Morgunblaðið - 14.11.1991, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
>
Sjálfsbjörg:
Ummæli um lyfjakostnað
öryrkja verði dregin til baka
SJÁLFSBJÖRG, landssamband fatlaðra, stendur við ályktun sína um
að lyfjakostnaður örorkulífeyrisþega hafi hækkað, þrátt fyrir opin-
berar yfirlýsingar heilbrigðisráðherra, Sighvats Björgvinssonar, í
fjölmiðlum, þess efnis að athuganir heilbrigðisráðuneytisins hefðu
bent til hins gagnstæða og að í sumum tilvikum hefði lyfjakostnaður
lækkað.
í ályktun Sjálfsbjargar, sem send
var heilbrigðisráðherra, voru tekin
dæmi um hækkun lyfja til tíu ein-
staklinga. í viðtali í kvöldfréttum
Ríkisútvarpsins 5. nóvember sl. seg-
ir heilbrigðisráðherra þau dæmi
vera of fá og því gefi þau ekki til-
efni til þeirrar ályktunar að lyfja-
kostnaður hafi hækkað. Auk þess
kom fram í máli hans að ef sum
þeirra lyfja, sem rætt væri um,
væru róandi lyf af einhveiju tagi,
kæmi það verulega við þá sem
þeirra neyta, þar sem ríkið væri
hætt að greiða niður bæði róandi
og ávanabindandi lyf, nema í und-
antekningartilvikum. Það væri ljóst
að þeir sem neyttu mikils magns
af slíkum lyfjum þyrftu að borga
háar fjárhæðir og væri það um-
hugsunarefni hvort ríkisvaldið ætti
að afhenda ókeypis ávanabindandi
lyf sem notuð væru í miklu magni.
Sighvatur sagðist í samtali við
Morgunblaðið hafa orðið var við
nokkur dæmi um óeðlilega mikla
neyslu lyfja af þessu tagi. Hann
sagði að hægt væri að hafa lyfin
ókeypis eða nýta ákvæði almanna-
tryggingalaga um sérstakar heimil-
ar bætur vegna mikils lyfjakostnað-
ar þannig að fólki væri ljóst að
mikil neysla kostaði mikla ijár-
muni. Hann sagði að síðari kostur-
inn lýsti afstöðu heilbrigðisráðu-
neytisins en landlæknir vildi einnig
fara þessa leið.
ASÍ og BSRB hafa lýst sig ósam-
mála því áliti heilbrigðisráðherra
að ekki sé ástæða til að endurskoða
reglugerð um þátttöku ríkisins í
lyfjakostnaði. Einnig þeim ummæl-
um Sighvats Björgvinssonar í um-
ræddu viðtali, um að breytingar í
lyfjakostnaði hafi almennt ekki
komið illa við aldraða og öryrkja.
Verkamannafélagið Dagsbrún
samþykkti á stjórnarfundi sínum
8. nóvember, að taka undir sam-
þykktir Verkalýðsfélagsins Þórs á
Selfossi, BSRB og ASI vegna um-
mæla ráðherrans. Þar segir:
„Vegna þeirra ummæla ráðherra í
viðkomandi viðtali, að þessir aðilar
séu neytendur ávana- og fíknilyfja
í stórum stíl, krefst stjórn Dags-
brúnar þess að ráðherra dragi þau
ummæli sín til baka og biðji viðkom-
andi afsökunar á þeim.”
Jafnframt hefur Öryrkjabanda-
lagið óskað þess að því sé komið á
framfæri, að fullyrðing Sighvats
Björgvinssonar heilbrigðisráðherra
í þætti Rásar 2 fimmtudaginn 7.
nóvember sl., um að Öryrkjabanda-
lagið sé ósammála Sjálfsbjörgu um
áhrif nýrrar reglugerðar um lyfja-
kostnað á hag öryrkja og aldraðra,
sé ekki rétt. Öryrkjabandalag ís-
lands hafi unnið að því frá því í
júní sl. að fá reglugerð um lyfja-
kostnað breytt og hafi tekist ágæt
samvinna við starfsmenn heilbrigð-
isráðuneytisins um það. Því telji
Öryrkjabandalagið ástæðu til að
harma hinn óvandaða málflutning
ráðherrans í þessu máli.
Þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við ráðherra vegna ummæla
hans í útvarpsþættinum sagði hann
að sér vitanlega hefði stjórn Ör-
yrkjabandalagsins ekki ályktað um
málið. Aftur á móti hefði hann haft
tal af framkvæmdastjóra Öryrkja-
bandalagsins og einum þeirra
lækna sem staðið hefði að sérstakri
úttekt á málinu fyrir Öryrkjabanda-
lagið. Þeir hefðu lýst sig ósammála
þeirri niðurstöðu Sjálfsbjargar að
ný lyfjareglugerð leiddi til mikillar
kostnaðarhækkunar á lyfum fyrir
öryrkja. Nefna mætti dæmi um
lækkun og hækkun á kostnaði en
ef litið væri á heildarhópinn væri
ekki hægt að fullyrða um umtals-
verða hækkun eða lækkun.
Að sögn Jóhanns Péturs Sveins-
sonar, formanns Sjálfsbjargar,.
skapar þessi reglugerð um lyfja-
kostnað réttaróvissu fyrir fólk. „Það
þarf að fá leiðréttingu á þessu og
ég held að það hljóti að takast.”
-----*-M-------
Andóf gegn
eiturefnum
JC-HAFNARFJÖRÐUR heldur
tónleika í Bæjarbíói í Hafnarfirði
í kvöld kl. 20.00 til 24.00. Tón-
leikarnir eru haldnir undir ýfir-
skriftinni Andóf gegn eiturefn-
um.
Andóf gegn eiturefnum er ætlað
til að vekja unglinga'í 8., 9. og 10.
bekkjum grunnskóla til umhugsun-
ar um vímuefnahættuna, en gestur
tónleikanna verður Gissur Guð-
mundsson, rannsóknarlögreglu-
maður, sem hefur mikið beitt sér í
forvarnarstarfi vegna vímuefna.
Einnig kemur Ingi Bæringsson frá
Unglingaheimilinu Tindar. Kynnir
verður Magnús Kjartansson, en
fram koma allar helstu unglinga-
hljómsveitir Hafnarfjarðar og
hljómsveitin Þjófarnir.
FELAGSLIF
St.St.599111147VIII
I.O.O.F. 5 = 17311148'/2 = HK.
I.O.O.F. 11 = 1731114872 =
E.T.1.-9.0.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli 11
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Ræðumaður Garðar
Ragnarsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
Skipholti 50b, 2. hæð.
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomn-
ir.
Y==r7
KFUM
V ADKFUM
Fundur í kvöld kl. 20.30 á Holta-
vegi. Björn Bjarnason, alþingis-
maður, ræðir um stöðu krist-
innar kirkju í breyttri Evrópu.
Hugleiðing séra Hjalti Guð-
mundsson. Kaffi eftir fund.
Allir velkomnir.
fdmhjolp
Samkoma verður í kapellunni í
Hlaðgerðarkoti í kvöld kl. 20.30.
Umsjón: Gerður Kristdórsdóttir.
Samhjálp.
FERÐAFELAG
® ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S 11798 19533
Kvöldvaka miðviku-
dagskvöldið 20. nóv.
Árneshreppur á Ströndum í
roáli og myndum í umsjá Hauks
Jóhannessonar jarðfræðings.
Kvöldvökuefni, sem enginn ætti
að missa af. Kvöldvakan er i
Sóknarsalnum, Skipholti 50a, og
hefst stundvíslega kl. 20.30.
Góðar kaffiveitingar. Nánar aug-
lýst um helgina. Allir velkomnir,
félagar og aðrir.
Munið aðventuferð
Ferðafélagsins
í-Þórsmörk 30. nóv.-1. des.
Ferðin hefur aldrei verið vin
sælli. Pantið tímanlega.
Sunnudagsferðir
17. nóv.
Kl. 13: a. Tröllafoss - Hauka-
fjöll, b. Grímmansfell.
Ferðafélag íslands,
ferðir fyrir alla.
Fundur Alþjóða áhugaleikhúsráðsins
Stjórnarfundur Alþjóða áhugaleikhúsráðsins (IATA/AITA) var haldinn í
Reykjavík dagana 7.-11. nóvember. Fundurinn er sá fyrsti sem haldinn er
í Reykjavík. Hann sóttu 18 fulltrúar víðsvegar að úr heiminum. Sigrún
Valbergsdóttir hefur átt sæti í stjórn ráðinu fyrir hönd Norðurlandanna
undanfarin 6 ár. Sá hún um undirbúning og framkvæmd fundarins í sam-
ráði við Bandalag íslenskra leikfélaga. Myndin er tekin á stjórnarfundi í
Rúgbrauðsgerðinni á laugardag.
Söngvari hljómsveitarinnar Risa-
eðlunnar.
H TÓNLEIKAR verða með hljóm-
sveitinni Risaeðlunni í kvöld,
fimmtudaginn 14. október, á Tveim-
ur vinum. Með þeim á þessum tón-
leikum verður ný sveit sem kallast
Púfn
íslenskir tónar. Morgunbiaðið/RAX
■ HLJÓMS VEITIN íslenskir
tónar heldur tónleika í veitingahús-
inu Duus í kvöld.
■ NÆR 40 ára gömul sovésk
söngva- og tónlistarmynd verður
sýnd í bíósal MIR, Vatnsstíg 10,
nk. sunnudag, 17. nóvember, kl. 16.
Þetta er myndin Stjörnukonsert frá
árinu 1952, en hún var sýnd í íslensk-
um kvikmyndahúsum á sjötta ára-
tugnum. í kvikmyndinni koma fram
margir fremstu listamenn þess tíma
í Sovétríkjunum á sviði tónlistar,
söngs og dans og eru atriðin fjöl-
mörg úr óperum, ballettum og hljóm-
sveitarverkum rússneskra og sové-
skra höfunda. Meðal flytjenda eru
einsöngvarar og sólódansarar Bols-
hoj-leikhússins í Moskvu, Kíróv-óper-
unnar í Leningrad (nú Pétursborg),
Mosiev-þjóðdansaflokkurinn og
Osipov-þjóðlagasveitin. Kvikmyndin
var gerð undir stjórn Ivanovskís og
Ráppaports. Skýringatextar á ensku.
Aðgangur er ókeypis og öllum heim-
ill.
Paul Weeden.
■ SÝNING verður á norsku mynd-
inni Isslottet, sunnudaginn 17. nóv-
ember kl. 14.00, sem byggð er á
skáldsögunni Klakahöllin eftir Tarj-
ei Vesaas og hefur bókin verið gefin
út í íslenskri þýðingu. Myndin er
gerð 1988 og er sýningartíminn 78
mínútur. Tvær 11 ára steplur Siss
og Unn verða góðar vinkonur. Vin-
átta þeirra verður mjög náin og á
eftir að hafa afdrifaríkar afleiðingar
fyrir þær. Myndin er fyrir börn eldri
en tólf ára og er hún ótextuð. Að-
gangur er ókeypis.
(Fréttatilkynning)
■ JASSTÓNLEIKAR verða á
Púlsinum nk. sunnudag þar sem
fram kemur bandaríski gítarleikar-
inn Paul Weeden. Weeden hefur
leikið með mörgum af fremstu jass-
leikurum heims og má nefna stór-
sveit Count Basie. Þetta er í fjórða
sinn sem Weeden kemur til íslands
til námskeiða- og tónleikahalds.
Hann er hér á vegum jazzdeildar FÍH
og Nordjazz. Með Weeden á Púlsin-
um leika Sigurður Flosason á saxó-
fón, Tómas R. Einarsson á kontra-
bassa og Einar Scheving á tromm-
ur. Tónleikarnir heljast kl. 21.30.
Bragðgott og heilnœmt brauð
handa börnum náttúrunnar.
w
*
=>
<