Morgunblaðið - 14.11.1991, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
37
Fjallað um ís-
lenska nafn-
giftasögu
GÍSLI Jónsson cand. mag. flytur
fyrirlestur í Háskólanum á Akur-
eyri á laugardag, 16. nóvember,
kl. 14.
Fyrirlestur Gísla nefnist Þættir úr
íslenskri nafngiftasögu og er hann
sá þriðji í röð fyrirlestra sem Háskól-
inn gengst fyrir um íslenskt mál.
Fyrirlesturinn verður fluttur í
stofu 24 í aðalbyggingu skólans við
Þingvallastræti og er öllum heimill
aðgangur meðan húsrúm leyfir.
(Fréttatilkynning)
♦ ♦ ♦---
Guðmunda
gestur á
Stálblómi
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Skautasvellið vinsælt
Yngri kynslóðin tók því fagnandi er skautasvellið á Akureyri var opn- i svellið og sýndu listir sínar í skautaíþróttinni. Svellið er opið almenn-
að um helgina og var aðsóknin afar góð. Fjölmargir lögðu leið sína á I ingi tvisvar á dag, eftir hádegi og síðan um kvöldið.
SIÐUSTU sýningar á Stálblómi
eftir Robert Harling í leikstjórn
Þórunnar Magneu Magnúsdóttur
verða um helgina. Sérstakur gest-
ur sýningarinnar á laugardags-
kvöld verður Guðmunda Elías-
dóttir óperusöngkona.
Guðmunda var gestur í þætti Ön-
undar Björnssonar „Ut í loftið” á
Rás 1 sl. föstudag og lét þá þau orð
falla, er hún var spurð hvers hún
helst/vildi njóta sem í boði væri í
menningu og listum, að hefði hún
næg auraráð myndi hún vilja fara
til Akureyrar og sjá leiksýninguna
Stálblóm og gista á Hótel KEA.
Þessi ummæli urðu til þess, að
Leikfélag Akureyrar, Flugleiðir, Hót-
el KEA og Bautinn/Smiðjan tóku
höndum saman um að láta draum
Guðmundu rætast.
Síðustu sýningar á verkinu verða
á föstudags- og laugardagskvöld kl.
20.30. Sex konur fara með hlutverk
í þessu át'akamikla verki, þær Brynd-
ís Pétursdóttir, Hanna María Karls-
dóttir, Vilborg Halldórsdóttir, Sunna
Borg, Þórdís Amljótsdóttir og Þórey
Aðalsteinsdóttir.
♦ ♦ ♦-
Ríkistollstjóri athugar að svifta niðursuðuverksmiðju K. Jónssonar upprunaleyfi:
Gögn verði skoðuð áður en fyr-
irtækið er gert að blóraböggli
<
- segir Jón Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri
JÓN ÞÓR Gunnarsson framkvæmdastjóri Niðursuðuverksmiðju K.
Jónssonar og Co. á Akureyri segir forkastanlegt af ríkistollsljóra
að láta hafa eftir sér ummæli í fjölmiðlum þess efnis að hann muni
senda fyrirtækinu bréf um að það yrði svipt leyfi til útgáfu uppruna-
vottorða vegna útflutnings þess á rækju. Rækjuverksmiðjur þurfa
ekki að greiða toll af rækju sem seld er til Evrópubandalagsland-
anna fylgi svokallað upprunavottorð, þar sem staðfest sé að hráefn-
ið sé veitt af íslensku fiskiskipi, en að öðrum kosti þarf að greiða
18% toll af vörunni. Hann segir fyrirtækið hafa keypt rækju af
rússneskum togurum í nokkrum mæli, en hráefnið sé flutt út til f “ ~ ~ ”
fleiri landa en Evrópubandalagslandanna auk þess sem mikið af Þl*OtclDll HotGlS StBIRIllU!
henni sé soðið niður, en um niðursoðna vöru gildi aðrar tollareglur.
„Mér þykir forkastanlegt, af
jafnvirðulegu embætti og embætti
ríkistollstjóra er, að gefa út yfirlýs-
ingar um að svipta eigi okkur leyfi
til útgáfu upprunavottorða áður
en okkur en tilkynnt um það,
starfsfólk hér varð felmtri slegið
yfir þessum tíðindum,” sagði Jón
Þór, en hann sagði að þó svo að
fyrirtækið yrði svipt þessu leyfi
þýddi það ekki að tekið væri fyrir
útflutning þess. Embætti tollstjóra
víða um land gæfi út slík vottorð
og það yrði gert í tilfelli K. Jónss-
onar ef fyrirtækið yrði svipt leyf-
inu, en fram til þessa hefur fyrir-
tækið gefið sjálft út þessi uppruna-
vottorð.
Fyrirlestur um
þátttökustj ómun
Dr. Nina Colwill flytur fyrirlestur
í Háskólanum á Akureyri á morg-
un, föstudaginn 15. nóvember, kl.
15.15 í stofu 24. í fyrirlestrinum
mun dr. Nina Colwill fjalla um þátt-
tökustjómun.
Fréttatilkynning
Islendingar og aðrar EFTA-
þjóðir njóta tollafríðinda í EB-lönd-
unum hvað varðar útflutning á ís-
lenskri rækju, en fylgja þarf sérs-
takt upprunavottorð þar sem stað-
fest er að hráefnið sé veitt af ís-
lensku fiskiskipi eða skipi frá EB-
löndunum, en að öðrum kosti þarf
að greiða 18% toll vegna útflutn-
ings þessa hráefnis.
Jón Þór segir að stór hluti þeirr-
ar rækju sem fyrirtækið hafi keypt
af rússneskum togurum hafi verið
soðið niður,og um slíka vöru gildi
aðrar tollareglur. Þá hafi fyrirtæk-
ið einnig selt þessa rækju til fjöl-
margra landa. Hann teldi eðlilegt
að menn frá embætti ríkistollstjóra
kæmu norður til að skoða gögn
fyrirtækisins varðandi útflutning
áður en það yrði gert að blóra-
böggli, en allt benti til að svo væri
í þessu máli. Fjölmargar rækju-
verksmiðjur víða um land hefðu
flutt inn hráefni, m.a. frá Rúss-
landi, Noregi, Færeyjum og
Kanada, „þannig að við skiljum
ekki hvers vegna þetta fyrirtæki
er gert að blóraböggli,” sagði Jón
Þór.
Lýstar kröfur um
92 milljónír króna
LÝSTAR kröfur í þrotabú Hót-
els Stefaníu nema um 92 millj-
ónum króna, en alls var 76 kröf-
um lýst í búið. Þetta kom fram
á fyrsta skiptafundi í búinu sem
haldinn var í gær.
Almennar kröfur nema um 64
milljónum króna, kröfur utan
Vinnumálasambandið telur verk-
fall í mjólkurstöðvum ólögmætt
VERKFALL ófaglærðs starfsfólks í Mjólkursamlagi KEA á Akureyri
og Mjólkursamlagi KÞ á Húsavík hefst á morgun, föstudag, verði deila
verkalýðsfélaganna og Vinnumálasambandsins ekki leyst í dag. Vinnu-
málasambandið hefur mótmælt boðaðri vinnustöðvun, telur hana ólög-
mæta og skorar því á félögin að afboða verkfallið þegar. Ófaglært
starfsfólk í samlögunum fer fram á rúmlega 3.000 króna greiðslu á
mánuði vegna námskeiða sem það hefur setið og tiðkast í öðrum starfs-
greinum í matvælaiðnaði. Vinnumálasambandið bauð fyrir nokkru 12
þúsund króna eingreiðslu vegna þessa námskeiða, en því tilboði var
hafnað.
Kristín Hjálmarsdóttir formaður
Iðju, félags iðnverkafólks á Akureyri
sagði allt benda til þess að af verk-
fallinu verði, en það hefst á mið-.
nætti 15. nóvember. Þá hefur einnig
verið boðað verkfall dagana 18. og
19. nóvember og ótímabundið frá og
með 25. nóvember hafi deilan ekki
verið leyst fyrir þann tíma.
Vinnumálasambandið hefur sent
verkalýðsfélögnum bréf þar sern það
mótmælir boðaðri vinnustöðvun um-
rædda daga og skorar á félögin að
afboða þau nú þegar. Sambandið
telji verkfallsheimildina ólögmæta
samkvæmt vinnulöggjöf þar sem hún
byggist á þeirri forsendu að um
ágreining um kjarasamning sé að
ræða. Kristín sagði að lögfræðingar
verkalýðsfélaganna teldu verkfalls-
boðunina lögmæta og því yrði ekki
hvikað fyá boðuðu verkfalli. Hún
sagði félagið gera kröfu um ákveðið
mál, sem aldrei hefði náðst að semja
um, það væri því ekki um að ræða
að ágreiningur væri um kjarasamn-
ing.
„Fáum við tilboð frá Vinnumála-
sambandinu munum við að sjálf-
sögðu skoða það, en ella sýnist mér
allt stefna í verkfall í þessum tveim-
ur mjólkursamlögum,” sagði Kristín.
Hún sagði málið nú í furðulegum
hnút og frá upphafí hafi einkennt'
það nokkur stífni, þannig að hún
væri ekki sérlegá bjartsýn á fram-
haldið.
Kristín sagði að félaginu hefðu
borist stuðningsyfirlýsingar frá ýms-
um hópum og það styrkti mjög stöð-
una að fá slíkan stuðning og yljaðj
mönnunl um hjartarætur.
Ófaglært starfsfólk í samlögunum
gerir þá kröfu að það fái starfsnám
sitt metið eins og tíðkast í öðrum
greinum matvælaiðnaðar, en það
þýðir rúmlega 3.000 króna kaupauka
á mánuði, hafi starfsmaður sótt
starfsnámskeið. Vfnnumálasam-
bandið hefur boðið 12 þúsund króna
eingreiðslu, en því var hafnað.
skuldaraðar eru 26,5 milljónir og
forgangskröfur eru um 2 milljónir
króna.
Byggðastofnun og Ferðamála-
sjóður keyptu húsnæði það sem
hótelið er rekið í við Hafnarstræti
á Akureyri í október.
Að sögn Erlings Sigtryggssonar
fulltrúa hjá bæjarfógetaembætt-
inu á Akureyri á þrotabúið ein-
hverjar eignir, m.a. allt innbú á
hótelinu, þá hafa innheimst um
1,6 milljónir króna í útistandandi
kröfum og líklegt að takist að inn-
heimta til viðbótar allt að 300
þúsund krónur, þannig að búið á
tæplega 2 milljónir króna í pening-
um.
Stærstu kröfuhafar eru Bún-
aðarbanki, íslandsbanki og Iðnlána-
sjóður.
Hreinn Pálsson var kosinn
skiptastjóri í þrotabúinu á skipta-
fundinum í gær, en næsti skipta-
fundur í búinu verður 29. nóvem-
ber. A þeim fundi verður tekin
afstaða til umdeildra krafna.
Utvegsmenn Norðurlandi
Munið fundinn á Hótel K.E.A.
nk. laugardag 16. nóvemberkl. 13.00.
Stjórnin.