Morgunblaðið - 14.11.1991, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1991
39
w w
Oxulþunga-
reglur á vegum
eftirBjörn Ólafsson
í Morgunblaðinu 2. október sl.
ritar Kristín Sigurðardóttir grein
um bílkrana þar sem hún m.a. fjall-
ar um þungatakmarkanir á vega-
kerfi landsins. í greininni er gefið
í skyn að reglur þar að lútandi séu
ólíkar samsvarandi reglum erlendis
og að túlkun á þeim frá hendi Vega-
gerðarinnar sé tilviljanakennd og
jafnvei háð geðþótta þess sem um
fjallar hveiju sinni.
Til að skýra þetta mál frekar
verður hér reynt að gera grein fyr-
ir gildandi öxulþungareglum og
þeim vinnubrögðum sem viðhöfð
eru við afgreiðslu beiðna um undan-
þágu, þegar um þyngri flutninga
er að ræða.
Leyfður öxulþungi og
burðarþol vega
Á flestum þjóðvegum hér á landi
gildir svonefnd 10/16 tonna öxul-
þungaregla, sem táknar m.a. að
hámarksálag á einn öxul með fjór-
um hjólum er 10 tonn og á tvo
öxla með öxlabil 1,2-2,0 m getur
samanlagt álag orðið mest 16 tonn.
Jafnframt er hámarksþyngd öku-
tækja 39 tonn, en þó eru leyfð 43
tonn á tilteknum vegum, þar sem
ökutæki uppfylla viss skilyrði, m.a.
um bil á milli öxla.
Þessar reglur eru mjög hliðstæð-
ar þeim, sem gilt hafa í nágranna-
löndum okkar, þó að finna megi
minni háttar frávik milli landa. Við
ákvörðun á leyfðum öxulþunga er
sérstaklega haft í huga að öku-
tæki, sem algeng eru í Evrópu,
geti farið hér sem víðast um þjóð-
vegina. Margir þeirra, einkum hinir
eldri, þola þó illa þessa þungu öxla
og sama gildir einnig um eldri brýr.
Við burðarþolshönnun vega er
reiknað með heildarálági á veginn
á endingartíma hans. Heildarálagið
er metið út frá leyfðum öxulþunga
og umferðarspám. Með lítils háttar
einföldun má segja, að vegurinn sé
hannaður fyrir þann íjölda öxla,
sem um hann á að fara samkvæmt
matinu. Fari fleiri öxlar eða þyngri
um veginn styttist ending hans. Þá
geta mjög þungir öxlar valdið var-
anlegum skemmdum á veginum.
Verður þá að leggja í dýrar viðgerð-
ir eða jafnvel endumýjun, sem ann-
ars hefði ekki þurft.
Undanþágur
í reglugerð um stærð og þyngd
ökutækja nr. 107/1988, segir í 14.
gr. „Veghaldari getur leyft meiri
öxulþunga og heildarþyngd öku-
tækja á einstökum vegarköflum,
svo og ákveðið minni öxulþunga á
öðrum, hvort tveggja miðað við
burðarþol brúar eða vega. Þá getur
veghaldari og veitt undanþágu frá
ákvæðum um öxulþunga og heildar-
þyngd ökutækis, þegar brýn nauð-
syn þykir vegna sérstakra flutn-
inga.”
I ýmsum tilvikum er flutningur
það þungur að hann verður ekki
fluttur eftir vegunum, nema leyfð
sé meiri þyngd en hin almenna regla
kveður á um. í ofangreindri reglu-
gerð er jafnframt gert ráð fyrir slík-
um undanþágum.
Eins og áður var getið er ending-
artími vega og brúa háður því að
þeim sé ekki misboðið með of miklu
álagi. Því er það meginregla hjá
Vegagerð ríkisins að veita ekki
undanþágur fyrir yfirþyngd ef
nokkur kostur er að komast hjá því
nema með miklum kostnaði. Þannig
eru ekki veittar undanþágur þegar
um er að ræða auðskiptanlegan
flutning, eins og t.d. malar- eða
sekkjavöruflutninga. Ef hins vegar
um er að ræða flutning, sem erfítt
er að hluta í sundur, eru möguleik-
ar á undanþágu athugaðir, en þar
má nefna ýmsar vinnuvélar, raf-
magnsspenna, hluti í virkjanir o.fl.
Meginreglan er sú að farmur sé
léttur eins og kostur er áður en
undanþága til flutnings er veitt, og
þó helst svo að ekki þurfi undan-
þágu til flutningsins. Til að komast
hjá að létta krana hafa eigendur
þeirra því í mörgum tilfellum dreift
þunga á fleiri öxla með því að setja
aukaöxul undir kranann sjálfan eða
undir bómuna, en þá er krananum
snúið aftur og bóman látin hvíla
þar á.
í grein sinni lætur Kristín að því
liggja að afgreiðsla á undanþágum
sé tilviljanakennd og er miður að
hún telji svo vera.
Eftirfarandi dæmi um undanþág-
ur getur þó gefið tilefni til misskiln-
ings hjá þeim sem ekki þekkja til.
Flytja þarf tvo bílkrana á vinnu-
stað. Segjum svo að báðir kranarn-
ir séu búnir tvöföldum afturöxlum,
þar sem álag má vera 16 tonn sam-
kvæmt almennu reglunni um öxul-
þunga. í heilu lagi vegi afturöxlar
annars kranans 19 tonn, en hins
23 tonn. í þessum tilvikum væri
óskað eftir því að umræddir kranar
væru léttir áður en undanþága er
veitt, t.d. með því að taka af þeim
þyngdarklossa sem oftast eru aftan
á kranahúsinu. Þegar þéir hafa
verið fjarlægðir kæmi svo í ljós, að
þannig vega afturöxlar áðurnefndra
kranabifreiða 17 tonn og 19 tonn.
Fundurinn hefst kl. 20.30 föstu-
daginn 15. nóvember. Anna Olafs-
dóttir Björnsson flytur inngangsorð
landsfundar, en ræðu kvöldsins flyt-
ur Helga Kress bókmenntafræðing-
ur. Málmfríður Sigurðardóttir les
fundargestum pistilinn inn í nótt-
ina. Þessi hluti landsfundarins er
öllum opinn án tillits til stjórnmála-
skoðana.
Venjuleg landsfundarstörf hefj-
ast kl. 9 laugardaginn 16. nóvem-
ber en að þeim loknum flytja Krist-
ín Halldórsdóttir, Lára Björnsdóttir
félagsráðgjafi og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir erindi um ýmsa þætti
aðalefnis landsfundarins.
Unnur Dís Skaptadóttir mann-
fræðingur flytur erindi í laugar-
dagshádeginu um sögulegar breyt-
ingar á fjölskyldugerð og kynhlut-
verkum en að öðru leyti verða á
Björn Ólafsson
„Vegaeftirlit og þá sér-
staklega eftirlit með
öxulþunga og þyngd
ökutækja er því fyrst
og fremst ætlað til að
verja vegakerfið áföll-
um þannig að það nýtist
sem flestum og það sem
lengst.”
Ef vegur og brýr á fyrirhugaðri
leið eru í góðu ásigkómulagi fengju
umræddar kranabifreiðir fararleyfi
hjá Vegagerðinni.
í fljótu bragði gæti virst svo að
hér væri um mjög tilviljanakennd
vinnubrögð aðræða, þar sem þyngri
kraninn fengi undanþágu með 19
tonna þunga afturöxla, þ.e. sömu
þyngd og léttari kraninn fékk ekki
að fara með. Ástæðan er sem sagt
sú eins og áður sagði að því minni
sem yfirþyngd er á vegamannvirk-
in, því lengri er líftími þeirra.
Vegaeftirlit og þá sérstaklega
eftirlit með öxulþunga og þyngd
ökutækja- er því fyrst og fremst
ætlað til að veija vegakerfið áföllum
þannig að það nýtist sem flestum
og það sem lengst.
Höfundur er yfirverkfræðingur
þjónustudeildar Vegagerðar
ríkisins.
laugardaginn almennar umræður
og kynnt drög að áætlunum.
Um kvöldið verður sameiginlegur
kvöldverður í Félagsheimilinu við
Suðurströnd á Seltjarnarnesi.
Sunnudaginn 17. nóvember eru
stjómmál dagsins fyrst á dagskrá,
en framsögu um þau hefur Kristín
Ástgeirsdóttir. Þá verða almennar
umræður og afgreiðsla ályktana.
Helga Siguijónsdóttir framhalds-
skólakennari flytur hádegisverðar-
erindi sunnudagsins og fjallar þar
um næstu skref í kvennabaráttu.
Danfríður Skarphéðinsdóttir flyt-
ur síðan lokaávarp landsfundar.
Landsfundurínn er opinn öllum
kvennalistakonum og er skráning á
skrifstofu Kvennalistans á Lauga-
vegi 17, sem er opin kl. 15-18 virka
daga.
(Ur fréttatilkynningu)
Landsfundur Kvennalistans
„SPINNUM þráð í velferðarvefinn” er yfirskrift landsfundar Kvenna-
listans, sem haldinn verður í Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi dag-
ana 15.-17. nóvember nk. í frétt Kvennalistans segir að fundurinn
muni snúast að verulegu leyti um velferðarkerfið, hvers vegna það
skipti konur svo miklu máli, á hvern hátt aðgerðir núverandi ríkis-
sljórnar snerti hag kvenna og hvernig Kvennalistinn vildi fremur
haga málum.
NIC JANIK oragtir
jfeuAj PojuJL SAMKVÆMIS
FATNADUR
FAXAFENI 5
<
SIEMENS
Litlu raftcekin frá SIEMENS
gleðja augað!
Kaffivélar. hrœrivélar, brauðristar, vðfflujárn
strokjárn, handþeytarar, eggjaseyðar,
hraðsuðukönnur, áleggshnífar, veggklukkur,
vekjaraklukkur, djúpsteiklngarpottar o'.m.fl.
SMm-i&
NORLAND
Nóatúni 4-Slmi 28300