Morgunblaðið - 14.11.1991, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
Friður verði um við-
kvæm siðferðisviðhorf
Dómsmálaráðherra mælir fyrir frumvarpi um kynferðisbrot
ÞORSTEINN Pálsson dómsmálaráðherra mælti I gær fyrir frumvarpi
til laga um breyting á almennum hegningarlögum. Frumvarpið fjallar
um endurskoðun á 22. kafla hegningarlaganna en sá kafli fjallar um
kynferðisbrot eða skírlífisbrot.
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra greindi frá því að þetta mál
ætti sér nokkra forsögu. Þetta frum-
varp hefur verið flutt þrívegis áður
en ekki hlotið afgreiðslu. Ennfremur
greindi framsögumaður frá því að á
110. löggjafarþinginu 1987-88 hefði
Sólveig Péturdóttir (S-Rv) flutt
frumvarp um breytingar á hegning-
arlögum í sama tilgangi. Einnig skil-
aði svonefnd nauðgunarmálanefnd
skýrslu og tillögum haustið 1988.
Ráðherra sagði frumvarpið fela í
sér þær meginbreytingar að öll
ákvæði 22. kafla í hegningarlögun-
um yrðu gerð ókynbundin en sam-
kvæmt núgildandi ákvæðum nytu
einungis konur refsiverndar í mörg-
um tilvikum. Þótt þessi brot bitnuðu
nær eingöngu á konum taldi ráð-
herra ekki ástæðu til að ætla að víð-
tækari refsivernd raskaði á nokkurn
hátt réttarstöðu kvenna. Ákvæði
frumvarpsins ættu því jafnt við um
athafnir karla og kvenna og tækju
einnig til kynferðismaka og annarra
kynferðisathafna samkynja persóna
eftir því sem við ætti.
Einnig fælist í frumvarpinu aukin
réttarvernd þar sem samræði yrði
skýrt rýmra en í núgildandi lögum
og gert væri ráð fyrir því að önnur
kynferðismök yrðu lögð að jöfnu við
samræði. Einnig væru í frumvarpinu
ný ákvæði um kynferðislega áreitni.
Ennfremur gerði frumvarpið ráð fyr-
ir að ákvæði um sifjaspell yrðu flutt
í þennan lagakafla þar sem þau ættu
betur heima enda pft nátengd öðrum
kynferðisbrotum. í frumvarpinu eru
einnig ákvæði um viðurlög um kyn-
ferðisbrot gagnvart börnum.
Dómsmálaráðherra rakti nokkuð
ýmsar greinar frumvarpsins, t.a.m.
gerir frumvarpið ráð fyrir að heiti
22. kafla refsilaganna breytist og
komi kynferðisbrot í stað skírlífís-
brot; rétt þyki að miða heiti kaflans
við einkenni háttseminnar fremur en
hin siðrænu viðhorf til afbrotsins.
Ráðherra gerði einnig grein fyrir að
hvorki samkvæmt núgildandi lögum
né samkvæmt þessu frumvarpi væri
vændi sem slíkt refsivert en hins
vegar kvæði fyrsta málsgrein 13.
greinar á um að: „Hver sem stundar
vændi sér til framfærslu eða hefur
atvinnu eða viðurværi sitt af laus-
læti annarra skal sæta fangelsi allt
að_4 árum.”
I Iok framsöguræðu sinnar sagði
dómsmálaráðherra að þetta mál ætti
sér margar hliðar og ýmis álitaefni.
Hann lagði einnig áherslu á að réttar-
staða þolenda í kynferðisbrotum yrði
ekki bætt með því einu að breyta
hegningarlögum en almenn siðferðis-
og þjóðfélagsviðhorf sem kæmu fram
í hegningarlögum skiptu máli. Lögð
hefði verið áhersla á að gera frum-
varpið þannig úr garði að viðunandi
friður og jafnvægi mætti haldast um
viðkvæm siðferðisviðhorf, jafnframt
því að bæta réttarvernd þeirra sem
fyrir kynferðisbrotum yrðu. Ráð-
herra fór þess að lokum á leit að
málinu yrði vísað til annarrar um-
ræðu og allsheijarnefndar.
Vændi
Margrét Frímannsdóttir (Ab-
Sl) sagði að þetta frumvarp væri
vafalaust til bóta en vildi þó vekja
athygli á nokkrum atriðum sem ork-
uðu tvímælis, t.d. væri ósamræmi
milli 4. og 5. greina frumvarpsins.
4. grein kvæði á um að hver sá sem
notfærði sér geðveiki eða aðra and-
lega annmarka manneskju til þess
að hafa við hana samræði eða önnur
kynferðismök utan hjónabands eða
óvígðrar sambúðar skyldi sæta fang-
elsi allt að 6 árum. 5. greinin kvæði
hins vegar á um að umsjónarmaður
eða starfsmaður í fangelsi, geð-
sjúkrahúsi, vistheimili, uppeldis-
stofnun eða annarri slíkri stofnun
hefði samræði eða önnur kynferðism-
ök við vistmann eða vistkonu á stofn-
uninni varðaði það fangelsi allt að 4
árum. 13. greinin um vændi varð
tilefni athugasemda. Það varðaði
refsingu að hafa framfærslu af þess-
ari háttsemi en aftur á móti væri
Margrét
Þorstéinn
Sólveig
Ingibjörg
Sólrún
ekki saknæmt að kaupa þjónustuna.
Margrét benti einnig á að í 2. máls-
grein 13. greinar væri allt að 4 ára
fangelsvist fyrir að: „Ginna, hvetja
eða aðstoða ungmenni, yngra en 18
ára, til að hafa ofan af fyrir sér með
lauslæti.” Það mátti skilja á ræðu-
manni að henni þætti æsklegra að
orðalagið væri ljósara; hvort átt
væri við dægradvöl eða tekjuöflun.
Margrét gerði einnig athugasemd við
3. málsgreinina: „Sömu refsingu
varðar það einnig að stuðla að út-
flutningi nokkurs manns úr landi í
því skyni að hann hafi ofan af fyrir
sér erlendis með lauslæti, ef út-
flytjandinn er yngri en 21 árs eða
honum er ókunnugt um þennan til-
gang með utanförinni.” Margréttaldi
innflutninginn ekki síður verðugan
athygli löggjafans.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (SK-
Rv) fagnaði því að þetta frumvarp
væri framkomið en varð að taka
undir gagnrýni fyrra ræðumanns í
ýmsum greinum. Ingbjörg taldi rangt
að leggja viðurlög við að hafa fram-
færslu af því að stunda vændi þegar
vitað væri að þeir sem út í slíkt leidd-
ust gerðu það úr mikilli neyð; oft
færi saman eiturlyfjaneysla og
vændi. Ræðumaður taldi rétt að
refsivert væri að hafa tekjur eða
framfæri af lauslæti annarra þ.e.a.s.
annast milligöngu um samræði eða
kynmök; hórmang.
Þrátt fyrir nokkra gagnrýni var
Ingibjörgu Sólrúnu engin launung á
því að hún fagnaði ýmsu sem frum-
varpið gerði ráð fyrir, sérstaklega
því að numin væru úr gildi sérá-
kvæði gagnvart samkynhneigðum og
væru þeir lagðir að jöfnu við gagn-
kynhneigða.
Sólveig Pétursdóttir (S-Rv)
fagnaði því að dómsmálaráðherra
mælti fyrir þessu frumvarpi. Hún
leiddi að því líkur að e.t.v. hefðu
mál sem þessi ekki haft nægilegt
vægi pólitískt séð eða þau hefðu
sætt efnislegum og faglegum ágrein-
ingi. Hún sagði þingmenn skylduga
til að ná saman um úrbætur á þessu
sviði. Sólveig ræddi nokkuð um kyn-
ferðisafbrot bæði frá félagslegum og
lagalegum sjónarhóli. Sólveig rakti
nokkur atriði frumvarpsins og taldi
rétt að athuga og skoða ýmis ákvæði
en til þess gæfist tækifæri í allsher-
jarnefnd, þar sem hún ætti sæti.
Jón Helgason (F-Sl) hvatti þing-
menn líkt og fýrri ræðumaður til að
ná samstöðu um að koma nú þessu
frumvarpi í gegnum þingið. Þor-
steinn Pálsson dómsmálaráðherra
þakkaði þingmönnum góðar undir-
tektir við megintilgang frumvarpsins
og efnislegar athugasemdir.
Fyrstu umræðu varð lokið en at-
kvæðagreiðslu frestað.
Frumvarp um Verðlags-
ráð sjávarútvegsins
í fyrradag var framhaldsum-
ræða um frumvarp sjávarútvegs-
ráðherra um Verðlagsráð sjávar-
útvégsins. Stjórnarandstæðingar
telja nauðsynlegt að ræða sjávar-
útvegsmálin í samhengi. Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra boðar að þingmönnum
muni veitast ærin tækifæri til að
ræða málin þegar væntanleg
stjórnarfrumvörp koma til um-
fjöllunar, t.a.m. verður frumvarp
um málefni hagræðingarsjóðsins
lagt fram á næstu dögum.
Síðastliðinn mánudag mælti sjáv-
útvegsráðherra fyrir frumvarpinu,
en það gerir ráð fyrir að verð á
Utandagskrárumræður um álmálið:
Munum halda áfram
— segir iðnaðarráðherra
ÁFALL var það orð sem þingmönnum var sérstaklega tamt á tungu
í utandagskrárumræðum í fyrradag, fyrrakvöld og fyrrinótt. Það
tókst að Ijúka umræðum um stöðu álmálsins, frestun eða endalok,
kl. 00.47 í fyrrinótt.
Umræður um álmálið hófust kl.
15 í fyrradag og var málið rætt
fram að kvöldmat en þingmenn
héldu svo áfram þar sem frá var
horfíð kl. 21. Stjórnarandstæðingar
gagnrýndu enn sem fyrr meðferð
þessa máls harðlega, frestun og
hugsanleg endalok. Einkum var
spjótunum beint að Jóni Sigurðs-
syni iðnaðarráðherra. Allir ræðu-
mmenn voru uggandi vegna þessara
tíðinda sem bættust við önnur áföll
sem þjóðarbúið yrði nú fyrir. Tals-
menn Kvennalista töldu það þó sól-
argeisla í svartnættinu að ekki yrði
af „mengandi stóriðju” en gleðin
væri galli blandin, ástandið í atvinn-
umálum væri alvarlegt. Þær vísuðu
ásökunum um að þær hlökkuðu
yfir þessu áfalli á bug.
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra
sagði vonbrigði hafa verið stef í
ræðum margra ræðumanna í þess-
um umræðum, hann var einnig von-
svikinn en þar á ofan varð hann
Slýsa vonbrigðum með málfluting
oíTOTjpnuStoöönnaT. tvhoitcttcI
svaraði í nokkru máli þeirri gagn-
rýni og fyrirspurnum sem að honum
hafði verið beint. Hann taldi sig
ekki þurfa að liggja undir ámæli
fyrir að hafa sótt þetta mál af ofur-
kappi. í ljósi þeirrar frestunar sem
nú hefði því miður orðið, staðfestist
sú skoðun sín að nota yrði glugga
tækifæranna á meðan opnir væru.
Ráðherra vildi einnig benda þeim
sem gagnrýnt hafa hann fyrir að
hafa samið um of góðan hlut hinna
erlendu samstarfsaðila í þeim sam-
ingsdrögum sem liggja fyrir, að ef
sú væri raunin, væri varla ástæða
fyrir þessa aðila að hika núna.
Ráðherrann lýsti yfir trú sinni á
hinum erlendu samstarfsaðilum í
Atlantsáls-hópnum. Enn væri ekki
kominn á samningur og við mynd-
um halda áfram að fjalla um þetta
mál við þá; samningaviðræðurnar
væru á frágangsstigi. Ráðherra
taldi hugsanlega koma til greina
að gera saming á þeim nótum sem
nú Iægju fyrir en með þeirri viðbóti
• gjmMffiiipwrwHr w wggsr w
framkvæmdir hefðu ekki hafist að
fullu fyrir eitthvert ákveðið tíma-
mark. Ráðherra treysti sér ekki til
að tilgreina tímamörk á þessu stigi.
Iðnaðarráðherra tók fram að við
værum ekki formlega skuldbundnir
viðræðuaðilum í Atlantsáls-hópn-
um.
Ræðumaður svaraði fleiru m.a.
því að þingheimur mætti vænta
skýrslu um málið eftir jólahlé. Ráð-
herra sagði einnig varðandi um-
hverfísmálin að komin væri lausn á
þeim atriðum sem athugasemdir
hefðu verið gerðar um og yrði þing-
mönnum gerð grein fyrir henni í
skriflegri skýrslu sem væntaleg
væri alveg á næstu dögum; tryggt
væri að endurskoðun á starfsleyfi
yrði af góðum og gildum ástæðum.
Ráðherrann greindi frá kostnaði
vegna samningsgerðar og undir-
búnings verka. Kostnaður Lands-
virkjunnar næmi nú tæplega 900
milljónum. Kostnaður markaðs-
skrifstofu iðnaðarráðuneytisins
væri metin 39 milljónir og kostnað-
ur iðnaðarráðuneytisins væri nú um
600 milljónir. Ráðherra lagði
áherslu á að þessar fjárfestingar
ættu eftir að nýtast okkur í:
tímans.
r.Jd rrni Pl.JhíiRjft;
öllum tegundum fersks sjávarafla,
úrgangsfiski og fiskúrgangi, sem
seldur sé hér á landi skuli ákveðið
með fijálsum samningum milli
kaupenda og seljenda eða með sölu
á uppboðsmarkaði. Frumvarpið
kveður þó á um að Verðlagsráði sé
þó heimilt með meirihluta atkvæða
að ákveða lágmarksverð einstakra
tegunda sjávarafla fyrir tiltekið
tímabil. Lögin öðlast gildi 1. janúar
1993, en á tímabiiinu frá birtingu
laganna og til 31. janúar 1992 gild-
ir bráðabirgðaákvæði þar sem kveð-
ið er á um að Verðlagsráði verði
með meirihlutaákvörðun heimilt að
gefa verðlagningu á tilteknum fisk-
tegundum fijálsa. Á þessu tímabili
skal yfirnefnd ákveða lágmarksverð
á tegundum sem vísað hefur verið
til hennar og er yfimefndinni ekki
heimilt að gefa verðlagningu fjálsa.
Frumvarpið miðar því að því að
fijálsri verðákvörðun á sjávarafla í
tveim skrefum.
Steingrímur J. Sigfússon (Ab-
Ne) sem ræddi um málið bæði á
mánudeginum og í fyrradag taldi
frumvarpið í sjálfu sér í samræmi
við þróun sem orðið hefði og engin
mótmælti, og hann sæi við fyrstu
sín vart gerlegt að standa gegn.
En ræðumaður saknaði þess að
ráðherrann hefði ekki treyst sér til
að reifa samhengi hlutanna. Ræðu-
maður fór nokkrum orðum um það
umhverfi sem sjávarútvegi væri
ætlað að búa við samhliða fijálsu
fiskverði. Steingrímur vísaði til fyrri
orðaskipta sem hlotist hafa um
málefni hagræðingarsjóðsins. Hann
ítrekaði gagnrýni á þau áform að
nýta veiðiheimildir sjóðsins til rann-
sókna Hafrannsóknunarstofnunar í
stað þess að aðstoða byggðalög í
erfiðleikum og styrkja úreldingu
fiskiskipa í hagræðingarskyni.
Taldi hann engin tvímæli að hér
væri á ferðinni ný skattheimta á
sjávarútveginn. Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra tók undir að
ærin ástæða væri til að ræða ítar-
lega málefni þessarar mikilvægustu
atvinnugreinar landsmanna; sjávar-
útvegsins', og myndu gefast tæki-
færi til að ræða flest umtalsefni
fyrra ræðumanns í tengslum við
einstök frumvörp um málefni at-
vinnugreinarinnar. Ráðherra vísaði
því á bug að um væri að ræða nýja
skáttlheimttf S' sjáíVárö’tVe^lnn rhéð'
breytingu á lögum um Aflatrygg-
ingarsjóð, veiðiheimildij sjóðsins
hefðu vissulega verið teknar af sjáv-
arútveginum þegar sjóðnum var
komið á fót en nú væri einungis
fyrirhugað að breyta ráðstöfun á
heimildunum og ekki myndi heldur
breytast hvernig staðið yrði að sölu
heimildanna; hér væri því ekki um
nýja skattheimtu að ræða. Þor-
steinn Pálsson lagði áherslu á mikil-
vægi aukinna hafrannsókna. Þor-
steinn upplýsti að frumvarp um
Hagræðingarsjóðinn yrði lagt fram
á þingi alveg á næstunni.
Jafnræði á markaði
Steingrímur J. Sigfússon (Ab-
Nv) vildi benda á að hafrannsóknir
hefðu hingað til verið greiddar úr
hinum sameiginlega sjóði lands-
manna en nú væri útvegnum ætlað
að greiða þann kostnað. Hann
kvaddi ráðherra „ganske pænt” til
að kanna fylgi við væntanlegt frum-
varp meðal stjórnarliða. Kristin
H. Gunnarsson (Ab-Vf) taldi sjáv-
arútvegsráðherra tala af nokkru
ábyrgðarleysi og gáleysi sem lýsti
skorti á stöðu landsbyggðarinnar.
Það mátti skilja að hann væri í
sjálfu sér ekki andvígur markmiði
þessa frumvarps en hafði verulegar
efasemdir um að stíga þetta skref.
Menn yrðu að huga að þeim skilyrð-
um sem mönnum yrði ætlað að búa
við í hinu fijálsa markaðskerfi.
Hann taldi ekki ríkja jafnræði milli
kaupenda og seljanda á fiskmarkaði
og væri þar lögum um stjórnun fisk-
veiða; kvótakerfínu um að kenna.
Kristinn rakti ýmsa þræði í marg-
riðnu neti þessarar atvinnugreinar
m.a. gagnrýndi hann áformaðar
breytingar á ráðstöfunum veiði-
heimilda Aflatryggingasjóðs. Páll
Pétursson (F-Nv) tók undir þá
gagnrýni sem komið hefur fram á
það að breyta verkefnum Hagræð-
ingarsjóðsins; „bein skattheimta”
einkum á fyrirtæki í sjávarpiássum
á landsbyggðinni; „hreinn lands-
byggðarskattur”. Þorsteinn Páls-
son sjávarútvegsráðherra tók undir
að huga yrði að því að jafnræði
væri millum kaupenda og seljenda
og væri það ein meginástæða þess
að frumvarpið gerði ráð fyrir því
að ganga þessa braut frá miðstýrð-
um verðákvþrðunum í. tveimur
skrel'um. lr< *•*-***»»■»?*»»