem á eftir
komu að slíkur þjóðfundur getur
verið þeim á borð við sjálfsmorð.
Þjóðfundur hefur semsagt reynst
góður fyrir almenning, en afleitur
fyrir einræðisherrana.
Af þessari upptalningu, sem ekki
er í fljótu bragði gott að átta sig
á,- má þó ráða hvernig ástandið er
á öllu svæðinu. í Afríku eru nú
yfir 600 milijónir manna og spáð
að eftir 20 ár verði íbúarnir um
milljarður. Afstaða Vesturveldanna
til Afríku virðist, eins og Atoine
Blanca, embættismaður hjá Sam-
einuðu þjóðunum, orðaði það, um
þessar mundir eins og farþegans á
fyrsta farrými sem segir: Það er
sprengja í flugvélinni, en það er
allt í lagi, hún er á túristaklassa.
BONUSVERD A HREINUETISTŒKJUH!!
Vegna hagstæðra samninga getum við nú boðið 1. flokks hreiniætistæki beint frá framleiðendum á betra verði en áður hefur þekkst!! Dæmi:
TH
stálvaskar
kr.
20 gerðir
Verðdæmi:
Vh hólf og borð
10.930,-
baðker
10 gerðir
Verðdæmi:
Stærð: 170 x 70 cm.
kr.
9.500,-
WC með harðri setu
5 gerðir
Verð frá
kr.
12.500,-
handlaugar
Verðdæmi:
Gerð Europa 43 x 55 cm.
kr.
2.700,-
sturtubotnar
kr.
5 gerðir
Verðdæmi:
80 x 80 cm.
3.900,-
blöndunartæki
10 gerðir. Verðdæmi:
f. handlaugar
kr 4.950,-
f. eldhús
kr 4.850,-
Ennfremur hitastillitæki frá
kr. 8.950,-
öll verð eru slaðgretðsluverð.
Verð eíns og þessi eru sönn kjarabót fyrir alla húsbyggjendur!
Opið laugardaga kl. 10-14.
VISA
'AÐSTOFA
Ártnúia 36 —Slml 31810