Morgunblaðið - 14.11.1991, Síða 33
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NOVEMBER 1991
33
3Httgtn$lnfeÍbí
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Flaraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið.
Sambýli
*
A undanförnum árum hefur verið
lögð sívaxandi áherzla á, að
þeir einstaklingar, sem búa við ein-
hvers konar fötlun, geti verið virkir
þátttakendur í daglegu lífi fólks og
njóti sama réttar í samfélaginu og
aðrir þjóðfélagsþegnar. I samræmi
við þessa grundvailarstefnu hefur
t.d. verið komið á fót sambýlum,
þar sem nokkrir þroskaheftir ein-
staklingar búa saman við eins eðli-
legar heimilisaðstæður og framast
er unnt í stað þess, að þeir séu
vistaðir á stofnunum í verulegri ein-
angrun frá öðrum þáttum þjóðh'fs-
ins.
Miklar framfarir hafa orðið í
meðferð geðsjúkra á undanförnum
árum og áratugum. Nú er svo kom-
ið, að með samstilltri lyfjagjöf er
hægt að halda geðsjúkdómum í
skefjum langtímum saman. Þetta
þýðir að þeir, sem eiga við einhvers
konar geðsjúkdóma að stríða, geta
verið virkir þátttakendur í atvinnu-
lífinu, með hléum ef svo ber undir,
en í mörgum tilvikum misserum og
jafnvel árum saman án þess, að
sjúkdómurinn geri vart við sig. Einn
árangnr þessara framfara í lækna-
vísindum er sá, að þeir, sem þjást
af geðsýki eiga styttri viðdvöl á
geðdeildum en áður tíðkaðist. Þeir
geta lifað eðlilegu heimilislífi, tekið
fullan þátt í uppeldi barna sinna,
umönnun aldraðra foreldra eða öðr-
um þáttum daglegs lífs.
í þeim tilvikum, að einstaklingar,
sem stríða við geðsjúkdóma, eigi
enga eða fáa að, hefur verið komið
upp sambýlum, þar sem þeir lifa,
eins og í hinu fyrra tilviki, eðlilegu
heimilislífí, njóta styrks hver af
öðrum og sækja vinnu daglega eins
og hver annar. Reynslan af slíkum
sambýlum, hvort sem um er að
ræða þá sem þjást af geðveiki á
köflum, þroskaheft fólk eða aðra,
er mjög góð og þau eru stórmerk
framför.
Viðleitnin til þess að tryggja fötl-
uðum sama rétt til að njóta þess
sem þjóðfélagið hefur upp á að
bjóða og aðrir hafa, kemur fram í
ýmsum myndum. Þannig er nú lögð
aukin áherzla á að sjá til þess, að
þeir hafi aðgang að fjölmiðlum.
Samtök blindra leita leiða til þess
að blindir geti notfært sér efni dag-
blaða, svo að dæmi sé nefnt. Þeir
sem vinna að málefnum þroska-
heftra spyrja, hvort dagblöð geti
sniðið einhveija efnisþætti að þörf-
um þroskaheftra og þannig má
lengi telja. Grundvallaratriðið er
þetta: fatlaðir eiga að njóta sömu
mannréttinda og aðrir. Þeir eiga
að búa á heimilum í stað stofnana.
Þeir eiga rétt á menntun, eftir því,
sem kostur er og aðstæður leyfa,
eins og hver annar. Þeir eiga að
geta notfært sér fjölmiðla í eins
ríkum mæli og mögulegt er. Þeir
eru fullgildir þjóðfélagsþegnar og
samfélagið á að umgangast þá sem
slíka.
Fötlun af einhveiju tagi getur
komið upp í hvaða fjölskyldu sem
er. Hún getur verið meðfædd. Hún
getur komið til vegna slysa eða
sjúkdóma. Sá sem er fullfrískur í
dag getur búið við fötlun á morgun.
Hvað sem Iíður orðalagi í lögum
og reglugerðum eða mismunandi
túlkun á lögum og reglum er af og
frá, að aðrar reglur eigi að gilda
um fatlaða, þegar um heimilishald
er að ræða en annað fólk. Það eru
engin rök fyrir því, það hlýtur að
stríða gegn réttlætistilfmningu
fólks og það eru einfaldlega sjálf-
sögð mannréttindi, að fólk geti búið
sér heimili, þar sem það óskar og
þar sem það á kost á végna efna-
hags eða af öðrum ástæðum. Ef
nokkrir fatlaðir einstaklingar vilja
búa saman í sambýli í íbúðarhúsi í
íbúðarhverfi eiga þeir sama rétt á
því og allir aðrir. Þess eru dæmi,
að námsmenn taki hús á leigu sam-
an. Enginn efast um rétt þeirra til
þess. Það er óhugsandi að aðrar
reglur eigi að gilda um þá, sem
fatlaðir eru.
Hvar á að draga mörkin? Ef ná-
grannar telja sig geta gert athuga-
semdir við það, að þrír, fjórir, fimm
eða fleiri einstaklingar, sem eiga
við einhvers konar fötlun að stríða,
búi sér sameiginlegt heimili, má
spyija hvenær að því komi, að ná-
grannar geri athugasemdir við það,
að fatlaður einstaklingur búi með
maka sínum á sameiginlegu heimili
þeirra. Ef nágrannar óttast truflun
getur hún ekki síður komið frá ein-
um einstaklingi en mörgum.
Fólk getur orðið fyrir margvís-
legri truflun vegna nágranna.
Drykkjulæti geta valdið slíkri trufl-
un. Á að úthýsa einstaklingum úr
ákveðnum íbúðahverfum vegna
áfengissýki? Nágrannar geta orðið
fyrir verulegri truflun vegna ung-
menna, sem beija bumbur í nær-
liggjandi bílskúr.
Fólk er oft hrætt við það, sem
það ekki þekkir. Þeir, sem kynnzt
hafa þroskaheftu fólki vita, að þau
samskipti eru ótrúlega gefandi.
Fordómar vegna geðveiki hafa lengi
verið miklir. Þeir byggjast á þekk-
ingarskorti, sem seint gengur að
útrýma. Reynslan af sameiginlegu
heimilishaldi þeirra, sem haldnir eru
slíkum sjúkdómum er svo góð, að
sambýlum þeirra á áreiðanlega eft-
ir að fjölga án þeSs að vera ná-
grönnum til nokkurs ama.
Að þessu er vikið hér vegna
umræðna og ákvarðana, sem teknar
voru í borgarstjórn Reykjavíkur í
síðustu viku, sem kveða á um, að
áður en sambýli er komið á fót
þurfi að sækja um leyfi til þess til
byggingarnefndar Reykjavíkur og
er þá vísað til ákvæða laga um
málefni fatlaðra, þar sem sambýli
er talið stofnun. Ef meirihluti borg-
arstjórnar Reykjavíkur telur, að
orðalag í lögum og reglugerðum
um þetta efni kalli á slíka málsmeð-
ferð eru það eðlileg viðbrögð, að
meirihluti Sjálfstæðisflokksins beiti
sér fyrir breytingum á þeim lögum
og reglum, þannig að ótvírætt sé,
að fatlaðir borgarbúar njóti allra
sömu mannréttinda og aðrir borg-
arbúar.
Frétt í European um sæstreng frá íslandi:
Styttist í að orka íslenskra
fallvatna lýsi upp Evrópu?
„LÍKLEGT er, að orka íslensku fallvatnanna verði farin að lýsa upp
hluta af Evrópu um næstu aldamót,” segir í frétt sem birtist í blaðinu
European um siðustu helgi. í greininni, sem er skrifuð af íslenska blaða-
manninum Birnu Helgadóttur, er haft eftir sérfræðingi breska ráðgjafar-
fyrirtækisins Caminus Energy, sem hefur unnið markaðskönnun fyrir
Landsvirkjun vegna sæstrengs frá íslandi, að niðurstöðurnar hafi kom-
ið gleðilega á óvart. Fer greinin hér á eftir í heild.
„Samkvæmt áætlunum á neðan-
sjávarrafstrengur milli íslands og
Bretlands og meginlands Evrópu að
geta flutt 40.000 kílówött af ódýrri
og mengunarlausri orku á ári hveiju
en það svarar til orkunotkunar í stór-
borg eins og París.
Islensku fljótin og fossarnir gera
betur en að fullnægja raforkuþörf
landsmanna enda er talið, að aðeins
sé búið að virkja 13% af nýtanlegri
orku þeirra. Langt er um liðið síðan
farið var að tala um orkuflutning af
þessu tagi en það er fyrst nú vegna
tæknilegra framfara og hækkandi
orkuverðs, að hann þykir raunhæfur.
Nýjar umriðilsstöðvar breyta rið-
straumi í jafnstraum og kerfi við-
námslítilla neðansjávarstrengja veld-
ur því, að orkutapið á leiðinni er
mjög lítið. Slíkir strengir eru nú á
milli Englands og Frakklands og
Finnlands og Svíþjóðar en strengur-
inn milli Islands og Evrópu yrði sá
lengsti í heimi.
Fjölþjóðafyrirtæki eins og Pirelli
og Álcatel, sem lögðu Ermarsunds-
strenginn, hafa sýnt áhuga á íslands-
strengnum og sömu sögu er að segja
af raforkufyrirtækjum víðs vegar um
Evrópu. Þá hefur breska ráðgjafar-
fyrirtækið Caminus Energy gert
óháða markaðskönnun fyrir Lands-
virkjun, íslenska ríkisorkufyrirtækið,
og mun skýrslan, sem er óbirt enn,
vafalaust verða til að auðvelda fjár-
mögnun verksins.
„Niðurstöðurnar komu forsvars-
mönnum Landsvirkjunar gleðilega á
óvart,” segir dr. Nigel Evans hjá
Caminus. „Jafnvel versta dæmið,
sem unnt -er að setja upp, er ekki
svo óttalegt. Ef það tekst að lækka
kostnaðinn um 10% er málið í höfn.”
Halldór Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir, að eftir því
sem orkuverð hækki, því álitlegri
verði raforkan frá íslandi. „Við erum
bjartsýnir á, að um aldamótin verði
Raforka frá Islandi til Evrópu
Hafnarnes
Líklegar tengilínur
Umriðilsstöðvar við hvorn enda breyta
riðstraumi í jafnstraum og öfugt
Tæringarvörn-
Seinni stálvíravafningur-
Baðmullarvafningur -
Fyrri stálvíravafningur
400 Baðmullarvefjar -
kílovolta jafnstraumsstrengur
Strengurinn er um 15 cm að þvermáli
Ryðfrír stálborðavafningur
Plastkápa
Blýkápa
Málmborðavafningur
Pappírseinangrun
Hálfleiðandi kápa
- Koparleiðari
að minnsta kosti einn strengur kom-
inn í notkun.”
Á fyrstu áætlununum, lagningu
950 km langs strengs frá Reyðar-
fírði á austurströnd íslands til Þórsár
(Thurso) á Skotlandi, urðu tafir
vegna einkavæðingar breska orku-
iðnaðarins en nú virðist ekkert vera
í veginum lengur. Þá eru sérfræðing-
ar einnig að huga að lagningu kapla
til austurstrandar Englands og Ham-
borgar í Þýskalandi.
Raforkusérfræðingarnir líta raun-
ar lengra, til markaða á Norðurlönd-
um og Austur-Evrópu, en það, sem
meðal annars hefur kynt undir þess-
um áhuga, er „kolefnisskatturinn”,
sem Evrópubandalagið hyggst taka
upp. Verður hann lagður á orku-
gjafa, sem mengun fylgir, til dæmis
kol og olíu,” segir í frétt European.
Þróunin stöðugt. Islandi í hag
Halldór Jónatansson forstjóri
Landsvirkjunar, staðfesti í samtali
við Morgunblaðið að allar upplýs-
ingar sem fram kæmu í greininni í
European væru réttar. Sagði hann
að möguleikar á að af lagningu sæ-
strengs verði hefðu þróast íslending-
um mjög í hag að undanförnu. Ef
svo færi að lagður yrði skattur á
mengunarríka orkugjafa í Evrópu
eins og kol, olíu og jarðgas, myndi
það leiða til hækkunar á rafmagns-
verði í Bretlandseyjum og gera orku
frá Islandi samkeppnishæfari. „Á
vegum Evrópubandalagsins er nú í
undirbúningi svokallaður „kolefnis-
skattur” á mengandi orkugjafa, sem
samsvara tíu dollurum á olíutunnu.
Það myndi valda verulegri hækkun
raforkuverðs frá orkugjöfum sem
vatnsorka okkar ætti í samkeppni
við. Það greiðir ennfrekar götuna
fyrir sölu rafmagns sem er framleitt
með vatnsorku,” sagði Halldór. Hann
sagði þetta þó bæði stórt og kostnað-
arsamt verkefni og ef Landsvirkjun
ætti að vera tilbúinn til afhendingar
rafmagns um sæstreng um aldamót
yrði þegar í stað að fara að skoða
þessa möguleika mjög alvarlega.
Morgunblaðid/Rúnar Þór
Snjó hefur kyngt niður á Norðurlandi síðustu daga og víða liafa skapast miklir erfiðleikar.
Rafmagnsleysi og samgöngutruflanir í fyrsta hreti vetrarins:
60 manns unnu að viðgerð á raf-
línum á vestanverðu Norðurlandi
SEXTÍU manns unnu sleitulaust í gær að því að koma rafmagni á
um vestanvert Norðurland eftir að fjölmargir rafmagnsstaurar brotn-
uðu þar undan allt að 30 sentímetra þykkri ísingu í fyrradag. Ekki
var gert ráð fyrir að það tækist að koma málum í fyrra horf í gær.
6 staurar í Siglufjarðarlínu brotnuðu í fyrrinótt og hafa þá nær 60
staurar brotnað í þessu fyrsta hreti haustsins. Að sögn Hauks Ás-
geirssonar, umdæmisstjóra RARIK á Norðurlandi vestra, er í mörgum
tilvikum um að ræða staura sem settir voru upp eftir óveðrið mikla
í febrúarmánuði síðastliðnum. Haukur sagði ljóst að björgunarsveitar-
menn sem unnið hafa við hlið starfsmanna rafmagnsveitnanna hafi
komið í veg fyrir tugmilljóna tjón með því að hreinsa ísingu af línum
áður en þær létu undan.
Rafmagnslaust varð um alla
Vestfírði í' um hálfa klukkustund í
gærmorgun þegar vesturlína fór út.
Viðgerðum á Flateyrarlínu sem
rofnaði í snjóflóði í fyrradag átti
að ljúka í gær.
Norðaustan stormur var víða á
vestanverðu Norðurlandi og Vest-
fjörðum fram eftjr degi í gær og
að sögn Hauks Ásgeirssonar um-
dæmisstjóra RARIK á Norðuriandi
véstra hamlaði veðrið viðgerðum
eftir tjónið sem varð í fyrradag. Þó
vonaðist hann til að það tækist að
Einkavæðing strætisvagnaleiða
í Kaupmannahöfn ekki hagstæð
- segir Conny Dideriksen, formaður Strætisvagna Kaupmannahafnar
STJÓRNARFORMAÐUR Stætisvagnafyrirtækis Kaupmannahafnar
og nágrennis, Conny Dideriksen, var á íslandi fyrir skömmu. Hún
átti m.a. viðræður við yfirmenn SVR um einkavæðingu strætisvagnale-
iða, en fyrir um tveimur árum voru sett lög í danska þinginu þess
efnis að fyrir 1. apríl 1994 skyldi 45% allra strætisvagnaleiða Kaup-
mannahafnar og nágrennis vera í einkarekstri. Morgunblaðið ræddi
stuttlega við Conny er hún dvaldi hér á landi.
Conny segir fyr-
irtækið vera í eigu
Kaupmannahafn-
arborgar og næstu
sveitarfélaga, og
hafí það þjónað um
1,7 milljón manns.
Þetta sé stærsta
fyrirtæki sinnar
tegundar í Dan- Conny Dideriksen
morku, sem nafi
haft um 1250 strætisvagna á sínum
snærum, áður en þessi nýju lög
tóku gildi. „Nú verðum við að bjóða
út nokkrar strætisvagnaleiðir á ári
til minni einkafyrirtækja. Fyrir 1.
apríl 1994 verðum við að hafa boð-
ið út 45% allra leiðanna á Kaup-
mannahafnarsvæðinu,” segir
Conny.
Hún segir þetta fyrirkomulag
vera mjög óhagstætt, sérstaklega
fyrir almenning. „Þetta er alls ekk-
ert ódýrara en áður. Bæði skattar
og fargjöld hafa hækkað verulega
eftir að þessi lög tóku gildi. Þetta
hefur ekki bætt neitt.” Ástæðuna
telur Conny vera m.a. að minni eink-
afyrirtækin bjóði háar fjárhæðir í
strætisvagnaleiðirnar og auki það
að sjálfssögðu kostnað. „Stéttarfélag
strætisvagnastjóra hefur einnig gert
meiri kröfur um laun og ekki bætir
það úr. Þetta fyrirkomulag segir til
um að einkafyrirtækin fái greitt
ákveðið kílómetragjald á srætisvagn-
aleiðunum sem það hefur, en far-
gjöldin sem fólk greiðir rennur til
okkar. Þetta hefur gert það að verk-
um að í sumum tilfellum hafa þessi
fyrirtæki lítinn sem engan metnað í
að fá fólk í strætisvagnanna. Við
höfum fengið upphringingar frá fólki
sem kvartar yfír því að strætisvagna-
stjórarnir stöðvi ekki við biðstöðvar,
heldur keyri bókstaflega framhjá
fólki. í Bretlandi t.d. fá einkafyrir-
tækin sjálf Öll fargjöldin, en ekki
þetta kílómetragjald eins og í Dan-
mörku.”
„En sem betur fer eru ekki öll
fyrirtækin svona siæm. Af þessum
átta eða níu fyrirtækjum sem keyra
á þessum leiðum eru nokkur sem
standa sig ágætlega,” segir Conny.
„Við verðum einnig að gæta þess
að dreifa leiðunum sem jafnast svo
að eitt fyrirtæki fái ekki allar leiðirn-
ar, því þá er hætta á að aftur mynd-
ist einokun. Við erum að vonast til,
að því fleiri sem fyrirtækin eru, því
lægri eigi fargjöldin eftir að verða.”
Conny segir það vera spennandi hver
niðurstaða ríkisstjórnarinnar verði
árið 1994. „Von mín er sú að við-
horf stjórnvalda verði önnur en þau
eru í dag. Nú er viiji þeirra að einka-
væða. En þetta hefur bara ekki
gengið nógu vel. Við viljum geta
ákveðið sjálf hvernig lækka eigi
kostnað við reksturinn, fargjöld og
skatta. Við viljum að okkur verði
leyft að bjóða aftur í okkar strætis-
vagnaleiðir. Við getum rekið þessar
leiðir á mun ódýrari hátt en nú er.
Við erum stórt fyrirtæki með t.a.m.
eigið verkstæði, þar sem okkar
starfsmenn geta gert við vagnana á
ódýrari hátt. Þess vegna getum við,
sem svona fyrirtæki, rekið þessar
leiðir á hagstæðari hátt til lengdar,
heldur en þessi minni einkafyrir-
tæki. Ég vil ná fargjöldum og öðrum
kostnaði niður sjálf og það þarf eng-
in iög til þess,” sagði Conny Dide-
riksen að lokum.
Spá miðuð við
álframkvæmdir j
379 milljarðar
áverðlagi 1991
296,1 milljarður
100
’80 ’81 ’82 '83 ’84 ’85 ’86 ’87 >88 ’89 ’90 ’91 ’92
Þróun landsframleiðslunnar:
Samdráttur í 4 ár
FRESTUN á álversframkvæmdum við Keilisnes hefur það i för með sér
að áætluð landsframleiðsla á næsta ári minnkar um tæplega 6 milljarða
króna. Yrði árið 1992 því fimmta árið í röð sem samdráttur er í lands-
framleiðslunni frá því hún náði toppnum 1987. í grófum dráttum má
segja að landsframleiðsla sé mælikvarði á heildartelyur launþcga og
fjármagnseigenda á hverju ári.
Þegar skoðuð er þróun landsfram-
leiðslu á síðasta áratug kemur í ljós
að árið 1980 nam hún 296 milljörðum
króna á verðlagi ársins í ár. Næstu
fímm árin á eftir var hún nokkuð
sveiflukennd milli ára en 1986 fer
hún mjög hratt upp á við og nær
toppnum 1987 er hún varð 27,7%
meiri en 1980. Er þessi mikla aukn-
ing einkum betri aflabrögðum að
þakka. Þegar aflabrögð minnka
dregst landsframleiðslan saman að
sama skapi og á næsta ári er reikn-
að með að hún verði aðeins 21,7%
meiri en hún var 1980. Er þá ekki
reiknað með álveri. Hefði verið ráð-
ist í álframkvæmdir var reiknað með
að landsframleiðslan á næsta ári
yrði 23,7% meiri en 1980.
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóð-
hagsstofnun var til spá fyrir árið
1993 hvað landsframleiðsluna varðar
og þá reiknað með álversfram-
kvæmdum. Sú spá, án álversins, ligg-
ur ekki fyrir að sinni.
koma rafmagni að fullu á til Siglu-
fjarðar fyrir kvöldið, en rafmagn
var skammtað þar í gær. Einnig
var vonast til að rafmagn kæmist
að mestu á í Fljótum en þar var
víða enn straumlaust. Þá var
straumlaust á fímm bæjum í Lýt-
ingsstaðahreppi, á nokkrum bæjum
milli Skagastrandar og Blönduóss
og einnig á Skaga en þar var þess
vænst að straumur kæmist að miklu
leyti á í gær.
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu í gær er ætlunin að leggja jarð-
strengi á hluta þeirra kafla nyrðra
sem nú létu undan ísingu. Haukur
Ásgeirsson sagði það hafa komið
mönnum algjörlega í opna skjöldu
að tvisvar með svo skömmu milli-
Leiguvél Flugleiða:
Umsaminn
hvíldartími
ekki virtur
FLUGLEIÐIR hf. hafa tekið á
leigu Boeing 757 vél til ad ann-
ast flug á flugleiðinni til Banda-
ríkjanna meðan vélar félagsins
eru í skoðun. Flugmennirnir eru
ítalskir en aðrir í áhöfninni ís-
lendingar. Samkvæmt upplýs-
ingum sem fengust hjá Félagi
ísjenskra atvinnuflugmanna,
FÍA, flugu ítölsku flugmennirn-
ir vélunum til Bandaríkjanna og
aftur til Islands án umsamins
hvíldartíma sem kveðið er á um
í samningum FÍA og Flugleiða.
Þær upplýsingar fengust hjá
FÍA að fíognar hefðu verið 2-3
ferðir án þess að flugmennimir
fengju þann hvíldartíma sem kveð-
ið er á um í samningum FÍA og
Flugleiða. FÍA gerði athugasemdir
við þetta og féllust Flugleiðamenn
þá á að kippa þessum málum í lið-
inn.
Flugfreyjur vélarinnar eru
íslenskar og var hvíldartími þeirra
í samræmi við kjarasamninga.
Ekki náðist í talsmenn Flugleiða
'vegna þessa^máls í gær. ,l; 1
bili, nú og í febrúar sl., gerði svo
mikið ísingarveður að annað eins
hefði ekki gerst í 20 ár. Algengast
var að 10 sentímetra íslag hefði
verið á línunum sem létu undan en
í Fljótunum hefði ísingin verið mest,
allt að 30 sentímetrar í þvermál.
Straumlaust varð í um hálfa
klukkustund á Vestfjörðum í gær-
morgun þegar vesturlínu frá Lands-
virkjun sló út í fjórar stundir. Við-
gerðir á Flateyrarlínu hófust í gær
en þar brotnaði einn staur í snjóflóð-
inu sem féll í fyrradag. Viðgerðir
hófust síðdegis þegar almanna-
varnanefnd hafði veitt leyfi til að
fara inn á svæðið og var þess vænst
að henni lyki fyrir kvöldið en vara-
aflstöðvar hafa séð Súgfírðingum
og Önfírðingum fyrir rafmagni.
Truflana hefur víða orðið vart á
Vestfjörðum vegna seltu sem vaidið
hefur því að sveitalínur hafa slegið
út en á svæði Orkubús Vestfjarða
er aðeins rafmagnslaust í Árnes-
hreppi á Ströndum en þar brotnuðu
íjórir staurar í Ingólfsfirði og er
viðgerð ekki lokið. Einnig bíður
starfsmanna Orkubúsins tveggja
daga vinna við viðgerðir á Snæfjali-
aströnd en þar sem enginn notandi
þar er rafmagnslaus bíða viðgerðir
betra veðurs og færðar.
Oxnadalsheiði lokuð
Fjallvegir á Vestfjörðum voru
lokaðir í gær nema Steingrímsfjarð-
arheiði var fær jeppum og stórum
bílum. Mokað var milli ísafjarðar,
Bolungarvíkur og Súðavíkur.
Eystra eru Fjarðarheiði, Oddsskarð
og Breiðdalsheiði lokaðar. Nyrðra
var mokstri í Öxnadal og á Öxna-
dalsheiði frestað vegna vonskuveð-
urs en heiðin verður opnuð í dag.
Brattabrekka er lokuð.
Ofsaveður í Öræfum:
Flutninga-
bíll valt og
skemmdist
OFSAVEÐUR var í Öræfasveit
í fyrrinótt og gærmorgun. Flutn-
ingabíll með þremur mönnum i
fauk á hliðina við Sandfcll i
Öræfum og _ var talinn stór-
skemmdur. Olafur Sigurðsson
bóndi á Svínafelli fór við annan
mann á trakforsgröfu þremenn-
ingunum til hjálpar og flutti þá
heim að Svínafelli. Að sögn Pál-
ínu Þorsteinsdóttur húsfreyju á
Svínafelli var þá þreifandi sand-
bylur og fauk grjót í verstu hvið-
unum. Klæðning flettist af veg-
inum á kafla. Ekki var vitað um
tjón á bæjum.
Mennirnir þrír voru á flutninga-
bíl frá Kelavík á leið til Hafnar
með fiskkör og beitu. Við veltuna
rak einn mannanna hönd í gegnum
rúðu og skrámaðist en ekki voru
þeir taldir alvarlega slasaðir. Menn-
irnir biðu af sér veðurofsann á
Svínafelli en síðdegis var farið í
að rétta bílinn við og færa farminn
í aðra bila. Að sögn Pálínu var
talið óvíst að unnt yrði að aka bíln-
um af staðnum.
Um 80 erindi verða
flutt á orkuþing'i
ORKUÞING 91 verður sett á Hótel Sögu í dag, fimmtudag, og stend-
ur þingið í tvo daga. Þing sem þetta var síðast haldið fyrir 10 árum
I kjölfar örra hækkana á olíu.
Ómar Bjarki Smárason er fram-
kvæmdastjóri Orkuþings 91. Hann
segir að meðal þeirra efnisflokka
sem til umfjöllunar verða á þinginu
séu staða og horfur í orkumálum,
nýting orkulinda, rannsóknir á
vatnsorku og jarðhita, olíuviðskipti
á Islandi og skipan orkufyrirtækja
og orkusölu. Alls verða um 80 er-
indi flutt á þinginu og meðal gesta
eru erlendir fyrirlesarar.
Hvað varðar stöðu og horfur í
orkumálum mun Jón Sigurðsson
iðnaðarráðherra gera grein fyrir
stefnu ríkisstjórnarinnar í orkumál-
um, Jakob Björnsson onkujnája-
syóri flytur erindi um stöðu og
horfur og John Foster forseti al-
þjóðaorkumálaráðsins flytur alþjóð-
legt yfírlit um orkumál. Kaj Lind-
hoim framkvæmdastjóri sænska
rafveitusambandsins gerir grein
fyrir þeim breytingum sem nú eiga
sér stað hjá norskum og sænskum
raforkufyrirtækjum með hliðsjón
af breyttum aðstæðum í Evrópu.
Dr. Norbert Stump fjallar um hlut
vetnis á orkumarkaði Evrópu í
framtíðinni og fjallað verður um
möguleikana á útflutningi raforku
héðan. Þetta er meðal þess sem
verður á dagskrá þjpMÍns 1 dagj.